Morgunblaðið - 10.03.1939, Side 3

Morgunblaðið - 10.03.1939, Side 3
Föetudagur 10. mars 1939. MORGUNBLAÐIÐ „Klemm“-f lug vj el- in fer til Horna- fj arðar og norð- ur í Hjaltadal Samtal við flugmanninn Klemm-flugvjelin svonefnda, sem Þjóðverjarnir komu hingað með í sumar, hefir verið tekin til notkunar síðustu daga, sem ef'tar. Á sunnu- daginn var flogið með póst í henni austur í Hornafjörð. En á miðvikudaginn var farið norður að Hólum í Hjaltadal. Það var Örn Johnson er fór báðar þessar ferðir. Hafði blaðíð tal af honum í gær. — Hvað er að frjetta af ferð- inni austur? — Þetta var einskonar reynsluflug með póst. Við vor- um tveir í þeirri ferð, settumst á Skógasand og tókum þar bensín, Ijetum dálítið af pósti íalla niður í Vík og settumst síðan á Kirkjubæjarklaustri, fluttum þangað póst og tókum til baka. Flugum síðan austur yfir Skeiðarársand og austur sveitir til Hornafjarðar, tókum þar póst og fórum síðan til baka. En við náðum ekki hing- að um kvöldið, treystum því ekki að fá nægilega bjart til að lenda er hingað kæmi pg gistum því í Kaldaðarnesi. í ráði er að fara aftur með póst til Hornafjarðar um næstu helgi. ★ Svo var það á miðvikudaginn, að skólastjórinn á Hólum, Kristján Karlsson fjekk flug- ferð heim til sín. Hann hefir verið hjer á Búnaðarþingi og þótti langt að bíða eftir skips- ferð. Við flugum norður yfir Holta vörðuheiði og settumst á Sönd- um í Miðfirði til að taka þar bensín, sem þar var frá því í sumar. — Er ekki hægt að fljúga nema stutt í þessari vjel milli þess sem tekið er' bensín? — Hún getur tekið bensín til 4i/o klst. flugs. Með því að setj- ast í Miðfirðinum, þurfti jeg ekki að taka bensín í bakaleið- inni. — Hvar settust þið á Hól- um? — Við settumst þar á túnið, skamt fyrir neðan bæinn. Það þurfti dálitla aðgæslu við, af því snjór var þar á jörð. En hestar voru á túninu, svo jeg gat sjeð hve snjórinn var djúp- ur. Hann var ekki nema 15—20 cm. Svo þurfti jeg líka að átta mig á skurðum, sem þar eru, af því snjór var yfir þeim. Hefði mjer ekki litist á að setjast þarna, þá hefði jeg flogið til baka vestur á Hjeraðsvatna-* bakka. Svo það hefði ekkert gert til. Svo kom jcg snöggvast við í bakaleiðinni á Sauðárkrók, settist á sandana skamt austan við Krókinn og tók þar póst. j Síðan helt jeg suður. Jeg fór | um Vatnsskarð og Langadal. En j jeg fór yfir Arnarvatnsheiði en j ekki Holtavörðuheiði á suður- í leið. Því þá var bjart veður. ★ — Er hún góð þéssi Klemm v j el ? — Hún er býsna góð, nema hve hún er ekki hraðfleyg. Hraðinn er ekki nema 120 km. á klst. En það er mjög gott að velja sjer lendingarstaði' á henni, þar sem maður er ó- kunnugur, fljúga mjög hægt yfir til þess að geta skoðað lendingarstaðinn gaumgæfilega, áður en sest er. Afmælishátíð Húsmæðraf j elagsins Húsmæðrafjelag- Reykjavíkur hjelt 'hátíðlegt 4 ára af- mæli sitt miSvikudaginn 8. þ. m. Hófst það með sameiginlegu borð- haldi kl. 8% í Oddfellowhúsinu. Voru þar samankomnar um 200 konur, og var gíeðskapur mikill. Skemtunina setti form. fjelags- ins, frú María Thoroddsen, og bauð konur velkomnar. Þá fluttu þessar konur ræður: Frú Guðrún Jónasson fyrir minni fjelagsins; frú Sigríður Sigurðardóttir minni ættjarðarinnar; írú Jónína Guð- mundsdóttir minni kvenna, og frk. María Maack minni karla. Þess á milli var sungið af miklu fjöri. Eftir að borð voru upp tekin hófust skemtiatriði, sem voru, að ungfrú Elly Þorláksson sýndi list- dans, frú Guðný Jónsdóttir og frú Björg Guðnadóttir sungu tvísöng með undirleik frú Guðnýjar á guitar, og sýndur var gamanleik- urinn „Litla dóttirin“, sem var leikinn af nokkrum fjelagskonum. Þá var stiginn dans fram á nótt. Þótti skemtunin takast prýðilega, og voru konur mjög glaðar og ánægðar yfir vexti og viðgangi fjelagsins, enda hafa þær mikinn áhuga á, að fjelagið í framtíðinni geti orðið bæði til gagns og gleði fyrir allar húsmæður bæjarins, og að þær með sameiginlegum átök- um geti hrundið ýmsum áhuga- og hagsmunamálum heimilanna í framkvæmd. Vilhjáimur Þór ð að semja um ameriska lánjð Dr. Wright og fjelagi haiis voru á fundi með ríkis- stjórninni í gæv út af lánstilboði þeírra. Oskaði dr. Wright eftir því, að ríkisstjórnin feli Vilhjálmi Þór framkvæindastjóra að semja við hinn ajneríska banka um hið umtalaða stórlán. Telur hann að með því móti muni beinir samn- ingar geta Irafist milli ríkisstjórn- arinnar og liins ameríska banka. Munnlegt lot'orð hefir ríkis- stjórnin gefið um ]>að að hún gæfi hinuin ameríska banka ákveðið svar hm lárt þettú. -áður 'en hún kyniii að leita til annara um lán. Er heimildarmáður blaðsins að'. þessari frjett' vár spurður að því hver hinn ameríski banki vænj, sagði ’harm að dr. Wright vildi ekki segja frá því. En undir eins og Vilhjálmur Þór fengi umboð ríkisstjórnarinnar til þess að; semja um lánið þá yrði, lionum vísað á bankann þar vestra. Ólafsvíkurbátar lenda í óveðri f Ólafsvík skall á, laus eftir liá- degi í gær, ofsaveður af suð- austri með rigmngu. Allir bátar. voi*u á sjÓ, að einum undantekn- um, sem notaður hafði verið sem. dráttarbátur við afgreiðslu Súð-, arinnar, sem stödd var í Ólafsvík. Bátarnir náðu allir landi í Ól- afsvík, nema tveir, en þeir kom- ust til Sands og náðu landi þar. Annar þessara báta A*arð að fara frá öllum lóðum sínum ódregnum, vegna þess að línusfúfur hafði flækst í skrúfu hans. Hinir bátarnir náðu lóðum sín- um öllum éða mestöllum. Afli A’ar fremur tregur. (FU.). 25 MILJÓN KR. INNAN- LANDSLÁN DÖNSKU STJÓRNARINNAR Khöfn í gær F.Ú. TT^ jármálaráðherra Dana hef- ir á þingi lagt fram til- lögu, sem heimilar stjórninni að taka nýtt lán innanlands að upphæð 25 miljónir króna. Er ætlanin að verja fje þessu að mestu leyti til ýmiskonar við- búnaðar, ef til styrjaldar eða samgönguerfiðleika kynni að draga, þar á meðal 5 miljónum til loftvarna fyrir almenning. Árbók norrænu fjelaganna fyrir 1939 er nýkomin' út. í hana ritar meðal annara Ásgeir Ásgeirsson, fyrverandi fræðslu- málastjóri, um skóla á íslandi. í heftinu eru 11 myndir frá ís- landi, þar á meðal mynd af málverki eftir Svein Þórarins- son. (F.Ú.). 3 Skautadrottniiig á feröatagi Enska skautamærin Megan Taylor varð heimsmeistari í listhlaupi á skautum. Nú er liún nýlögð af stað í sýningaferðalag til Bandaríkj- aima og Kanada, en þaðau heldur hún svo til Ástralíu og Suður- Afríku. —• Mvndin er tekin þegar skautadrotuingin er að kveðja kunningjana á brautarstöðinni í London. Aðalfundur Fjelags Matvörukaupmanna Aðalfundur var baldinn í Fje- lagi matvörukaupmanna í Kaupþingssalnum í fyrrakvöld. Formaður gaf skýrslu vfir síð- asta staffsár og kom víða við. Stærsta áhúgániál matvörukaup- manna er að veittur verði fr.jáls innflutningur á matvörum, og er það ekki nema eðlilegt, þar sem komið hefir í ljós að meiri leyfi hafa verið veitt í þessum vöru- flokkum heldur en nauðsynlegt verður að teljast, þar sem tölu- verður hluti þeirra hefir alls ekki verið notaðtir. Þó fá smákaup- niénn í Reykjavík ekki leyfi til þess að flytja ínn nema lítinn hluta af þeim nauðsj'njavörum sem þeir þvrftu að útvega við- skiftamönnum sínum. Mikil óánægja ríkir meðal fje lagsmanna út af verslunarbrölti þess opinbera með nýja og þurk- aða ávexti. Er öllum óskilanlegt bvaða ástæða sje til þess að taka frekar þessar vörutegundir í liend- ur ríkisins en aðrar. Samþykt var að verða við til i rnælurn Versl unarnjannaf jelags Reykjavíkur um að stvtta vinnu- tíma á föstudögum á vetrum til kl. 6 í stað þess að nú eru búðir opnar til kl. 8. Formaður var endurkosinn Guð- mundur Guðjónsson kaupmaður, einnig þeir Tómas Jónsson og Símon Jónsson meðstjórnendur. Fyrir voru í stjórninni Sigur- björn Þorkelsson og Sigurliði Ivrist jánsson. Fimm línuveiðarar, Gullfoss, Sigríður, Rifsnes, Sæfari og Freyja komu í fvrrakvöld allir með dá- góðan afla, eða frá 120—180 skpd. af fiski eftir 5—7 lagnir. í dag kemur út hjá Máli og menningu síðari hluti af Móðirin eftir Maxim Gorki. Lokakepni um Argentinu skákíör Lokakepni um þátttöku ís- lenskra skákmanna í vænt- aulegri Argentínuför liófst á sunnudaginn var. Þátttakendur eru þessir: Sturla Pjetursson, Sæmundur Olafsson, Ásmundur Ásgeirsson, Baldur Möller, Einar Þorvaldsson, Olafur Kristmundsson, Eggert Gilfer og Steingrímur Guðmunds- son. í fyrstu umferð vann Gilfer Sæmund, Sturla og Steingrímur jafntefli, Ásmundur og Ólafur biðskák. Einar, sem átti að tefla við Baldur, var fjarveraudi. Gilfer bafði svart og' ljek drotn- ingarbragð, sem Sæmundur tók á móti. Gilfer fjekk mjög þrönga stöðn í byrjun miðtaflsins og átti altaf lakari stöðu, þar til Sæ- mundur Ijek manni úr vörninni og lenti um leið í óbjargandi mát- stöðu. Ólafur hafði svart og ljek Franska leikinn. Fjekk lakari stöðu í byrjuninni. Ásm. fórnaði manni fyrir tvö peð í miðtaflinu og náði harðvítugri sókn, en Ól- afur varðist prýðilega og átti betri skák á tímabili, en rjett áð- ur en sltákin skyldi rofin, ljek . hann af sjer manni fyrir peð. Kvöldið eftir gaf hann skákina. " Skák þeirra Sturlu og Steingr. var bardagalaust jafntefli. Önnur umferð hófst í fyrra- kvöld. Ólafur og Baldur jafntefli, Sturla og Sæmundur biðskák, Steingrímur, sem átti að téfla við Einar, og Ásmundur, sem átti að tefla við Gilfer, voru fjarverandi. Skák þeirra Ólafs og Baldurs var viðburðalaust jafntefli. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.