Morgunblaðið - 22.09.1939, Side 8

Morgunblaðið - 22.09.1939, Side 8
r 9 GLADIOLUR fallegar, ódýrar. KAKTUSBÚÐIN j/fi Laugaveg 23. Sími 1295 NÝ SÍLD Rsksalan Björg. — Sími 4402. Komið aftur SALTROTEX RODEL fótabaðsalt. — Pedicure, Aðal- stræti 9. BÍLL TIL SÖLU 3 tonna Fordson, módel 1934, til sölu. Vagninn er nýyfirfar- inn. — Upplýsingar Sig. Hall- björnsson, Akranesi. „IBIS“, útlend ofnsverta nýkomin. — Sápubúðin. MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR, Fersólglös, Soyuglös og Tómat- flöskur keypt daglega. Sparið milliliðina og komið beint til okkar ef þið viljið fá hæsta verð fyrir glösin. Við sækjum heim. Hringið í síma 1616. — Laugavegs Apótek. ÞORSKALÝSI Laugavegs Apótekð viðurkenda meðalalýsi fyrir böm og full orðna, kostar aðeins 90 aura heilflaskan. Lýsið er svo gott, að það inniheldur meira af A og D-fjörefnum en lyfjaskráin ákireður. Aðeins notaðar ster- ilar (dauðhreinsaðar) flöskur. Hringið í síma 1616. Við send- um um allan bæinn. DÖMUFRAKKAR ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guð- mundsson, klæðskeri, Kirkju- hvoli. KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ. — Bjöm Jónsson, Vesturgötu 28. Simi 3594. KAUPUM FLÖSKUR atórar og smáar, whiskypela, glös og bóndósir. Flöskubúðin, Tlergstaðastræti 10. Sími 5395. Sækjum. Opið allan daginn. KAUPUM FLÖSKUR glös og bóndósir af flestum teg- undum. Hjá okkur fáið þjer á- valt hæsta verð. Sækjum til yðar að kostnaðarlausu. Sími 5333. Flöskuversl. Hafnarstr. 21 EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR og blúsur í úrvali. Saumastofan Uppsölum, Aðalstræti 18. — Sími 2744. 2 HERBERGI OG ELDHÚS óskast. Góð umgengni, skilvís greiðsla. Uppl. í síma 2650. BÚÐ TIL LEIGU 1. okt. rjett við miðbæinn. Reksturslán hugsanlegt. Tilboð merkt ,,Búð“ með tilgreindri tryggingu ef lán óskast, sendist Morgunblaðinu. Hafnarfjörður: 1—2 HERBERGI og eldhús til leigu Tjaraar- braut 9, Hafnarfirði. Árni EI- ísson. m Föstudagur 22. sept. 19391 I Orczy barónessa: EÍÐUTU7W1 | Þfer getið byrfaö að fylgfast ineð i dag. — 18. dagur. | íiiiiiiiiiiiHiimiiiinniiiiuiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii' iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiiimiitmiiiuniii PÚÐAR settir upp, og filerað í gardín- ur, einnig fileringargarn til sölu. Freyjugötu 39. Sími 2346. ISLANDSKE SKRIBENTER Norsk oversetter av isl. böker, noveller, dikt, artikler söker forb. med isl. forf. Fordelaktig anbr. av noveller etc. besörges. Pálitelig, dyktig, hurtig. J. Geelmuyden, Lysaker pr. Oslo. HREINGERNINGAR leysum best af hendi. Guðni og .Þráinn, sími 2131. REYKHÚS Harðfisksölunnar við Þvergotu, tekur kjöt, fisk og aðrar vörur til reykingar. Fyrsta flokks vinna. Sími 2978. HREINLEGIR MENN teknir í þjónustu. 1. fl. vinna. Amtmannsstíg 2. BARNAFATNAÐUR prjónaður, heklaður, saumaður. Sokkaprjónastofan, Bræðraborg arstíg 15. OTTO B. ARNAR, löggiltur útvarpsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- íng og viðgerðir á útvarpstækj- um og loftnetum SOKKAVIÐGERÐIN, Hafnarstræti 19, gerir við kven- sokka. Fljót afgreiðsla. — Sím 2799. Sækjum sendum. &ZUtynnin<jac VENUS SKÓGLJÁI mýkir leðrið og gljáir skóna af- burða vel. VENUS-GÓLFGLJÁI afburðagóður og fljótvirkur. — Ávalt í næstu búð. FRIGGBÓNIÐ FÍNA, er bæjarins besta bón. Það, sem skeð hefir í sögunni: Juliette frönsk hertogadóttir, er hef- ir svarið föður sínum þess eið fyrir 10 árum að hefna sin á Deroulede, fyrir að hafa vegið bróður hennar í einvígi, verður fyrir aðsúg af skrílnum í París eftir stjórnarbyltinguna og er bjargað inn í hús Derouledes þjóðþingsfull- trúa. Hann fær ást á henni, en hún heyrir á samtali hans og Iiauðu akur- liljunnar (Sir Percy Blakeney) að hann ætlar að reyna að bjarga Marie Antoinette úr fangelsinu og skrifar frönsku stjórninni ákæru á hendur hon- nm. Hann var fölur, en í hinum djúpu og alvarlegu augum hans sást hvorki ótti nje undrun. Það var eins og sæi hann fyrir sjer einhverja æðri sýn, sem ást- arjátning hans hafði kallað fram. „í nafni lýðveldisins!“ Enn einu sinni heyrðust skipun- arorðin, skýrt og hvelt, í þriðja sinn, eftir lögboðinni venju. Deroulede leit ósjálfrátt á tösk- una, sem hafði að geyma skjölin, sem voru fellandi fyrir málstað hans. Og brennandi ósk um að forða sjer kom rjett sem snöggv- ast upp í huga hans. Hann gerði sig jafnvel líklegan til þess að þrífa töskuna og fela hana á sjer, en, hún var svo þykk og þung, að það var vonlaust. Hann mætti augnaráði Juliette, er horfði á hann með svip, sem opinberaði honum ást hennar til hans. Þá hvarf veikleiki hans, og hann var aftur rólegur og örugg- ur eins og hann átti að sjer, van- ur að bjóða hættunni byrginn og temja hinn æstasta skríl. Deroulede ypti öxlum yfir hinni óheillavænlegu tösku og gekk síðan út að hurðinni. Hún hafði þegar verið opnuð utan frá, og Deroulede stóð aug- liti til auglitis við mennina fimm. „Merlin borgari!" sagði hann ofur rólega, er hann sá hver var fremstur. „Hann sjálfur, Deroulede borg- ari!“ sagði hinn og glotti háðs- lega, þegar hann sá Deroulede standa þarna, rólegan og stiltan, prúðbúinn, eins og væri hann að taka á móti velkomnum gesti. Merlin hafði alla tíð hatað Der- oulede fyrir lýðhylli hans. Og hann stóð um stund þegjandi og virti Deroulede fyrir sjer, til þess að njóta þess að sjá hann í þess- ari aðstöðu. Ljósið í anddyrinu fjell á ákveðið og dökt andlit Derouledes, þar sem hann stóð stór og þrekinn fyrir innan dyrn- ar, en að baki honum var dimt, þar sem hlerarnir voru fyrir gluggunum. Merlin sneri sjer að leiðsögu- mönnum sínum, eins og köttur, sem leikur sjer að mús, og benti brosandi á Deroulede. „Sjáið þið“, sagði hann með nöpru háði. „Aðalsmanninum virð- ist ekki skiljast, að við erum hjer í nafni lýðveldisins. En þjer haf- ið, borgari“, bætti hann við og sneri sjer aftur að Deroulede, „bruggað frelsi þjóðarinnar bana- ráð síðustu tíu árin, og nú fyrst fáið þjer makleg málagjöld! Fólk- ið er farið að átta sig. Og þingið hefir falið mjer að athuga, hvers- konar svik þjer hafið haft í frammi innan þessara fjögurra veggja' ‘. „Gerið svo vel, Merlin borg- ari“, svaraði Deroulede og vjek til hliðar, svo að sendimennirnir kæmust inn. Það þýddi ekki að sýna mót- spyrnu og hann hafði vit á því að vægja. Meðan þessu fór fram hafði Juliette ekki bært á sjer. Síðan skipunarorðin um að opna í nafni lýðveldisins höfðu hljóm- að um húsið, voru ekki liðnar nema fáeinar mínútur. Hönd hennar brann enn eftir kossana, og ástarorðin endurómuðu fyrir eyrum hennar. Hún hafði hræðilegt samvisku- bit út af glæpnum, sem hún hafði drýgt og sá nú fyrir sjer afleið- ingar hans. En það var of seint að iðrast. Það var sýnilega úti um> Deroulede! Hann stóð augliti til auglitis- við fjandmanninn, sem var að gefa-. mönnum sínum skipun um að gera húsrannsókn hjá honum, og. þarna var taskan, með skjölunum og vegabrjefunum, sem hún hafðl heyrt Deroulede og Sir Percy Blakeney tala um. Hún þóttist viss um, að svo væri, og einblíndi á hana, lömuð af skelfingu. Á:. næsta augnabliki hafði Jiún þrifið hana í ofboði og fleygt henni í sófann. Og síðan settist hún hjá- henni, virðuleg eins og drotning, með yndisþokka Parísarstúlkunn- ar, og breiddi úr fellingunum í" kjólnum sínum, svo að taskan - sást ekki. Frammi í anddyrinu var Mer- lin að gefa tveimur mann— anna skipun um að stilla sjer upp við sitt hvora hlið Derouledes, en.: hinir tveir áttu að fylgja honu-m.- inn í herbergið Nú gekk hann sjálfur inn í stof' una, sem virtist dimm eftir birt- una í anddyrinu. Hann liafði ekki sjeð Juliette,. aðeins heyrt skrjáfið í kjólmim; hennar, er hún hreyfði sig. „Þjer eruð þá ekki einn, Derou- lede borgari!“ sagði hann hæðnis- léga, þegar hann kom auga á.*: Juliette. „Hun er gestur minn, Juliette- Marny borgari“, svaraði Derou- lede eins rólega og hann gat. „Jeg- veit, að það er þýðingarlaust und- ir þessum kringum stæðum að ætl- ast til þess, að tekið sje till’it tii konu. En jeg bið yður að hafa- það í huga, borgari, að þó að við' sjeum lýðveldissinnar, erum við líka Frakkar, og hugmynd okkar ■ um tilhlýðilega virðingu fyrir - mæðrum okkar, systrum og gest-- um er óbreytt“. Framh. . -1GmexT BESTI FISKSÍMINN er 5 2 7 5. MATSALA mín byrjar 1. október í Thor- valdsensstræti 6 (gamla apó- tekinu). Þeir, sem vilja panta fæði, hringi í síma 5105. — Guðrún Eiríksdóttir. FÆÐI fæst á Vatnsstíg 4, krónur á mánuði. niðri. 70 SMURT BRAUÐ Matsalan Brytinn, Hafnar- stræti 17. EOLASALAN S.f. Ingólfshvoli, 2. hæð. Símar 4514' og 1845. Söngvararnir Slezak og Erik Schmedes við óperuna í Vín- arborg voru engir perluvinir. Einu sinni hringdi Slezak til Schmedes um hánótt og sagði með breyttri röddu: — Það er mr. Morgan frá NeAV York sem talar. Er það herra Schmedes, sem jeg tala við? Þegar hinn syfjaði söngvari heyrði nafnið Morgan gleymdi hann alveg reiðinni yfir að hafa verið vakinn upp um hánótt. Schmedes sagði því mjög alúðlega: — Já, herra Morgan. — Fyrirgefið þjer, herra Schmedes, syngið þjer Tristan á morgun? — Já, herra Morgan. — Jæja, þá ætla jeg að skila aðgöngumiðunum aftur. Það er hinn mikli söngvari Slezak, sem jeg vil hlusta á. ★ veir fisksalar í litlum bæ í Danmörku, sem seldu fisk á sama torginu, voru ekki aðeins keppinautar um hylli viðskiftavin- anna, heldur voru þeir blátt áfram óvinir. Oft kom það fyrir að þeir skiftust á orðum og það svæsn- ustu skömmum í flestum tilfellum. Einu siuni áttu þeir eftirfarandi orðaskifti: — Ileyrðu, Pjetur, veistu hvað altalað er í bænum? — Nei, ekki veit jeg það, Krist- ján. Hvaða orðróm ertu að dylgja með, ef maður má spyrja? — Það er sagt að konan þín sje kærasta alls bæjarins. — Jæja, Kristján, er það altal- að í bænum? Veistu hvað jeg segi við því? — Nei, hvernig ætti jeg að vita það? — Jú, Kristján sæll. Jeg segi: Það er ágætt að jeg bý ekki í London. ★ — Heldur þú að Petersen ætli sjer nokkuð með ungfrú Olsen? — Já, það er jeg alveg viss um. Faðir hennar sveik út úr honum. hlutabrjef í fyrra fyrir 50 þús. krónur og þær ætlar hann sjer að ná í aftur, þó hann þurfi að gift- ast allri fjölskyldunni. ★ Reið eiginkona: Veistu, að það er komið undir morgun, klukkan er fjögur. Eiginmaðurinn: Nú já, en hvaða mánaðardagur er? ★ — Ef fiskurinn er ekki nýr, frú mín góð, er það yður sjálfri að kenna. Þjer hefðuð getað komið- nokkrum dögum fyr og keypt hann. ★ Tveir skipbrotsmenn eru á timb- urfleka úti á hafi. Alt í eitiu segir annar þeirra: — Vertp hughraustur. við nálg- umst menninguna. Jeg sje tvæf sprengjuflugvjelar á sveimi fyrir ■ ofan okkur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.