Morgunblaðið - 20.06.1939, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. júní 1938.
„The Times“ segir að Tokió sje að linast
/ • r £■*' j>\ v ;/",A Ji#" ’ ;■’• ’ r■
Breskar refsiaðgerðir í dag,
ef ástandið versnar
Tvö bresk verslunar-
skip fara óhindruð
til Tientsin
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
EF ástandið í Tientsin versnar er búist við að
breska stjórnin samþykki að hefja refsiað-
gerðir gegn Japönum í síðasta lagi á morgun.
„Daily Telegraph“ gerir ráð fyrir að refsiaðgerðir
þær, sem beitt verður, verði framkvæmdar í þessari röð:
1) Bresk-japanska samningnum frá árinu 1911, þar
sem Bretar og Japanar heita hvorum öðrum bestu kjör-
um í milliríkjaviðskiftum, verður sagt upp.
2) Lagður verður tollur á japanskar vörur svo hár, að í raun
og veru verður um bann gegn innflutningi á vörum frá Japan
að ræða.
3) Breska stjórnin lítur á það sem hugsanlegan möguleika
að gera ráðstafanir gegn verslunarskipaflota Japana. 1 fyrstu
yar talið að stjórnin myndi fyrst grípa til þessa möguleika, en
Japanar hjeldu því aftur á móti fram, að slíkar ráðstafanir
myndu koma harðast niður á breska heimsveldinu.
Þessi röksemd virðist hafa hrifið.
EKKI SAMMÁLA.
Tvö bresk flutningaskip eru nú komin til Tientsin.
Eru það fyrstu skipin sem þangað koma síðan hafnbann-
ið hófst. Er litið svo á, að það sje ekki alveg án þýðingu
að japönsk varðskip ljetu verslunarskipin fara óhindruð
ferða sinna.
1 skeyti frá Tokio til ,,The Times“ segir, að farið sje að
sjá þess nokkur merki að stjórnin í Tokíó vilji ekki láta Tientsin-
ideiluna leiða til friðslita við Breta.
Aftur á móti vilja hershöfðingjar Japana í Tientsin herða
á hafnbanninu.
YFIRLÝSING CHAMBERLAINS.
London í gær. FU.
Mr. Chamberlain sagði í breska þinginu í dag, að stjórnin
væri að gera ráðstafanir til þess, að hægt væri að tryggja íbúum
forrjettindasvæðisins í Tientsin næg matvæli.
BRETAR
AÐVARA
Mr. Chamberlain gat þess að
Halifax lávarður myndi innan
skamms eiga tal við sendiherra
(Japana í London og að breski
sendiherrann í Tokio hefði fyrir
mæli um það, að ræða alt þetta
mál við japönsku stjórnina.
Mr. Chamberlain sagði, að
engin formleg tilkynning um
frekari kröfur Japana hefði enn
borist bresku stjórninni í hend-
ur og að hann gerði sjer von
um, að auðið yrði að leysa þetta
mál án þess að víðtækari á-
greiningsmál drægjust þar inn í.
Hann sagði, að breska stjórm
in gæti ekki trúað því, að jap-
önsku stjóminni væri það al-
vara að auka ágreininginn við
Bretland eða gera mál, sem
þegar væri orðið nógu alvar-
legt, ennþá ískyggilegra.
Að lokum sagði hann, að
breska stjórnin hefði nána gát
á því, sem framvegis gerðiát í
Tientsin, þar sem það gæti verk-
áð á aðra hluta Kína.
I Tientsin herða
Japanar i klónni
London í gær. FÚ.
^ /A volta rafmagn eru Jap-
ánar nú áð leiða í
gaddavírsgirðingar þær, er þeir
hafa lagt um forrjettinda-
svæði Breta í Tientsin, sem
alls eru 30 enskar mílur á
lengd. Auk þess herða nú Japanar
alla óvild í garð breskra manna.
Meðal annars er í dag verið að
útbýta flugmiðum meðal Kín-
verja, þar sem þeim og fjölskyld-
Um þeirra er hótað allskonar harð
ræði, ef þeir vinni fyrir breska
menn.
Tveir breskir þegnar skýrðu að-
alræðismanni Breta frá því í dag,
að japanskir verðír hefðu fært þá
úr öllum fötum, og hefðu þeir orð-
ið að sæta magnaðri ósvífm, með-
an leit var gerð á þeim.
iimimttnimmimiiin
Samningar Breta og Rússa
imimmmimimwtii
Tientsin veldur
nýjum örðug-
leikum
Mi
iiiiiimiimniiiiiiiinimiiiiiniiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiuiit mimmmimimmiimimiimmimimmiimmmii
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
r. Strang, fulltrúi bresku stjórnarinnar í Moskva,
hefir staðið í stöðugu símasambandi við London í
dag. Nýir örðugleikar virðast hafa komið í ljós á samn-
ingum Breta, Frakka og Rússa um þríveldabandalag.
Margir stjórnmálaritstjórar í Moskva líta svo á, að
Bretar muni greiða hvaða verð sem er fyrir stuðning af
hálfu Rússa, vegna hins hættulega ástands, sem skapast
hefir fyrir þá í Austur-Asíu. Rússneska stjórnin, segja
þeir, hegðar sjer samkvæmt þessu og hefir krafist auk-
inna fóma af hálfu Breta.
★
Þýska frjettastofan — Deutsches Nachrichtenburo —
segir aftur á móti að deilan í Tientsin hafi haft í för með
sjer mikinn álitshnekki fyrir Breta í Rússlandi.Sumir telja
að samningar Rússa og Breta muni fara algerlega út um
þúfur.
I Þýskalandi er litið á hafnbannið í Tientsin sem
prófstéin á hinn raunverulega mátt Breta.
Þýska blaðið „Essener National Zeitung“ (blað Gör-
ings) segir, að hafnbannið sje svar við tilraunum Breta
að fá stuðning Rússa.
Mr. ^Wilham Strang.
dr. Göbbels
í Danzig
London í gær. FÚ.
Dr. Göbbels útbreiðslumálaráð-
herra Þýskalands kom til
Danzig 17. júní og í ræðu, sem
hann flutti, sagði hann, að hann
væri kominn þar sem fulltrúi Hitl-
ers til þess að styrkja Danzig í
þeim tilgangi að sameinast Þýska-
landi.
í annari ræðu sagði Göbbels,
að Danzig væri þýskt menningar-
að ,ur, og væri það jafnvel við-
tn ) t af óvinum Þýskalands.
Jarðarför Magnúsar Sigurðsson-
ar, Heylok, Fljótshlíð fer fram í
dag.
Aðeins Bretar
^sndisveitarfulltrúi Banda-
J ríkjanna í Tokio hefir
fengið tilkynningu um það
í dag, að ráðstöfununum í
Tientsin sje að eins beint
gegn enskum hagsmunum,
en ekki amerískum. (FU)
Italir senda flota
til Portugal
London í gær. FÚ.
F tölsk flotadeild lagði af stað
frá Neapel í dag til æfinga
undan ströndum Spánar, Portú-
gals og Marokkó.
í flotadeildinni eru tvö or-
ustuskip, 10 beitiskip, 20 tund-
urspillar og fjöldi kafbáta.
Bíll hrapar 100 íet
I Ölpunum
London í gær. FÚ.
ITyrolölpum vildi það slys
til í dag, að 10 menn fór-
ust, en 16 slösuðust, með þeim
hætti, að stór mannflutninga-
bifreið, sem þetta fólk var í,
fór út af veginum og hrapaði
niður fyrir 100 feta háa kletta.
Danir unnu
Norðurlandakepnina
I knattspyrnu
Khöfn í gær. FÚ.
Anorræna knattspyrnumót-
inu varð Danmörk sigur-
vegari, sigraði Finnland með
5:0, Noreg með 6:3. En Nor-
egur sigraði Svíþjóð með 1:0.
Á lokahátíð í gær'bar for-
seti íþróttasambands Islands,
Benedikt G. Waage, fram
kveðjur frá íþróttasambandinu
og færði danska knattspyrnu-
sambandinu að gjöf stóran
skjöld með Þórshamarsmerki,
skorinn af Ríkarði Jónssyni.
Benedikt G. Waage þakkaði
fyrir þær framúrskarandi vin-
samlegu viðtökur, sem Islend-
ingarnir hefðu fengið, og ljet í
ljós von um áframhaldandi
góða samvinnu milli Norður-
landaþjóðanna fimm.
Tveggja daga
hátíðahöld
á Blönduósi
Hátíðahöldin í tilefni af 60
ára afmæli kvennaskólans
á Blönduósi stóðu í tvo daga.
Fyrri daginn, á laugardaginn,
var nemenda og kennaramót og
sátu það hátt á þriðja hundrað
gamalla og nýrra nemenda og
kennara skólans.
Skemtu menn sjer við ræður
og söng. Gamlir nemendur í
Reykjavík færðu skólanum að
gjöf brjóstlíkan af frú Elínu
Briem (sem Mbl. flutti mynd
af s.l. föstudag) og auk þess
var skólanum gefið málverk af
Birni Sigfússyni á Kornsá. —
Myndina hefir gert Gunnlaugur
Elöndal málari, en gefendur
voru hjónin frú Guðrún Björns-
dóttir (dóttir Björns á Kornsá)
og Þormóður Eyjólfsson, Siglu-
firði.
Skólanum voru flutt tvö
kvæði af Páli V.J. Kolka lækni
og Ingibjörgu Benediktsdóttur.
Ræður fluttu frú Guðrún Briem,
Jón Pálmason alþm. á Akri, og
Skúli Guðmundsson alþm.
Síðari daginn, á sunnudag-
inn sóttu útiskcmtunina í
tilefni af afmæli skólans, á
annað þús. manns. Veður
var hvast og kalt, og kom
þó fjöldi manns, bæði úr
Skagafirði, V.Húnavatns-.
sýslu og víðar að.
Skemtunin fór fram í skrúð-
garði skólans. Ræður fluttu:
Þórarinn á Hjaltabakka, Guð-
brandur Isberg sýslum., Jón
Pálmason á Akri, Elínborg Lár-
usdóttir, Sigurður sýslum. á
Sauðárkróki og Páll Kolka. —
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
skemti með söng og einsöng
sungu Helga Jónsdóttir frá
Akureyri og Daníel Þórhallsson.
Að lokum var dans stíginn
fram eftir kvöldi.
Þótt veður hafi ekki verið
gott, fór hátíðin hið prýðileg-
asta fram og var öllum til á-
nægju og skemtunar.