Morgunblaðið - 27.02.1940, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 27. febrúar 1940
7
MORGUN BLAÐIÐ
yiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiuiiiiiiMi
| Ný bók |
auiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiM
Afmælisrit helgað
Einari Arnórssyni
Ný slúka
§æb)örg nr. 255
í Ilöfnum
Asunnndaginn var fóm fj.elag
ar úr stúkunni Verðandi nr.
9 í tveimur bílum suður í Hafnir.
alls rúmlega 30 inanns, til þess að
stofna þar nýja stúku, eftir beiðni
þeirra Hafnamanna. Auk þess var
í förinni Guðgeir Jónsson Um-
dæmis Templar, Kjartan Sigur-
jónsson söngvari og Esra Pjeturs-
son.
Þegar suður í Hafnir kom var
settux; útbreiðslufundur í St. Verð
andi og töluðu þar Þorst. J. Sig-
urðsson 1. æt., Karl Bjarnason 2.
<æt., Guðgeir Jónsson u.t., Jónas
Guðmundsson forstj. og Pjetur
Zophóníasson söttfræðingur.
Að þeim fundi loknum h’ófst
stofnfundur nýju stúkunnar, sem
hlaut nafnið „Sæbjörg nr. 255“.
Pjetur Zophóníasson stjórnaði
stofnuninni í umboði Stórtempl-
ars. Stofnendur voru 22-
Æðsti templar var kosinn
Magnús Ketilsson, útvegsbóndi á
Bakka, varatemplar Eva Ólafs-
dóttir ungfrú, Óslandi, ritari frú
Þorbjörg Gísladóttir og umboðs-
maður Stórtemplars Magnús Jóns-
son útvegsbóndi.
Að stofnun lokinni var haldin
skemtun, sem St. Verðandi stjórn
,aði.
Fumfur utanrikis-
málaráðherranna
PRAMH. AP AHNARI SÍÐU.
íullyrðingum um að þeir reki
þessa hlutleysisstefnu með tilliti
til þvingunarráðstafana úr einni
eða annari átt og munu halda
henni áfram hlutdrægnislaust og
óháð til allra hliða.
Utanríkismálaráðh. voru sam-
mála um að halda fast v,ið þá
kröfu, að yfirráðasvæði hluU
lausra ríkja yrði virt af styrjald-
araðilum í samræmi við reglur
þjóðrjettarins. Þeir voru sam-
mála um að mótmæla alvarlega
og reyna að fá komið í veg fyrir
^jóhernaðaraðferð þá, sem stríð-
ir á móti alþjóðalögum og veld-
ur hlutlausum ríkjum miklu
tjóni á mannslífum og viðskifta-
legum verðmætum, er skip
þeirra eru í hættu til þess að
reka löglega og nauðsynlega
.verslun þessara ríkja. Voru þeir
sammála um, að stjómir þeirra
ættu að styðja hver aðra í samn-
ingum við styrjaldarríkin um
þessi mál.
Utanríkismálaráðh. hjeldu
fundi sína í þeirri sannfæringu,
að ef ekki yrði bundinn endi á
styrjöldina, fyr en grimmir og
langvarandi bardagar hefðu
valdið ennþá meiri hörmungum
en þegar er orðið, þá mundi hún
skapa svo rótgróna óvild milli
þjóðanna, að vegurinn til varan-
legs skilnings og vináttu yrði
gerðar ennþá torveldari en hann
ei nú. Þessvegna munu þeir
heilsa með gleði hverri viðleitni
til samninga milli styrjaldarþjóð
anna, sem leitt gæti til rjettláts
og varanlegs friðar.
Dagbólc
0 Helgafell 59402277—IV V,—2.
I. O. 0. F. Rb.st, 1 Bþ. 8922781/2
III.
Næturlæknir er í nótt Axei
Blöndal, Eiríksgötu 31. Sími 3951.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Árshátíð blaðamanna 1940. At-
hugið að panta borð hjá yfirþjón-
inum á Hótel Borg, þar sem borð-
haldið er ekki sameiginlegt.
Gullbrúðkaup eiga í dag Ólaf-
úr Jónsson og Evlalía Kristjáns-
dóttir í Reykjarfirði við ísafjarð-
ardjúp. Þessi merkishjón hafa set
ið í Reykjarfirði í 50 ár. Er Ólaf-
ur 92 ára, en kona lians 80 ára.
Trúlofun. A laugardaginn opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Lára
Guðbrandsdóttir, Garðastræti 11.
og Jón Sigurðsson, Laugav. 27 B.
Esja var væntanleg til Reykja-
víkur kl. 6 í morgun.
Happdrætti Flugmodelfjelagsins.
Þegar sýning Flugmodelfjelagsins
hófst var kastað happdrættismið-
um úr svifflugu yfir bæinn. I gær
var dregið í happdrættinu hjá
lögmanni og kom upp nr. 1220.
Vinningurinn er % klukkustund-
ar flug með TF-Sux.
Skíðaferðir um helgina. Fjöldi
manns fór á skíði um helgina og
voru allir skíðaskálar fullir að-
faranótt sunnudags. A sunnudags-
morgun fór skíðafólk í hundraða
tali út úr bænum. Hátt á þriðja
hundrað manns var við Kolviðar-
hól og um 200 við Skíðaskálann í
Hveradölum. Veður var ekki hag-
stætt, allhvast. á norðaustan og
skýjað. Fólkið virtist samt liið á-
nægðasta.
íþróttafjelag Templara'. Stofn-
fundur þess var haldinn í G. T.-
húsinu á sunnudaginn og var Ben.
G. Waage, foi’seti I. S. í. fund-
arstjóri. Stofnendur á þessum
fundi voru 115, bæði konur og
karlar og þykir það vel á stað
farið. Bráðabirgðastjórn til fram-
haldsstofnfundar var kosin: Ágúst
Kristjánsson glímukappi formað-
ur, og meðstjórnendur Kristín
Einarsdóttir og Ragnar Gunnars-
son, *I nefnd til að semja lög fyr-
ir fjelagið voru kosnir: Garðar
Gíslason íþróttakennari, Einar
Björnsson skrifstofum. og Árni
Óla blaðamaður.
Leikfjelag Reykjavíkur biður
blaðið að vekja athygli á því, að
Fjalla-Eyvindur verður sýndur á
morgun, miðvikudag, en ekki
fimtudag eins og venjulega. Al-
þingismönnum og bæjarstjórn er
boðið á þessa sýningu.
Skaftfellingamót verður haldið
á Ilótel Borg 6. eða 7. mars n.k.
Gengið í gær:
Sterlingspund 25.76
100 DoIIarar 651.65
-— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 14.78
— Belg. 110.18
— Sv. frankar 146.28
—- Finsk mörk 13.27
— Gyllini 347.22
Sænskar krónur 155.34
— Norskar krónur 148.29
—* Danskar krónur 125.78
Útvarpið í dag:
12-.O0 Hádegisútvarp.
13.05 Útvarp frá Alþingi: 1. umr.
um fruniv. til fjárlaga fyrir ár-
ið 1941.
20.20 Erindi: Um nokkur fágæt
mannanöfn (Jóhannes Örn Jóns
son bóndi. — dr. Símon Jóh.
Ágústsson).
20.50 Útvarp frá Austfirðinga-
móti að Hótel Borg: Ávörp og
ræður. Söngur. — Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur.
21,55 Frjettir.
Afmælisrit, helgað Einari
Arnórssyni hæstarjettar-
dómara, dr. juris, sextug-
um. — Reykjavík 1940. —
ísafoldarprentsmiðjá h. f.
rlendis hefir þeirri venju
alllengi verið uppi haldið,
að sýna kunnum vísinda- og
fræðimönnum virðingu á stóraf-
mælum þeirra, t. d. sextugs- bg
sjötugsafmælum, með útgáfu af-
mælisrita. I ritum þessum birt-
ast venjulega fræðilegar og vís-
indalegar ritgerðir í þeirri eða
þeim fræðigreinum, sem þeir
hafa lagt stund á, er ritin eru
helguð.
Ekki er mér kunnugt um, að
rit af þessu tagi hafi komið út
hér á landi fram að þessu. Það
er því stórmerkur atburður í ís-
lenskri bókagerð, að I gær birtist
slíkt afmælisrit, helgað dr. Ein-
ari Arnórssyni sextugum.
Ritið er í stóru átta blaða
broti, 192 bls. að lengd, og er
hið glæsilegasta að efni og frá-
gangi. — Framan við ritið sjálft
er mynd af dr. Einari Arnórs-
syni, og eftirfarandi tileinkun:
Hinum ágæta lögfræðingi og
lærdómsmanni í íslenskum fræð-
um, hæstarjettardómara dr. jur-
is, Einari Arnórssyni, er rit
þetta helgað á sextugsafmæli
hans í þakklætisskyni og virð-
ingar.
Þá er heillaóskaskrá /tabula
gratulatoria), og eru á henni
nöfn fjölmargra manna, bæði lög
fræðinga og annara mentamanna,
er að riti þessu standa.
Þá hefst ritið sjálft, og eru
í því 12 fræðilegar ritgerðir, lög
fræðilegs, málfræðilegs og bók-
mentalegs efnis. Ritgerðimar og
höfundar þeirra eru sem hjer
segir::
Alexander Jóhannesson, dr.
phil.: Torskilin orð í íslenzku.
Bjarni Benediktsson, prófess-
or: Þingrof á Islandi.
Björn Þórðarson, lögmaður, dr.
jur.: Forseti hins konunglega ís-
lenska landsyfirréttar.
Einar Arnalds, iögreglufull-
trúi: Alþjóðasamtök um sam-
ræmingu siglingalöggjafar. ;
Flr. le Sage de Fontenay, sendi-
herra: Arabisk Indflydelse paa
Europas Handels- og Retster-
minologi.
Gissur Bergsteinsson hæsta-
réttardómari: Nokkrar hugleið-
ingar um fébótaábyrgð ríkisins.
Guðrandur Jónsson, prófessor:
Almenn kirkjubæn, martyrolog-
íum og messudagakver á íslandi
fyrir siðaskiptin.
Guðni Jónsson mag. art.: Flóa
mannasaga og Landnáma.
Jón Jóhannesson cand. mag.:
Björn at Haugi.
Ólafur Lárusson prófessor:
Þriggja hreppa þing.
Pjetur Sigurðsson háskólarit-
ari: Föðurætt Hauks lögmanns
Erlendssonar.
Þórður Eyjólfsson hæstarjett-
ardómari: Refsirjettur Jónsbók-
ar.
Að lokum er skrá yfir rit dr.
Einars Amórssonar eftir próf.
Guðbrand Jónsson. Þarf ekki
annað en líta á skrá þessa til
þess að sannfærast um, hvílíkur
afreksmaður dr. Einar Arnórs-
son er um vísindastörf og fræði-
mensku. Það orkar ekki tvímæl-
is, að dr. Einar Arnórsson hefir
unnið til þess sóma, sem honum
hefir verið sýndur með hinu á-
gæta og eigiulega riti.
Að endingu skal þess getið, að
ein 300 eintök voru prentuð af
ritnu, verður það því fágætt og
lítt fáanlegt, er stundir líða.
Magnús Finnbogason.
Málfundafjelagið „Þór“ í Hafn-
arfirði hjelt afmælishátíð síðastl.
laugardag. Yar hófið fjölsótt.
Hermann Guðmundsson, formaður
fjelagsins setti sámkomuna með
ræðu, en auk hans tóku til máls
Bjarni Snæbjörnsson alþm., Þor-
leifur Jónsson bæjarfulltrúi, Arn-
laugur Sigurjónsson og Sigur-
björn Guðmundsson. Síra Garðar
Þorsteinsson skemti með einsöng
og Daníel Bergmann söng gam-
anvísur.
Friðarboðskapur?
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Mussolini boðskap frá Roosevelt.
Grein, sem birtist í ,,Washing-‘
ton Post“, aðalmálgagni stjórn-
arinnar í Washington, í dag,
hefir í þessu sambandi vakið
nokkra athygli. Er í greininni
rætt um ræður Hitlers og Cham-
berlains á laugardaginn og
Sumner Wells bent á, að þessar
ræður hljóti að hafa leitt hon-
um fyrir sjónir, hvílíkum örð-
ugleikum það sje bundið að
koma á sættum í Evrópu. — En
blaðið segir þó, (aþ þetta sje
ekki vonlaust og vitnar í því
sambandi í ummæli Hitlers um
að það sje ekki markmið Þjóð-
verja að eyðileggja Breta og
ummæli Chamberlains um að
Bretar myndu verða fúsir til sam
komulagsumleitana, ef trygt
væri, að staðið yrði við þær skuld
bindingar, sem undir yrði geng-
ist.
Shell og skaðabæturnar. í frá-
sögn af hæstarjettardómnum hjer
í blaðinu s.l. laugardag, „Shell
sýknað af skaðabótakröfu“, rask-
aðist í frásögninni nöfn verjanda
og sækjanda málsins. Sigurgeir
Sigurjónsson flutti málið fyrir
Shell, en Þórólfur Ólafsson fyrir
Sturlu.
Vinum okkar tilkynnist, að elskuleg dóttir okkar
VIGDÍS
andaðist 26. febr. að heimili okkar á AkranesL
Hendrikka Ólafsdóttir. Jón Sigmundsson.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að faðir minn
HJÖRTUR LÍNDAL,
hreppstjóri á Efra Núpi, andaðist að heimili sínu 26. þ. mán.
Fyrir hönd mína og annara yandamanna
Benedikt Líndal.
Það tilkynnist, að bróðir okkar,
ÁSMUNDUR JÓHANNSSON vigtarmaður
Klapparstíg 13, andaðist á Landakotsspítalanum þann 25. febr.
Guðrún, Ingveldur og Kristín Jóhannsdætur.
BJÖRN BJARNASON,
Vesturgötu 36 A, sem andaðist í Elliheimilinu þann 20. þ. mán.
verður jarðsunginn frá dómkirkjunni miðvikudaginn 28. febr.
kl. iy2. Athöfnin hefst frá Elliheimilinu.
Sigrún Sveinsdóttir. Kristján Guðm,undsson.
Jarðarför konunnar minnar
ÞORBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
fer fram fimtudaginn 29. þ. m. og hefst að heimili hinnar látnu,
Stað, Selfossi, kl. 12.30.
Athöfnin í Eyrarbakkakirkju hefst kl. 2 e. h.
Ólafur Sigurðsson.
Jarðarför föður míns
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR slátrara
fer fram frá heimili hans, Laugaveg 38 B miðvikudaginn 28.
febrúar kl. iy2 e. h.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda
Vilhjálmur Þorsteinsson.