Morgunblaðið - 03.01.1940, Blaðsíða 7
1
Miðvikudagur 3. janúar 1940
M 0 R G Ú N B L A ÐI Ð
•7
Maður eða stúlka
óskast nú þegar til að innheimta
góSa réikninga og aðstoða á
skrifstofu nokkra tíma á viku.
Kaup er lágt, en vinna lítil. Um-
RÓkn með upplýsingum um fyrri
störf o. fl. (símanúmer ef til er)
sendist afgr. Mbl. fyrir 5. þ. m.,
merkt „Innheimta“.
Minningarorð m
SÍQiíði Kiistjánsdatiu
bih i j.ykTTi jv» .7
CTITffci l.’H
Esja
austur um í strandferð
fimtudaginn 4. þ. m. kl. 9 s.d.
Flutningi veitt móttaka í
dag.
S.s. Bergenhus
öll farmskírteini yfir vör-
ur, sem fara eiga með skip-
inu, komi í dag (miðviku-
dag).
Farþegar sæki farseðla í
dag.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
Spil. Npil.
L’hombre
Whist
Orðsþil
15 spil
Ludo
Um ísland
Miljóner
Matador
Golfspil
Kastspil
Rúlletta
Kúluspil
a
frá
á
r
a
r
a
r
a
r
a
r
a
á
r
a
r
a
r
a
1.25
1.00
1.50
1.00
2.00
2.75
7.50
8.75
2.75
3.75
4.50
6.50
I. Einarsson k Björnsson
Bankastræti 11.
Verulega
falleg g|«f
er púðurdós eða dömu-
rakvjel handa frúnni, og
rakvjel í leðurtösku
handa manninum.
Laugaveg 19.
F. 8. ág. 1915. D. 27. des. 1939.
Sigga litla var fædd í Gunn-
ólfsvík, dóttir hjónanna Kristj-
áns Jónssonar, útgerðarmanns
frá Seyðisfiréi og Gunnlaugar
Helgadóttur frá Smyrlafelli í
Skeggjastaðahreppi. Móður sína
missti Sigga litla mjög ung og
ólst eftir það að mestu upp í
Þórshöfn hjá Kristínu Jósefs*
dóttur. Föður sinn missti hún
fyrir nál. 3 árum. Sumarið 1935
fór Sigga á Kristnesh. til hress-
ingar. Var ekki gert ráð fyrir að
hún þyrfti að vera þar nema
skamman tíma, en þar f jekk hún
fyrst kíghósta og hrakaði þá
mjög heilsu hennar. Síðar fjekk
hún einnig mislinga. Ekk.i er ó-
sennilegt, að þessar farsóttir
hafi veikt svo líkamlegt mót-
stöðuafl hennar, að óvinurinn —
öerklarnir — hafi við það magn-
ast svo, að þeir hafa nú ráðið nið-
urlögum hennar. Á Vífilsstöðum
var hún í rúmlega iy2 ár. Inn-
an skamms verður lík Siggu litlu
flutt til átthaganna norður á
Þórshöfn. Þetta var nú æfisaga
Siggu litlu í stórum dráttum.
En hvað er þá merkilegt við
þessa stúlku, sem ekki hefir
haft aðstöðu til þess að starfa
neitt verulega í þágu þjóðfje-
lagsins? Það má að vísu segja,
að margir, sem hafa átt við lang
varandi veikindi að stríða, hafi
sýnt meiri andlegan þroska, en
nokkurn hafði grunað, en jeg er
viss um það, að Sigga var ein
af þeim, sem hafa sýnt hann
mestan. Mun mega segja um
hana, að andlegt þrek hennar og
vþroski hafi að sama skapi auk-
ist, sem líkamlegt þrek hennar
þvarr.
Það, sem Sigga litla hugsaði
mest um í seinni tíð var það,
hvað gera mætti til þess að forða
sem flestum frá því, að bíða
sömu örlög og hún, og þá ekki
síst, hvað hægt yrði að gera þeim
til hjálpar, sem á læknishjálp
þyrftu að halda. Hún sagði, að
ef örlög sín gætu orðið til þess,
að vekja fólk til umhugsunar
um bætta meðferð og aukið heil-
brigðiseftirlit á sjálfu sjer, þá
hefði hún ekki til einskis lifað.
Þeir, sem kynntust Siggu litlu
munu sakna hennar. Hún var
svo andlega þroskuð, skilnings-
góð, glaðlýnd og hjálpfús. Sýn-
um, hvers virði endurminningr-
arnar um hana eru okkur, með
því að stuðla að því, að aðalá-
hugamál hennar — útrýming
berklanna------megi hafa sem
bestan framgang. H. El.
Dúqdór
□ Edda 5940167 — 1. Atkv.
I. O. O. P. (Spilakvöld).
Veðnrútlit í Reykjavík í dag:
A- eða SA-kaldi. Dálítil snjókoma
eða slydda.
Næturlæknir er í nótt Gísli
Pálsson, Laugaveg 15. Sími 2474.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Hjönaband. 30. f. m. voru gef-
in saman í hjónaband ungfrú .Guð-
rún Vilmundardqttir (landlækn-
is) og Gylfi Þ. Gíslason hagfræð-
ingur. Ileimíli þeirra er í Garða-
stræti 13.
Hjúskapur. Á gamlársdag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Rannveig Jónsdóttir frá Norð-
firði og Jón Jóhannesson sjómað'-
Ur í Keflavík. Heimili ungu hjón-
anna er á Vesturgötu 9 í Kefla-
vík.
Hjónaefni. Á gamlárskvöld op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Helga Helgadóttir, Laugaveg 20 B
og Sveinn Ingvarsson, Óðinsg. 4.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína ungfrú Guðrún
Guðlaugsd. Hjarðarnesi, Kjalar-
nesi og Ingimundur Bjarnarson,
Dalsmynni, Kjalarnesi.
Jólatrjesskemtun Starfsmanna
fjelags Reykjavíkur verður hald-
in á morgun að Hótel Borg. —
Skemtunin hefst kl. 5Y2, en á eft-
ir verður dansleikur fyrir full-
orðna. Bjarni Björnsson og barna-
söngflokkur Austurbæjarskólans
skémta með jólasveinasöng og
Bjarni með eftirhermum, en ung-
frú Lydía Guðjónsdóttir syngur.
Á jólatrjesskemtuninni fer fram
happdrætti um tíu stórar konfekt-.
öskjur.
Frá Hafnarfirði verður gerður
út á vertíðinni í vetur vjelbát-
urinn „Sævar“, eign Ingvars Guð-
jónssonar. 1 frásögn í síðasta blaði
um útgerð í Hafnarfirði í vetur
fjell úr nafn eins Hafnarfjarðar
bátsins, Auðbjargar.
Sundfólk K. R. í næsta mánuði
ep ákveðið að hafa innanfjelags-
sundmót í SundhöUinni. M. a. fer
þá fram skraut-sundsýning fyrir
konur. Þær K. R. stúlkur eða aðr
ar, sem vildu taka þátt í skraut-
sýningunni, snúi sjer hið fyrsta
til sundkennara fjelagsins, sem
gefur allar nánari upplýsingar
Hann hefir síma 5158.
Gengið í gær:
Sterlingspund 25.76
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 14.84
— Belg. 109.37
— Sv. frankar 146.47
— Finsk mörk 13.27
— Gyllini 347.53
— Sænskar kr. 155.34
— Norskar krónur 148.23
— Danskar krónur 125.78
Ctvarpið f dag:
12.00 Hádegisíitvarp.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
21.50 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka:
a) Barði Guðmundsson þjóð
skjalavörður: Um Þorbjörn
rindil. Erindi.
b) 2Í.00 Upplestur úr kvæðum
Sigurðar Sigurðssonar frá Arn
arholti (Bjarni Ásgeirsson alþm.
c) 21.15 Kvæðallög (Páll Stef-
ánsson).
d) 21.30 Blástakkatríóið leikur
og syngur. . , , , >
.4
-i—rt*-
“T
Húsmæður.
Gleymið ekki því, sem mest á ríður, og það er ’aðs f
fylgjast með því, hveríiig þarfir heimilisins skiftast
niður á einstaka liði. Þetta getið þjer geirt fyi’ir.-v:
hafnarlaust, með því að kaupa HEIMILISBÓKINA.
Þar er dálkur fyrir hvern dag vikunnar, og mjög
greinilega sundurliðaðar flestar þarfir heimilisins.
Bókin fæst í öllum bókaverslunum.
Bókaverslun ísafoldarprentsmið]u.
Augiýsing um smásöluverð.
Beyktóbak:
Dills Best i V* lbs. blikkdósum Kr.
do. i V* —' — —
Model i 1 — — —
do. i lVa oz. — —
Prins Albert i Va lbs. — —
do. i Vs — — —
do, i Vi6 — ljereftspokum —
8.40 dósin
2.20 —
15.00 —
1.45 —
6.65 —
1.95 —
1.00 pok.
Cigarettur:
May Blosson 20 stk. pökkum Kr. 1.90 pakklnit
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má leggja alt að
3% á innkaupsverð fyrir sendingarkostnaði til útsölu-
staðar.
Tóbakseinkasala ríkisins.
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
PENINGAVESKI
hefir tapast með 50 króna seðli.
Skilist gegn fundarlaunum á af-
greiðslu blaðsiíts. -T - : J
Faðir og tengdafaðir okkar;
GUÐMUNDUR ÞÓRÐARSON
verður jarðsunginn frá dómkirkjuimi fimtudaginn 4. þ. m.
Athöfnin hefst á heimili hans, Njálsgötu 74, kl. iy2 e. h.
Anna Guðmundsdóttir. Árni Ólafsson.
JÓNAS JÓNSSON, steinsmiður,
Suðurgötu 31, Hafnarfirði, andaðist að heimili sínu á gamlárs-
kvöld.
Aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu
við fráfall og jarðarför
GÍSLA EINARSSONAR.
Vilborg Halldórsdóttir, börn og tengdabörn.
Alúðar þakkir færum yið öllum, er sýnt hafa ókkur Sam-
úð við andlát og jarðarför
GUÐMUNDAR ÞORVARÐARSONAR, Sandvík.
Aðstandendur. m