Morgunblaðið - 17.05.1939, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.05.1939, Blaðsíða 4
4 M0RG4JNBBAÐIÐ Miðvikudagur 17. maí 1939. KVEMDJOÐIN OQ HEIMILIN Kvenfólk og tóbaks- reykingar All mikið hefir verið rætt hjer og ritað um tóbaks- reykingar og hin skaðlegu áhrif þeirra, einkanlega á kvenfólk. — En til þessa hafa góðar fortölur lítt gagnað, því að enn þá reykir islenSkt kvenfólk allt of mikið; margt fult eins mikið og karl- menn. Það minnir á, hvernig sumt Evenfóik hefir brugðist við kven rjettindunum, sem að vísu í engu skulu löstuð. En í stað þess| að nota sjer aukin fríðindi og frelsi á við karlmenn á kvenleg an hátt, hefir það notað tæki- færið, til þess að taka upp ýmsa ósiði karlmannanna. Það hefir lært ósiði af þeim í stað þess að kenna þeim betri siði, en það á einmitt að vera hlutverk góðra; kvenna. 0g yfirburðir konunnar eru m. a. þeir, að hún er fín- legra eðlis en karlmaðurinn og því verður oft meira af henni krafist, andlega og siðferðilega. En það voru tóbaksreykingam ar--------- Víðar en hjer þykja þær böl og byrjað er að berjast á móti þeim, og þá fyrstog fremst með- al kvenfólks. í Þýskalandi er t. d. risin hreyfing í þá átt, og á heilbrigðisi áðstefnu í Frank- furt ekki alls fyrir löngu hjeldu læknar sjerstaka fyrirlestra um áhollnustu tóbaks fyrir kvenfólk. Og það er staðreynd, að tóbaks- xeykingar fara ekki einasta illa með heilsu fólks; það eyðileggur útlit og æsku kvenna, gerir þær Ijótar og ellilegar um aldur fram. Og auk þess hafa þær í för með sjer mikla og óþarfa peninga- eyðslu. TÍSKUTAL Vorfrakkarnir eru aðallega meðj tvennu móti: Sljettir og' þröngir í mitti, hringskornir að: neðan, með breiðu belti, oftastj dökkir, — eða víðar „swagger“-j kápur (sjá mynd til vinstri). —: í sportfrakkann tíðkast mest að hafa skosk eða köflótt efni, ogi þykir ekkert að því, þó að þau: sjeu með margskonar litskrúði. ★ Fellingar og vestis-belti. fétf’ Sinnepsgulur ullarkjóll með brúnu skrauti. Pilsið er vítt og felt að framan, eins og tíðkast mikið nú, en þröngt að aftan. Takið eftir beltinu. Það er breitt og minnir á vesti. Þannig belti eru líka mik- ið í tísku. ★ Herratískan: París er miðstöð dömutískunn- ar, en London herratískunnar. En Ameríka vill þó ekki vera útund- an, og um daginn hjeldu helstu skraddarar í Philadelphiu tísku- sýningu. Þár voru m. a. sýndir karlmannajakkar með alveg nýju sniði, kragalausir, með út-á-breidd um skyrtukraga, sem kallaðir eru Jósefsjakkar. Hárkambar Krullupinnar. Sápulaus hárþvottaolía (Soapless Shampoo). Tjörusápa. Laugaveg: 19. Hentug tilkögun iUOAÐ hvílkt autO gleraugam tcí THIELE cream er ómissandi fyrir viðkvæma, fíngerða húð. Það heldur henni mjúkri og ver hana fyrir sólbruna og óþægind- um af kulda, en gerir búð- , ina fallega og útlitið hraust- legt. ROSOL- CREAM er í bláun dósum, þannig útlítandi. RÖSOL CREAM Munið -----— að hafa borðsalt við hendina, ef straujárnið er stirt, og strjúkið yfir það með járn- inu, áður en byrjað er að strjúka þvottinn. Þá verður járnið hált og ljett að strjúka með því, eins og vera ber. ★ — — — að, þegar tappi er fastur í flöskustút, er oft hægt að ná honum úr, með því að láta matarolíu drjúpa um sam- skeytin. Eins er gott að hita flöskuna og losa tappann síðan varlega úi stútnum. ★ — — — að burstar linast í heitum sápuvötnum og því er gott að lireinsa þá úr volgu vatni og skola þá úr köldu saltvatni. Ef hárin verða mjög þur, vilja þau brotna, en til Jiess að koma í veg fyrir það, er gott að láta burstana stundum vera í bleyti í köldu vatni. Garðarnir þurfa góða hirðu Nú er sem óðast verið að setja niður í garðana. Gangi mað- ur á kvöldin í úthverfi bæjarins, má sjá fjölda fólks önnum kafiS við að stinga upp, moka geilar eða setja niður. Gárðræktin fer mjög í vöxt hjer í bænum og er það vel farið. f fyrra var garðræktin meiri en nokkru sinni áður. Nú í ár verð- ur hún meiri en í fyrra. Þetta er rjett stefna. En þegar minst er á garðana og þann dýrmæta fjársjóð, sem þeir geyma fyrir heimilin, verð- ur ekki komist hjá að segja aðra sögu, sem ekki er eins skemtileg frásagnar. Víða er mjög ábótavant um hirðingu garða þeirra, sem bær- inn leigir út. Ætti garðyrkjuráðu- nautur hæjarins að ganga strangt eftir því, að garðarnir sjeu vel hirtir og taka þá af mönnum ella. Þá er annað, sem er enn Ijót- ara frásagnar. Það hefir, því mið- ur, all-mikið horið á því síðustu árin, að stolið hafi verið úr görð- um og einnig, að garðar hafi ver- ið traðkaðir og skemdir, jafnvel eyðilagðir. Þetta framferði er blettur á Reykvíkingum, og ætti lögreglan að hafa sterkar gætur á því fólki, sem þannig hagar sjer og taka hart á þeim hrotum, því að eftir mikla fyrirhöfn og vinnu er ilt að láta eyðileggja og gera að engu það, sem gæti orðið heimilunum bæði til gagns og gleði. Þurfa ekki að pipra. ISíam þarf kvenfólkið ekki að „pipra“. Ógiftár stúlkur yfir tvítugt geta snúið sjer til yfirvaldanna og krafist þess, að þeim sje útvegaður eiginmaður. | En yfirvöldin hafa nóg úr að jvelja, því að það eru lög í land- inu ,að ríkið getur skipað laga- brjótum að kvænast. Velur hið opinbera venjulega kvonfangið fyrir mennina, en stundum fá þeir að velja sjor konu sjálfir, ef þeir hafa lítið brotið af sjer. Telja yfirvöldin í Síam þetta heppilega ráðstöfun, þar sem eng inn geti haft eins góð áhrif á menn með slæmar tilhneigingar, eins og góð eiginkona. hreinsunarkrem er jafnnauðsynlegt á hverju heimili og handklæði og sápa. Óhreinindi i húðinni valda hrukkum og bólum. Náið þeim burt án þess að skaða hina eðlilegu húðfitu með LIDO hreinsunarkremi. Dós- in 0.50 og 1.00. Borðstofuborðið stendur með tvær fætur í borðstofunni og tvær í eldhúsinu, og er rent fram og aftur í gegnum lúku á þil- inu, svo að mjög lítið ómak verð ur við að bera á borð og taka af því. Lagt er á borðið í eld- húsinu, þar sem skúffur eru rjett við hendina með öllum borð búnaði, og síðan er borðinu skot ið inn í stofuna. Hleranum má loka milli þess, sem rjettirnir eru látnir inn um lúkuna. Og eftir máltíðina er borðinu aftur rent fram í eldhús, svo að segja beint að vaskinum, þar sem leirtauið er þvegið upp. Hafið þfer reynt ASTRA Citronfreknuvatn og ASTRA Fraknukrem Revkjavíkur Apótek Hjúkrunardeildin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.