Morgunblaðið - 03.01.1940, Side 5

Morgunblaðið - 03.01.1940, Side 5
't#- Om ~ t** **• t Verklegt nám | ungra kvenna | _ _ 5 «■*-- -•** *• ^ x,y •*« Bændaskólinn / á Hólum JMlðvikudagur 3. janúar 1940 Útg’ef.: H.f. Árvaktiir, Reykjavlk. Rltstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson <á,byr*t$arm.>. Auglýsingar: Árnl óla. Rltstjórn, auglýsingar og afgreibsla: Austurstrœti 8. — Síroi 1600. Áskriftargjald: kr. 8,00 & mánutJi. í lausasölu: 15 aura eintakiTS, 25 aura meTJ Lesbók. Rðksfudd dagskrá AÐ er oft talið karlmann- legt að gefast ekki upp fyr en í fulla hnefana. En oft get- ur það orkað tvímælis hve skynsamlegt það er, að verja alveg vonlausan málstað. Þann lcöst tók Alþýðuflokkurinn, eða forystumenn hans í verkalýðs- málunum. Öll alþýða manna er fyrir löngu farin að sjá, að for- rjettindi Alþýðusambandsins eiga engan rjett á sjer. Að al- mennur fjelagsskapur hinna vinnandi stjetta verði að lúta valdboði pólitískra samtaka. Að enginn geti verið fulltrúi á þingi verkalýðsfjelaga, nema hann sje í Alþýðuflokknum; fjelag fjöl- anent eða fáment, sem hefir eng- um Alþýðuflokksmönnum á að skipa, sem fulltrúa á Sambands- þing, getur ekki tekið þátt í fulltrúasamkomu fjelagsskapar- ins. En menn, sem standa ger- samlega utan við raðir verka- manna, og hafa máske aldrei á i sefi sinni unnið erfiðisvinnu, þeir æru hafðir sem forystumenn í fjelagsskap verkamannanna. Þessar og fleiri augljósar mis- fellur í skipulagi verkalýðsfje- laganna hafa margoft verið .gerðar hjer að umtalsefni. En tillögur til hinna nauðsynleg- ustu breytinga á fyrirkomulagi þessa mikilsverða fjelagsskapar eru settar fram í laga formi í frumvarpi Bjarna Snæbjörns- sonar. Frumvarp þetta var til um- ræðu í efri deild í gær. Þar bar Hermann Jónasson forsætisráð- herra fram tillögu til rökstuddr- ar dagskrár, sem birtist á öðr-> um stað hjer í blaðinu. I dagskrártillögu þessa eru tekin upp öll atriðin í frumvarpi Bjarna. En þáreð það er for- sætisráðherrann, sem ber hana fram, verða menn að líta svo á, að samkomulag sje innan ríkis- stjómarinnar um það, að þessi sje hinn rjetti samningsgrund- völlur málsins. Munu allir rjettsýnir menn, sem fylgt hafa þessu máli með athygli, fagna því, hve mál þetta er þá vel á veg komið til rjettrar og sanngjarnrar lausnar. Flutningsmaður málsins á Al- þingi, Bjarni Snæbjörnsson, skýrði frá því, að hann væri að svo komnu ánægður með þessa afgreiðslu. En ef svo færi að samningar hefðu ekki tekist fyrir næsta þing, þá mundi hann bera fram írumvarp sitt að nýju. Síðastliðinn vetur flutti frú Að- albjörg Sigurðardóttir erindi í útvarpinu um verklegt nám ungra kvenna. Sýndi hún fram á, hve verklegri kunnáttu er ábóta- vant hjá fjölmörgum ungum stúlk- um, og bar fram tillögur er gætu orðið til umbóta á því sviði. -— Hvað hefir svo gerst síðanf Hefir u.okkuð verið liafist handa að greiða fyrir tillögum frú Aðal- bjargar? Eins og svo margt ann- að, sem frú Aðalbjörg hefir vakið máls, á, og .beitt. sjer fyrir, þá ér þetta mál þess virði að því sje sint. — ★ Þegar aðgætt er hvaða störf það eru sem íslenskar húsmæður hafa með höndum, hve vandasamt, margbrotið og þýðingarmikið starf þeirra er, sjest greinilega hversu margháttuðum leiðbeiningum þar er hægt að koma við, er hljóti að verða einstaklingunum að gagni og þá um leið þjóðarheildinni. Iljer fyr rneir, þegar fáir eða eng- ir skólar voru í landinu, hvíldi það starf á heimilunum einum að búa æskuna undir lífið. Átti hús- freyjan þar oft drýgstan þáttinn. Það var í hennar verkahring. Ilún taídi það skyldu sína og lagði kapp á að kenna börnum sínum alt það gott er hún kunni. Litlu stúlkunum var snemmá kent að vinna öll venjuleg heimlisstörf, og jafnframt var þeimi innrætt að bera virðingu fyrir vinnunni. Vinnan var blessun, því var nauð- synlegt að kunna sem flest vinnu- brögð og vanda þau eftir fremsta megni. ★ Á þessu hefir orðið mikil breyt- ing á síðari árum, eins og svo morgu í íslensku þjóðlífi. Heimil- in hafa lagt niður kenslustarfið og skólarnir tekið við. En skólarn- ir hafa ekki kent fólkinu a(5 vinna, nema húsmæðraskólarnir, sem tek- ið hafa t,il starfa á síðustu árum. En þeir eru fáir og tiltölulega nýir á nálinni, elstur þeirra mun vera Blöndúósskólinn, var honum fyrst breytt í húsmæðraskóla haustið 1923. — Áður var engin húsmæðra fræðsla í landinu nema húsmæðra- deildin við Kvennaskóla. Reykja- víkur, og nokkur matreiðslunám- skeið úti um land. Á öllu suður- landsundirlendi er enginn hús- mæðraskóli nema námskeið frk. Árnýar Filipusdóttur. Hefir S. S. K., með frú Herdísi Jakobsdóttur í broddi fylkingar, barist fyrir st.ofnun hiismæðraskóla þar syðra. Hefir þeim orðið mikið ágengt síð- ustu ár, svo vonandi sjá þær draum sinn rætast áður langt líð- ur. — ■ Það má geta nærri, hvort skól- arnir geti veitt fullkomið verldegt nám á einum einasta vetri. — En jeg veit að til þeirra eru gerðar miklar kröfur, og er ekki að lasta það, samt verða þær kröfur að vera bygðar á sanngirni Það er máske afsakanlegt, þó sumir karl- menn líti svo á, að ekki þurfi nema einn vetur til að læra nauð- synleg liúsmóðurstörf, en það er ófyrirgefanlegt af konum að ætl- ast til þess. Því, hvernig er undir- búningurinn undir þessa skóla? Þar eru engin inntökupróf, og því ekki hægt að flokka nemend- urna, eftir kunnáttu og leikni. Vafalaust mun flestnm koma sarnan um það, er við húsmæðra- skólana hafa starfað, að undirbún- ingur nemendanna sje ærið mis- jafn. Margar stúlkur koma. vel undirbúnar, en undirbúningi margra er mjög ábótavant. Sem dæmi má nefna það, að margar þeirra hafa alclrei farið með sauma vjel, samt koma þær með vandað efni í kápur og silki í kjóla. Sjá allir hvílík fjarstæða slíkt er. Sumar hafa aldrei áður þvegið þvott og aðrar aldrei fengist neitt við matargerð. Þá hefir mörgum láðst að vanda ræstingu húsa og þjónustubrögð. Þannig mætti lengi telja. ★ Það er fjarri mjer að kenna stúlkunum einum um það, live undirbúningur er oft af skornum skamti, þar eiga heimilin oftast aðalsökina. Margar konur kappkosta að láta dætur sínar læra alt annað en dagleg heimilisstörf. — Það er lit- ið niður á þau. — Er nokkuð und- arlegt þó ungu stúlkurnar, sem alast upp í slíku umhverfi, snúi baki við þessum störfum og kjósi aðrar leiðir, en leiðina milli búrs og eldhúss, og láti sjer fátt um finnast þau störf, sem þar eru unnin. Frú Aðalbjörg vill reyna að bæta úr þessu. Hún vill hefja vinnuna til vegs og virðingar og finna ráð við því að bæta úr því kunnáttuleysi, sem nú er meðal ungra stúlkna á daglegum heimil- isstörfum. Telur hún nauðsjmlegt að verklega kenslan verðí aukin í barnaskólunum, og reynt vérði að haga henni þannig, að hiin v@rði undirstaða undir framhaldsnám í húsmæðraskólum landsins. Þá álít- ur hún nauðsynlegt að verklega kenslan í híismæðraskólunum verði meira kerfisbundin. Æskileg't væri að frú Aðalbjörg fengi sem flesta í lið með sjer til að hrinda þessu máli áleiðis. Ættu konurnar að vera einhuga um, að veita henni alt það lið er þær mega H. Á. S. Tryggingar hækka Danskir sjómenn liafa nokkr- um sinnum að undanförnu sett fram kröfur um auknar trj-gg- ingar á ferðum um sjóhernaðar- svæðin, einkum Norðursjó, þar sem hættan á þessari siglingaleið hefir stöðugt verið að aukast að undanförnu. Nú hefir komist á samkomulag milli sjómanna og útgerðarmanna um ]>að, að tryggingar þær, sem áður höfðu verið ákveðnar, skuli bækka úr 200% upp í 300% fyrir yfirmenn skipanna, en úr 250% upp í 300% fyrir háseta. Gildir þetta einkum um, ferðir um Norð- ursjó. (FÍI). Kristján Karlsson skólastjóri skrifar blaðinu: Bændaskólann á Hólum komu 43 nemendur í haust. Skólinn er fullskipaður. Flestir nemend- anna eru sveitapiltar, bændasynir, og ætla að gera landbúnaðinn að lífsstarfi sínu. Kenslufyrirkomulagi skólans var breytt í fyrra, þannig, að meginþorri skólapilta dvelur sum- arið á milli námsvetraima á skóla- búinu við verklegt nám, Síðari námsveturinn taka piltar þátt í hirðingu þeirra búf jártegunda, sem eru á skólabúinu. Þétta fyrir- komulag liefir fært búnaðarnámið nær hinum raunverulega búnaði en áður var. Skólapiltar fara á hverju vori í eina eða fleiri námsferðir undir leiðsögn skólastjóra eða kennara. Þessar námsferðir hafa verið farnar nú um skeið á bifreiðum og tekið 3 til 4 daga. Heimsóttir liafa verið og skoðaðir ýmsir merkisstaðir og fyrirmyndar heim- ili á Norðurlandi og í Borgarfirði. Hinn fræðilegi árangur þessara ferðalag hefir því oft orðið mik- ill, auk þeirrar gleði og skemtun- ar, sem slík ferðalög ávalt veita. Fjelagsskapur nemenda er mjög góður. Þeir halda málfundi á laugardögum og skemtanir á sunnudagskvöldum. Knattspyrna er mjög stunduð þegar veður leyfir og nú í vetur hafa glímur verið iðkaðar af kappi, Tvær skemtanir eru haldnar á hverjum vetri. Önnur 1. desember og að sjálfsögðu helguð fullveldi þjóð- arinnar; hin í þorralok og er að- alskemtun skólaus og kölluð Þorrablót; er þá margt gert sjer til gamans. Nemendur neyta hvorki áfengis nje tóbaks. Áfengisnotkun hefir lengi verið bönnuð, en notkun tóbaks fyrst síðastliðið liaust. Jeg held að allir skólar í land- inu, æðri sem lægri, ættu að banna nemendum sínum að neyta áfeng- is og tóbaks. Það myndi verða sterkur þáttur í útrýmingu þess- ara nautna og óþarfa hjá þjóð- inni. Tíðarfarið í vetur liefir verið einmunagott. Hjaltadalur er nú 10. des. snjólaus að kalla og hefir verið það í vetur. Veðurfarið síð- astliðið sumar og haust var líka með afbrigðúm gott, Það má því með sanni segja, að óvenjugott árferði hafi verið hjer á landi á þessu ári, sem nú er að enda. Á Hólum fjekst góður heyfeng- ur í sumar, 2000 hestar af töðu, og 600 hestar af útheyi. Uppskera garðávaxta var með langbesta móti; fengust um 100 tunnur af kartöflum, 300 tn. af gulrófum, auk mildls af káli og öðru græn- meti. Saúðfje staðarins hefir farið fækkandi síðustu árin, sökum liinnar illkynjuðu garnapestar, sem hefir drepið það niður. Á Þorranum í fyrra var sauð- fjeð bólusett og þá slátrað 1/3 hluta af því. Þessi 1/3 hluti var sýktur eftir rannsókninni að dæma. Að lokinni þessari hreins- un drápust nokkrar kindur úr veikinni í fyrravetur, en fáar í sumar. í haust var bólusetningm endurtekin; reyndust þá um 5 kindur af hverjum 100 sýktar. Eí> á þeim átta vikum, sem liðnar era frá því rannsóknin var fram- kvæmd í haust, höfum við orðið að slátra vegna veikinnar 5 ám af um 200, sem til eru. Á öðrum bæj- um hjer í grend, þar sem veikin fyrir alvöru var búin að festa rætur, mun útkoman vera svipuð og hjá okkur. Þessi staðreynd, að margt af fje skuli drepast úr veikinni, þeg- ar búið er að grandskoða það, með þeirri aðferð, sem best er talin við slíkar rannsóknir, virðist benda til að rannsóknin sje þýðingarlít- il, í það minsta þar sem sýkingin er orðin mikil. Það virðist því vera ástæða t,il að grípa til nýrra ráða til að hamla upp á móti veikinni. Ef til vill væri ráð að slátra öllu full- orðnu fje næsta haust á þeim bæj- um, sem mest liafa mist úr veik- inni. En láta lömbin lifa og reyna með þessu að verja þau gegn smit- uninni. Nautgripum og þó hrossum sjer- staklega hefir fjölgað á Hólum síðan sauðfjenu fækkaði. Nú eru um hundrað stórgripir á staðnum. • Áheitum á Ilóladómkirkju fer fjölgandi. Ilefir þegar safnast vís- ir að sjóð, á fáum árúm, því að „stutt, er síðan farið var að lxeita á kirkjuna. En hún þykir reynast vel, þeim sem hennl treysta. Á Hólum eru til gömul bæjar- hús, vel stæðileg. Þeim á að lialda við, og í þeim á að koma fyrir litlu landbúnaðarsafni. Þar á að hafa t.il sýnis þau áhöld og þá muni, sem notaðír hafa verið við búnað hjer á landi á liðnum öld- um. Sumt af þessum, áhöldum og munum eru til ennþá í sveitum. Þeim þarf að safna og koma fyrir í þessum gömlu bæjarhúsum. Yon- andi verður hægt að hefja fram- kvæmdir í þessu máli í náinni framtíð. TJndanfarin þrjú vor liefir ver- ið plantað nokkur þúsund skóg- viðarplöntum í gróðrarstöðina á Hólum. PÍönturnar hafa verið af 4 tegundum, birki, greni, furu og reynivið. Þær hafa þrifist vel. Á Hólum var hafin skógrækt fyrir tæþum 30 árum. Það var Sigurður Sigurðsson fyrv. búnað- armálastjóri, sem það gerði. Þær plöntur, sem þá voru gróðursett- ar, mynda nú tveggja til þriggja mannhæða liáan skóg. Fiskveiðar Itala Stjórn fiskveiðamála á Ítalín hefir verið falin sjerstök- um stjórnarfulltrúa, sem ber á- byrgð gagnvart Mussolini sjálf- um. Er ætlað að koma slíku skipw lagi á fiskveiðar landsins, a5 fiskmetisframleiðslan aukist mjög, og að hægt verði þaraf 'leiðandi að minka mjög kjötinn- flutning til landsins. FÚ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.