Morgunblaðið - 05.01.1940, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.01.1940, Qupperneq 3
Föstudagur 5. janúar 1940. MORGUNBLAÐIÐ 3 ingi sat Kemur aftur saman 15. febrúar ða g a „Höggormurinn" drepinn I neðri deild öggormurinn“ var drep- >>*■ * inn í neðri deild í fyrri- nótt, eða rjettara sagt þær litlu leifar, sem eftir voru af hon- um. Eftir voru aðeins þessir fáu liðir: 1) Að ríkisstofnanirnar skyldu greiða í ríkissjóð mán- aðarlega allan tekjuafgang, að frádregnum launum fastra starfsmanna, 2) að forstöðu- manni ríkisstofnunar skyldi ó- heimilt að ráða nokkurn til starfs, eða greiða fyrir auka- starf o. f 1., án samþykki ráð- herra og B) að lækka afnota- gjald þeirra útvarpsnotenda, er ekki hafa straumtæki, niður í 20 krónur. Tveir hinir fyrtöldu liðir eru ekki löggjafaratriði, heldur framkvæmdar.Ríkisstjórnin get- ur fyrirskipað það, sem í þeim felst. Við atkvæðagreiðsluna (2. umr.) í Nd. varð niðurstaðan sú, að þegar hver einstök grein frumvarpsins var borin upp, hlaut hún samþykki deildarinn- ar. En þegar svo frumvarpið í heild var borið undir atkvæði, var það felt frá 3. umræðu með 15:15 atkv. Eins og skýrt hefir verið frá áður hjer í blaðinu, voru ýmsir Jiðir, er voru í „höggorminum“ upphaflega komnir í gegnum þingið, sem breyting á þeim lög- um er þeir heyrðu undir. Má þar til nefna útvarpið (frjetta- stofuna), rannsóknarstofu at- , vinnuveganna, fækkun í fiski- .málanefnd (samþykt í gær), barnafræðsla o. fl. Ennfremur var ferðaskrifstofa ríkisins (frestun á framkvæmd hennar) skeytt aftan við ,,bandorminn“ svonefnda. Hvað liggur eflir þingiö? ALÞINGI verður slitið árdegis í dag, eftir alls 138 daga setu, 72 daga á fyrri hluta þingsins og 66 daga nú. Þingið samþykti alls 81 íög. Vafalaust verða dómarnir um afrek þessa þings æði misjafnir, eins og um störf fyrri þinga. En þegar menn leggja dóm á störf þings þess, sem nú lýkur störfum, má ekki gleyma því, að tímarnir sem þingið starfaði á voru einhverjir hinir alvarlegusu, sem komið hafa. A fyrri hluta þinghaldsins setti hin mikla atvinnukreppa sinn svip á þingstörfin. En þá skeður það merkilega — e. t. v. það merki- legasta í okkar pólitísku sögu — að stærstu flokkar þingsins leggja niður baráttu-vopnin og taka höndum saman um lausn vandamálanna. Jarðskjálftar í Tyrklandi næsta missiri Þetta gerðist á því augnabliki, sem framundan blasti algert hrun höfuðatvinnuvegar þjóðarinnar, sjávarútvegsins. Þegar hin póli- tíska saga þessa tímabils verður skráð, munu þessar aðgerðir flokk- anna verða sá þátturinn, sem gnæfir hæst. Þegar Alþingi svo kom aftur saman 1. nóv. til framhaldsfunda, var nýtt óvænt viðhorf komið. Evrópustyrjöldin var skollin yfir með ótal, nýjum erfiðleikum og vandamálum. Það voru aðallega tveir höfuð málaflokkar, sem tóku upp störf þessa þings. Annar flokkurinn voru þau mál, sem tengd voru stríðinu á einn eða annan hátt. Þau oilu ekki ágreiningi, svo telj- '' -• 'W andi sje. Fjármálin. Hinn málaflokkurinn voru fjár- málin. Þau þurftu stórra átaka og stærri en nokkru sinni fyr, vegna þess hvernig í pottinn var búið. Þjóðin hafði um margra ára skeið leyft sjer að lifa langt yfir efni fram. Og þar gekk Alþingi á und- an, með miður góðu fordæmi. Ekki er vafi á því, að þegar þingmenn komu saman í haust, var það einlægur ásetningur þeirra margra og máske flestra, að gera nú fjármálunum þau skil, sem verulega um munaði. Og því verð- ur ekki neitað, að þingið tók nýja stefnu í fjármálunum, stöðvaði eyðsluflóðið, sem ríkt hefir að undanförnu og sýndi virðingar- ^0J dugir ekki að einblína á heiklar- upphæðir fjárlaganna, sem eru hinar hæstu, er sjest hafa. Hinu nvá ekki gley.ma, að verðgildi okk- ar krónu hefir fallið á árinu sem leið um 33%. Að Alþingi, þrátt fyrir þessa staðreynd, tókst að stöðva litgjöld fjárlaganna við tæpl. 18 milj. króna, er vissulega stórt átak og markar greinilega stefnubreytingu í fjármálunum. En betur má, ef duga skal. Skattarnir hjá okkur eru nii orðn- ir svo þungir, að menn geta ekki undir þeim risið. Og þeir verka þannig á einstaklingana, að þeir missa alla löngun til að spara eða safna fje. Það hefir aftur alvar- legar afleiðingar fyrir okkar fá- tæka og fjánmagns-snauða land. Þessvegna verður að fá skattana lækkaða verulega. Af öðrum stórmálum, sem þing- ið afgreiddi að þessu sinni, skulu fá ein talin. Lausn kaupgjalds- málsins gnæfir þar hæst. Sú lausn hefði aldrei náðst, ef stærstu flokkarnir hefðu staðið í rifrildi og illdeilum. Breytingarnar á framfærslulögunum marka og nýja FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Vaxtafjeð Frumvarpið afgreitt með lökstuddri dagskrá Allmikil deila stóð í þinginu um frumvarp millíþinga- nefndar í skatta- og tollamál- um, um innhexmtu tekju- og eignarskatts af vaxtafje verð- brjefa og skuldabrjefa. Hefir frumvarpi þessu áður verið lýst hjer í blaðinu. Spari- fje var einnig í því upphaflega, en tekið út úr í meðferð þings- ins. Við lokaumræðu málsins í Ed. í gær, var frumvarpið afgreitt með svohljóðandi rökstuddri dagskfá frá Magnúsi Jónssyni: ,,Með því: 1. að efni frumvarpsins hefir verið að verulegum hluta rýrt með niðurfelling a. liðs 2. gr. 2. að ákvæði frumvarpsins koma ekki að nema litlum hluta til framkvæmda á því ári, sem nú er byrjað, 3. að milliþinganefnd í skatta og tollamálum er nú að undir- búa tillögur um skattamálin, sem væntanlega koma til með- ferðar á næsta Alþingi, og 4. að efni frumvarpsins á best heima sem ákvæði í lögum um tekju- og eignarskatt, þar sem hjer er um innheimtu tekju- skatts að ræða. Tekur deildin, í því trausti að málið komi í heppilegra form fyrir næsta Alþingi, fyrir næsta mál á dagskrá“. Dagskrártillagan var sam- þykt. Rússar hafa ákveðið að gefa 65 þúsund krónur til bág- stadda fólksins vegna jarð- skjálftanna í Tyrklandi. Þykir! með að sætta sig við, að verða viðleitni í að draga rir út- gjöldunum. En þó virtist, þegar á hólminn kom, ekki ríkja sú samheldni í þessum málum, sem vænta mátti og því varð útkom- an ekki eins góð og menn bjugg- ust við. Þetta á e. t. v. sína eðlilegu skýringu. Samstarf flokkanna var nýtt og' óreynt með öllu. Flokk- arnir, sem ráðið höfðu öllu í fjár- málunum undanfarið, áttu erfitt umbóta- þetta benda til þess, að Rússar hafi hug á að halda áfram vin- málin“, er þeir svo nefndu, væru að engu gerð. En svo er komið samlegri sambúð við Tyrki,. okkar högum, að engu verulegu þrátt fyrir það, sem í milli hefir borið. Enn hafa borist fregnir um landskjálftahræringar í TyrK- Jandi og jarðfræðingar í Istam- bul ætla, að framhald verði á jarðhræringum næsta missiri. verður um þokað í fjármálunum, nema með nýrri löggjöf á ótal sviðum. Fjárlög ein geta þar litlu ráðið. En þrátt fyrir mistökin mÖrgu — og stóru — er stefnubreyting- in í fjármálum augsýnileg. Hjer Verðlagsbreyt- ingar fram- p1 imm þingmenn úr Fram- *■ sóknarflokknum fluttu svo hljóðandi þingsályktunartillögu í sameinuðu þingi: „Alþihgi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta undirbúa fyrir næsta þing tillögur um reglur fyrir útreikningi á verð- breytingum á íslenskum fram- leiðsluvörum, sem hafa mætti á hverjum tíma til hliðsjónar við ákvarðanir um laun embættis- og starfsmanna ríkisins og ann- að kaupgjald í landinu“. Tillagan kom til atkvæða í sameinðu þingi í gær. Urðu úr- slitin þau, að fyrri hluti tillög- unnar, aftur að orðunum „sem hafa mætti“ o. s. frv., var sam- þyktur, en síðari hlutinn feldur með 14:11 atkvæðum. Verslnnar rekslur ríkisins Afundi í Sameinuðu Alþingi í gær, var samþykt ein- róma svohljóðandi þingsálykt- un, er fjárhagsnefndarmenn Ed. fluttu: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram rannsókn á því, hvort ekki sje tiltækilegt að sameina verslun- arrekstur ríkisins.í eina heild, með það fyrir augum, að sem mestum sparnaði verði við kom- ið í rekstrinum, og leggja álit sitt og tillögur fyrir næsta reglu legt Alþingi“. Efni þessarar þingsályktunar- tillögu kom fyrst fram sem breytingartillaga (frá Þorst. Þorst.) við „höggorminn“, en samkömulag varð um, að bera þetta mál fram sem þingsálykt- un í Sþ. Þingslit i dag Þingslit fara fram kl. 11 árdegis í dag. Störfum þingdeilda var íokið í gær. Alls hefir þá þetta þing setið 138 daga, 72 á fyrra hluta þingsins og 66 nú. Það afgreiddi 81 lög, þar af 22 stjómarfrumvörp (öll) og 59 þingmannafrumvörp. — Alls voru samþyktar 9 þingsálykt- anir. * Tvö þingmannafrumvörp voru feld (annað var „högg- ormurinn"); fimm var vísað frá með rökstuddri dagskrá og einu vísað til stjómarinnar Alls vom haldnir 236 þing- fundir, 104 í Nd., 105 í Ed. og 27 í Sþ. Kosningar í sameinuðu þingi A fundi í sameinuðu þingi siðdegis í gær, var kosið í eftirtaldar trúnaðarstöður. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar: Matthías Þórðar* son þjóðminjavörður, Þorkell Jóhannesson dr. phil. og Þórður Eyjólfsson hæstarj ettardómari. Eftirlit opinberra sjóða: Þor- steinn Þorsteinsson alþm.; And-< rjes Eyjólfsson bóndi og Sigui'* jón Á. Ólafsson alþm. Landsbankanefnd: — Gísli Sveinsson, Pjetur Ottesen, Ing- var Pálmason, Sveinbjö'rri Högnason og Emil Jónsson. 1 Til vara: Pjetur Halldórsson, Bjarni Snæbjömsson, Bjarni Ás- geirsson, Pálmi Hannesson og Jón Axel Pjetursson. Vopnaður togari á Reykjavikurhöfn Breskur togari kom hingað í gærmorgun með tvo veika menn og lá hjer í höfninni lengi dags. Þetta er gamalt skip, „Sarpe- ton“ frá Grimsby. Þó skipið komi hingað einungis til fiski- veiða, er það vopnað með all- stórri fallbyssu. Er fallbyssunni komið fyrir á „keisnum“, yfir vjelarrúminu. — Munu flestir breskir togarar vera útbúnir með fallbyssum til varnar gegn kafbátum, alveg eins og farið er að vopna bresk kaupfor. Menn voru að velta því fyrir sjer í gær hvort leyfilegt væri samkvæmt hlutleysislögum okk- ar að vopnað skip stríðsaðilja dveldi nema stutta stund í j höfn. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sjer í gær, mun ekki vera hægt að líta á togarann sem herskip, þar sem það er ekki í enska flot- anum, heldur hefir það fallbyss- una einungis til öryggis. Skipið kom hingað beint frá Englandi og var ekkert farið að veiða að ráði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.