Morgunblaðið - 19.03.1940, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Þriðjudagur 19. mars 1940.
NorOurlanda-
pósturlnn
kom I nótt
Um eða yfir 60 pokar af
Norðurlandapósti voru
væntanlegir með togara til
Hafnarf jarðar í nótt. Giskað er
á, að hjer sje um -að ræða meg-
in-hl'utann af þeim Norður-
landapósti, sem tafist hefir í
Englandi undanfarnar vikur.
í gærmorgun kom breskur
póstur með togara hingað til
Reykjavíkur. Voru það 37—38
pokar og auk þess 5 póstpokar
frá Danmörku og 1 frá Noregi.
Úr þessu er gert ráð fyrir, að
póstsamgöngur fari að færast
nær því, að komast í eðlilegt
horf, þar sem pósturinn verður
sendur um borð í togarana jafn-
óðum og hann hefir farið um
hendur bresku brjefaskoðunar-
innar.
Briúge kepnin:
Úrslit eftir tvi-
sýnan bardsga
Bridgekepninni lauk á sunnu-
daginn.
Úrslitin urðu þessi:
1. Einar B. Guðmundsson, Stef-
án Stefánsson, Axel Böðvarsson,
Sveinn fngvarsson -f- 4300.
2. Pjetur Magnússon, Lárus
Pjeldsted, Brynjólfur Stefánsson
og Guðm. Guðmundsson +4150.
3. Hörður Þórðarson, Einar Þor
finnsson, Guðlaugur Guðmundsson
og Kristján Kristjánsson + 3130.
4. Óskar Norðmann, Kristín
Norðmann, Gunnar Pálsson og
Jón Guðmundsson + 1560.
5. Tómas Jónsson, Torfi, Jó-
hannsson, Gunnar Viðar og Skúli
Thorarensen -r-4680.
6. Árni Daníelsson, Gísli Páls-
son, Benedikt Jóhannsson og Pjet-
ur Halldórsson -47 8460.
Sveit Einars B. Guðmundssonar,
sem sigraði, hlýtur að verðlaun-
um silfurbikar, sem Lárus Fjeld-
gaf í fyrra. Er þetta farandhikar
og var kept um hann í fyrsta sinn
í fyrra. Sigurvegarar urðu þá
Tómas Jónsson og sveit hans.
Farandbikarnum fylgdu að
þessu sinni fjórir litlir silfurbik-
arar, handa hverjum keppandanna
í flokknum sem sigraði og gaf
sveitin, sem sigraði í fyrra, þessa
bikara.
Alls voru spiluð 120 spil í kepn-
inni. Var spilað í fimm kvöld, 24
spil í hvert skifti. Spilin voru
gefin af keppendunum sjálfum,
eins og kunnugt er, og sama spil-
ið síðan spilað á öllum borðunum.
Síðasta daginn, sem spitað var,
var mjög tvísýnt um, hver bera
myndi sigur af liólmi. Þó var al-
ment gert ráð fyrir að sveit Harð-
ar Þórðarsonar myndi sigra, enda
FRAMH. Á SJÖTTU SlÐU
Sigurvegararnir
á Thule-móiinu
Guðmundur Guðmundsson Helgi Sveinsson Jón Þorsteinsson
(Skíðafjel. Siglufjarðar), sem var (Skíðaborg), sem var bestur í svigi (Skiðafjel. Siglufjarðar), sem var
fyrstur í 18 km. göngunni á laug- (A.-fl.) og bestur í stökki ásamt bestur í stökki ásamt Helga Sveins
ardaginn. Jóni Þorsteinssyni. svni og annar í svigi.
Ásgrímur Stefánsson
(Skíðafjel. Siglufjarðar), sem var
bestur í svigi (C.-fh). Hann var
einnig í sveitinni er vann gönguna.
Siglfirðlngarnir fara lieiiti
með þrjá silfurbfkara
Bestir í svíqí og stökkum
Sfúdentafjelagsfnndurinii:
Leið viðskifta vorra
liggur í vesturátt“
segir Thor Thors
THULE-MÓTINU lauk á sunnudaginn og var
kept í svigi og stökki. Siglfirðingar fengu
öll fyrstu verðlaun. Veður var gott á með-
an kepni fór fram, nema í stökkkepninni, þá var kominn
rigningarsuddi. Áhorfendur eru lágt áætlaðir um 1000'—
1200, því um eitt skeið voru taldir 60 bílar við Skíða-
skálann.
FUNDUR var haldinn í Stúdentafjelagi Reykja-
víkur í gærkvöldi. Formaðúr fjelagsins lýsti
tilgangi þess með því að boða til umræðu-
funda um samband íslands við umheiminn.
Kvað haun eðlilegt að íslendingar gerðu sjer þess nú gleggri grein
en áður, þar eð ætla mætti, að þeir tækju innan skamms öll mál '
eigin hejidur.
Fyrri framsögumaður var Thor
'hors alþm. Fyrsti þáttur ræðu
ans fjallaði um samband Islend-
iga við Vesturheim og íslend
íga þar búsetta. Mintist hann í
ví sambandi á hið nýstofnaða
Leiðir viðskifta okkar hlytu að
liggja í vesturátt nú. Kvað það í
senn helgast af styrjaldarástandi
því sem nú ríkti í Evrópu og eðli-
legri framvindu í viðskiftalífi okk-
Sigurvegari í svigkepninni um bikar Litla skíðafjelags-
ins varð ,,Skíðaborg“ frá Siglufirði. I sveitinni, sem sigraði, voru
þessir fjórir: Helgi Sveinsson, Jónas Ásgeirsson, Ketill Ólafsson
og Jóhannes Jónsson. Kept var um bikar Litla skíðafjelagsins
í fyrsta skifti í fyrra og þá vann K.R. bikarinn. Samanlagður
tími Skíðaborgar var 413,1 sek.
Þjóðræknisfjelag hjer í Reykja-
vík. Kvað hann hlutverk þess
fyrst og fremst vera það, að vera
tengiliður milli íslendinga vestan
hafs og austan. Skoraði hann á
stúdenta að beita sjer fyrir vexti
og viðgangi fjelagsins. Nokknrs
misskilnings hefði gætt í afstöðu
okkar hjer heima til landa vestan
hafs. Við hefðum vanrækt að halda
sambandi við þá og afleiðingin af
því orðið sú, að báðir liefðu farið
mikils á mis.
Þá ræddi framsögumaður hið
viðskiftalega samband okkar við
Vesturheim. Mintist hann á hvern-
ig markaður okkar í Suður-Ame-
ríku hefði aukist ár frá ári og
næmi íslenskur útflutningur til
þessara landa verulegum upphæð-
um og væri enn vaxandi. Þessum
viðskiftum hæri að halda áfram og
gera alt sem unt væri til þess að
standast hina hörðu samkepni.
í Bandaríkjunum kvað hann
stórkostlega möguleika vera fyrir
hendi fyrir aukna íslenska mark-
aði. Benti í því sambandi á hinn
stóraukna lýsis- og síldarmarkað
sem við nú þegar hefðum skapað
okkur þar.
ar. —
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Bíll rennur
í sjóinn
Vörubifreiðin R. 427 rann
út af Loftsbryggju í gær-
morgun og sökk til botns. Svo
heppilega vildi til, að bílstjór-
inn var búinn að opna hurð á
stýrishúsinu og komst hann og
annar maður, sem hjá honum
sat, því út úr bílnum. Mennirnir
eru báðir ósyndir.
Bíllinn ætlaði að taka lifur úr
vjelbátnum Ágústu, sem lá fyr-
ir miðri bryggjunni. Efst á
bryggjunni var snjór, en þar fyr
ir neðan var bryggjan afar
sleip.
Bílstjórinn gat ekki stöðvað
bílinn og ætlaði að láta hann
renna á bátinn og stöðva hann
þannig, en þíllirin lenti rjett
fyrir aftan bátinn og á kaf í
sjóinn. Bílnum var náð upp í
gærdag.
í svigkepni á sunnudaginn
varð K.R. nr. 2 með 423,9 sek.
Þriðji Skíðafjelag Siglufjarðar
443,2 sek, og þá Í.R. og loks
Ármann.
1 stökkhlaupi fóru leikar
þannig, að fyrstir urðu Jón Þor-
steinsson (Skíðafjelga Siglufj.)
og Helgi Sveinsson. Báðir fengu
að meðaltali 17,8 stig. Þriðji
Jónas Ásgeirsson með 17,6.
Kept var í A og B flokki. í B
flokki varð Björn Blöndal
fyrstur með 18,5 stig, þess skal
getið, að stigveiting í A og B
flokki er ekki sambærileg, þar
sem ekki eru gerðar jafn mikl-
ar kröfur til B flokksmanna.
Úrslit í C flokks keppni í svigi
urðu þau, að Ásgrímur Stefáns-
son (Skíðafjel. Siglufj.) varð
fyrstur, á 77 sek. Annar varð
Jóhannes Jónsson (Skíðaborg)
á 77,6 sek. og þriðji Stefán
Stefánsson (Ármann) á 83,5
sek.
SVIG KEPNIN.
Svig kepnin hófst kl. 101/2 f.
h. með kepni C flokks. Var
brautin lögð í brekku hjá Skíða-
skálanum um morguninn. Var
brautin margbreytileg og skemti
leg. Byrjaði í miklum halla og
lá svo niður hlíðina, niður á
flötina hjá Skíðaskálanum. Eink
ar skemtileg var hárnálarbeygj.
an. Margir C-flokksmanna
keptu einnig í A-flokki og
fyrstu 5 menn í C-flokki færast
af sjálfu sjer upp í B-flokk og
fyrsti maður, Ásgrímur Stefáns-
son flyst upp í A-flokk. C-
flokkskepni lauk um hádegi.
Klukkan 1 \'-± hófst svo ný
kepni A og B flokks í braut,
sem lögð var beint upp af Skíða
skálanum. Var sú braut bæði
lengri og erfiðari og gerði all-
miklar kröfur til keppenda. Sú
kepni var sveitakepni, þannig
að fjórir bestu menn úr hverju
fjelagi mynduðu sveit og sigur-
vegari varð sú sveit er hafði
bestan samanlagðan tíma.
Fyrstu menn í svigkepni A
og B flokks voru þessir:
Helgi Sveinsson (Skíðaborg),
sem verið hefir skíðakennari hjá
Skíðafjelagi Reykjavíkur und-
anfarnar vikur. Fór hann háðar
umferðirnar á 95,0 sekúndum.
Annar varð Jón Þorsteinsson
(Skf. Siglufj.) á 100 sek. Þriðji
Jónas Ásgeirsson (Skíðaborg) á
100,1 sek, fjórði Gísli Ólafsson
(K.R.) á 100,6 sek. og fimti
Einar Eyfells (I.R.) á 100,7
sek. Alls voru keppendur 31 og
luku allir kepni nema einn.
Það, sem var eftirtektarverð-
ast við svigkepnina, var hve
keppendur voru yfirleitt jafnir.
Siglfirðingar hafa ekki fallegan
stíl, en þeir eru svo stöðugir, að
þeir „standa alt“. Mikla eftir-
FRAMH. Á SJÖTTU SÉÖU.