Morgunblaðið - 26.03.1939, Síða 3
Suimudaffur 26. mars 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Þjóðstjórnin
r
Viðræður flokkanna og athuganir á því, hvort vera muni
möguleikar fyrir myndun þjóðstjórnar, hafa haldið
áfram undanfarna viku.
I gærkvöldi stóð málið þannig:
Á fundi í Sjálfstæðisflokknum síðdegis í gær vsr tekin
ákvörðun um það, hvemig svara skyldi brjefi Framsóknar-
flokksins frá 15. þ. m.
I svarinu gerir Sjálfstæðisflokkurinn grein fyrir sinni
afstöðu til stjómarsamvinnunnar og setur fram nokkur ný
atriði, sem hann gerir að skilyrði fyrir samvinnunni. Má
vænta úrslitai í þessu máli næstu daga.
Svo sem kunnugt er hafa viðræður þessar verið bygðar
á því, að þrír aðalflokkar þingsins mynduðu stjóm saman.
En Morgunblaðinu er ekki kunnugt, hvaða afstöðu Alþýðu-
flokkurinn hefir tekið til málsins eða hvort hiann hefir gefið
nokkur endanleg svör enn þá.
Eldsvoði í Hörpu-
götu, kviknaði í
kleinupottarfeiti
Asjötta tímanum í gær kviknaði í húsi Árna
Strandberg á Hörpugötu 14 við Skerjafjörð.
Er þetta einlyft timburhús með risi og há-
um kjallara.
Húsið stórskemdist, en í kjallarann komst þó eldurinn ekki. Það.
var kl. 5.18 að símavörður á Slökkvistöðinni tók á móti upphringingii
um eldsvoðann.
)------------------------
Birger Ruud stekkur
(Myndin var tekin í gær af Vigfúsi Sigurgeirssyni ljósmyndara)
( En honum heyrðist sagt, að eld-
ur væri í hiisi við Vesturgötu 34,
endurtók það í símann og fanst
sá sem hringdi jánka því. Fór
slökkviliðið þangað. En símaði á
slökkvistöðina, er þangað kom, og
þá voru komin þar ítrekuð boð
um að eldurinn væri á Hörpu-
götu.
En þetta varð til þess að það
liðu rúmlega 5 mínútur frá því
fyrst var hringt á slökkvistöðina
og þangað til slökkviliðið kom á
vettvang.
Er þangað kom stóð eldurinn!
út um báða stafna hússins. Tók
það slökkviliðið einar 20 mínútur
að vinna algerlega bug á eldinum.
í skrifpúlti í stofu í vesturenda
hússins hafði Strandberg geymdar
sparisjóðsbækur og eitthvað af
peningum. Skýrði hann slökkvi-
liðsstjóra frá, hvar þetta væri og
bað um að reynt yrði að bjarga
þessu. Tókst að bægja eldi svo frá
atofu þessari, að tveir menn kom-
ust að púltinu og náðu því ó-
skemdu sem þar var.
Bakarí er í húsinu, og voru
nokkrar mjölbirgðir í kjallaran-
um. Var þeim bjargað lítt skemd-
um.
Eldsupptökin.
Eldurinn kom upp á þann hátt,
að kviknaði í feiti í potti. Ætlaði
kona Árna Strandberg að steikja
kleinur í eldhúsi íbúðarinnar, sem
er í austurenda hússins. En með-
an feitin var að hitna var konan
niðri í kjallara að hnoða deig.
Þegar hún kom aftur upp í eld-
húsið var kviknað í feitinni í
pottimim.
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Flutningar austur
að Hveradölum
í dag
Engu er hægt að spá um þaS,
hve margir fara á Skíða-
mótið í HveVadötum í dag. ELn
varla verður hjá því komist, að
örðugt verði m<& koma öllum
austur, sem fara vilja.
I gærkvöldi voru 600—700
manns búnir að kaupa farmiða
hjá L. H. Muller. Fólk þetta
verður flutt í stóru Steindórs-
bifreiðunum. Samtals er gert
ráð fyrir að fluttir verði 1000
manns, á vegum Skíðafjelags
Reykjavíkur, með stóru Stein-
dórsbifreiðunum. En til þessara
flutninga hefir Steindór aðeins
stóru bifreiðarnar, því a,ð 7
manna og 4 manna bifreiðamar
eru leigðar öðrum beint frá
stöðinni og var búið að panta
allar 7 manna bifreiðarnar og
flestar 4 manna bifreiðarnar í
gærkvöldi.
Eins var um bifreiðar hjá
öðrum bifreiðastöðvum ; var bú-
ið að leigja þær flestar í gær-
kvöldi.
Flutningarnir eiga að hefjast
kl. 8 f. h. Ferðin austur tékur
um klukkustund og er færðin
yfirleitt góð.
Leikfjelag Reykjavíkur hefir
tvær sýningar á gamanleikuum
Hxirra-Krakki í dag. — Sú fyrri
er kl. 3, en sú síðari kl. 8, og er
það síðasta sýning á þessum gam-
anleik.
Jón Þorsteinsson
stekkur 45 metra
á skiðabraut
í. R.-inga
ón Þorsteinsson skíðakappi
stökk 45 metra er hann vígði
skíðastökkbraut í. R.-ing-a við
Kolviðarhól í gær. Vígslan fór
fram síðdegis.
Fjórir Siglfirðingar úr Skíða-
fjelagi Siglufjarðar framkvæmdu
vígslunav S.tukku þeir í þessari
röð:
Jón Þorsteinsspn 45 m.
Stefán „Þórarinsson 45 m. (en
datt og stökk aftur, þá 42 m.).
Asgrímur Stefánsson 37 44 m.
Þorkell Benónýsson 35 in.
Fjöídi áhorfenda horfði á stökk-
in og Ijet óspart í ljós fögnuð
sinn.
Undanfarna daga hafa sjálf-
boðaliðar unnið að því af mikilli
elju að bera snjó í stökkbrautina.
I DAG:
Birger Ruud mun hafa hug á
að stökkva af Kolviðarhóls-
stökkbrautinni í dag, að lokn-
um stökkunum í Flengingar-
brekku.
ÍSLENSK MÁLVERK
SELD.
Asýningu þeirri, sem Norræna
svartlistarsámbandið (Nord-
;isk Gránslc IJnioil) hefir nú að
undanförnu haldið í Finnlandi,
;hefir Ríkissafnið í Helsingfors
keýpt fjórar íglenskar myndir:
Uppi á fjöllum, eftir Guðmund
Einarsson; Við höfnina, eftir
Gunnlaug D. Seheving; „Konan
inín“, eftir Jón Engilberts; Detti-
foss, eftir Svein Þórarinsson.
Bándalag íslenskra listamanna.
er í Nordisk Grafisk Union. (FB).
Jón Þorsletns-
son vann
svlgkepnina
Q viskepnin í gær við
Skíðaskálann fór þann-
ig, að fyrstur varð Jón Þor-
steinsson úr Skíðaf jel. Siglu-
fjarðar á 93.5 sek. saman-
lagt.
Annar varð Jónas Ásgeirs
son (Skíðaborg) á 98.4 sek.
og brið.ii Magnús Kristjáns-
son (Einherjar Isaf.) á 100.2
sek. samanlagt.
Aðalverðlaun Voru silfurbikar,
sem Litla Skíðafjelagið gaf á 25
ára afmæli Skíðafjelags Reykja-
víkur og var kept um hann nú í
fyrsta skifti.
Tími fjögra bestu manna úr
bverju fjelagi er lagður saman og
það fjelag, sem fær stystan tíma
lilýtur bikarinn. Að þessu sinni
vann K. R. bikarinn, átti 6., 7., 8.
og 11. mann. Samanlagður tími
Jteirra var 443.2 sek. Næst varð
Skíðaborg' með 151.0 sek. Þriðja
Amiann með 502.4 sek. og Ein-
heíjar höfðu 523.4.
Svigkepnin fór fram í fjallinu
fyrir ofan Skíðaskálann. Strax í
gærmorgun fóru að koma stórir
hópar af áhorfendum. Fyrsti bíll-
inn koin kl. 844; en um það leyti
Sem kepnin hófst voru komnir nm
50 stórir og litlir bílar og mun
ekki of mikið sagt, að um 800—
1000 manns hafi verið þarna. —
Veður var hið besta fyrri hluta
dags, heiðskírt og kyrt, en um
hádegi dró ský fyrir sólu. Þó
hjelst kyrt og gott veður allan
daginn.
Svigbrautin var um 450 metrar
á lengd. Hún var skemtilega lögð,
en ekki eins erfið og svigbrautin
á Reykjavíkurmótinu í vetur.
Birger Ruud opnaði brautina.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Þúsund manns
sáu Birger Ruud
slðkkva þrjú
stökk í gær
t"\EGAR svigkepnin var
*** hálfnuð í £ær, var til-
kynt að Birger Ruud myndi
stökkva reynslustökk af
pallinum í Flengingarbrekku
að kepninni lokinni, um kl;
3y9: Vakti þessi tilkynninef
mikinn fögrnuð mannfjöld-
ans os: þó kl. væri ekki nemá
rúmleffa 2 fóru nokkrir begr-
ar að leerrja af stað upp að
stökkpalli.
Birger Ruud fór sjálfur upp að
stökkpalli um líkt leyt.i og bvrj-
aði að vinna við stökkbrautina, og
leggja sjálfur á ráðin, livernig
hún ætti að vera.
Klukkan um 344 voru brekkf
urnar við stökkpallinn orðnar full-
ar af fólki, enda var þar saman-
komið um 1000 manus.
Birger Ruud stökk 3 stökk.
Strax í byrjun, áður en hann
stökk, kvartaði hann undan því,
að renslið væri glæmt, enda not-
aði hann skíðastafi sína til að
ýta sjer áfram og fá með því
meiri ferð.
Fjöldi myndavjela voru þarná
á lofti og tveim kvikmyndavjel-t
um var beint á stökkpallinn. Er
áhorfendur sáu, að Birger Ruud
var þominn efst á aðrenslisbraut->
ina hófust mikil fagnaðarlæti.
Ruud fór frani af pallinum að
manni virtist með geysimikillí
ferð. Hann beitti skíðunum dálítið
upp á við og sveif í loftinu í ca.
20—30 in. hæð (frá jafnsljettu).
Lendingin var örugg og viss, og
skamt hafði hann farið á sljett-
unni, er bann stöðvaði sig alt í
einu með Christianiu-svéiflu,
Mannfjöldinn klappaði og hrópaði
og Ruud stökk annað stökk og
það þriðja.
Síðasta stökkið var fallegast og'
stökk hann þá 39 metra. Hann
sagði að ekki væri hægt að ná
jafnlöngu stökki nú eins og á;
föstudag, vegna þess hve færið
var slæmt.
I dag verður borið á aðrenslis-i
brautina, ammoniak og saltblanda.
Yið það frýs snjórinn niður í alt
að því 22 stig, þó sól verði á lofti
— eða rigning. Við það verður
færið betra, og stökkið væntan-
lega lengra.
Bandarikin gera
ráðstafanir gegn
loftárásum!
Hermálaráðherra Bandaríkj-
anna skýrði frá því í gær
að Bandaríkin væru að undirbúa
ráðstafanir til þess að verja al-
menning- í loftárásum.
Hami sagði, að Bandaríkin
þyrftu að vísu ekki, að svo stöddu,
að óttast loftárásir, en Jiar sem
flugtækninni fleygði fram, væri á-
stæða til að fara að hugsa um
svipaðar loftvarnaráðstafanir og
aðrar þjóðir hafa gert. (Einkask.)