Morgunblaðið - 30.08.1939, Blaðsíða 3
MORGUM BLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. ágúst 1939
3T
Ráðstafanir stjórnarinnar
vegna ófriðarhættunnar
Undirbúningur
undir skömtun
Ríkisstjórnin hefir undirbúið ýmsar víðtækar
ráðstafanir, vegna stríðshættunnar, og verð-
ur gripið til þeirra, ef stríð skyldi brjótast út.
Þessar ráðstafanir miða fyrst og fremst að því, að
reyna að gera þjóðinni kleift að búa sein mest að'sinni
eigin framleiðslu, ef aðflutningar til landsins skyldu tepp-
ist eða torveldast mjög,
í tilkynningu frá ríkisstjórninni, sem Morgunblaðinu hefir bor-
ist, segir svo:
Eörnin í „Vesturborg-“ drekka miðdegisdrykkinn úti undir berum
himni.
r
A 3. hundrað börn
i Grænuborg og
Vesturborg í sumar
Sumarstarfsemi Barnavina-
fjelagsins lokiö i dag
Sumarstarfsemi barnaheimilanna ,.Grænuborg“
og „Vesturborg“ lýkur í dag. Hafa 175 börn
verið á báðuin heimilunum til jafnaðar í sum-
ar, en starfstímabilið er frá 1. júní til 1. september.
Blaðamenn voru í gær boðnir að skoða heimilin, og voru í
fylgd með þeim Steingrímur Arason, form. Barnavinafjelagsins
„Sumargjöf“ og gjaldkeri fjelagsins, ísak Jónsson.
Undanfarið hefir ríkisstjórnin
í samráði við nefnd þá, sem skip-
nð var á árinu 1938 vegna yfir-
vofandi . ófriðarhættu, haft með
hönduin ýrnsan undirbúning að
þeim ráðstöfunum, sem nauðsyn-
legt yrði að gera, ef til ófriðar
kæmi, og gert nokkrar ráðstafan-
ir með það fyrir augum að styrj-
öld kynni að brjótast út. Þykir
rjett að gefa yfirlit um nokkrar
þeirra:
Náttúrufrseðirannsóknanefndintni
hefir verið falið að rannsaka,
hvort hægt sje að framleiða hjer
vörur, sein þjóðinni efu nauðsyn-
legar og fluttar eru frá^útlöndum,
ef svo kynni að fara að aðflutn-
ingar á þeim teptust, eða aðrar
vörur, sem notá mætti í þeirra
stað. Hefir nefndinni sjerstaklega
verið falið að athuga á hvern hátt
heppilegast væri að , fullnægja
feitmetisþörf þjóðarinnar, ef að-
flutningar á hráefni til smjörlík-
isgerðar takmarkast.
Búnaðarfjelag-i íslands hefir
verið falið að gera tillögur um,i
hvaða breytingar á búnaðarhátt-
um kynnu að verða nauðsynlegar
ef til ófriðar dregur og aðflutn-
ingar teppast, hvað unt sje að
gera til þess að undirbúa þá breyt
ingu, og jafnframt hvaða ráðstaf-
anir eðlilegt myndi að gera þegar
siglingateppa væri fyrirsjáanleg
og líkleg til að standa til lang-
frama. Hefir Búnaðarfjelagið þeg
ar gert nokkrar tillögur um þetta
og mun unnið að því af kappi að
gera heildaryfirlit um þetta efni.
Ríkisstjórnin hefir ritað land-
lækni og falið honum í samráði
við nefnd þá, er skipuð var til
þess að hafa með höndum inat-
vælarannsóknir, að gera tillögur
um það,, hversu heppilegast myncli
vera að breyta mataræði þjóðar-
innar, ef erfitt reyndist að fá er-
lend matvæli, og hvaða fæðuteg-
undir skuli leggja mesta áherslu
á að framleiða innanlands, ef slíkt
ástand stæði til langframa.
Ríkisstjórnin gaf á sínum tíma
út sjerstaka áskorun til manna
nm að auka garðrækt, og hefir
hún nú sjeð um að Búnaðarfjelag
íslands vinnur að því að fram-
leiðendur leggi til hliðar nægilegt
útsæði af framleiðslu þessa árs
Síldveiðin
er stopul
Sum skip fá
góð köst
Ifyrrinótt og gær kom nokkuð
af saltsíld til Siglufjarðar.
Einnig fengu ríkisverksmiðjurnar
rúm 4000 mál í bræðslu.
Mestan afla höfðu: Júní 1800
mál og Sigríður 1100 mál.
Alls voru saltaðar á Siglufirði
síðasta sólarhring 3328 tunnnr, þar
af 912 úr reknetum. Veiðiveður
var ágætt, en reknetaveiði treg.
Yon var á skipum til Sigluf.jarð-
ar í gærkvöldi.
Hjalteyri.
Yeiði togaranna var stopul í
gær, en sumir fengu þó góð köst.
Þessir togarar hafa landað á
Hjalteyri: Skutull með tæp 1800
mál, Egill Skallagrímsson 2037 og
Óli Garða með 1670 mál. Snorri
goði var á leiðinni með um 19,00
mál.
Aðrir Hjalteyrartogarar höfðu
góða veiði í sjer. Arinbjörn hers-
ir hafSi fengið 14—1500 mál, þar
af 800 í einu kasti; Þórólfur 1000,
Skallagrímur 16—1700, Gulltopp-
ur um 1600, Gyllir 13—1400 og
Belgaum um 1400 mál.
Djúpavík.
Þangað kom 'Rán í gærmorgun
með 1400 mál. Aðrir togarar
Djúpuvíkur höfðu allgóða veiði í
sjer, 1000—1200 mál. Jón Ólafs-
son fekk svo stórt kast, að hailn
sprengdi nótina og misti alt.
Sviði kom til Krossaness í gær
með 1700 mál.
BRÚARFOSS ENN í
GRIMSBY.
rúarfoss var búinn að losa
farm sinn, 400 srnál. af hrað-
frystum) fiski, í Grimsby í gær. En
ákveðið var að láta skipið bíða í
höfn enn um sinn.
Goðafoss lagði aftnr á móti af
stað frá Hull snemma í gærmorg-
un. Skipið hefir 850 smálesta farm,
þar af 350 smálestír frá Englandi.
1 Grænuborg hafa -verið að
meðaltali 102 börn í sumar,
bæði telpur og drengir, en 150
börn hafa alls komið á heim-/
ilið. Börnin eru á aldrinum 3—
8 ára, og er skift niður í fimm
flokka. Forstöðukona heimilis-'
ins er Guðrún Stephensen, en
kennari Sigríður Eiríksdóttir. —
Níu stúlkur vinna við dagheim-
ilið, 7 fullorðnar og 2 unglings-
stúlkur.
Börnin í elstu deildinni fá
ýmislegt að læra undir leiðsögn
kennarans, þau lesa, teikna,
byggja úr kubbum og pinnum
o. m„ fl. Þá hafa þau og hjálpað
til við garðvinnu í kringum hús-
ið, reitt arfa, vökvað og slíkt.
I Vesturborg hafa börnin alls
verið 106 í sumar, flest 83, en
að meðaltali 74, yngst 2 ára, en
elst 8—10 ára. Forstöðukona er
þar Bryndís Zoega, og kennari
Gerður Magnúsdóttir. — Átta
stúlkur hafa starfað við heim-
ilið.
í Vesturborg hagar svipað til
og í, Grænuborg, elstu börnin
læra ýmislegt innanhúss, þegar
illa viðrar, m. a. fá þau að vefa,
fljetta, búa til ýmsa hluti úr
veggfóðri og hafa ýms leikföng
sjer til skemtunar.
*
Á báðum heimilunum eru
stór leiksvæði fyrir börnin utan
húss, með rólum, „söltum“,
FRAMH. Á SJÖTTU Sfi)U.
Jafntefli við Dani
fþremurskákum
á alþjóðaskák-
mátinu
Samkvæmt einkaskeyti sem
Morgunblaðinu barst í gær
frá Buenos Aires, þá hafa fs-
lendingar nú í þriðju umferð
skákþingsins teflt við Dani. —
Þremur skákunum við þá var
lokið þegar skeytið var sent, en
ein skákin varð biðskák.
Baldur Möller tapaði skákinni
á fyrsta borði við Argentínu-
menn.
í skákinni við Dani fóru leik-
ar þannig:
Baldur Möller vann Jens
Eenevoldsen á fyrsta borði.
Chr. Poulsen vann Ásmund
Ásgeirsson á öðru borði.
Einar Þorvaldsson á .biðskák
við Ernst Sörensen á þriðja
borði.
Guðmundur Arnlaugsson gerði
jafntefli við Alf Christensen á
fjórða borði.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
—Norðurlond—-
hverfa frá sterlings-
pundinu
Frá frjéttaritara vorum.
Khöfn í gær.
Norðmenn fóru að dáemi
Svía og Finna í dag og leystu
krónuna frá sterlingspundinu.
Sterlingspundið var skrásett í
Oslo í dag á kr. 18,80.
Danir eru líka að yfirvega
að taka upp nýja gjaldeyris^
pólitík. Að nafninu til er ster
lingspundið skrásett með
gamla genginu kr. 22,40. En
i dag var verslað með pund-
ið á kr. 21,50.
r
Islenskt síld-
veiðiskip
brennur
Skipshöfnin
bjargast
Síldveiðiskipið „Unnur‘ ‘ frá
Akureyri brann og gereyði-
lagðist út af Rauðunúpum aðfara-
nótt þriðjudags. Skipshöfnin bjarg
aðist í nótabátana og síðan í
Stellu, en Sæbjörg flutti hana til
Siglufjarðar.
Nánari atvik eru:
Seint á mánudagskvöld var
„Unnur“ á leið austur með Sljettu
og gaus þá skyndilega upp eldur
í vjelarrúmi. Vjelarmaður var þá
nýgenginn til kaffidrykkju fram
í hásetáklefa.
Vjelahúsið varð alelda á svip-
stundu og varð slökkvitækinu ekki
náð. Var reynt að slökkva með
sjó, en árangurslaust. Sama og
engu varð hjargað af farangri
skipverja.
Talið er aðj kviknað hafi lit frá
ljósatöflunni.
„Unnur“ var 36 smálestir og
eigendur þeir Karl Friðriksson og
Jakob Jónsson, Akureyri. Skip-
stjóri var Sveinn Frímannsson.
SunnlensKu prestarnir
komnir heim
Sunnlensku prestarnir komu í
gærkvöldi heim úr för sinni
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Þeir ljetu hið besta yfir förinni.
Lögðu af stað úr Vík kl. 10 árd.
í gærmorgun og staðnæmdust í
Holti undir Eyjafjöllum. Þar tóku
prestshjónin rausnarlega á móti
öllum hópnuni; síra Jón Guðjóns-
son var með í förinni austur.
Á fundi Prestafjelags Suður-
lands, sem haldinn var í Vílc, voru
rædd ýms sameiginleg áhugamál
prestanna. Stjórn fjelagsins var
endurkosin, en hana skipa: Síra
Guðmundur Einarsson, síra Hálf-
dan Helgason og síra Sigurður
Pálsson.
Ráðgert var, að halda næ*sta árs
fund á Suðurnesjum.
FRAMH. Á BJÖTTU Sfi>U