Morgunblaðið - 09.07.1939, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.07.1939, Blaðsíða 5
íSuimudagirr 9. júlí 1939. orgrniblafciö Útgef.: H.f. Árrakur, Reykjavlk, Rltstjðrar: Jön Kjartanaaon og ValtST Stef&naaon (ákypgHnrmPnrt. Auglýsingar: Árnl Óla. Ritstjörn, auglýslngar og afgretOsla: Austurstmstl I. — Stad IMð. Áskriftargjald: kr. S,00 á wAnuOt. í lausasölu: 15 aura elatakiS — 25 aura sa&O Lesbök. „LITLA VOPNLAUSA ÞJÓÐIN“ 5 Samtal við Joannes Patursson um S j álf stæðismál^fí Færeyjum Joannes Patursson. En þessi mótmæli komu fyrir ekki“. „Ekki hefir stjórninni tekist betnr að halda á málum þeirra sem sjóinn stunda; Útgerð Færey- inga liefir tekið nokkrum hreyt- ingum síðustu árin. Færeyingar hafa keypt togara, fyrst tvo með donsku lánsfje og síðan fleiri. En síðast keyptu þeir 5 togara frá Englandi. Þeir eiga nú alls 10 togara". . :'„Nú fyrir skömmu var hirt, stjórnartilskipun, þar sem togurun um 5, sem keyptir voru frá Eng- landi er bannað að selja afurðir sín ar í Miðj arðarhafslöndunum, Grikk landi, Ítalíu og á Spáni. Það er látið heita svo, að þetta sje gert til að vernda fiskiskúturnar. Mið- jarðarhafsmarkaðurinn á að vera eingöngu handa fiskiskútunum, og svo handa nokkrum togurum, sem njóta forrjettinda“. Þessi tilskipun kom alveg á 6- vart í Færeyjum. Var strax skotið á fundi í Thorshavn og þess kraf- ist, að hún yrði tafarlaust aftur kölluð. Hvaða afleiðingar það kann að hafa, ef ekki fæst að gert, má nlarka aí því, að eigend- ur togaranna, sem nú eru að veið- um við Bjarnarey,* hafa tilkynt að þeir muni þá neyðast til að af- skrá af skipum sínum þegar þau koma lieim“. „Þriðja málið, sem við eigum í stunda útróðra frá Grænlandi fram í september. Auk þess stunda veiðar við Grænland 2000 Færey- ingar á fiskiskútunum“. „En grænlenska landráðið á eft- ir að samþykkja leyfi til útróðr- anna. Svo er iíka mikið undir því komið, hvernig dönsku varð- skipin við Grænland haga gæsl- unni þar“. * Sp.: Hvernig er lögþingið skip- að? „I lögþinginu eiga nú sæti 8 Sjálfstæðismenn, 8 sambandsmenn, 6 sósíalistar og 2 vinnuflokks- menn“. „Sjálfstæðismenn og vinnu- flokksmenn eiga í raun og vern samleið. En nokknr sundrung hef- ir verið meðal Sjálfstæðismanna undanfarið, innan þingflokks þeirra. Flokkurinn gekk sumtrað- ur til fólksþingskosninganna síð- ast. Einnig buðu vin^uflokksmenn fram sjerstaklega. Árangurinn var að fulltrúi sambandsflokksins var kosinn“. „Fjögur ár eru síðan að síðast var kosið til Lögþingsins. Kosn- ingar eiga að fara fram í vetur, og væntanlega munu kjósendur úr öllum flokkum þá ganga sam- einaðir til kosninga um hagsmuna mál Færeyinga“., „Jeg er annars að verða gam- all maður“, bætir Patursson við, „og fer nú hvað úr hverju að draga mig í lilje úr stjórnmálun- um. Jeg hefi líka ýmislegt annað um. Jeg hefi ýmislegt annað að að starfa“. Ekki verður það sjeð á Pat- ursson, að hann sje farinn að eldast, þótt hann sje á áttræðis- aldri. Skegg og hár er tinnusvart og yfirbragðið unglegt og tígulegt. Hann gengur jafnan í færeyskum húning. Hann er giftur íslenskri konn, Guðnýu frá Karlskála. Þau hjón- in eru hjer í lieimsókn hjá dætrum síhum* sem giftar eru Þorsteini Scheiing Thorsteinson stimabraki við Dani iit af, er lyfsala og Júlíusi Sigurjónssyni Grænland. Við viljum fá leyfi tilllækni. Þegar jeg hitti hann í gær var hann nýkominn úr ferðalagi norð- AÐ er engin tilviljun, að þau ummæli, sem Thor Thors hafði í ræðu á íslendinga- degi heimssýningarinnar í New "York 17. júní, að ísland hafi engan her og engan flota, vektu .mesta athygli. Við íslendingar höfum áreið- •anlega ekki gert okkur ljóst enn þann dag í dag, hversu p- endanlega mikils virði það er rfyrir okkar land, að hafa lýst ævarandi hlutleysi og fengið viðurkenningu annara þjóða ;.fyrir því. En borgarstjóri New York, La Guarida kom auga á þetta dýrmæta hnoss íslensku þjóðar- /jnnar. í augum hans var ,,litla vopnlausa þjóðin“ norður í At- lantshafi sönn fyrirmynd allra jþjóða heims, sem fórna ógrynni fjár og blóði sinna bestu sona, til verndar frelsi sínu og sjálf- stæði. Við íslendingar erum alger- lega varnarlaus þjóð. Hvaða hernaðarþjóð sem er, getur á öllum tímum tekið okkur, svift okkur frelsi og sjáifstæði. — : Samt erum við ekkert smeykir. Við treystum á samúð og skiln- ing annara þjóða, treystum því, að þær láti ,,litlu vopnlausu 'þjóðina” vera í friði. Við ósk- um einskis frekar en að fá að búa í sátt og samlyndi við allar þjóðir. Við eigum engan óvin og við vonum, að aðrar þjóðir skoði okkur sem vin sinn, en .ekki óvin. ★ Er^ fyrst íslenska þjóðin hef- ir verið svo hamingjusöm,, að mega búa við ævarandi hmt- : leysi og þurfa þ. a. 1. engan her *og engan flota, verður hún á ' öllum tímum að gæta bess vand- lega að varðveita þetta dýr- mæta hnoss. Öllum rjettindum fylgja *einhverjar skyldur. Þegar við lýsum yfir ævarandi hlutleysi • og þetta er tilkynt öðrum þjóð- um, tökum við samtímis á herð- ar okkar skyldur, þær skyldur, að gæta hlutleysisins í hvívetna. Þessar skyldur eru í ýmsu fólgnar. Fyrst og fremst verðum við að gæta þess, að engin hernaðarþjóð fái hjer minstu rjettindi, er geta haft þýðingu í hernaði. En þetta eitt er ekki nóg. Við verðum að skoða all- ar þjóðir sem vini okkar. Þótt við sjeum andvígir þeirri stjórn- málastefnu, sem ríkir hjá ein- hverri þjóð, megum við alls ekki láta það hafa áhrif á okkar framkomu, í ræðu eða riti, gagn vart þeirri sömu þjóð. Því miður höfum við ekki gætt þessa sem skyldi. Okkur hefir verið gjarnt á, að fara niðrandi orðum um, valdamenn vinveittrar þjóðar, fyrir það eitt, að þjóðin hefir annað stjórnskipulag en við sjálfir getum aðhylst. Þetta má ekki svo til ganga lengur. Við verðum að skilja það, íslendingar, að um leið og við förum niðrandi orðum um valdamenn annara þjóða, erum við að særa viðkomandi þjóðir. En slíkt getur aldrei orðið far- sælt fyrir „litlu vopnlausu þjóðina“, sem óskar einskis framar, en að fá að búa í sátt og samlyndi við allar þjóðir. Á því, að þetta takist, byggist tilvera okkar sjálfstæðis í fram tíðinni. ★ Hjer hafa nýlega verið í heimsókn gestir frá voldugasta ríki Norðurlanda, Svíþjóð. — í skilnaðarsamjsæti sem haldið var fyrir þessa frændur okkar frá Svíþjóð, var á það bent, að Norðurlönd væru útverðir lýð- ræðisins í heiminum. Þetta er hverju orði sannara og í þessu eru Norðurlöndin sönn fyrirmynd allra þjóða heims. Við lifum nú á tímum, þar sem kept er við að fótum rroða frelsi og mannrjettindi þjóða og einstetklinga. — Gegn þessu ofbeldi er ekkert betra vopn til, en efling lýðræðisins og þeirra mannrjettínda, sem það er reist á. Við Islendingar gætum vissu- lega verið fyrirmynd annara þjóða, hvað það snertir, að varð veita það besta í lýðræðinu og gæta þess, að það verði ekki of- beldinu að bráð. Þjóðin er í eðli sínu frjálslynd, þolir ekki ófrelsi og kúgun. Forfeðurnir yfirgáfu óðul sín og lendur af því þeir þoldu ekki ofríki harð- stjórans. Við eigum minningarn- ar um hið forna, glæsilega Al- þingi, sem menningarþjóðir nú- tímans öfunda okkur af. Við eigum líka minningarnar um úlfúð og flokkadrætti, sem urðu orsök þess, að þjóðin, sem elsk- aði frelsið heitast af öllu, glat- aði því að lokum. * Sagan hefir vissulega búið svo í hendur oklcar nútíma ís- lendinga, að okkur ætti að vera auðvelt að byggja hjer upp ríki, sem yrði öðrum þjóðum, til fyrirmyndar. Það er okkur ekki nóg, að eiga til á pappírnum frjáls- lynda stjórnarskrá þar sem geymd eru ýms mikilsverðustu rjettindi; sem eru hyrningar- steinar hins sanna lýðræðis. Við verðum í öllu okkar stjórnar- fari að gæta þess, að ekki sje traðkað ,á þessum rjettindum, svo að þegnarnir finni, að þeir eru frjálsir menn í frjálsu landi. PAÐ er í sjálfu sjer ekki skammlaust, hversu lít- ið við íslendingar vitum um frændur okkar, Færeyinga, atvinnumál þeirra og stjórn- mál. Færeyingar eru aftur. á móti sagðir láta sjer mjög ant um frændsemina við ís- • lendinga. Þegar jeg hitti Joannes Paturs- scn kongsbónda í Kirkjubæ að máli í gær og spurði hann um,‘ færeysk stjórnmál, varð jeg að játa hreinskilnislega að jeg vissi sama og ekkert um þan. Hin fá- orðu skeyti, sern stundum hafa verið að birtast í Mbl. frá Fær- eyjum, hafa ekki verið nógu ítar- leg til þess gefa neina glögga heildarmynd af lífi og starfi frænda vorra. ★ Joannes Patursson er fremstur þeirra manna, sem herjast fyrir sjálfstæðismálum Færeyinga. Hann hefir nú staðið í þessari baráttu í riimlega mannsaldur. „Barátta okkar fyrir sjálffor- ræði heldur stöðugt áfram“, sagði Joannes Paturssou. „Við erum sjerstök þjóð, sem búmn í okkar eigin landi. Það er þetta seni við viljum að Danir skilji“. Hann hjelt áfram: „Þegár grund vallarlögin dönsku voru lögð fyrir Landsþingið árið 1936 var jeg; landsþingmaður Færeyinga. Jeg; setti þá fram þá kröftt í Lands- þinginu að grundvallarlögin yrðiv lögð fyrir lögþingið í Færeyjmn. Forseti þingsins mótmælti þessu og sagði að lijer lægj fyrir mis- skilningur. Hann sagði að hinn háttvirti þingmaður Færeyinga virtist ekki skilja að Færejdngar væru ekki sjersiök þjóð, heldur hluti af dönskn þjóðinni og að Færeyjar væru hluti af Danaveldi. Kröfu minni uni að gnmdvallar- lögin yrðu lögð fyrir lögþingið var vísað á bug með öllum at- kvæðnm gegn einn — mínu eig- in“. — „En nú í vor, þegar þjóðarat- kvæðagreiðslan var látin fara fram um grundvallarlögin,, voru Fær- eyingar hafðir með. Þeir risu þá upp sem einn maður gegn hinum dönsku • grundvaliariögmn og að- eins 8% lcjósenda sogðu já við þeim. Það voru okkar mótmæli". * ^ * „A nær öllum sviðuin er óá- nægja með stjórn Dana“, heldur Jo'annes kðngshóndi áfram. „Þeir sem stunda landbúnað eru óá- nægðir með hin nýju jarðræktar- lög, sem samin voru eftir uppá- stungu landbúnaðarráðherrans og gengu í gildi í fvrravor. Þessi lög miða að því, að sósíalisera jarðirn- ar. Þeir, sem ekki vildu hlíta þeim, stofnuðu með sjer fjelag og söfn- uðu 3 þús. undirskriftum undir mótmælaskjal, sem sent var til konnngs og dönsku stjórnarinnar og þess j^fnframt krafist, að lög- þingið í Færeyjum yrði rofið, og nýjar kosningar iátnar fara fram. NýkjöriS þing myndi síðan geta tekið málið til meðferðar aftur. að fiska við Grænland, alstaðar þar sem fisk er að fá. Við viljum líka fá rjett til að setjast að í Grænlandi og setja þar upp bú samkvæmt fornum rjetti“. „Síðan þessi mál vorn tekin upp fyrir alvöru árið 1924, hefir litlu fengist um þokað, en fer nú von- andi smám saman að lagast“. „Við höfnm að vísu fengið Fær- eyingahöfn og tvær hafnir aðrar opnaðar, og auk þess leyfi til að fiska á ákveðnu svæði innan skerja. Einnig höfum við fengið leyfi til að stunda útróðra frá höfnunum, sem opnaðar hafa ver- ið. Fóru í sumar allmargar skips- hafnir, um 500 manns, til þess að ur að Ilólum í Hjaltadal. Hann langaði til að sjá búnaðarskólann þar (búnaðarskóli fyrir Færeyjar hefir lengi verið eitt af áhugamál • um hans og um eitt skeið rak hann sjálfur húnaðarskóla í Kirkjubæ og húsfrúin htísmæðraskóla) og hið foriia hiskupssetur. Sjálfnr býr hann á biskupssetri í Færeyjum, Kirkjubæ. Hann hefir líka komið að Sáms- stöðum á meðan hann liefir dval- ið hjer, til þess að sjá kornrækt- ina þar. Kornrækt er nokkur í FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.