Morgunblaðið - 03.08.1939, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtndagur 3. ágúst 1939.
iÞað, sem skeð liefir ....
Kernogan hertogi hefir flúið til Eng-
lands frá Nantes eftir að stjómarbylt-
ingin brýst út í Frakklandi. Hann vill
gifta dóttur sína, Yvonne, Martin Rog-
■et, bankastjóra frá Brest, sem Iofar að
flytja þau til Hollands og hjálpa for-
ingjum konungssinna. Yvonne hefir þó
gifst Anthony lávarði, og faðir henn-
■ar kemur að heimsækja brúðhjónin,
þykist hafa fyrirgefið Yvonne og fær
hana til þess að fylgja sjer heim. A
leiðinni mæta þau Martin-Roget. Kem-
ur þá í Ijós, að hann er í raun og
veru Pierre Adet frá Nantes og hatar
hertogann fyrir að hafa látið hengja
föður hans saklausan fyrir fjórum ár
um. Hann fer með þau til Nantes, þar
•sem grimdarseggurinn Carrier er ein-
Táður og ætlar með hjálp hans að koma
fram hefndum á hertoganum og dóttur
ihans.
Martin-Roget stóð á fætur og
rjetti úr sjer. Hann átti mjög erf-
ítt með að dylja fyrirlitningu sína
á þessu andstygðar lítilmenni, en
hann neyddist til þess að sýna
honum smjaðurslega undirgefni.
„Þjer skuluð fá 10 þúsund
franka, Carrier borgari“, sagði
hann. „Það er aleiga mín nú, það
«ina, sem jeg á eftir af þeim 25
þ>úsund frönkum, sem jeg hefi
sparað saman síðustu fjögur árin.
Þjer hafið þegar fengið fimm þús-
und franka frá mjer, og þjer skul-
uð fá tíu þúsund í viðbót. Jeg sje
•ekki eftir peningunum. Jeg myndi
fúslega gefa yður tíu ár af lífi
Þjer getið byrjað
að fylgjast með
i dag
mínu, ef þjer kærðuð yður um
það, fyrir hjálp yðar í þessu máli,
sem hefir meiri þýðingu fyrir mig
en sjálft lífið“.
Carrier hló og ypti öxlum. Hon-
um fanst Martin-Roget mesta flón.
„Jæja, þá er þetta útkljáð mál,
borgari", sagði hann. „En munið,
að jeg hefi aðvarað yður, og í
raun og veru tel jeg skipin mín
hentugri fyrir s.vona fólk en ráða-
gerðir yðar“.
„Jeg þakka yður fyrir hjálpina,
Martin-Roget borgari“, sagði
hann, og bætti síðan við í spurn-
arróm: „Þjer sögðuð í kvöldf'
„Já. Marat-sveitin brýst inn í
„Dauðu rottuna“ í kvöld, undir
forystu Fleury, og jeg gef skipun
um að taka fasta alla, sem þar eru,
karlmenn, konur og börn. Ef þjer
sjáið um, að hertoginn og dóttir
hans verði þar — þá verða þau
rekin til París með hinum“.
„Það er löngu búið að hringja
í miðdegisverðinn“, sagði Lalouet
þurrlega. „Súpan verður ísköld, og
matsveinninn, hvítglóandi af
vonsku“.
„Það er rjett, Lalouet", sagði
Carrier og hallaði sjer makinda-
lega aftur í stóliium. „Við höfum
Hin ágœta framhalds§aga
AKURLILJAN
og rænda brúðurin
RAUÐA
J eytt alt of miklum tíma í þetta
! hyski, sem, ætti fyrir löngu að
liggja á botni Loir. Heimsókninni
er lokið“, bætti hann við í lítil-
látum róm.
Chauvelin stóð á fætur og
sneri sjer út að dyrunum.
Hann hafði ekki mælt orð frá vör-
um síðasta hálftímann, og enginn
gat vitað, hvort hann hafði fylgst
með samtalinu eða ekki. En nú,
þegar Lalouet var að loka dyrun-
um á salnum, datt honum alt í
einu eitthvað í hug og sagði í
skipunarróm:
„Bíðið augnablik, borgari!“
„Hvað er nú?“, spurði ungi
maðurinn í ósvífnum róm og fyr-
irlitningarsvipur færðist í augu
hans, hann virti fyrir sjer hinn
fyrverandi harðstjóra.
„Það er viðvíkjandi hertogadótt
urinn“, hjelt Chauvelin áfram.
„Hana verður að flytja í veitinga-
húsið, áður en dimmir. Það er
ekki ósennilegt, að einhver dular-
full öfl sjeu að verki hennar
vegna ....“
„Dularfull öfl?!“, tók ungi mað-
urinn fram í fyrir honum. „Hvers-
konar öfl ættu það að vera?“
„Æ, við vitum, að aðalsmenn-
irnir eiga áhrifamikla vini. Og það
er ekki örugt að flytja stúlkuna á
milli húsa, þegar dimt er orðið.
Hún verður ekki fús að fara, kall-
ar kannske á hjálp og dregur
fram þessi huldu öfl. Jeg legg til,
að ein Marat-deildin fylgi henni í
„Dauðu rottuna“ . . . .“
Lalouet ypti öxlum.
„Það verðið þið sjálfir að sjá
um“, sagði hann stuttur í spuna.
„Ekki satt, Carrier?“, bætti hann
við og leit um öxl á Carrier, sem
kinkaði kolli til samþykkis.
Martin-Roget ætlaði að fara
að segja eitthvað, en Carrier, sem
fjekk nú eitt af sínum venjulegu
reiðiköstum, stöðvaði hann og
hrópaði: „Nei, nei, nú er nóg
komið! Lalouet borgari hefir rjett
fyrir sjer. Jeg hefi þegar gert nóg
fyrir yður. Og viljið þjer koma
stúlkunni í „Dauðu rottuna",
verðið þjer að sjá fyrir því sjálf-
ur. Er hún ekki í næsta húsi? Jeg
vil engin afskifti hafa af því og
læt ekki hermenn mína í það.
Skiljið þjer ekki, að jeg er um-
kringdur af njósnurum? Það væri
laglegt, ef þeir ákærðu mig fyrir
að flytja aðalsmenn með valdi í
illræmd hús og taka þá fasta þar
sem afbrotainenn! Burt með yður!
Jeg er búinn að fá nóg af þessu!
En verði þetta hyski yðar í „Dauðu
rottunni“ í nótt. verður það hand-
tekið með hinu hyskinu. Meira
hefi jeg ekki um þetta að tala.
Þjer verðið að sjá um það, sem
eftir er. Lalouét! Lokið hurðinni!“
Og án þess að leyfa Martin-
Roget eða Chauvelin að andmæla,
lokaði Lalouét hurðinni rjett vi5
nefið á þeim.
egar þeir voru komnir út blót-
að Martin-Roget duglega.
„Að hugsa sjer, að við skulum
vera í klónum á þessari skepnu!“,
sagði hann.
„Og þurfum aðstoð hans, til
þess að koma fyrirætlunum okkar
í framkvæmd“, bætti -Chauvelra
við og andvarpaði.
Framh.
Hátíð verslunarmanna
fjölbreyttari en nokkru sinni.
1. Ferð til Veslmannaeyja:
Lagt af stað föstudagskvöld þ. 4. þ. m. með e.s. Gullfossi og komið heim með e.s. Lyru á mánudag eða e. s. Brúar-
fcssi á þriðjudag. Fargjald með Eimskipafjelagsskipunum kr. 7.00 hvora leið, en með e.s. Lyru kr. 10.00.
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum hefst á laugardag.
Tjaldstæði í Herjólfsdal (ókeypis), ennfremur er sjeð fyrir góðu, upphituðu húsnæði til þess að liggja í yfir helg-
ina. Svefnpokar eða teppi þurfa þátttakendur þó að hafa meðferðis.
2. Ferð í Borgarfjðrð:
Lagt af stað með e.s. Laxfoss á laugardag þ. 5. þ. m. kl, 3,
og eru ferðfr til baka á sunnudag og mánudag.
Á laugardagskvöld verður dansleikur í samkomuhúsinu
í Borgarnesi og á sunnudag skemtun við Þverárrjett.
Fargjald með e.s. Laxfoss kr. 11.00 báðar leiðir.
3, Ferð i Þjérsárdal:
Lagt af stað kl. 3 á laugardag frá Bifreiðastöð Steindórs
og ekið í Þjórsárdal. — Á sunnudag verður það mark-
verðasta í dalnum skoðað og ekið um Brúarhlöð að Gull-
fossi og Geysi. Á mánudaginn verður ekið um Grafning
til Reykjavíkur.
Fargjald kr. 22.00. — Viðleguútbúnaður nauðsynlegur.
Farseðlar áð öllum þessum ferðum eru eingöngu seldir á skrifstofu Verslunarmannafjelags Reykjavíkur, herb.
16—17 í Mjólkurfjelagshúsinu. Sími 5293.
Þáttaka í ölluin þessum ferðum er nú þegar orðiti mjög inikil og cru þeir, sem
ekki þcgar hafa tryggt sjer ffarseðla ámtntir að gera það, sem fyrst.
Dagskrá skemtunarinnar að Eiði verður auglýst á morgun.
Á morgnn er sfðasti endurnýjunardagur. Hlunið eftir að
endurnýja ðður en þjer farið úr bænum. Happdrættið.