Morgunblaðið - 25.06.1939, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Sunmidagur 25. júní 1939.
I.O.G.T. IO.G.T.
Stórstúkuþingið
hefst þriðjudaginn 27. júní meS messu í dómkirkjunni kl. 1% e. h.
Fulltrúar og aðrir templarar mæti í Tetriplarahúsinu kl. 1 og verður
þaðan gengið í kirkju.
Ræðu flytur síra Magnús Guðmundsson frá Ólafsvík, en fyrir
altari þjónar síra Friðrik A. Friðriksson frá Húsavík.
Að lokinni messu verður þingið sett, kjörbrief rannsökuð og
stig veitt. Fjelagar, sem ætla að fá stórstúkustig, hafi með sjer skír-
teini frá stúku sinni um rjett þeirra til stigsins.
Unglingaregluþingið
v^£ður sett miðvikudaginn 28. júní klukkan 10 árdegis.
Fulltrúar beðnir að afhenda kjörbrjef sín til skrifstofu stórstúk-
unnar, sem fyrst.
Skrifstofu Stórstúku íslands 25. júní 1939.
Friðrik A. Brekkan. Steindór Björnsson.
Jóh. Ögm. Oddsson.
PIROLA
SNYRTIYÖRUR
á hvert einasta heimili
■:.:: ." ....zzzza
Unglingavinna.
Þeir piltar, sem sækja vilja um unglingavinnu
í sumar, komi til skráningar næstkomandi
mánudag og þriðjudag 26. og 27. júní kl. 2—4
e. h. á Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar og
Vinnumiðlunarskrifstofunni.
Til greina koma aðeins piltar á aldrinum
16—18 ára.
Sel veðdeildarbrjef
og kreppuiánasjóðsbrjef.
Garðar Þorsleinsson, lirm.
Vonarstræti 10. Símar: 4400 og 3442.
Sumarstarf K. F. U. M
í Vatnaskógi
Nú þegar sumarið kemur með
sólskinið og blíðviðrið, iaka
margir að íhuga hveruig þeir eigi
að uota sumarfríið. Margir eru
þegar fyrir löngu búnir að ráð-
stafa hvernig því skuli varið, og
telja aðeins dagana í mikilli eftir-
væntingu, uns hinn langþráði dag-
ur rennur upp. Þannig er fyrir
fiestum þeirra, sem einhverntíma
hafa dvalið í sumarbúðum K. F.
U. M. í Vatnaskógi.
■ Það er athvglisvert hversu marg
ir þeirra leita þangað aftur og
það jafnvel sumar eftir sumar,
þótt þeir eigi aðeins kost á ör-
stuttu sumarfríi.
Þetta verður strax til að vekja
athygli á staðnum. Flestir, sem fá
stutt sumarfrí, reyna annars að
velja sjer nýjan og nýjan stað
fyrir hvert sumar. Þeir finna sjald-
an stað, sem þeir láta sjer nægja
meira en eitt ár í senn, nema
Vatnaskóg. Sumar eftir sumar
hafa ungir menn og drengir eytt
sumarfríum sínum þar.
Hvað er það, sem veldur slíku?
Ekki getur það verið íburðar-
mikill aðbúnaður, því hann er
blátt áfram, en hollur. Flestir
verða að sofa í tjöldum, og mat-
ast er í tjaldi. — Sá aðbúnaður
verður samt vonandi mjög fljót-
lega miklu fullkomnari þegar nýi
skálinn verður byður. Maturinn
er að vísu ágætur og allir fá eins
og hvern lystir.
En hvers vegna menn sækja svo
ákaft í Vatnaskóg er ekki auð-
svarað.
Það væri þá e. t. v. vegna stað-
arins. Hann telja allir Skógarmenn
sinn kærasta stað. Það er fagurt
rjóður í aflíðandi birkihlíð á
bakka hins undurfagra Eyrar-
vatns, andspænis bröttum hlíðum
hinnar gnæfandi Skarðsheiðar.
Upp eftir dalnum er hin fegursta
fjallasýn og kvakandi fuglasöng-
ur fróa skilningarvitum þess, sem
hefir næma tilfinningu fyrir hinu
hárfína í íslenskri náttúru. — Og
vatnið! Hvílík fegurð á kyrru
sumarkvöldi, er silungamergðin
leitar eftir æti og myndar eina
hringakeðju um alt vatnsborðið!
Hvílíkar vinsældir hjá veiðimönn-
unum eða bátsförunum! Eða hví-
líkar vinsældir hjá baðgestunum á
brennheitum sólskinsdegi, sem
busla í volgu vatninu eða vaða í
mjúkum sandinum! Og knatt-
spyrnuvöllurinn Hann á óskiptar
vinsældir allra. Þar hefir margur
svitadropinn runnið og hlátur-
sköllin dunið! — Og skógurinn!
Þar hefir marður farið í eltinga-
ingaleik — eða notið kyrðar í frið-
sælli láut. — Og umhverfið, foss-
arnir, fjöllin og gjárnar! Já, það
yrði alt of langt að telja meira.
I stuttu máli: Vatnaskógur er
yndislegasti staðurinn, sem til er!
Aðdráttaraflið er samt e. t. v.
ekki síst fólgið í samverunni, fje-
lagslífinu í skóginum. Það ber
öllum saman um að getur verið
það besta, sem til sje af slíku.
Og þeim áhrifum er alls ekki unt
að Iýsa á prenti. Það getur enginn
skilið fyr en hann kemur sjálfur
í slíkan hóp. Það er nálægð Guðs
sem skapar slíka samveru. í Vatna
skóg hafa margir komið ókunn-
ugir starfinu og þátttakendunum,
en verið gripnir af samverunni og
eignast þar vini, sem hafa orðið
þeim dýrmætari en allir aðrir.
★
Nú í sumar verðnr starfið rekið
með sama fyrirkomulagi og áður,
undir stjórn síra Friðriks Frið-
rikssonar. Frá Reykjavík eru þeg-
ar ákveðnir þessir flokkar;
I. fl. 6.—12. júlí, vikuflokkur.
II. fl. 12.—18. júlí, vikuflokkur.
III. fl. 18.-27. júlí, 10 daga fl.
Auk þessa verður e. t. v. ákveð-
inn flokltur í byxjun ágúst ef þörf
krefur.
Þátttökugjald verður sama og
áður, þrátt fyrir nokkra verð-
hækkun á ýmsum nauðsynjavör-
um til starfsins. I vikuflokk kost-
ar þátttaka 20 kr. fyrir þá, sem
eru yngri en 14 ára og 25 kr.
fyrir eldri; en í 10 daga flokk
verður 5 kr. dýrara. Fyrir þá, sem
dvelja í fleiri en einum flokki,
fæst nokkur afsláttur, sem nemur
ferðum.
Þeir, sem ætla að vera með í
sumar, eru beðnir að tilkynna
þátttöku sína sem fyrst í K. F. U.
M., sími 3437, til Ilróbjartar Árna-
sonar í Burstagerðinni, sími 4157,
eða til einhverra af starfsmönn-
um K. F. U. M. Á þessum stöðum
er einnig hægt að fá allar nánari
upplýsingar.
★
Sá misskilning'ur hefir virst
slæðast inn hjá nokkrum, sem eru
ókunnug’ir þessu starfi, að hjer
sje aðeins um einskonar „klúhh-
starfsemi“ fárra manna að ræða,
sem hafi tekið sig saman um að
eyða sumarfríi sínu á þennan hátt.
En svo er ekki. Hjer er ekki um
innilokaðan þröngan hóp
manna að ræða, heldur al-
ment starf, sem öllum er
heimill aðgangur að, öllum sem
vilja beygja sig undir þær ein-
földu og sjálfsögðu reglur, sem
starfið hlýtur að lúta.
Þátttaka hefir einnig verið mjög
mjög almenn frá öllum stjettum
þjóðfjelagsins, án nokkurs mann-
greinarálits. — Á þorðinu fyrir
framan mig liggur skýrsla, sem
sýnir injer að á nokkrum síðustu
árunum, sem hún nær yfir, hafá
um 1200 — tólf hundruð — pilt-
ar og drengir dvalið í Vatnaskógi
á vegum K. F. U. M., eina viku
eða lengur í senn.
Iljer er um að ræða starf, sem
á skilið óskifta athygli og stuðn-
ing allra hugsandi manna, sem
bera framtíð æskunnar fyrir
brjósti.
Margir liafa ekki efni á að
kosta sig sjálfir í skóginn, en hafa
samt löngun og þörf fyrir að fara.
Væri nú ekki einhver, sem þetta
les, þess umkomínn að kosta eipn
eða fleiri, að einhverju eða öllu
leyti, til dvalar í Vatnaskógi í
sumar. Gjafakort, sem veita að-
gang að flokkum eftir nánari á-
kvörðunum, má fá keypt hjá Árna
Sigurjónssyni á Þórsgötu 4, sími
3504. Ástr. S.
Framköllun,
Kopiering og stækkun, fljótt
og vel af hendi leyst.
F. A. Thiele
Anstuistræti 20.
Böglasmjör
ágætt.
vism
Laugaveg 1.
Útbú Fjölnisvegi 2.
AUGAÐ hvílist
með gleraugum frá
miELE
Áædun arferðir
AKranes-Borgarnes
Alla þriðjudaga og föstudaga
strax eftir koma Fagraness. —-
Frá Borgarnesi sömu daga kl. 1
e. h. Fagranesið fer þriðjudaga
kl. 9 sd. til Reykjavíkur.
Magniis Gunnlaugss.
bifreiðarstjóri.
Með lækkuðu verði
Tarinur 6 menna 5.00
do. 12 manna 7.50
Ragúföt með loki 2.75
Smjörbrauðsdiskar 0.50
Desertdiskar 0.35
ísglös á fæti 1.00
Ávaxtadiskar, gler 0.50
Áleggsföt 0.50
ísdiskar, gler 0.35
Matskeiðar 0.25
Matgafflar 0.25
Teskeiðar 0.15
Barnakönnur 0.50
Kökudiskar stórir 1.50
Speglar 0.50
K. Einarsson íc Björnsson
Bankastræti 11.
RAFTÆKJA
VIÐGERÐIR
VANDAÐAR-ÓDÝRAR
SÆKJUM & SENDUM
MÁLAFLUTNÍNhSSKRíFSTOFA
Pjetur Magnússon.
Einar B. Guðmundsson.
Guðlaugur Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Austurstræti 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—9.