Morgunblaðið - 10.05.1940, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 10. maí 1940,
Stjórnarskifti í Englandi
Fiásðgn um
undanhald Breta
I Noregl
Liðsforingi í breska herfor.
ingjaráðinu, sem stjórnaði
leiðangrinu í Noregi, hefir skýrt
frá því að skipunin um að halda
undan hafi verið gefin 25. apríi
síðastliðinn.
Bresk Yorkshiresveit hafði þ.
24. apríl búið um sig yfir þver-
an Guðbrandsdalinn hjá Kvam.
Hersveit þessi hafði skipun um
að ' verja undanhald norskra
hersveita, sem vörðust sókn
jpjóðverja nokkru neðar í daln-
um. Norsku hersveitirnar hörf-
uðu undan í gegnum raðir
Yorkshirehersveitarinnar.
Vörðu undanhaldið.
Þðaín 25. apríl nálguðust hersveitir
Þjóðverja bresku varnarlínuna. Þjóð-
verjar höguðu sókn sinni þannig, að
skriðdrekar og brynvarðar bifreiðár
fóaru fyrst og síðan kom fótgönguliðið,
en , þýskar flugsveitir flugu yfir og
gkutu af vjelbyssum.
Bretum tókst að stöðva skriðdrekana,
en skömmu síðar hóf fótgöngulið Þjóð
verja árás á hliðarlínur þeirra. Gátu
þeir komið við stórskotaliði sínu, en
Bretár höfðu engar fallbyssur. Tókst
þeim þó, segir hðsforinginn að verjast,
og valda miklu manntjóni í liði Þjóð-
verja.
Um nóttina fengu þeir fyrirskipun
um að hörfa undan til Otta. Þar hafði
iranur bresk herdeild búið um sig.
Þann 28. apríl nálguðust Þjóðverjar
Otta og hófu árás með sama hætti og
Ixj'á Kvam, skriðdrekamir fyrst og
fótgönguliðið síðar-
Hjá Kvam segjast Bretar hafa eyði-
Jagt þrjá þýska skriðdreka.
Þann dag var oft barist í návígi.
Til Dombás.
Um nóttina hörfaði breska herliðið
undan um þrjár mílur. Þjóðverjar
fylgdu eftir, en samt sem áður tókst
breska liðinu að komast í.lest og hörfa
undan til Dombás. Þar hafði York-
shireherliðið tekið sjer varnarstöðu.
Til þess að tefja fyrir sókn Þjóð-
verja, hafði bresk verkfræðingadeild
sprengt í loft upp brú skamt fyrir
sunnan Dombás. Tafði það Þjóðverja
í 48 klst.
En þann 30 apríl nálguðust þeir
Dombás. Tókst þar bardagi, sem stóð
allan daginn. en um nóttina fekk breska
liðið fyrirskipun um að hörfa undan.
Fór það eftir Ramndalsbrautinni. þar
til skamt var til Yreme. En þar var
jámbrautarlínan eyðilÖgð á stóru svæði.
Varð breska herliðið að ganga 17 míl-
ur áður en það komst þangað, sem
línan var heil aftur. Hjer fór síðasta
viðureignin fram milli Þjóðverja og
Breta, og komst braska herliðið undan
til Andalsness og þaðan um borð í skip.
Undanhaldið fór eingöngu fram að
næturlagi, og þótti Bretum hin norræna
nótt stutt, aðein% þrjár klukkustundir,
að því er þeir segja.
í dag?
Stjórnarandstæðing-
ar neita að starfa
með Chamberlain
FORINGJAR stjórnarandstæðinga í breska þing-
inu, Mr. Attlee og Mr. Greenwood, fóru í gær-
kvöldi á fund Mr. Chamberlains í Downing
Street 10 og voru hjá honum í þrjá stundarfjórðunga. Við-
staddir voru ennfremur Halifax lávarður og Mr. Winston
Churchill.
_Það er talið að Mr. Chamberlain hafi leitast fyrir um
það hjá Mr. Attlee og Mr. Greenwood, með hvaða skilyrð-
um verkamannaflokkurinn vildi taka þátt í Þjóðstjórn, í
fyrsta lagi, hvort hann yildi taka þátt í þjóðstjórn, þar
sem hann, Mr. Chamberlain, væri forsætisráðherra, og þá
með hvaða skilyrðum, og í öðru lagi, ef hann teldi sig ekki
geta gengið í þjóðstjórn með sjer, hvort ekki væri þá ein-
hver annar maður innan íhaldsflokksins, sem hann vildi.
starfa með, ef hann myndaði stjórn.
Talið er að þeir hafi svarað alveg afdráttarlaust að þeir
gætu ekki ekki tekið þátt í þjoðstjórn þar sem Mr. Chamberlain
væri forsætisráðherra. Sömu afstöðu er frjálslnydi flokkurinn
sagður hafa tekið.
Hinsvegar er álitið að þeir hafi engin svör gefið um hvort
verkamannaflokkurinn vildi taka þátt í þjóðstjórn, þar sem ein-
hver annar væri í stjórnarforsæti en Mr. Chamberlain, heldur
hafi þeir viljað ráðgast um þetta við flokk sinn.
Það er þó ekki kunnugt, hvort þeir ætli að fresta að gefa
ákveðið svar, þar til ársþing verkamannaflokksins hefir fengið
málið til athugunar, en það kemur saman á annan í hvítasunnu.
Sumir telja að Mr. Chamberlain hafi beðið um svar hið bráðasta
og að afgert verði um þetta mál í dag.
Mr. Chamberlain gekk ekki á konungsfund í gær eins og
gert hafði verið ráð fyrir.
iWinston Chiu'chill. Myndin tekin
á .herskoðun nýlega.
„Deutsches Nachrichtenbúro"
ber til baka þá fregn, að þýska
„Kraft durch Freude“ skipinu
„Robert Ley“ hafi verið sökt í
Skagerrak, á leið til Noregs.
Ýmsum getum er að því
leitt hver muni verða for-
saetisráðherra ef Mr.Cham.
berlain beiðist lausnar, en
aðallega eru þó tveir til-
nefndir, Halifax lávarður
og Mr. Churchill. Halifax
lávarður er að vísu í lá-
varðardeildinni en á það er
bent í London að litlir ör?Y
uðleikar yrðu á því, að fá
honum sæti í neðri málstof-
unni ef svo bæri undir.
En þótt nokkur orðasenna
hafi orðið milli stjórnarand-
stæðinga og Mr. Churchills í
þinginu í gær, þá er talið ekki
ósennilegt, að stjórnarandstæð-
ingar myndu heldur kjósa að
starfa með honum sem forsæt-
isráðherra en Halifax lávarð.
AUKINN VIÐBÚNAÐUR.
N
Það var tilkynt í London í gær.
eftir að fundur hafði verið
haldinn í ríkisráði konungs, að 8
aldursflokkar, eða menn á aldrin-
ufn 28—36 ára, skyldu ferða
skyldaðir til að gegna herþjón-
ustu.
Gert er rgð fyrir að einn ald-
ursflokkur verði kallaður til her-
þjónustu á mánuði hverjum,
nema að horfurnar versni.
í hinum 8 nýju aldursflokkum
er talið að sjeu 2% miljón manns.
Þögn Mussolinis
verður aðeins rof-
in af athöfnum
Mannfjöldi safnaðist saman
í gær á torginu fyrir
framan Feneyjahöllina í Róma-
borg í tilefni af því, að fjögur
ár voru liðin frá því að ítalir
tóku Addis Ababa, og ítalska
keisaraveldið var stofnað. —
Mussolini kom fram á svxlir
hallarinnar, en var ekki í skapi
til að flytja ræðu.
Hann ávarpaði mannfjöldann
og sagði: „Þið hafið heyrt ræð-
ur mínar og verðið nú að venj-
ast þögn minni. Hún verður að
eins rofin af athöfnum.“
Mannfjöldinn tók að hrópa
„Tunis, Tunis“, og sumir hróp-
uðu „Malta, Malta“. Samskon-
ar hróp heyrðust í Neapel, er
Viktor Emanuel opnaði þar
stóra sýningu í gær.
ítölsk blöð ljetu í gær falla
niður skrif sín um ógnanir
Bandamanna við Balkanríkin,
en skrifuðu í þess stað um vand
ræði þau, sem Italir yrðu fyrir
af hálfu hafnbanns Breta í Mið-
jarðarhafi.
Irska þjóDin
sameinast
gegn I. R. A.
Nokkrir menn reyndu síðast-
Liðinn þriðjudag að stöðva
á fjölförnustu götunni í Dublin
(Eire) póstsendil, sem var á
leiðinni með póst til skrifstofu
breska sendiherrans í borginni.
Skothríð hófst milli ofbeldis.
mannanna og leynilögreglu-’
þjóna, sem voru í fylgd með
póstsendlinum.
Felmtur greip fólkið á göt-
unni og flýði það í allar áttir.
— Tveir leynilögregluþjónanna
særðust, en ofbeldismönnunum,
sem taldir eru hafa verið úr
hópi I. R. A.-manna, tókst að
komast undan í bifreið.
Um kvöldið flutti de Valera,
forsætisráðherra Bire, útvarps-
ræðu, þar sem hann lýsti yfir
því, að ríkisstjórnin myndi taka
upp miskunnarlausa baráttu
gegn I. R. A.-mönnum.
Cosgrave, foringi stjórnarand-
stæðinga á þingi, lýsti yfir því
í gær, að hann hefði samið
vopnahlje við stjórn de Valera,
og myndi þetta vopnahlje
standa þar til de Valera lýsti
yfir því, að honum hefði tekist
að buga ofbeldismennina í land-
inu.
RÁÐSTAFANIR SVÍA
GEGN QUISLINGUM.
¥ Svíþjóð hefir verið lagt
fram frumvarp til laga um
að banna starfsemi flokka eða
f jelaga, sem vinna að því, að
grafa undan ríkisvaldinu, eða
starfa í þjónustu erlendra ríkja.
Svíar lögðu í fyrradag tund-
urduflum á 80 kílómetra breiðu
svæði a ðsunnanverðu við inn-
siglinguna til Stokkhólms.
13 þýskum
skipum
Breska flotamálaráðuneytið
birti í gærkvöldi tilkynn-
ingu um ný afrek breskra kaf-
báta.
í þýskri skipalest, sem í voru
10 skip, hæfðu 6 tundurskeyti
mark.
Þrjú tundurskeyti hæfðu mark
í annari þýskri skipalest, og tvö
í þeirri þriðju.
Auk þess hæfði tundurskeyti
þýskt skip, sem‘ var eitt á ferð,
og eitt skip var hrakið upp í
landsteina, en þar var það eyði-
lagt af fallbyssukúlum óg tund-
urskeyti.
Roosevelt
flytur ræðu
í kvöld
Roosevelt forseti flytur ræðu
í Washington í kvöld. Því
er haldið leyndu, um hvað hann
ætlar að tala, en búist er við
að hann muni ræða um utanrík-
ismál og þá m. a. um stríðið
í Evrópu.
Roosevelt snæddi árdegisverð
með Cordell Hull og Sumner
Wells í gær, og er talið að hann
hafi verið að ráðgast við þá í
sambandi við ræðu sína.
Sjálfur er Roosevelt sagður
leggja allmikið upp úr þessari
ræðu, og er það markað af því,
að hann byrjaði að skrifa hana
þegar á þriðjudaginn . Hann
hjelt þá engan fund með blaða-
mönnum, eins og venja hefir
verið til, og afsakaði sig með
því, að hann væri að vinna að
ræðu sinni.
Webb Miller:
Slys - Þjóðverjar
segja morð
4-
Webb Miller, kunnur ame-
rískur blaðamaður, fanst
örendur við hliðina á járnbraut-
arteinum neðanjarðarbrautar-
innar í London aðfaranótt mið-
vikudags. Hann hafði verið í
breska þinginu um daginn og
er talið að þegar hann var á
heimleið um kvöldið, hafi hann
fallið út úr neðanjarðarvagni
og slasast til bana.
Líkskoðun fór fram í gær og
að henni lokinni var kveðinn
upp úrskurður um að hann hefði
látist af slysi.
Blöðin í Berlín sögðust í gær
hafa heimildir fyrir því, að
breska leyniþjónustan (secret
service) hefði myrt W. Miller.
Hann hafi verið farinn að gagn-
rýna bresku stjórnina og á þann
hátt „orðinn hættulegur við-
leitni bresku stjórnarinnar að
breiða út stríðið“.