Morgunblaðið - 28.11.1939, Side 7
Þriðjudagur 28. nóv. 1939
MORGUNBLAÐIÐ
7
Hellbrigðisnefndir og
heilbngðissamþyktir
Vilmundur Jónsson flytur
frumvarp um heilbrigðis-
nefndir og heilbrigðissamþyktir.
Eru í frumvarpinu nákvæm
og ítarleg fyrirmæli um, hvað
skuli standa í heilbrigðissam-
þyktum, en nú þykir vera hinn
mesti glundroði á þessu.
1 kaupstöðum skal heilbrigð-
isnefnd skipuð 3 eða 5 mönnum.
Lögreglustjóri og hjeraðslæknir
eru sjálfkjörnir. Ef heilbrigðis-
nefnd er skipuð 5 mönnum,
skal einn vera verkfræðingur
í þjónustu kaupstaðarins, sjer-
fróður um heilbrigðitækni, ef
völ er á slíkum manni.
Utan kaupstaða skal heil-
brigðisnefnd skipuð 3 mönnum.
Heilbrigðisfulltrúi skal veya 1
hverjum kaupstað, ráðinn af
bæjarstjórn, eftir tillögum hjer-
aðslæknis og lögreglustjóra.
Eldur í hljóðfæra-
verkstæði
Um 3 leytið aðfaranótt sunnu-
dags kom upp eldur í hljóð-
færaverkstæði Pálmars ísólfssonar
á Óðinsgötu 8. Eldurinn varð ekki
mjög mikill, en miklar skemdir
urðu á hljóðfærum, sem þarna
voru geymd, efni og verkfærum.
Eitt orgel hrann alveg og þrjú
skemdust í herbergi þar sem eld-
urinn kom upp. í öðru herbergi
voru 20 orgel og píanó, sem einnig
skemdust af reyk og vatni. .
Efnið og hljóðfærin, sem þarna
var, var vátrygt fyrir 30 þús.
krónur, en verkfærin voru óvá-
trygð.
Talið er að eldurinn hafi komið
upp frá reykháfi í verkstæðinu.
Friðarfjelagið heldur fund í
Oddfellowhúsinu í kvöld kl. 8.30.
Sigurður Einarsson dósent flytur
erindi um Finnlandsmálið. Frú Að-
albjörg Sgurðardóttir talar.
Hvað eigum við að gera
í skammdeginu?
Spila Matador!
A U 0 A Ð hvilist TjJlCI t
m«6 gleraugum frá I '' lL L *
MUNIÐ: Altaf er það best
KALDHREINSAÐA
ÞORSKALÝSIÐ nr. 1
með A og D fjörefnum, hjá
SIG. Þ. JÓNSSYNI
Laugaveg 62. Simi 3868
Striðið og al-
menningsálitið
f Bandatfkjunum
Pað er algengt í Bandaríkjun-
um að leitað sje álits al-
mennings á mikilvægum vanda-
málum.
Blaðið „Fortune“ lagði t. d.
þessar spurningar fyrir menn:
1) Hvorir óskið þjer að sigri í
því stríði, sem nú stendur yfir ?
2) Hvorir haldið þjer að vinni
sigur, ef engar nýjar þjóðir bæt-
ast í hópinn?
Svörin við fyrri spurningunni
voru á þá leið, að 83.1 af hundraði
óskuðu sigurs Englendinga og
Frakka. Einungis 1 af hundraði
vildi að Þjóðverjar sigruðu.
Við annari spnrningunni voru
svörin þannig, að 64.8 af hundraði
hjeldu að bandamenn gætu unnið
sigur hjálparlaust. Þeir, sem
hjeldu að Þýskaland gæti sigrað,
voru einungis 8.3 af hundraði.
Blaðið kom með 3. spurninguna:
Hvað eiga Bandaríkin að gera?
Þarna voru svörin mjög mismun-
andi, en mjög margir svöruðu:
„Standa með hvorugum, en selja
hvorum sem er, samkvæmt regl-
unni „cash and carry“ (þ. e. a. s.
kaupendur greiði þegar í stað og
annist sjálfir flutning vörunnar).
Þeir, F'vn voru með því að hjálpa
Þjóðverjum á einhvern hátt, voru
einungis 1 af þúsundi.
Ef maður nú athugar niðurstöð-
urnar lijá „Institute of Public
Opinion“ („Stofnun almenningsá-
litsins" ), þá kemSt máður að því,
að svörin við spurningunni: „Hvor
ir haldið þjer að sigri?“, fjellu
þannig:
Bandamenn 82%
Þjóðverjar 7%
Óákveðið 11%
Svo sem menn sjá, er þessi at-
kvæðagreiðsla ennþá hagstæðari
Englandi og Frakklandi en hin
fyrri,. — 82% álitu að Þjóðverjar
ættu sök á stríðinu. 84 af hundr-
aði voru á móti því að Bandarífiin
tæki þátt í stríðinu.
Loks má geta þess, að „Christian
Seience Monitor“ komst að eftir-
farandi viðvíkjandi blöðum í
Bandaríkjunum: Af 120 blöðum
voru 88 (með 11.514.000 kaupend-
ur) með því, að vopnasölubanninu
væri ljett af selt væri gegn stað-
greiðslu, en það er vitanlega Eng-
landi og Frakklandi í hag, þar
sem þau eru alls ráðandi á At-
lantshafi.
Þessar atkvæðagreiðslur eru
þannig allar bandamönnum í liag
og koma heim við stefnu Roose-
velts í utanríkismálum.
Heimdallarfundur verður hald-
inn í kvöld í Yarðarhúsinu og
verður aðalmál fundarins Sjálf-
stæðismálið. Ilinn nýkjörni for-
maður fjelagsins, Jóhann Hafstein
cand. jur., er frummælandi. Það
má búast við góðri fundarsókn,
því Sjálfstæðismálið er nú ofar-
lega á baugi hjá öllum almenn-
ingi og ekki síst ætti það mál að
vekja umhugsun meðal æskulýðs-
ins. Á fundinum verða einnig
rædd fjelagsmál.
Dagbók
jx) HelgafeU 593911307—IV.—'V.
Aðalf.
I.O.O.F. Rb.st. 1, Bþ., 8811288V2.
— T. E. I.
Veðurútlit í Rvik í dag: SA-
átt. Þyknar upp.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Milli íslands og Noregs er stór
lægð, en ný lægð við S-Grænland.
N-átt um alt land með snjókomu
á N- og A-landi. Frost 1—5 st.
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Litla bílstöðin, sími 1380, ann-
ast næsturakstur næstu nótt.
Sextugur er í dag Konstantin
Eiríksson pípulagningameistari,
Laugaveg 27 A.
Skíðafæri er nú orðið allgott
víða hjer í nágrenni, þó snjórinn
hafi nokkuð fokið í skafla í storm-
inum og autt sje á milli. Skíðafje-
lögin efndu ekki til skíðaferða um
helgina, en fjöldi manns notaði
hið ágæta veður á sunnudags-
morgun til að fara á skíði. Var
mikið af fólki í Ártúnsbrekkunni,
Öskjuhlíðinni, Fossvogi og víðar.
Skíðafæri er nú ágætt.
Knattspymufjelagið Fram. Leik-
fimi miðvikudaginn 29. þ. m. kl.
8 e. h. í íþróttaskóla Garðars,
Laugaveg 1 C.
„Knattspyrnumenning“. Erindi
Gunnars M. Magnúss í Nýja Bíó
s.l. sunnudag var ekki vel sótt.
Fyrirlesarinn hafði lítið nýtt fram
að færa, sem knattspyrnumenn
ekki vissu áður. Tillögur hans um
skipan knattspyrnumálanna í fram
tíðinni voru óljósar, nema ein, sem
gekk út á að setja knattspyrnuna
sem námsgrein, eða leik í skólana.
Er það ágæt hugmynd, þó ekki
sje hún ný. Fyrirlesarinn Hafði
auðsýnilega lagt mikið á sig til
að safna þeim fróðleik, sem fram
kom í fyrirlestrinum. T. d. hafði
hann farið yfir blöðin, og eftir
þeim rannsóknum hans sjest, að
Morgunblaðið hafði skrifað 112
dálka um knattspyrnumál á með-
an það blað sem næst komst hafði
aðeins ritað 70 dálka um sama
málefni.
Bamakórinn Sólskinsdeildin,
undir stjórn Guðjóns Baldvinsson-
ar, söng í vikunni sem leið fyrir
sjúklinga á Kópavogi, og M. A.-
kvartettinn, með aðstoð Bjarna
Þórðarsonar. Hafa sjúklingar beð-
ið blaðið að færa þeim öllum bestu
þakkir fyrir komuna og skemtun-
ina.
Carmina Canende (söngbók ís-
lenskra stúdenta) er nú komin út
í nýrri útgáfu, gefin út af ísa-
foldarprentsmiðju, að tilhlutun
Stúdentaráðs Háskólans. í bók-
inni eru um 90 stúdentasöngvar
og eru nótur með öllum söngvun-
nm, svo að þeir sem ekki kunna
lögin fyrir, geta stuðst við nót-
urnar. Framan við bókina eru fán-
ar allra Norðurlanda þjóðanna, ís-
lendinga, Dana, Færeyinga, Norð-
manna, Svía og Finna, prentaðir
með litum, en sjálfri bókinni er
skift í 6 kafla, eftir eðli söngv-
anna, og eru myndir fyrir ofan
hvern kafla í stíl við efni hans.
Það ætti að vera metnaðarmál
hvers stúdents að eiga bókina og
kunna innihald hennar.
Háskólafyrirlestrar á frönsku.
Frakkneski ræðismaðurinn, herra
H. Vaillery, flytur í kvöld kl. 8.05
annan háskólafyrirlestur sinn um
Frakkland handan við höfin, og
verður þessi fyrirlestur um Algier.
Skuggamyndir verða sýndar, og er
öllum heimill aðgangur.
Vegna hinnar miklu aðsóknar að
hófi stúdenta að Hótel Borg 1.
des., verður aðeins hægt • að veita
stúdentum og gestum þeirra að-
gang.
Happdrætti Styrktarsjóðs Verk-
stjórafjelags Reykjavíkur. Dregið
var hjá lögmanni í gær og komu
upp þessi númer: 3019 eikarskrif-
borð, 1259 legubekkur og teppi,
149 peningar 100 kr. og 1804 pen-
ingar 50 kr.
Bertha Fisser. Framhluti skips-
ins er nú oltinn af skerinu, svo
aðeins lítill hluti hans er upp úr
sjó. Afturhlutinn hefir laskast
mikið af sjóganginum, og er reyk-
háfurinn horfinn meðal annars.
Eru menn orðnir vonlitlir um, að
hjeðan af takist að bjarga nokkru
verulegu úr skipinu.
Gengið í gær:
Sterlingspund 25.58
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 14.72
— Belg. 108.23
— Sv. frankar 146.53
— Finsk mörk 13.27
— Gyllini 346.65
— Sænskar krónur 155.40
— Norskar krónur 148.36
— Danskar krónur 125.78
Útvarpið í dag:
20.15 Erindi Búnaðarfjelagsins:
Um sauðfjárbaðanir, II. (Hall-
dór Pálsson ráðunautur).
20.30 Erindi: Meðal Vestur-íslend
inga (Árni G. Eylands forstj.).
21.00 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó í c-moll, Op. 101, eftir
Brahms.
Enskir loftvarnabelgir
valda slysum I Noregi
Einn maður, Fredrik Vigeland,
56 ára, beið bana og margir
særðust, er verið var að taka nið-
ur enskan loftvarnabelg, sem rekið
hafði fyrir vindi yfir Norðursjó
til Suður Audnedals í Noregi.
Ástæðan til slyssins var sú, að
Vigeland kveikti í pípu sinni, en
þá varð mikil sprenging, sem slys-
inu olli.
Á undanförnum stormviðrisdög-
um hefir nokkra loftvarnabelgi
rekið inn yfir Noreg, þannig alls
6 yfir Suður-Noreg. (NRP. FB.).
ooooo<x>ooo<xk><x><x><x><x><x><><xxxx><><x><><x><x
Grámann
er besta barnabókin.
Fæst lijá bóksölum.
OOOOOOOOOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOÖOO<
§krifstofur
worar verða lokaðar frá
kl. 12 til 16 i dag vegna
jarðarfarar.
H.f. Eimskipafjelag íslands.
Dóttir okkar og systir,
JÓHANNA SNÆBJÖRNSSON,
frá Patreksfirði, andaðist í sjúkrahúsi á Akureyri aðfaranótt
26. þ. m.
Sigríður, Jón Snæbjömsson og böm.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að okkar
kæra móðir og tengdamóðir,
YIGDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
andaðist aðfaranótt sunnudagsins 26. þ sián.
Fyrir hönd aðstandenda.
Lára og Kristján Schram.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
JÓNS ERLENDSSONAR,
verkstjóra, fer fram f!rá Dómkirkjunni í Reykjavík n.k. mið-
vikudag 29. þ. m. og hefst með bæn að heimili hans, Álfabrekku
yið Suðurlandsbraut, kl. 1 e. h.
Kirkjuathöfninni verður útvarpáð.
Guðlaug Björnsdóttir og börn.