Morgunblaðið - 19.04.1939, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. apríl 1939.
Fregnir um að Danzig
verði afmælisgjöf
til Hitlers
Bretar og Frakkar
reyna að koma i
veg fyrir styrjöld
K.R.-stúikurn-
ar í Kiiijfn
P Frá frjettaritara vorum.
BERLÍN býr sig undir hátíð. Á morgun verður
Hitler fimtugur, og í tilefni af því hefir öll-
um flugvjelum verið bannað að fljúga yfir
Berlín og umhverfi frá því í kvöld klukkan 7 þar til á
morgun klukkan 8. Því hefir líka verið lýst yfir, að þetta
svæði myndi verða varið af þýska hernum.
Hið ótrygga ástand í álfunni setur þannig svip sinn á af-
mælisdag þýska foringjans. Sá orðrómur gengur í Englandi, að
J?jóðverjar ætli að gefa Hitler í afmælisgjöf innlimun Danzig í
þýska ríkið.
TILRAUN BRETA OG FRAKKA
Breska frjettastofan, sem skýrir frá þessu, bætir því við, að
álitið sje að Bretar og Frakkar sjeu að reyna að fá Pólverja til
þess að sætta sig við þetta og grípa ekki til vopna, svo að komið
verði í veg fyrir að þetta mál, sem talið er tiltölulega lítilvægt,
verði orsök heimsstyrjaldar. Sumir gera ráð fyrir, að Pólverjar
beygi sig.
En meðal Pólverja í London er því afdráttarlaust haldið
fram, að Pólverjar hafi neitað jafnvel að taka það til yfirveg-
unar að láta Danzig af hendi.
Þjóðverjar eru nú sagðir hraða því mjög að gera varnar-
virki úr járnbentri steinsteypu og skriðdreka varnir við pólsk-
þýsku landamærin.
KRÖFUR HITLERS OG MUSSOLINIS
Margir blaðamenn í Berlín skýra frest þann, sem Hitler
hefir tekið, áður en hann ætlar að svara Roosevelt, á þá leið, að
hann vilji hafa afgreitt Danzigmálið áður en ríkisþingið kemur
feaman. En ríkisþingið kemur, eins og kunnugt er, ekki saman
fyr en 28. apríl. Hefir þessi langi frestur komið á óvart í Eng-
landi og Frakklandi. Það er nú fullyrt, að Hitler muni neita
að verða við tilmælum Roosevelts um að lofa að ráðast ekki á
þær 31 þjóðir, sem forsetinn taldi upp. Er talið, að Hitler muni
í ræðu sinni gera grein fyrir kröfum Þjóðverja og ítala um end-
urskoðun á landamærum í Evrópu og í Afríku.
fslensku stúlkurnar á fimleikasýningunni í K. B.-salnum í Khöfn.
Nýtt út-
varpsráð
Afundi í sameinuðu þingi í
gær voru kosnir 5 menn í
útvarpsráð, samkvæmt nýju lög-
unum, sem samþykt voru á þessu
þingi.
Þessir voru Rosnir; Yaltýr Stef-
ánsson og Arni Jónsson frá Múla
af lista Sjálfstæðisflokksins; Jón
Eyþórsson og Pálmi Hannesson af
lista Framsóknar; Finnbogi R.
Valclimarsson af lista Alþýðu-
flokksins.
Varamenn þessir: Bjarni Bene-
diktsson prófessor, Páll Stein-
grímsson fyrv. ritstjóri, Sigurður
Baldvinsson póstmeistari, Sigurð-
ur Thorlacius skólastjóri og Guð-
jón Guðjónsson skólastjóri.
Heimsókn
til Hjálpræðis-
hersins
Samtímis heldur stríðsviðbún-
aður áfram um allan heim.
. Holland: Stjórnin gaf í dag
þt tilskipun, sem framlengir
herþjónustutímann úr 11 mán-
uðum í 24 mánuði. Sagt er að
þessi ráðstöfun hafi verið gerð
til þess að hægt sje að hafa
altaf fult lið í landamæravirkj-
unum.
England: Chamberlain hefir
gefið í skyn að bráðlega muni
verða skipaður ráðherra, sem
hafi umsjón með aðflutningum
þjóðarinnar (Churchill hefir
verið talinn líklegur í þetta
embætti). Matvælaskömtun hef
ir verið undirbúin. Sextíu milj-
ón skömtunarkort eru útbúin.
Loks hafa verið skipaðir um-
sjónarmenn í tólf fylkjum, sem
taka eiga yfirstjórn í þessum
fylkjum, ef samgöngur slitna
víð þau í styrjöld.
Suð-vestur Afríka (áður þýsk
rýlenda) : Á fjórða, hundrað
lögregluþjónar frá Höfðaborg
hafa verið sendir til suð-vestur-
Afríku, samtímis því, sem verið
er að undirbúa lög, sem fela
lögreglustjóranum í Höfðaborg
yfirstjórn lögreglumála þar. Er
kunnugt, að Þjóðverjar í ný-
lendunni eru skipulagðir í fje-
lagsskap, og er óttast, að óeirða
kunni að vera af þeim að vænta
ef styrjöld hefst.
Bandaríkin: Roosevelt sat á
ráðstefnu með fjármálasjer-
fræðingum sínum í dag til þess
að undirbúa ráðstafanir, sem
gera verður ef styrjöld skellur á
í Evrópu.
Svíþjóð. Sænska stjórnin leggur
fyrir þingið tillögur um það (skv.
FtJ.), að ef til ófriðar komi, þá
skuli ríkisstjórnin fá í sínar hend-
ur yfirumsjón með allri dreifingu
lífsnauðsynja, öllum verksmiðjum,
sjúkrahúsum og samgöngutækjum.
Ennfiemiir er gert ráð fyrir því
í tillögununj. að stjórnin fái vald
til að ákveða hámarksverð á vör-
um, ef nauðsyn krefur.
Þriggja ára telpa
lærbrotnar i bilslysi
Það slvs vildi til á Sjafnargötu
í gærdag klukkan tæpiega
3, að þriggja ára gönnd telpa varð
fyrir bíl og lærbrotnaði. Var hún
flutt á Landsspítalann.
Slysið vildi þannig til, að bíll
hafði verið stöðvaður fyrir utan
húsið nr. 5 við Sjafnargötu. Er
honum var ekið af’ stað aftur- tók
bílstjórinn eftir því að eitthvað
varð fyrir bílnum, og er hann
stöðvaði bílinn kom í ljós að litla
telpan hafði orðið unclir einu hjóli
bílsins.
Sólmyrkvi
i dag
Ef heiðskírt verður í dag,
mut: sjást hjer í Reykjavík
deildarmyrkvi á sólu, sem
hefst kl. 3.50 og stendur til
kl. 5.36. — Stendur hæst
k’. 4.54.
Hinn nafnkunni æskulýðs-
leiðtogi O. Westby, ob-
erst kom hingað til landsins
með e.s. ,,Lyru“ í fyrrinótt og
dvelur hjer í Reykjavík til 25.
þ. m. en þá fer hann til ísa-
fjarðar og dvelur þar í 8 daga,
heldur svo áleiðis til Siglufjarð-
ar og Akureyrar.
I 38 ár hefir ofurstinn starí'-
a,ð sem Hjálpræðishersforingi
og hefir mest allan þann tíma
verið tengdur við starf meðal
barna og æskulýðsins. Síðast-
liðin 6 ár hefir hann verið full-
trúi æskulýðsstarfsemi „Hers-
ins“ 1 Noregi.
Ofurstinn heldur hjer sam-’
komur bæði fyrir börn og full-
orðna. í sambandi við samkom-
urnar sýnir hann fræðandi, og
skemtilegar kvikmyndir frá
starfi Hjálpræðishersins.
Kveðjusamsæti var Georg Tufv-
esson, skíðakennara I. R., haldið
í gsei'kvöldi að Hótel Borg. Hófst
það með boi-ðlialcli. Frá í. R. var
Tufvesson afhentur fagur silfur-
bikar til minningar um dvöl hans
hjer og frá námskeiðsfólki vikuna
6.—1L mars pappírslinífur út-
silfri. Hvorir tveggja gripirnir
hinir fegurstu, gerðir af Leifi
Kaldal. Dansað var við mikið fjör
og gleðskap fram eftir nóttu. Á
hófinu var 8igurður Guðmundsson
dömuklæðskeri sæmdur Kolviðar-
hólsmerkinu.
„Commander Evens“, enski tog-
arinn 'sém tók niðri í Háfnarfirði
í fyrrakvöld, kom hingað í gær
og var tekiim í Slippinn til eftir-
1 its.
35 þýsk
herskip fara
til Spánar
Heræfingar
Rússa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
"J-j rjátíu og fimm þýsk
herskip, þ. á m. tvö
„vasa“ orustuskip og tvö
beitiskip sigldu úr höfn í
Kiel og Wilhelmshafen í
dag og söfnuðust saman
við Helgoland. Þaðan
leggja þ'311 af stað til Spán-
arstranda og verða komin
þangað fyrir lok vikunnar.
★
Spánski herinn, sem í
gær var sendur til Sevilla
til þess að taka þátt í her-
sýningu, er nú kominn aft-
ur til La Linea í nánd við
Gibrteltar.
13 frönsk herskip, þar á
meðal 2 orustuskip og 2
heitiskip, liggja nú undan
Gibraltár, en Bretar vinna
af kappi að því að gera
varnir sínar í Gibraltcr sem
öruggastsr. (F.C.).
★
Stærstu flotaæfingar,
sem Rússar hafa nokkru
sinrsi haldið, byrja á af-
mælisdag Hitlers í Eystra-
salti, Norður-ísh.í finu,
Svartahafi, og Kyrrahafi.
Talið er að lokið hafi
verið við byggingu á hinni
rsýju herskipahöfn Molo-
tovsk, nálægt Ark&ngelsk.
Eru þar stórar skipasmíða-
stöðvar.
I brjefi til L. H. Miiller kaup-
manns skrifar Birger Ruud um Is-
landsför sína: ,,Þetta var okkar
langbesta og í alla staði skemti-
legasta ferðalag, sem við höfum
farið í út fyrir landsteinana. Við
höfum ekki nema yndislegustu
endurminningar frá íslandi11 í
brjefinu biður Ruud Miiller að
skila sínum bestu kveðjum til
allra kunningjanna hjer í bæ.
Ferðafjelag íslands áformar að
byrja skemtiferðir sínar á þessu
ári á sumardaginn fyrsta og ráð-
gerir að fara tvær ferðir: Skíða-
og gönguför á Esju. Farið í bíl-
um upp í Kollafjörð og gengið
upp hlíðina um Gunnlaugsskarð
og á hæsta tincl Esju. Skíðabrekk-
ur eru ágætar bæði austan við Há-
tind og norðan í fjallinu, og í
björtu veðri er ákaflega víðsýnt.
(Hátiiidur í)09 in.). — Hin ferðin
er göngufór á Valhúsahæð, en þar
er útsýnisskífa F. I.. verður hún
sýnd og lýst f jallahringnum kring-
iiin Revkjavík. Þeir sem verða með
í ferðinni safnist, saman á Lækj-
artorgi kl. 1 e. tí. og verður geng-
ið fram og til baka fram á Nes.
Farmiðar að Esjuförinni selclir á’
skrifstofu Kr.' (). Skagfjörðs, Tún-
götu 5, til kl. 6 í kvöld og lagt
á stað um morguninu kl. 8.