Morgunblaðið - 19.03.1940, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. mars 1940.
Erfiðleikar Mjólkurfjelags
Reykjavíkur
Vegna framkvæmdar mjólkur-
og gjaldeyrislaganna
Fjelagið fækkar starfs-
greinum sínum
Samtal við Eyjólf Jóhannsson
Asunnudaginn var birtust hjer í blaðinu auglýs-
ingar frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur og Eyj-
ólfi Jóhannssyni, um það, að fjelagið hafi
selt Verslunina Liverpool og Verslunina Blóm & Ávextir.
Þessar verslanir hafa í nokkur ár verið reknar sem deild-
ir í fjelaginu.
Blaðið hefir snúið sjer til Eyjólfs Jóhannssonar og- spurt
hann um það hvaða orsakir liggi til þess, að Mjólkurfjelagið
færir nú saman kvíarnar, og skýrði hann svo frá:
— Það yrði of langt mál, fyrir eina blaðagrein, að skýra
ítarlega frá öllum aðdraganda þessa, því ef ætti að segja þá
sögu alla, þyrfti að rekja sögu fjelagsins alt frá árinu 1928.
Átökin
um Rúmeníu
,
Síðustu árin hefir Karol Rúmenakonungur (annar frá vinstri á myndinni) lagt mikla
áherslu á að efla vígbúnað þjóðar sinnar. Hjer á myndinni sjest hann ásamt Teodorescu flota-
málaráðherra sínum (lengst t. v,) er hann var á leiðinni til að vígja nýja flotahöfn í Con.
stanza, við Svartahaf.
Sú ástæðan, sem tvímælalaust
hefir ráðið mestu um það, sem
gerst hefir í þessum efnum, er
framkvæmd mjólkurlaganna. Það
hefir staðið hörð deila um fram-
kvæmd þéssara laga. Því hefir
verið haldið fram, að í fram-
kvæmdinni væru mjólkurlögin
lyrst og fremst meðal til stórkost-
legs eignaflutnings frá bændum
í Reykjavík og nágrenni (þ. e. frá
bændum á fjelagssvæði Mjólkur-
fjelags Reykjavíkur) til bænda í
nærsveitum innan verðjöfnunar-
svæðisins og þá sjerstaklega til
bænda austan Hellisheiðar. Hvort
þetta er rjett eða rangt, ætla jeg
ekki að rœða hjer, þótt jeg hafi
um það mína ákveðnu meiningu,
en um eignarýrnun bænda á
nefndu svæði síðan mjólkurlögin
komu til framkvæmda verður ekki
deilt.
Síðari hluta ársins 1938 kom
fram krafa eða ósk um það frá
aðal-viðskiftabanka okkar, Útvegs-
banka Íslands h.f., að við skiftum
fjelaginu upp í nokkur minni fyi
irtæki, helst hlutafjelög. Höfuð-
orsökin fyrir þessari ósk var sú,
að fjelagið sem samvinnufjelag
bænda á þessu svæði gæti ekki
notið fylsta stuðnings bankans,
þar sem svo að segja aihr bændur
á fjelagssvæði Mjólkurfjelags
Reykjavíkur væru að verða f.jár-
hagslega eyðilagðir fyrir tilverkn-
að mjólkurlaganna. Af sömu or-
sökum fjekk þetta mál byr hjá
smuum fjelagsmönnum, þeim sem
höfðu eitthvað annað en mjólkur-
framleiðslu að styðjast við og því
ennþá einhverju að tapa í gegn
um samábyrgðina í fjelaginu, ef
illa færi.
Mjólkurfjelag Reykjavíkur hafði
um mörg undanfarin ár stuðst að
miklu leyti við erlent fjármagn,
en gjaldeyrishömlur og gjaldeyr-
isóreiða undanfarinna ára hafa
smám saman dregið úr og að síð-
ustu eyðilagt flest slík sambönd.
1 stað þess, að hingað til. höfðu
•erlend verslunar- og bankasam-
bönd staðið opin hvenær sem
Mjólkurfjelag Reykjavíkur þurfti
á fje að halda, varð nú að greiða
iiinar erlendu skuldir smátt og
^smátt, og jafnframt að staðgreiða
allar aðkeyptar erl. vörur.
Mjólkurfjelag Reykjavíkur vant
aði því nokkuð aukið innlent
reksturefje í stað þess, er það tap-
| aði erlendis frá, og þar sem fje-
(lagið vildi ekki samþykkja að tak-
^ marka eða leggja niður starfsemi
( sína, fór það þess á leit við Út-
vegsbanka íslands, að bankinn
veitti því rekstursfje í skarðið fyr
, ir það, sem inn væri dregið af er-
lendum lánpm. Á miðju síðastliðnu
sumri fjekk fjelagið sterkan á-
drátt um aukið rekstursfje hjá
bankanum og aðstoð til framhald
j andi reksturs, en stjórn bankans
öll gerði það að ákveðnu skilyrði,
að fyrst yrði að koma sú leið-
rjetting á mjólkurmálunum, að
fjárhagsafkoma bænda á fjelags-
svæði M. R. yrði trygð.
Það hefði mátt ætla, að augu
landbúnaðarráðherra og annara,
er þessum málum hafa ráðið, hefðu
opnast fyrir því, að mjólkurmál-
in væru ekki í eins góðu lagi og
þeir vildu vera láta. Það leit líka
út fyrir það um tíma, að landbún-
aðarráðherra ætlaði að gera eitt-
hvað til leiðrjettingar þessra
mála, enda var málunum fylgt
fast eftir af þingmanni Gull-
bringu- og K.jósarsýslu, Ólafi
Thors atvinnumálaráðherra, sem
flutti málið við landbúnaðarráð-
herra.
Á máli þessu hefir þó verið
furðanlegur hægagangur fram að
þessu, og hver sem niðurstaðan
verður, þá hefir biðin orðið nægj-
anlega löng til þess, að væntan-
legar leiðrjettingar, ef nokkrar
verða, komi Mjólkurfjelagi Rvík-
ur ekki að gagni.
j Jeg hefi nefnt tvær höfuð-
' orsakir þess, að fjelagið varð að
I taka þá ákvörðun að draga sam-
I an starfsemi sína, sem ennþá er
I óráððið hve víðtæk verður. En þó
I má hjer bæta því við, að ekki
ljetti það róðurinn fyrir Mjólkur-
fjelagi Reykjavíkur í þessari bar-
áttu, að á síðastliðnu ári kom
gengisfall íslensku krónunnar, eins
og menn muna. Gengistap Mjólk-
urfjelags Reykjavíkur nam hátt í
% miljón íslenskra króna. Þetta
tap gat þó ekki haft neina úrslita
þýðingu um> það, hvort fjelagið
j skyldi stöðva rekstur sinn, eða
j.halda áfram starfsemi sinni, ef
það aðeins hefði fengið starfsfrið.
Þeir erfiðleikar, sem fjelagið
hefri haft við að stríða á undan-
förnu ári, eru að vísu margþætt-
ari, og væri t. d. hægt að segja
nokkrar skrítnar sögur af fram-
kvæmd gjaldeyrismálanna í því
sambandi, en þetta læt jeg nægja
í bili. M. R. hefir oftar komist í
líka aðstöðu og nú, en þá var
munurinn sá, að hinir erlendu
bankar, sem voru óháðir mold-
vörpustarfseminni hjer heima,
leystu altaf vandann áður fyr, en
nú voru þeir búnir að reka sig á
framkvæmd íslensku gjaldeyris-
laganna, sem hvergi á sinn líka
í víðri veröld, samhliða því að
stríðið var skollið á, og öll milli-
ríkjalánáviðskifti takmörkuð eða
upphafin.
Mjólkurfejlag Rvíkur hafði nú
þann eina kost að láta undan og
þætta, eða takmarka starfsemi
sína.
Fjelagið hefir nú þegar selt
húseign sína nr. 5 við Hafnar-
stræti, Verslunina Liverpool og
Versh Blóm & Ávextir og nokkrar
fleiri eignir. Þær starfsgreinir,
sem fjelagið rekur ennþá, eru
heildsalan með korn, mjöl og ný-
lenduvörur, fóðurvörur, girðing-
arefni, byggingarvröur; ennfremi-
ur rekur fjelagið kornmyllu sína
og fóðurblöndunarverksmiðju,
þílaútgerð til vöru- og mjólkur-
flutninga á nokkrum hluta fje-
lagssvæðisins. Þá er og sparisjóð-
ur fjelagsins rekinn eins og áður.
Ennþá er ekki ráðið um fram-
tíðarstarfsemi fjelagsins, en það
1 eitt má fullyrða, að flestir fjelags-
j mennirnir munu vera á því máli,
að það sje hart aðgöngu, ef utan-
aðkomandi ðfl eiga að aftra
bændum á þessu svæði frá að reka
samvinnufjelag til innkaupa á
nauðsynjum þeirra á þessari öld
samvinnufjelagsskaparins. Það
sýndist vera nægjanlegt að svifta
þá umráðarjetti yfir framleiðslu-
vörum sínum og taka af þeim
með valdboði mjólkurstöð þeirra,
en ef til vill hefir það verið á-
fangi á leiðinni að settu marki.
Hverjir hafa keypt húseign fje-
lagsins og verslanirnar Liverpool
og Blóm & Ávextir?
Kaupendur Mjólkurf jelagshúss-
ins eru flestir leigjendur hússins,
og nokkrir aðrir, sem ætla síðar
að fá leigt í hxjsinu, þegar bygð-
ar verða ofan á það tvær hæðir.
sem búið er að leyfa og vonandi
getur orðið áður en langt líður.
| Þessir aðilar hafa myndað hluta-
jfjelag um húsið og gefið því nafn-
ið Kaupvangur h.f.
j En um verslanirnar Liverpool og
Blóm & Ávextir er það að segja,
að stofnuð hafa verið hlutafjelög
er keypt hafa hvort sína verslun-
ina. 'Fyrir eindregna ósk stjórnar
Mjólkurfjelags Reykjavíkur gerð-
ist jeg hluthafi í báðum þessum
fjelögum, enda gerðu fjelagsmenn
það að skilyrði fyrir þátttöku
sinni, að jeg væri í fjelögunum og
tæki að mjer framkvæmdastjórn.
Jeg hafði gert mjer vonir um,
að verslunar- og deildarstjórar
j Verslunarinnar Liverpool mundu
I verða með m jer um stofnun og
rekstur þessa fyrirtækis, enda var
j þeim fyrstum manna boðin þátt-
j taka. En þeim mun hafa þótt fyr-
i irtækin keypt of háu verði, og af-
I þökkuðu því að verða meðeigend-
I ur. Hafa því orðið nokkur manna-
: skifti við verslanirnar.
Auk þess að veita þessum fyrir-
1 tækjum forstöðu hefi jeg lofað að
1 veita einnig Mjólkurfjel. Reykja-
! víkur forstöðu fyrst um sinn. Jeg
vona, að fjelagsmenn Mjólkurfje-
I lags Reykjavíkur og aðrir við-
skiftamenn þess láti fjelagið njóta
viðskifta sinna. Innflutningur er
að vísu takmarkaður vegna inn-
flutnings- og gjaldeyrishamla, en
einhverntíma ljettir höftunum, og
| má vera, ef fjelagið fær að starfa
áfram, að það eigi eftir að lifa
nýtt blómatímabil í skjóli versl-
unarfrelsis og jafnrjettis.
KOf AS/llAN S.».
Ingólfíhvoli, 2. hæO.
8ímar 4514 og 1845
TILKYNNUVG.
Þar sem jeg frá 16. þ. m. hætti störfum sem forstjóri h.f. „Vegg-
fóðrarinn", Kolasundi 1, þá tilkynnist hjer með að jeg tek að mjer
alla vinnu viðvíkjandi veggfóðraraiðninni, ásamt teppalögnum, og hefi
mjer til aðstoðar 2 fullkomna veggfóðrara. Öllum fyrirspurnum svarað
í beimasíma mínum 3456.
VIG’TOR KR. HELGASON
v.eggfóðrarameistari Seljaveg 9.
Samkvæmt ofanrituðu verður ósk um vinnu okkar svarað í síma
Victors Kr. Helgasonar veggfóðrarameistara, 3456.
VICTOR GUÐMUNDSSON veggfóðrari.
GUNNAR JÓNATANSSON veggfóðrari.