Morgunblaðið - 22.04.1939, Qupperneq 7
Laugardagur 22. aprfl 1939.
□agbúfe.
Hl Helgafell 59394257 - VI. - 2.
Lokafundur.
Veðurútlit í Rvik í dag: Stilt
og bjart veður. Gengur í SV- eða
S-átt með kvöldinu og þyknar upp.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5):
Norðanlands er vindur N eða NA
með dálítilli snjókomu. Annars-
staðar er V-læg átt með skúra- og
jeljaveðri um SV-hhita landsins.
Ný lægð er við S- og V-Grænland.
Næturlæknir er í nótt Evþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Messur í Dómkirkjunni á morg-
un: Kl. 11, síra Bjarni Jónsson.
(Perming). Kl. 2. síra Friðrik
Hallgrímsson. (Ferming).
Messað í Fríkirkjunni á morg-
uri kl. 12, síra Ariti Sigurðsson.
(Ferming).
Messað í Laugarnesskóla á morg
un- kl. 5, síra Garðár Svavarsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.
Messað í Fríkirkjunni í Hafnar-
firði á morgun kl. 2 (sumarkom-
ari), síra Jon Auðuns.
Dánarfregn. Guðmundur Bjarna-
son klæðskerameistari andaðist í
fyrrádag að heimili sínu hjer í
bænum. Hafði hann átt við larig-
varandi variliéilsu að stríða.
Trúlofun. Á sumardaginn fyrsta
opinberuðu trúlofun sína í Kaup-
mannahöfn Helga Ida Fenger og
J. W. Gotfredsen.
Trúlofun. Á sumardaginn fyrsta
opinberuðu trúlofun sína Kdith
Rusmus í Málleysingjaskólanum
og Ingibergur Sveinsson bílstjóri,
Hringbraut 61.
Jón Jónsson verkamaður, Njáls-
götu 4B, er 49 ára í dag, t'æddur
:22. apríl 1890. Jón hefir átt heima
hjer í bænum síðan 1913. Hann er
góður fjelagi í Málfundafjelagiriu
’Óðinu, og góður Sjálfstæðismaður.
Hanri er nú þjakaðúr af Örbirgð
•og allsleysi, vegna undanfarins at-
vinnuleysis og erfiðum heimilisá-
stæðum. Því miður get jeg ekki
glatt hann með afmælisgjöf og
boðið honum þamiig gleðilegt sum-
ar. En væri einhver góður maður,
sem vildi gleðja hann, þá væri það
fallegt verk, sem mundi veita hou-
um þrek þar til úr rætist um at-
vinnu fýrir honum.
Óðinsfjelagi nr. 251.
Af veiðum komu í gær: Brimir
með lítinn afla, enda búinn að
vera stútt á veiðurn. Hilmir kom
með 60 föt lifrar og Þórólfur með
50 föt:
Til Hafnarfjarðar komu af veið-
um í gær, togarinn Maí með 88
föt lifrar eftir 13 sólarhringa úti-
vist, og Sviði með 84 föt eftir 12
daga útivist.
Gestir í bænum. Hótel Borg.
Skúli K. Eiríksson kaupm., ísa-
firði.
Fóstbræður endurtaka samsöng
sinn í Gamla Bíó á morgun kl.
:2Hafa þeir sungið tvisvar að
þessu sinni og fengið mjög góðar
undirtektir áheyrenda. Ættu sem
flestir að nota tækifærið á morg-
un og hlýða á þenna vinsæla og
ágæta kór.
Knattspyrnufjelagið Haultar í
Hafnarfirði hjelt hátíðlegt 8 ára
afmæli sitt að Ilótel Björninn síð-
astliðið laugardagskvöld. Skemt-
unin var mjög vel sótt, mörg
skemtiatriði viðhöfð, ræður flutt-
ar, m. a. af Ben. G. Waage, for-
seta 1. S. I., og síðan dansað.
Knattspyrnufjelagið Ilaukar var
stofnað 12. aprfl 1931 af riokkr-
uni unglingspiltum. Nú er þsð
stærsta íþróttaf.jelag Hafnarfjarð-
ar, með 300 meðlimum, konum og
lcörlum.
Póstur, sem á að fara til Eng-
lands með „Eddu“, verður að vera
kominn á pósthúsið fyrir hádegi
í dag.
Dansleik heldur S. G. T. í G. T.-
húsinu í kvöld.
Ríkisskip. Súðin var á Akureyri
í gærkvöldi.
Eimskip. Gullfoss kemur til
Vestmannaeyja í dag. Goðafoss er
í Hamborg. Brúarfoss kom til
Aberdeen kl. 3 í gær og fór það-
an kl. 6. Dettifoss er í Reykjavík.
Lagarfoss er á Akurevri. Selfoss
er á leið til Rotterdam.
Ferðafjelag íslands ráðgerir að
fara gönguför á Keili og Trölla-
dyngju á morgun. Ekið í bílum
suður að Kúagerði og gengið það-
an á Keili og Trölladyngju yfir
Dyngjuhraun niður með Sveifiu-
hálsi og á hinn nýja Krísuvíkur-
vég og þaðan ekið heimleiðis. Leið-
in er mjög sþemtileg og gaman
að ganga á Keili, en Trölladyngja
og umhverfið sjerkennilegt. Lagt
á stað kl. 8 árdegis, ög farið frá
Steindórsstöð. Farmiðar seldir í
Bókaverslun Isafoldarprentsmiðju
til kl. 6 í kvöld.
I. R.-ingar efna, til skíðaferða
Úm helgina, að Kolviðarhóli. Farið
verður J kvöld kl. 8 og í fyrra-
málið kl. 9. Lagt af stað frá Sölu-
turninum. Farseðlar í Stálhús-
gögn til kl. 6 í kvöld.
Árxrenningar fara í skíðaferð í
Jósefsdal í kvöld kl. 8 og í fyrra-
málið kl. 9. Farmiðar seldir í
Versl. Bryriju og á skrifstofu fje-
lagsins kl. 7—8 í kvöld og við
bílana í fyrramálið. Fafið verður
frá íþrótiahúsinu við Lindargötu.
íþróttafjelag kvenna fer í skíða-
ferð á morgun, ef veður leyfir.
Lagt verður af stað frá Gamla
Bíó kl. 8% f. h. Farmiðar fást í
Hattabúðinni „Hadda“ til kl. 6 í
lcvöld.
Allir K. R.-ingar eru beðnir að
mæta riiður á hafnarbakka þegar
Gullfoss kemur, til að taka á móti
kvenflokki fjelagsins. Forseti í.
S. L, Benedikt G. Waage, ávarpar
flokkinn.
Skemtifundur K. R. Annað kvöld
kl. 8Vá heldur K. R. skemtifund
í K. R.-húsinu, til að fagna. heim-
komu hins fræga kvenflokks fje-
lagsins. Formaður K. R., Erlend-
ur Pjetursson, ávarpar flokkinn
með ræðu. Því næst verður söng-
ur með guitarundirleik. Benedikt
Jakobsson fimleikastjóri segir frá
Danmcrkurförinni. Billieh píanó-
sóló og Valenta fiðlusóló. Að lok-
um verður dans stiginn. Keppend-
ur K. R. í báðum víðavangshlaup-
unum eru boðnir á fundinn. K.
R.-ingar munu áceiðanlega fjöl-
menna á þennan skemtifund.
Jarðarför Halldóru Vigfúsdótt-
ur fór fram í Vestmannaeyjum
síðasta vetrardag að viðstöddu
miklu fjölmenni. Stjórn Kvenfje-
lagsins „Líkn“ bar kistuna í
kirkju, en stjórn Oddfellowstúk-
unnar „Herjólfur“ úr kirkju. Síra
Halldór Kolbeins jarðsöng.
Vestmannaeyjabátar afla lítið
ennþá. í gær fengu hæstu bátar
um 1000 fiska, en sumir ekki nema
200. Einn bátur er búinn að taka
upp nct sín og býst nú á drag'-
nótaveiðar, þar sem afli er svo
tregur í net að sú útgerð borgar
sig ekki, símar frjettaritari vor í
Eyjum.
200 tunnur af smásíld veiddist
í fyrrinótt í ísafjarðarbotni. Ann-
ars hafa aflabrögð verið lítil við
Djúp undanfarið og tíð stirð, sím-
ar frjettaritari vor á Isafirði.
Det Dánske Selskab i Reykja-
vik heldur samkomu að Hótel
Borg í kvöld. Þar flytur Guð-
brandur JÓnsson prófessor erindi
MORGUNBEAÐItí
i ..-... i miiA
um Jörund hundadagakonung, og
síðan verður dansað.
Prestskosning. Á morgun fer
fram prestskosning á ísafirði.
Tyeir umsækjendurnir, þeir síra
Jón Auðuns og síra Guðmundur
Helgason á Staðastað, hafa tekið
umsóknir sínar aftur. Eru þeir því
5 sem í boði eru.
Knattspyrriufjel. Fram. Æfing
í kvöld hjá ni. fl. kl. 7—8 og
II. fl. kl. 8—9. í fyrramálið kl.
9—10 hjá II. fl. og 10—11 hjá
Meistaraflokki.
Drengjahlaup Ármanns fer fram
í fyrramálið kl. 10Vá- En það er
venja að þetta hlaup fari fram
fyrsta sunnudag í sumri. Þátttak-
endur verða nú alls 45 frá fimm
fjelögum. Frá Fimleikafjel. Hafn-
arfjarðar erii 13, Ármanni 10, K.
R. 9, í. R. 6 og í K. 6. Hlaupið
hefst í Vonarstræti hjá Iðnó.
Illaupið upp Suðurgötu, kringum
Iþróttavöllinn, niður Skothúsveg
og endar í Lækjargötu hjá Amt-
mannsstíg. Kept yerður um riýjan
grip, sem EggerT Kristjánsson
stórkaupmaðuj: hefir gefið. Ætl.
ast er til að keppendur og starfs-
menn mótsins 'mæti stundvíslega.
Nýja Bíó sýnir í kvöld tvær
rjiyndir. Kl. 6 er barnasýning og
ýerður þá sýnd ný Shirley Temple
úiynd, sem heitir „Tápmikla telp-
an“. KÍ. 9 verður svo sýnd hin
•oftirtektarverða aineríska kvik-,
ípynd „Hvíta ambáttin“, með Bette
Devis í aðalhlutverkinu. Hefir sú
rnynd verið sýnd við mikla að-
sókn í nokkur kvöld. -.......
K. R.-ingar fara í skíðaför í
dag kl. 2 og í kvöld kl. 8. Lagt
af stað frá ,K. R.-húsinu.
Hvumleitt og leiðinlegur óvani
er það, þegar Lúðrasveit Reykja-
víkur leikúr' iiti, eins og t. d. á
sumardaginn fyrsta, að þá þyrp-
ist fólk í kringum hana og kæfir
músíkina áð meate, svo að aðrir
áþeyrendur, ^m, lengra stauda í
burtu, til þess að njóta sem best
leiksins, lieyra lítið sem ekki neitt,
þar að auki eru þetta áreiðanlega
óþægindi fyrir blásarana. Næst
þegar L. R. lætur til sín heyra,
ættu áheyrendur að hafa það hug-
fast að troða sjer ekki svona
nærri, þar sem músíkin nýtur sín
best í hæfilegri fjarlægð.
K. F. U. M. Almenn samkoma
annað kvöld kl. SþA Magnús Run-
ólfsson talar. Allir velkomnir.
Norðmenn hafa nýlega sent
til Spánar 11510 pakka af salt-
fiski í vöruskiftaverslun, sem ný
lega var samið um. (F.Ú.).
Til Strandarkirkju. Afh. Mbl.:
Ónefndur í ÁrnésSýslu ‘5 kr. Björn
í Viðey 10 kr. Ónefndur (gamalt
áheit) 15 kr. S. 1 kr. Onefndur 5
kr, Ingvi 5 kr. S. S. 5 kr.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Afh. af sr. Sigurjóni Guðjónssyni
kr, 300.00 í byggingarsjóð kirkj-
unnar frá X-þY—Z. —- Inuilegftr
þakkir. Ól. B, Björnsson.
Útvarpið:
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Dönskukensla, 3. fl.
18.15 Dönskukensla.
18.45 Enskukensla.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettír.
20.15 Erindi: Leitin að höfundi
Njálu, IV.: Regn á Bláskóga-
lieiði (Barði Guðmundsson þjóð-
skjalayörður),
20.45 Hljómplötur: Lög ieikin á
celíó.
21.00 Karlakór Revkjavíkur syng-
ur.
21.35 Danslög.
(22.00 Frjettaágrip),
24.00 Dagskrárlok.
Hafnfirðingar!
Hafnfirðíngar!
Fyrlrlestur
í Góðtemplarahúsinu á morgun (sunnudag) klukkan 4.
Að tilhlutun Sjálfstæðisfjelaganna í Hafnarfirði flyt-
ur hr. verkfræðingur Finnbogi R. Þorvaldsson fyrirlestur
um hafnargerðir, með hliðsjón af hafnarvirkjun í Hafn-
arfirði. — Umræður á eftir ef þess er óskað. — Allir vel-
komnir á meðan húrrúm leyfir.
FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFJELAGANNA.
—^— 4*1
Móðir okkar,
HERDÍS ANDRJESDÓTTIR,
andaðist í gærmorgun. Jarðarför hennar verður aúglýst síðar.
Elín Thorarensen. Jón Ólafur Jónsson.
Einar Jónsson.
Það tilkynnist hjer með vinnm og vandamönnum, að syst-
ir okkar,
LAUFEY V. HJALTALÍN,
frá Brokey, andaðist að Landsspítalanum, aðfaranótt þess 21.
þ. mán.
Fyrir hönd fjarstaddra foreldra og systkina.
Eygló V. Hjaltalín og Vilhjálmur V. Hjaltalín.
■ o
Hjer með tilkynnist að
GUÐMUNDUR BJARNASON
klæðskerameistari andaðist að heimili sínn, Aðalstræti 6, biuu
20. þ. mán.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigmundur Halldórsson.
■fc
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að sonur okkar
og bróðir,
RAGNAR K)RSTEINN,
andaðist á Vífilsstöðum í gærmorgun.
Maíendina og Ágúst Fr. Guðmundsson og systkini.
Þakka hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför móðnr minnar,
RANNVEIGAR SVEINSDÓTTUR.
Fyrir hörid aðstandenda.
Friðrik X. Magúnsson.
Innilegt þakklæti til allra fjær og nær, sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu á svo margvíslegan hátt við andlát
og jarðarför
JÓHÖNNU GföLADÓTTUR
frá írafelli. Guð blessi ykkur öll.
Foreldrar og systir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR,
frá Setbergi, Austurhamri 5, Hafnarfirði.
Guðrún Guðmundsdóttir. Ing-’iii i Guðmundsdóttir.
Jón Guðmundsson. Guðmundur B Guðmundsson.
Vigdís Guðbrandsdóttir.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför
SIGFRÍÐAR BTÁRNADÓTTUR
frá Þverá í Vestur-Húnavatnssýslu.
Aðstandendur.