Morgunblaðið - 03.03.1940, Qupperneq 7
Sunnudagur 3. marg 1940.
MORGUNBLAÐI8
Þjóðræknisfjelag
íslendinga heldur
útbreiðslufund
Eins og kunnugt or var Þjóð-
ræknisf jelag íslendinga
stofnað fijer 1. des. s.l. Tilgangur
fjelagsins er, að efla og auka sam-
vinnu milli íslendinga austan
liafs og vestan. Fjelagið iiefir nú
ákveðið að halda útbreiðslufund
næstkomandi fimtudag að Hótel
Borg. Skemtiatriðin verða:
Jónas Jónsson setur samkom-
una. Síðan flytur Jakob Kristins-
son fræðslumálastjóri ræðu. Þá
syngja þeir Jakob Hafstein og
Ágúst Bjarnason. Síðan flytja
stutt ávörp þeir: Ásgeir Ásgeirs-
sOn alþm., dr. Ágúst H. Bjarnason
prófessor Árni Pálsson, dr. G-uð-
mundur Finnbogason, dr. Sigurð-
ur Nordal og Thor Thors alþm.
Að lokum verður dans stiginn
til kl. 2.
Menn geta gerst fjelagar með
því að skrifa sig á lista, sem
liggja frammi á Hótel Borg og í
Bðkaverslun Sigf. Eymundssonar,
frá næstkomandi þriðjudegi.
3. og’ síðasta kynnikvöld Guð-
speKifjelagsins verður í kvöld kl.
9. Þrír ræðumenn tala. Hljómlist.
óviðjafnanlega púður gefur
húðinni rjetta útlitið og rjett-
im lit á öllum árstíðum, þurk-
ar ekki húðina og skaðar
hana ekki.
<><><><><><><><><><><><><><><><><>0
Sltrónur
Vísm
Laugavegi 1.
Útbú: Fjölnisveg 2.
Fimtugur: Pjetur
Guðmundsson
í Ófeigsfirði
>00000000000000000
Svið
með rófustöppu.
Matstofan
Aðalstræti 9. Sími 1708.
ÖOOOOOOOOOOOOOOOOÖ
Aðalfundur
hins íslenska
Garðyrkjufjelags
verfSur haldinn í K. R. húsinu
uppi laugardaginn 16. mars kl. 2
e. hád.
STJÓRNIN.
T dag er Pjetur Guðmundsson,
T- óðalsbóndi og hreppsnefnd-
aroddviti ‘í Ófeigsfirði á Strönd-
um, fimtugur. Hann er sonur hins
góðkunna hjeraðshöfðingja, Guð-
mundar Pjeturssonar,í Ófeigsfirði,
er um langt skeið gerði þann stað
nafnkunnan að öllu góðu, og síðari
konu hans, Sigrúnar Ásgeirsdótt-
ur frá Heydalsá, mætrar og góðr-
ar konu. Pjetur hefir alið allan
sinri aldur í Ófeigsfirði, og nú
milli 20 og 30 ár húið þar með
snild og prýði ásamt sinni ágætu
konu, frú Ingibjörgu Ketiisdóttur,
Magnússoriar skósmíðameistara á
Isafirði. Ilefir heimilislif þeirra
hjóna verið með afbrigðum gott,
og heimilið sannkallað fyrirmynd-
arheimili að allri rausn og heimil-
isprýði. Hafa þau hjón eignast 9
syni, og eru 7 þeirra á lífi, vel
gefnir og hinir efnilegustu. Pjetur
er óvenjulega. vel gefinn maður,
en dulur og lætur ekki mikið yfir
sjer, en hann er drjúgur' rnaður og
farsæll til allra starfa; víðlesinn
er hann í öllnm íslenskum fræð-
um, auk þess sem jeg efast um
að nokkur íslenskur bóndi sje eins
víðlesinn í nýrri hókmentum Norð
.urlanda, enda á hann óvenjumikið
og gott bókasafn, og vill ekki láta
sjást nema úrvals bækur í sínum
bókaskáp. — Þó Pjetur sje
dulur, og vilji ,að því er virðist,
hafa sig lítt í frammi, er hann þó
í eðli s‘ínu gleðskaparmaður, hann
er óvenju vel sönggefinn maður,
og leikur prýðilega á orgel, og í
góðum vinahóp er hann hrókur
alls fagnaðar. Sem eðlilegt er
hafa sveitungar hans falið honum
ýms trúnaðarstörf. Um mörg ár
hefir hann verið hreppsnefndar-
[ oddviti. og það hvgg jeg, að Pjet
ur í Ofeigsfirði sje einstæður
þ.eirri stöðu hvað vinsældir snert-
ir. I sýslunefúd Strandasýslu hef-
ir Pjetur setið um fjölda ára. T
fasteignamatsnefnd Strandasýslu
^ i Hefir ha.nn! átt sæti um mörg ár,
og umboðsmaður Brunabótafjelags
fslands fyrir sinn lirepp hefir
hann verið frá byrjun þeirrar |
starfsemi. Öll sín störf hefir Pjet-
ur leyst af hendi með þeirri alúð
og kostgæfni að allir hafa verið
ánægðir.
Yið vinir Pjeturs, hinir f.jöl-
mörgu, fjær og nær, þökkum hon-
um á þessum tímamótum æfi hans,
unnin störf, og óteljandi gleði- og
ánægjustundir í samveru við hann.
hæði á heimili hans og annars-
staðar, og vottum honum allra
heilla og blessunar á komandi ár-
um, og að þau megi verða sem
flest. Sveinn Guðmundsson.
Dagbók
□ Edda 5940357 — Fyrl.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
V eða NV-kaldi. Skúrir eða jel,
en bjart á miUi.
Næturlæknir er í nótt Gísli
Pálsson, Laugaveg 15. Sími 2474.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Helgidagslæknir er í dag Þórar-
inn Sveinsson, Ásvallagötu 5. Sími
2714.
Hjónaband. Gefin voru saman
í hjónaband í gær ungfrú Sigfríð-
ur Georgsdóttir og Jón Pjetursson
Einarsson sjómaður. Heimili þeirra
er á Sogabletti 9. Síra Garðar
Svavarsson gaf hrúðhjónin sam-
an.
Fasteignaeigendafjelag Reykja-
víkur hefir opnað skrifstofu í
Thorvaldsensstræti 6 hjer í bæ og
verðnr skrifstofan fyrst um sinn
opin daglega kl. 10—12 f. h. og
kl. 3—6 e. h. Formaður fjelags-
ins, Gnnnar Þorsteinsson hæsta-
rjettarmálaflm. verður til viðtals
á skrifstofunni bæði fyrir fjelags-
menn og aðra fasteignaeigendur,
er ganga vilja í fjelagið, daglega
kl. 4—6 e. h. Mun starfsemi skrif-
stofunnar fyrst um sinn aðallega
beinast að útbreiðslu fjelagsins.
Verður þar veitt móttöku árstil-
lögum fjelagsmanna og nýir fje-
lagsmenn geta þar og innritast í
fjelagið, en fjelagsmaður getur
sjerhyer eigandi og umráðamaður
fasteignar í Reykjavík orðið. Þá
mun skrifstofan leitast við að afla
sjer áreiðanlegra upplýsinga um
vanskilaleigjendur og þá leigjend-
ur, sem fara sjerstaklega illa með
leiguíhúðir sínar. Er ætlast til
þess, að húseigendur gefi skrif-
stofunni. upplýsingar nm slíka
leigjendur til afnota fyrir þá fje-
Jagsmenn, er leita kunna til skrif-
st,ofunnar í þessu efni. Þá mun
skrifstofan, eftir því sem við verð-
ur komið og fært þykir, láta fje-
lagsmönnum í tje upplýsingar og
leiðbeiningar nm skifti leigutaka
og leigusala og hagsmunamál fje-
lagsmanna yfirleitt varðandi fast-
eignir þeirra. Yms fleiri verkefni
eru skrifstofunni fyrirhuguð í
framtíðinni, þó að ekki verði að
þeim vikið að svo stöddu.
IJtvarpið í dag:
10.45 Morguntónleikar (plötur) :
Sónata í B-dúr, Op. 106, eftir
Beethoven.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
18.30—16.30 Miðdegistónleikar:
Ljett klassísk lög (plötur).
17.00 Messa í Dómkirkjunni (síra
Friðrik Hallgrímsson).
18.30 Barnatími :(Systurnar Mjöll
og Drífa).
19.15 Hljómplötnr: Lög eftir Pur-
cell.
19.45 Frjettir.
20.2Á Érindi: Frá Verdun (Jón úr
Yör).
20.40 Tónleikar Tónlistarskólans:
(Dr. Edelstein): Sóló-svíta í d-
moll, eftir Bách.
21.05 Upplestur: Ur norrænum
bóköiehtum (Sigurður Einarsson
dósent).
21.30 Kvæði kvöldsins.
21.50 Frjettir.
TAPAST
>0
hefir sfóc brúnn skíflalianski
á leiðinni frá Rauðavatni til Reykjavíkur. Skilist
gegn fundarlaunum. — A. v. á eiganda.
FYRIRLIGGJANDI:
Sitrónur
í 150 og 300 stk. kössum.
Eggeit Krisffánsson & Co. h.f.
Kanpum
tóma strigapoka.
Mordalsishús
Sími 3007.
W&M
■m
EKKSPIL!
Með 7 hesta Glóðarhaus Mótor, ónotað
til sölu með tækifærisverði.
H.B
ENEDIKTSSON i CO.
Sími 1228
Sfnd 1380.
LITLA BILSTÖÐIN ^”***1*
TJPPHITAÐIR BtLAR.
Jarðarför manusins mins og föður okkar
JÓNS JÓNSSONAR bifreiðarstjóra,
Smiðjustíg 9, fer fram n.k. mánudag 4. mars og hefst með hús-
kveðju að heimili okkar kl. 1.30 e. hád.
Jarðað verður frá Dómkdrkjunni.
Sesselja Hansdóttir.
Magnús Jónsson. Hans Jónsson.
Jarðarför
GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem andaðist 24. febrúar, fer fram á morgun, mánud. 4. mars
kl. 1.30, frá Framnesveg 36.
Aðstandendur.
Kveðjuathöfn
ÁSTRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Stóra Ási í Hálsasveit fer frami á morgun, 4. mars. kl. 4.15
e. hád. frá dómkirkjunni. Kveðjuathöfninni verður útvarpað.
Aðstandendur.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall
og jarðarför mannsins míns og föður okkar
GUÐMUNDAR R. JÓELSSONAR verkstjóra.
Sjerstaklega viljum við þakka Alliance h.f. og hr. fram-
kvæmdastjóra Ólafi Jónssyni, fyrir þeirra miklu samúð.
Ólöf Jóhannsdóttir og böm.