Morgunblaðið - 17.05.1939, Blaðsíða 2
2
r"RGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagnr 17. maí 1939.
Samningar Breta og Rússa strandaðir!
Hitler skoðar varnarvirkin
Frakkar reyna að
miðla málum
Potemkin fer
ekki til Genf
s
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
AMNINGA Breta og Rússa hefir að nýju bor-
ið upp á sker.
>ív — Eftir að svar Rússa við tillögum Breta hafði
vörið afhent í London í gær — en í þessu svari halda
Rússar fast við þá stefnu sína, að fýrst verði að gera hern-
aðarbandalag milli Rússa, Frakka og Breta, áður en Rúss-
ar taka ábyrgð á landamærum nágranna sinna að vöstan-
verðu — væntu menn þess að samningunum myndi verða
haldið áfram er Halifax lávarður og Potemkin, varautan-
ríkismálaráðherra Rússa, hittust í Genf í byrjun næstu
viku.
Því var jafnvel lýst yfir af hálfu stjórnarinnar í breska þing-
inUi í gær, að samningunum myndi verða haldið áfram í Genf. En
nú hefir verið tilkynt frá rússnesku sendiherraskrifstofunni í
London, að Maisky, sendiherra, en ekki Potemkin, muni mæta fyr-
ir Eússlands hond í Genf.
Þar sem Maisky, sem er sendiherra Paissa í London, hefir frá
upphafi staðið í stöðugu sambandi við Halifax lávarð, eru engin
líkindi til að fundurinn í Genf hafi nein áhrif á samninga Rússa
og Breta
UMMÆLI LLOYD GEORGE
Hversu mikilvægt það er álitið, að dómi margra kunnra á-
hrjfamanna, að bráður bugur verði undinn að því að fá Rússa
inn í varnarbandalagið, má nokkuð marka af ummælúm Lloyd
George í breska þinginu nýlega. Hann sagði, að ef breska her-
foringjaráðið teldi að Bretar gætu staðið við hinar nýju skuld-
bindingar sínar í Evrópu, án aðstoðar frá Rússum, þá væri það
(herforingjaráðið) betur komið á vitfirringahæli.
„Manchester Guardian“ seg-
ir frá því að Tyrkir hafi
sett það að skilyrði fyrir
því, að þeir gerðu „endan-
legan“ samning við Breta,
að samkomulag næðist milli
Breta og Rússa.
Það er nú talið, að franska
stjóínin muni reyna að finna ein
hvefja lausn á hinum bresk-rúss
neska ágreiningi. Þrátt fyrir alt,
er fullyrt að Rússar hafi hug á
að komast að samkomulagi, eins
og m.a. hefir komið fram í hinni
vingjarnlegu afstöðu, sem þeir
tóku til bresk-tyrkneska sam-
komulagsins.
En þeir vilja knýja fram til-
slakanir af hálfu Breta til hins
ítrasta.
ÖRÐUGLEIKARNIR
Málamiðlunarhlutverk Frakka
verður á engan hátt ljett. Hern-
aðarþandalagið, sem Rússar vilja
gera felur í sjer þá nauðsyn, að
Paissar fái leyfi til þess að fara
með her yfir Eystrasaltsríkin,
Pólland eða Rúmeníu, ef á Bret-
land og Frakkland verður ráð-
ist. í öðru lagi vilja Rússar
loforð um stuðning við smab
irnar við vesturlandamæri þeina
verði gagnkvæm, en til þess eru
Pólverjar og Rúmenar tregir
vegna hins nána samstarfs við
Rússa, sem af því myndi hljót-
ast..
Loks óttast Bretar, að gagn-
kvæmu hernaðarbandalagi við
Rússa myndi verða fálega tekið,
ekki aðeins í Rúmeníu og Pól-
landi, heldur líka í löndum eins
og Portúgal, Grikklandi og Eg-
yptalandi, sem alt eru bandalags
þjóðir þeirra.
PÖLVERJAR —
Frönsk blöð ræða í dag um hið
væntanlega málamiðlunarhlut-
verk Bonnets, utanríkismálaráð-
herra Frakka. Eitt þeirra segir,
að það hafi jafnan verið hlut-
verk Frakka, að sjá til þess að
hafa öflugan bandamann á bak
Þjóðverjum. Þetta muni verða
erfiðar nú, en oft áður, vegna
þess að nú sjeu það Pólverjar,
sem eiga landamæri að Þýska-
landi en ekki Rússar.
HERMÁLARÁÐHERRA
PÓLVERJA RÆÐIR
VIÐ DALADIER
London í gær. FU.
Daladier, forsætisráðherra
rakka, átti í dag þriggja stund
arfjórðunga viðræðu við land-
varnaráðherra Póllands, sem nú
er staddur í París.
Hann hefir einnig rætt við
sendiherra Pólverja þar í borg-
inni.
von Papen.
—von Papen—
kallaður iieim
von Papen er lagður af stað
frá Tyrklandi til Þýskalands.
Því er neitað í Berlín í dag,
að rjett sje fregn sú, sem
birt var í Englandi og víðar í
dag, að von Papen hafi verið
kallaður heim frá Tyrklandi,
til þess að gefa skýrslu um
bresk-tyrkneska varnarbanda-
lagið.
I hinni þýsku tilkynningu
um þetta segir, að för von
Papens til Tyrklands hafi bor-
ið allbrátt að, og sje honum
nauðsynlegt að koma heim til
Þýskalands, til þess að sinna
einkamálum, er honum vannst
ekki tími til að ganga frá áð-
ur en hann fór. (Skv. FÚ).
Palestinu-Gyðingar
ógna Bretum
Breska stjórnin ætlar að til-
kynna í dag, hvaða lausn
hún hefir fundið á deilum Araba
og Gyðinga í Palestínu. Er talið
að hin nýja lausn muni fara nær
sjónarmiðum Araba en Gyðinga.
Ýmsar ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að koma í veg
fyrir óeirðir, eftir að stefna
stjómarinnar hefir verið birt.
SVERÐ ÚR SLÍÐRUM
‘Lohdbn í gær. FÚ.
I Jerúsalem voru birt ávörp á
hebresku í dag, þess efnis, að ef
vonir Gyðinga um þjóðarheimili
í Palestínu verði látnar að engu
verða, megi Gyðingar draga
svérðið úr slíðrum.
1 einu höfuðmálgagni Gyðinga
segir þó, að Gyðingar muni ekki
grípa til vopna eða vinna hermd-
arverk til að ná rjetti sínum.
Ottast Þjóðverjar
ekki lengur strið
á tvær hendur?
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
HITLER hefir undanfarna daga verið á eft-
irlitsferð um varnarvirkin á fransk-þýsku
landamærunum, hina svonefndu Siegf'ried-
línu. Hann hyrjaði eftirlitsferðina í fyrradag nyrst við
belgisku landamæfin og hefir í dag skoðað virkin í Saar.
í dag sýndi yfirhershöfðingi Þjóðverja, von Brauchitsch,
nokkrum foringjum nasistaflokksins og þýska hersins, nokkurn
hluta virkjanna. Þýsk blöð segja, að hinir pólitísku og hemáðár-
legu leiðtogar hafi sannfærst um, að allar tilraunir væntanlegra
óvina til þess að ráðast inn í Þýskaland, myndu reynast árangurs-
Jausar.
200 milj. marka
þýskt lán til
JAgóslafa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
iano greifi er væntanlegur
til Berlínar á sunnudag-
inn kemur, til þess að skrifa und
ir þýsk-ítalska hernaðar- og
stjórnmálabandalags sáttmálann.
Páll prins, ríkiserfingi í Júgó-
slafíu og Olga kona hans hafa
boðað komu sína í opinbera heim
sókn til Berlín á næstunni.
Þjóðverjar gera sjér vonir um
að Júgóslafar eyðileggi Balkan-
bandalagið með því að segja sig
úr því. Balkanbandalagið er hern
aðárbandalag Tyrkja, Grikkja,
Rúmena og Júgóslafa. Þetta
bandalag hefir verið talinn einn
öflugasti vörður friðar og reglu
á Balkanskaga.
Búist er við, að Þjóðverjar
bjóði Júgóslöfum 200 milj. rikis
marka verslunarlán til 10 ára.
Lánið á endurgreiðast í vörum,
þ. á. m. með 200 þús. smálestum
af járnmálmi áriega.
-------------
Glæfralegt
Aííantshafs-
flug Svía
Khöfn í gær F.Ú.
ackmann, sænskur flugmað
ur, er sagður hafa lagt af
stað frá Botwood á Nýfundna-
landi í viðkomulaust flug til Sví-
þjóðar.
Flugvjel hans er lítil og ekki
útbúin ýmsum þeim tækjum, er
nú þykja nauðsynleg í langflugi.
Backmann kveðst vera einn af
)rem flugmönnum, sem ætla að
fljúga viðkomulaust milli Amer-
iíku og Svíþjóðar í sumar.
Hermálasjerfræðingar í Þýska.
landi eru farnir að halda því
fram, að hin öflugu virki geri
auðveldara að ráða fram úr þeim
vanda, sem skapast, ef Þjóðverj
ar þurfa að verjast samtímis á
tvær hendur. Þetta hefir verið
eitt mesta kvíðaefni þýskra hern
aðarsinna og kemur þessi kvíði
jafnvel fram í „Mein Kampf“.
Hermálasjerfræðingarnir segja
að tiltölulega lítinn liðsafla þurfi
til þess að verja vesturlandamær
in og allan aðal-herstyrkinn sje
hægt að senda austur á bóginn.
MUSSOLINI LÍKA
Á EFTIRLITSFERÐ
London í gær. FÚ.
Mussolini hefir í dag verið á
eftirlitsferð með landamærum
Frakklands og Italíu og kom með
al annars til vestasta virkis Itala
þar á landamærunum.
Mussolini er sagður hafa sagt
við hershöfðingja ítala þar, að
hann byggist ekki við, að gerð
yrði tilraun til ínnrásar í Ítalíu
á þessum slóðum.
Þýskur iijállari kominn
til Víkings
Með Dettifossí í gæriMorgrpi
kom hingað þjálfari ,,Ylk-
ings“, hiim frægi þýski markmað-
nr Fritz Bucliloh
Með honmn er kona lians en
þau voru gefin saman fyrir þrem
vikum og er ferð þeirva hingað
því einskonar brúðkaupsferð.
Stjórn ,,Víkings“ og nokkrir
meðlimir úr fjelaginu sátu hádeg-
isveislu, sem Buchloh og frú hans
var haldin að Hótei Borg í gær-
morgun.
Mun Buehloli byrja þjálfarastarf
sitt hjá „Yíking“ á æfingum í dag
hjá IV. fl. kl. 6 og II. fl. kl. 9.
Hjer í blaðinu liefir áður verið
skýrt frá íþróttamannsferli Fritz
Buchloh, en sá ferill er allur hinn
glæsilegasti.
Buchloh og frú hans munu
dvelja lrjer frani í miðjan ágúst-
mánuð.