Morgunblaðið - 22.04.1939, Blaðsíða 8
mORGUN BLAÐtÐ
Laugardagur 22. aprfl 1939,
Danskt blað ræðir nýlega um
skort þann sem er á ýmsum nauð-
synjavörum í líússlandi. I því
sambancfi skýrir blaðið frá því,
að ekki fáist tannburstar í Lenin-
grad um þessar mundir.
★
Danskur sjómaður var nýlega
dæmdur í 50 króna sekt fyrir að
bafa ráðist á stúlku og sýnt henni
ofbeldi. Nafn hans er mjög elsku-
legt. Hann heitir Eros Amorsen.
★
I þýska bænum Kohebunden
hafa síðastliðin 10 ár ekki fæðst
nema 'stúikubörn. En á dögunum
átti kona ein tvíbura og voru það
tveir drengir. Foreldrar bæjarins
eru að vonast til að nú fari að
skifta urn og eftirleiðis fæðist ein-
göngu drengir að minsta kosti
fyrst um sinn.
★
Hermaður einn, sem tók þátt í
heimsstyrjöldinni og nú býr í
Kaupmannahöfn, kom í heimsókn
til bróður síns. Þessi bróðor hans
átti son, sem var á þeim aldri, er
drengir hafa gaman af hermanna
hreystiverkum, Og pilturinn bað
frænda sinn að segja sjer eittkvað
úr stríðinu.
Hermaðurinn gamli tók litla
frænda sinn á hnje sjer og sagði
honum hverja söguna á fætur ann
ari úr ófriðnum. Drengurinn
Idustaði með athygli og það var
langt liðið dags, er stóri frændi
liafði lokið frásögn sinni.
Að lokum sagði hann:
— Jæja, nú hefir þú heyrt um
alt, sem kom fyrir mig í ófriðn-
Um milda.
Drengurinn stóð dálitla stund
hugsi á svipinn, en sagði síðan:
—• Já, en frændi. Til hvers voru
allir hinir hermennirnir ?
★
MÁLSHÁTTUR:
Þú getur byrjað atriðið þá þú
vilt, en ekki endað það.
JCauftsízapcu'
FERMINGARKORT,
Skeyti og Skrautritun fæst á
Njálsgötu 10.
GASELDAVJEL
sem ný til sölu á Egilsgötu 14,
uppi.
Skrifstofupláss
óskast 14. inaí.
Kola§alan S.f.
Steindor
Sími 1580.
Landsins besta bifrelðastöQ.
HEILHVEITIBRAUÐ
þau bestu í bænum. Sveinabak^
aríið, Frakkastíg 14. Sími 3727.
GÓÐ KÝR
nálægt burði, óskast keypt í
Eskihlíð C.
GLO-COAT
og fl. teg. gólfgljáa, sama verð
og áður. Einnig bílabón, lökk
á gólf, hurðir, böð og bíla. —
Haraldur Sveinbjarnarson,
Hafnarstræti 15.
VANDAÐ EINBÝLISHOS
til sölu. Tilboð merkt: ,,Hús“,
sendist á afgreiðslu Morgun-
blaðsins.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ.
Björn Jónsson, Vesturg. 28.
Sími 3594.
HEILHVEITIBRAUÐ
og heilhveitikruður altaf ný-
bakað allan daginn. Jón Sím-
onarson, Bræðraborgarstíg 16.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda
þorskalýsi í sterilum ílátum
kostar aðeins 90 aura heilflask-
an. Sent um allan bæ. Sími
1616.
MEÐALAGLÖS
Fersólglös, Soyuglös, og Tom-
atglös keypt daglega. Sparið
milliliðina og komið 'beint til
okkar ef þið viljið fá hæsta
verð fyrir glösin. Laugavegs
Apótek.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guð
mundsson, klæðskeri, Kirkju-
hvöli. Sími 2796.
KAUPUM FLÖSKUR
giös cg bóndósir af fiestum teg-
undum. Hjá okkur fáið þjer á-
s alt hæsta verð. Sækjum til yð-
ar að kostnaðarlausu.Sími 5333.
Flöskuversl. Hafnarstræti 2J
KAUPI GULL
hæsta verði. Sigurþór, Hafnar-
stræti 4.
KAUPUM FLÖSKUR,
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
CUCÁynnincfcw
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna af
burða vel.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —
Ávalt í næstu búð.
FRIGGBÓNIÐ FÍNA,
er bæjarins besta bón.
*K&rt«v£gz-
GENG I HÚS
og les tungumál með skóla-
fólki. Upplýsingar í síma 2562
frá kl. 5—7 e. h.
HREINGERNINGAR.
Jón og Guðni. Sími 4967..
HREINGERNINGAR
í fullum gangi. Guðjón og Geiri.
Sími 2499.
VORHREINGERNINGAR
í fullum gangi. Pantið í tíma..
Helgi og Þráinn. Sími 2131.
HREINGERNINGAR.
Rjettu mennirnir við innan-
hússbreingerningar eru Bárður-
og Ólafur. — Sími 3146.
GÓÐ 4—5 HERBERGJA IbOÐ
óskast 14. maí, í austurbænum..
Uppl. í síma 5059, kl. 10—1 og
eftir kl. 6.
SKÓLAFÓLK
Látið mig hjálpa yður með
upplesturinn í reikningi, eðlis-
fræði og tungumálum. Páll
Jónsson, Leifsgötu 23 II.
HÚSMÆÐUR.
Eins og að undanförnu tek jeg
að mjer alskonar hreingern-
ingar. Athugið að panta í tíma.
Kristján Jakobsson, Bergstaða--
stræti 49. Símar 5047 og 4882.
ÍBÚÐIR, stórar og smáar og
einstök herbergi.
LEIGJENDUR, hvort sem er
fjölskyldufólk eða einbleypa.
Smáauglýsingar Morgunblaðs-
ins ná altaf tilgangi sínum.
HREINGERNINGAR
tökum við að okkur. Sigurður
og Sigurvin. Sími 5002.
Veggfóður
margar nýtísku tegundír»-
Lítið í gluggana á
Laugaveg.l
Sími 4700.
CHARLES G. BOOTH.
ÚTLAGAR I AUSTRI.
MarceUes tók skóinn af sjer, klifraði varlega yfir
Kínverjann og dró tjaldið til hliðar Oil rúmin, sern
hann sá, voru auð. Lengst frammi í búðinni sat gam-
all Kínverji við búðarborðið og blundaði. Mareelles
læddist á tánum fram gólfið og komst klakklaust út
að hurðinni. Það brakaði ofurlítið í henni, þegar
lrann opnaði, en engin hreyfing varð inni.
Uti á Opalgötu var niðamyrkur og engin sála sjá-
ánleg. Stormurinn var nístandi bitnr, og Marcelles,
sem var á sokkaleistunum, varð ískalt á fótunum.
Hann þreifaði eftir peningabeltinu og leit í kringum
sig. Honum varð alt í einu mjög órótt og byrjaði að
hlaupa.
Eftir hálftíma var hann, eftir miklar krókaleiðir,
kominn í franska bæjarhverfið og fór- inn í lítið 3.
fiokks hótel í Rue Cardinal, sem hann kannaðist við.
*
Næturvörðurinii, sem var franskur, Iiorfði stein-
hissa á hann.
„Monsieur“, stamaði haim. „Hvað er að sjá munn-
inn á yður? Og hvar eru skórnir yðar?“
„Jeg ætla að gista hjér“, sagði Marcelles reiðilega.
Næturvörðurinn ypti öxlum og fylgdi honum upp
í herbergi á 2. hæð.
„Get jeg hjálpað yður nokkuð?“ spurði hann.
„Já“. Marcelles glotti. „Jeg þyrfti að biðja yður að
sjá um innkaup fyrir mig strax og búðir eru opnað-
*r í fyrramálið“.
„Með ánægju 1“
„Jeg þarf að fá skjrrtu“, hjelt Marcelles áfram,
„skó, slifsi og hatt. En færið mjer sem fýrst koníak
og lieftiplástur“. Síðan fjekk hann honnm peninga, og
hann hvarf hljóðlega.
Fyrir innan herbergið var baðherhergi. Marcelles
skolaði baðkerið vandlega og Ijet vatn renna í það.
Síðan lá hann í hálftíma í heitn vatninu og hjelt
bakstri við andlit sitt.
Koníakið og heftiplásturinn var á svefnhorðinu við
rúm hans, þegar hann kom inn aftur. Hann var dauð-
þreyttur og flýtti sjer upp í rúm, þegar hann var
búinn að setja heftiplásturinn á vör sína og hressa
sig á koníakinu. Hann sveið í augun, og augnalolc
hans voru þung sem blý. Hann sofnaði brátt, en vakn-
aði fljótt aftur, í svitabaði, með martröð. Fanst Yang
vera á hælunum á sjer. Hann reyndi að jafna sig. Og
í fyrsta skifti, síðan hann hafði sjeð hin brostnu augu
E Tsungs, tókst honum að liugsa skýrt.
En hann varð ekki glaðari í bragði fyrir það. Hann
syrgði E Tsung. Hún hafði verið mdælt barn. En
þegar á alt var litið liafði hún auðvitað haft leyfi til
þess að fara með líf sitt eins og hana lysti. Og Li
Feng hafði gert sitt til þess að hefná sín. IÍvað O’-
Ilare snerti, fór Marcelles nú að efast um, að hann
hefði beðið lægra hlut fyrir kínversku hermönnun-
um. Hann þóttist viss um, að maðurinn, sem hafði
hjálpað honum, væri sá sami O’Hare og koinið hefði
með hrísgrjón og hveiti til Puchang fyrir augunum á
Yang. Og hann átti enga sína líka.
OTIare var djöfull í mannsmynd, éins og Kín-
verjinn í vínhúðinni hafði sagt, og illmögulegt að
hafa hendur í hári hans. Það var líka augljóst, að
O’Hare hafði veitt honum eftirför, þegar hann fór-
til E Tsung. Og það gat aðeins þýtt það, að O’Hare-
var á veiðum eftir peningum Yangs,
Marcelles fknst sem væri hann umkringdur á alla<
veg-u. Annars hafði ráðagerð hans verið afar einföld,.
þangað til Ramsgate alt í einu birtist. Yang hafði ver-
ið í-Shen Si, eftir því sem liann vissi best, og um leið
og hann sjálfur var kominn um horð í „Prins Austur—
landa“ þóttist hann öruggur fyrir honum. Þá hafði
Irene Mallory komið til sögunnar, síðan Ramsgate,.
O’Hare, og nú síðast Yang sjálfur. Hann gat ekki
ímyndað sjer, hvernig þau hefðu komist á snoðir unu.
ráðabrugg hans. Líklega hafði Yang frjett það hjá
fylgismönnum sínum í Shanghai. En þau hin? Atti
hann að láta Yang fá peningana? Nei! Ohappið með'
E Tsung hafði komið alveg óvænt.
Og Yang myndi ekki vera ánægður, fyr en hanng.
Marcelles, hefði sætt grimmilegri liefnd.
En gat hann búist við að sleppa og komast I ifandi
til Marseille, fara með „Prins Austurlanda1* og hafa:<
peningabeltið meðferðis, eins og hann-hafði ráðgert?"
Hann var umkringdur á alla vegu. — Irene Mallory,.
Eamsgate, O’Hare og síðast en ekki síst Yang, sem
hanu óttaðist mest af öllu. Mareelles lá í köldu svita-
baði undir ábreiðunni, er hann -hugsaði um þetta. Það
var eins og alt sjálfstraust hans væri þrotið.
Ý
KI. 91/2 um morguninn kom franski dyravörðurinn
inn með fangið fult af bögglum. Marcelles baðaði and-
Iit sitt vandlega úr köldu vatni og klæddi sig í snatri.
DyravörSurinn liafði verið sæinilega heppinn með
innkaupin.