Morgunblaðið - 04.01.1940, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudaguí 4. janúar 1940.
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiy
I Bandarfkin |
| geta ekki |
( komist hjá (
| afieiðingum I
( ófriðarins (
— segir Roosevelt.|
Vaxandi hætta á að
Norðurlönd dragist inn
j Aukin framiög
I til hers og flota
lllllllllllllililliilllili:
iiiiiiiiiiininiiiiiiiiii
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Roosevelt, Bandaríkjaforseti
sagði í dag í ræðu, að það
væri misskiíningur ef Banda-
ríkjamenn hjeldu að þeir gætu
látið sig engu skifta heimsstyrj-
öld þá, sem nú geisaði. Afleið-
ingar ófriðarins hlytu að bitna
beinlínis og óbeinlínis á Banda-
ríkjamönnum.
Ræðirþessa flutti Roosevelt í
dag, er þjóðþingið var sett. —
Fyrir þinginu liggja nú ýms
vandamál, og þar á meðal boð-
aði Roosevelt að farið yrði fram
á aukafjárveitingu til hers og
flota til að styrkja landvarnir
Bandaríkjanna.
272 MILJÓN
DOLLARAR
Kvað forseti að stjórnin
myndi fara fram á 272 miljón
dollara fjárveitingu í þessu
skyni og boðaði aukna skatta
vegna fjárveitingarjnnar.
I setningarræðu sinni komst
forsetinn að orði á þá leið, að
hvort sem Bandaríkjamönnum
líkaði miður eða vel, yrðu þeir
að gera sjer grein fyrir hvað
væri að gerast í heiminum.Hann
sagði að enginn byggist við því
að æska Bandaríkjanna yrði
send út á vígvelli Evrópu, en
að þessi sama æska yrði að gera
sjer ljóst hvað hennar biði, ef
ofbeldið sigraði og heiminum
yrði stjórnað af örfáum einvalds
herrum.
STEFNA U.S.A. '
Hann kvað engan þurfa að
vera í vafa um hver væri stefna
Bandaríkjastjórnar, því tvent
mætti vera öllum ljóst:
1) Að aldrei fyr hefði nein
stjórn í Bandaríkjunum
gert jafnmikið til þess að
viðhalda friði og leysa öll
vandamál á friðsamanlegan
hátt og 2) að allar þjóðir
vissu að Bandaríkin væru
ávalt reiðubúin til þess að
leggja fram sinn skerf til
þess að lýðræðið væri í
heiðri haft og vandamál
þjóðanna yrðu leyst við
samningaborðið, en ekki á
vígvöllunum.
FYRIRMYNDIN
Aðrar þjóðir gætu tekið sjer
til fyrirmyndar sambúð lýðveld-
anna í Ameríku, sem nýlegu
•FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
í styrjöldina
Þjóðverjar munu ekki
þola Finnlandshjálp
* Breta og Frakka
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
AHYGGJUR stjórnmálamanna um öll Norður-
lönd fara nú vaxandi með degi hverjum út af
viðhorfi því, sem virðist ætla að skapast við þá
ákvörðun Breta og Frakka, að veita Finnum alla þá að-
stoð, sem þeir mega, nema að senda þeim hermenn.
Frjettir frá Berlín staðfesta þann orðróm, sem geng-
ið hefir undanfarna daga, að athyglin beinist nú æ meir
og meir að Norðurlöndum í sambandi við stórpólitíska at-
burði í álfunni. Þýskar frjettir herma, að ákvörðun Breta
og Frakka um Finnlandshjálp muni geta haft í för með
sjer ófyrirsjáanlegar afleiðihgar fyrir Norðurlöndin.
Fregnir þessar vekja að vonum mikinn ugg alstaðar á Norð-
urlöndum, því ekki er nokkur vafi á að Þjóðverjar hafa hugsað
sjer einhverjar gagnráðstafanir.
Þýskir áhrifamenn hafa látið svo um mælt, að þýska
stjórnin muni ekki þola aS Frakkar og Bretar auki áhrif
sín á NorSurlöndum meS Finnlandshjálp sinni.
Þýskaland getur ekki, segja þessir sömu áhrifamenn, horft
aðgerðalaust upp á það, að Vesturveldin noti Finnlandsaðstoð
sína, sem skálkaskjól til þess að leggja undir sig og tryggja sjer
hernaðarlega mikilvæga staði á Norðurlöndum, sem þeir síðar
gætu notfært sjer til árása á Þýskaland.
Það geti því svo farið, að aðstoð Breta og Frakka til handa
Finnum leiði til þess, að Þjóðverjar geri gagnráðstafanir og
tryggi sjer hlutleysi Norðurlandanna í ófriðnum.
SVÍAR AÐVARAÐIR.
Talið er að sænsku stjórninni hafi verið skýrt frá þessu og
benda ummælti Giinthers, utanríkismálaráðh. Svía, sem hann j
viðhafði í nýársboðskap sínum' einmitt í þá átt, en í nýársræðu j
sinni sagði Gunther, að svo gæti farið, ,,að Svíþjóð yrði ógnað ,
með útþurkun“, eins og jeg gat um í skeyti mínu í gær.
Ráðstafanir og ummæli stjórnmálamanna í Svíþjóð og Nor-
egi benda einmitt í þá átt, að þeir vænti sjer einhverra tíðinda.
Sænska þingið hefir verið kallað saman á aukafund næst-
komandi þriðjudag.
UMMÆLI ÓLAFS KRÓNPRINS.
Ólafur, krónprins Norðmanna, hefir haldið ræðu, þar sem
hann sagði að útlitið fyrir Noreg hefði aldrei verið eins slæmt
og einmitt nú. En hann kvaðst vera þess full viss, að Norðmenn
mundu sýna frelsishug sinn með því að verjast til hinstu stundar
öllum árásum á sjálfstæði landsins og frelsi þjóðarinnar.
60 SÆNSKIR LÆKNAR TIL FINNLANDS.
Svíar halda áfram að senda Finnum alla þá hjálp, sem þeir
geta. Sænskir sjálfboðaliðar streyma til Finnlands og 60 læknar
hafa boðið sig fram til þjónustu í Finnlandi. Tuttugu læknar eru
þegar lagðir af stað til Finnlands.
í Svíþjóð hefir verið stofnaður fjelagsskapur, sem nefnist
„Finnlandssjúkrahjálpin“t Er hlutverk þessa fjelagsskapar að
ráða lækna og hjúkrunarfólk til Finnlands og gangast fyrir
því, að hjúkrunargögn verði send til Finnlands.
Gustav Svíakonungur og krónprinsinn hafa tilkynt, að fyrst
um sinn verði hinar venjulegu móttökur í konungshöllinni á
þriðjudögum lagðar niður.
ALLUR ÁGÖÐI TIL FINNA.
Atvinnurekendur í Svíþjóð hafa ákveðið að gefa allan
ágóða fyrirtækja sinna, sem inn kemur næstkomandi laugardag
(á þrettándanum) til hjálpar Finnum.
NÝ „HVÍT BÓK" BRESKU STJÓRNARINNAR.
Heimför breska sendiherrans í Moskva, Sir William Seeds,
Finiiar velða
herflutninga-
iest Rússa
Frá frjettaritara vorum,.
Khöfn í gær.
VEGNA ÓVEÐURS hafa bardagar ekki verið
háðir af eins miklu kappi undanfarna tvo daga
og áður. Rússar gerðu þó tvö áhlaup á Manner-
heimlínuna í gær, en báðum áhlaupunum var hrundið.
Rússar hafa dregið að sjer feikna lið á Kyrjálanesinu
og hefir þeim verið skipað, að spara hvorki mannafla nje
vopn til þess að brjótast í gegnum varnarlínur Finna.
Finnum tókst í dag að velta stórri herflutningalest, sem var
á leið frá Leningrad til Murmansk með herlið, vopn og vistir til
rússneska hersins á norðurvígstöðyunum, Mikið manntjón varð.
Þessi frjett hefir farið 1 gegnum skeytaeftirlitið í Leningrad,
segja Firniar, og hendir frjettin til þess, að Finnar hafi hjer með
náð takmarki sínu, að eyðileggja járnbrautarlínuna milli Lenin-
grad og Murmansk.
Talið er, að Rússar hafi nú 150 þús. manna aðalher á Kyrjála-
vígstöðvunum og að hér þessi sje vel útbúinn að vopnum og herklæð-
um. Einnig hafi þeir þarna 500 þúsund manna her til vara.
TVÆR FLUGVJELAR SKOTNAR NIÐUR.
Finska herstjórnin tilkynnir, að í gærkvöldi hafi slegið í mikla
orustu fyrir norðaustan Ladogavatn og að mannfall Rússa hafi verið
j)ar mikið. Finnar segja, að herfang þeirra í þessari orus'tu hafi verið
'5 skriðdrekar og 2 brynvarðar bifreiðar. Tvær rúss^éskar flugvjelar
voru skotnar niður í gær.
Á norðurvígstöðvunum veitir Finnum enn hvarvetna betur. Þar
eru enn frosthörkur og fannalög mikil.
LOFTÁRÁSIR.
I dag batnaði veður í Finnlandi og strax gerðu rússneskar flug-
vjelar loftárás á Ábæ og fleiri borgir, en ekki er kunnugt um tjón
af völdum loftárásanna.
Finska frjettast.ofan tilkynnir í dag (skv. FU frjett), að í des-
embermánuði hafi Rússar misfc 400 skriðdreka og 150 flugvjelar í bar-
dögunum við Finna.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Skipalap
Norðmanna
Síðan ófriðurinn hófst, hafa
Norðmenn mist 24 skip,
sem annað hvort hefir verið
sökt af kafbátum, eða þau hafa
rekist á tundurlufl.
99 sjómenn hafa farist með
skipum þessum.
TAP SVÍA
Sænska ríkisstjórnin tilkynti
í gær, að Svíar hefðu mist 33
skip í desembermánuði, samtals
17,000 smálestir.
Skömmu síðar barst fregn um
að tvþ sænsk skip hefðu farist
í gær. Annað, ,,Keruna“, í miðju
Atlantshafi, en hitt við strendur
Skotlands. Af skipinu, sem fórst
við Skotland, björguðust ellefu
menn, en 20 er saknað. (Segir
í FÚ-fregn frá London).
Útgerðarf jelagið sem á Ker-
una, segir að ólíklegt sje, að
skipið hafi verið skotið í kaf
þ.ar sem það hafi ekki átt að
vera statt á þessum slóðum, sem
sagt er, að bað hefði farist.
Stem, rússneski
heiforinginn
handtekinn
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
St e r n, yfirherforingi rúss-
neska hersins á Leningrad-
hernaðarsvæði, sem stjórnað
hefir hernaðinum gegn Finnum
í nokkra daga, hefir verið
handtekinn af leynilögreglu
rússneska kommúnistaflokksins.
Er talið að hann muni verða
kærður fyrir landráð og dug-
leysi en kunnugt er, hvað sú
ákæra hefir í för með sjer í
ríki Stalins.
Stern er einn af yngstu yfir-
hershöfðingjum Rússa. Hann
hefir áður stjórnað hersveitun-
um í Mongólíu í bardögunum
við Japani, og þar sem hann
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.