Morgunblaðið - 02.06.1940, Page 7
Sunnudagur 2. júní 1940.
1
MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur í Asgarði
sjötugur
Guðmundur Ólafsson, bóndi
í Ásgarði í Grímsnesi, er
sjötugur í dag.
Hann er hinn síðasti sinnar
ættar, Ásgarðsættarinnar svo-
nefndu, sem býr þar, en í Ás-
.garði hafa þeir búið, ýmist Guð-
mundur eða Ólafur, mann fram
af manni um langan aldur.
Guðmundur hefir mikinn á-
huga fyrir þjóðfjelagsmálum,
«g er ákveðinn sjálfstæðismað-
uf. Hann hefir að vísu lítt getað
haft sig í frammi í opinberum
málum, en það stafar ekki af á-
hugaleysi, heldur því, að mikinn
hluta æfi sinnar hefir hann
þjáðst af innkynjaðri gigtveiki,
sem gerir honum óhægt um vik,
að sækja mikið mannfundi eða
yfirleitt að fara út a fheimilinu.
En andlegum kröftum hefir
G^iðmundur haldið óskertum, og
er hann bæði víðlesinn og fróð-
ari um margt en gengur og ger-
ist
Guðmundur er símastöðvar-
stjóri og er það mál manna þar
eystra ,að vart muni finnast á-
gætari maður á landinu í þann
starfa.
Guðmundi í Ásgarði munu
berast hlýjar kveðjur í dag og
bestu óskir um langa lífdaga.
H. H.
Ráðherraskifti
í Rúmeníu
að hefir vakið töluverða at-
hygli, að í gær baðst Gafeneu,
utanríkiSlxiálai'áðherra Rúmeníu,
lausnar frá emba'lt ii og bar við
lasleika.
Við utanríkismálaráðherraem-
bættinu tók Gigurcu, sem er í
flokki rúmenskra þjóðernissinna.
Er hann talinn vinveittur Þjóð-
verjum og ítölum og var nýlega
í sendiför til Berlín.
Orustan hjá
Dunkerque
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
brádagana hjá Dunkerque. I
tilkynningunni segir, að leifarn-
ar af enska landgönguhernum í
Belgíu hafi í dag reynt að kom-
ast á smábátum út í herskip og
flutningaskip, sem lágu úti fyrir
Dunkerque, en þýskar flugvjel-
ar, einkum Junkers steypiflug-
vjelar, hafi hindrað þetta með
stöðugum sprengjuárásum á
skipin.
Þrem herskipum og átta flutn
ingaskipum, samtals 40.000 smá
lestum, hafi verið sökt, en fjög-
ur herskip og fjórtán flutninga-
skip hafi orðið fyrir miklum
skemdum eða verið skotin í bál.
Þýskar orustuflugvjelar hafi
skotið niður 40 af orustuflug-
vjelum bandamanna, sem sett-
ar höfðu verið til þess að verja
skipin fyrir loftárásum.
Herstjórnin tilkynnir, að l.oft-
árásum þessum haldi áfram, svo
að vænta megi frekari ágæts á-
rangurs af þeim áður en lýkur.
Herstjórnartilkynning
Þjúðverja
Dýska herstjórnin tilkynnir,
að við fangatalningu hafi
komið í ljós, að á vígstöðvunum
við Lille hafi Þjóðverjar tekið
26000 fanga.
Ándstaða hinna innikróuðu
hersveita í Norður-Frakklandi
sje nú endanlega brotin. Árás-
um hafi verið haldið áfram á
leifar enska hersins hjá Dunk-
erque, þrátt fyrir harða and-
stöðu og enda þótt landslagið
sje þarna örðugt til sóknar.
Flugliðið hafi þann 31. maí
gert miklar árásir á herflutn-
inga Breta vestur yfir sundið og
grandað mörgum skipum. Einn-
ig hafi þýskir herbátar og kaf-
bátar sökt allmörgum flutninga-
skipum og herskipum. Hjá Cass-
el hafi þann 30. maí verið eyði-
lagðir 65 skriðdrekar.
Á suðúrhluta vígstöðvanna
hafi skriðdrekaárás andstæðing-
anna hjá Abbeville verið
hrundið og Þjóðverjar bætt þar
við sig nokkru landsvæði.
Sunnan við Abbeville hafi
fluglið Þjóðverja varpað
sprengjum yfir hersveitir, sem
höfðust þar við í skógunum.
Frá Noregi er það sagt, að
her&veitir þær, sem sækja fram
norður af Þrándheimi, hafi brot
,ið andstöðu fjandsamlegra her-
sveita fyrir norðan Fauske, og
náð á vald sitt nokkru land-
svæði. Hersveitirnar við Narvik
hafi í gær haldið stöðvum sín-
um, þrátt fyrir harðar árásir
andstæðinganna.
Þá er tilkynt, að 31. maí hafi
verið eyðilagðar fyrir andstæð^
ingunum 49 flugvjelar, 39 í loft
orustum og 10 með loftvarna-
byssum, en aðeins 9 þýskra
flugvjela sje saknað.
Herskipasmíði U. S. A.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Auk þess eiga Bandaríkjamenn
5 önnur orustuskip í smíðum.
,,Washington“ kostar 65,8 milj-
ónir dollara.
Walsh, fulltrúi öldungadeild-
ar Bandaríkjanna í flotamálum,
helt ræðu, er ,,Washington“;
var hleypt af stokkunum og
Ijet hann svo um mælt, að
Bandaríkjamöníium væri það
lífsnauðsyn, hvað svo sem það
kostaði, að hraða vígbúnaði sín-
um og vera viðbúnir hverju því
sem að höndum kynni að bera.
Farsóttartilfelli í apríl voru sam
tals 2351, þar af í Reykjavík 1138,
Suðurlandi 521, Vesturlandi 221,
Norðurlandi 407 og Austurlandi
64. Farsóttartilfellin voru sem
hjer segif (tölur í svigum frá
Rvík, nema annars sje getið) :
Kverkabólga 445 (298). KvefsÓt.t
1285 (609). Blóðsótt 136 (67). G'igt
sótt 10 (4). Iðrakvef 340 (94).
Hettusótt 1 (0). Kvefíungnabólga
25 (15). Taksótt 19 (7). Rauðir
hundar 2 (NL). Skarlatssótt 5
(Sl. 2, Rvík 3). Heilasótt 2 (0).
Heimakoma 1 (0). Þrimlasótt 5
(0). Umferðargula 4 (0). Kossa-
geit 16 (1). Stirigsótt 2 (2). Munn-
angur 14 (11). HlaUpabóla 30
'(22). Ristill 9 (5).
Þjóðverjar bofla
aukinn kalbáta-
hernað
Deutsches Nachrichten-
biiro“ skýrði frá því í
gær að Þjóðverjar myndu nú
herða aftur á kafbátahernaði
sínum. Frjettastofan segir, að
dregið hafi úr þessum hernaði
síðustu mánuðina, vegna þess
að kafbátarnir hafi þurft að
leysa af hendi sjerstakt hlut-
verk við strendur Noregs.
En nú sjé þessu hlutvérki lok-
ið og kafbátarnir geti því farið
til stöðva sinna um úthöfin.
í gær tilkyntu Þjóðverjar, að
þýskur kafbátur hefði skamt frá
Vigo á Spáni sökt enska skipinu
Terella, sem var 7400 smálestif
að stærð, og franska skipinu
Marie José, sem var 2400 smá-<
lestir.
BETRI AÐSTAÐA.
Þjóðverjar ,láta í veðri vaka,
að aðstaða sín til kafbátahern-
aðar hafi batnað mikið við það
að fá hafnir í Noregi. Kafbát-
arnir geti nú farið skemri ldið,
til þess að komast á siglinga-
leiðir til Bretlands, en það hafi
aftur í för með sjer minni olíu-
eyðslu. En að það auki gildi
hvers einstaks kafbáts..
í síðustu styrjöld gerðu Þjóð-
verjar bækistöð fyrir kafbáta
sína í Zeebriigge í Belgíu. Er
því líklegt að þeir reyni í þess-
ari styrjöld að nota hafnirnar
bæði í Belgíu og Hollandi.
Dagbók
I. O. O. F. 3 ~ 122638 = ETa, EK,
9. III, E I.
Helgidagslæknir er í dag Páll
Sigurðsson, Hávallagötu 15. Sími
4959.
Næturlæknir er í nótt Gísli Páls-
son, Lauagveg 15. Sími 2474.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki. og Laugavégs Apóteki.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinþei:-
að tríilofun sína ungfrú Kristín
HeÍgadó’ttir og Haraldur Sigurðs-
son vjelstjóri, Vestmannaeyjum.
K.I.B.S.-kvartettinn heldur sína
fyrstu söngskemtun í dag kl. 3 í
Gamla Bíó, méð aðstoð G, Billich.
Þeif sjóriienn, setn ekki hafa
getað fengið aðgörigumiða að
Hótel Borð í kvöld, eru ámintir
um að tryggja sjer, aðgöngumiða
í Oddfellowhúsinu sem fyrst.
Nýja Bíó sýnir í fyrsta. skifti í
kvöld Huefaleikameistaraim „Kid
Galahad“, með Bette Davis, Ed-
ward G. Robinson og Wayne
Mori'is, í aðalhlutverkunum. Fjall-
ar myndin um hnefaleikaviðureign
ir. og spinnást ýmjskonar atvik
og aðstæður inii í rás þeirra við-
burða, sem hún greinir frá. Hefir
þesSari mynd verið mjö'g vel tek-
ið, þar sem hún hefir verið sýnd."
Hallgrímskirkju í Saurbæ. Land
eyingar 10 kr.
Til Strandarkirkju. R. S. 5 kr.
Ónefndur 10 kr, Keflvíkingur 10
kr. Ingi 2 kr. Samúel Samúelssón
5 kr. Tvær systur 10 kr. Ónefnd-
ur 2 kr. Magdalena Gísladóttir og
móðir henUar, Skarði í Þykkvabæ
(afh. af sr. Bj. Jónss.), 8 kr. E.
E.T0 kr. Kristbjörg 4 kr. 'Ónefnd-
Ur 20 kr. S. 10 kr. Þ. J. 10 kr.
S. A. K. K. 20 kr.
Farsóttir og manndauði í Ryík
vikuna 28. apríl til 4. maí (í svig-
rim „týIuC næstu yiku á undan):
Háisþólga 38 (72). Kvefsótt 129
(116). Blóðsótt 12 (23). Iðrakvef
23 (17). Kveflungnabólga 6 (7).
Taksótt, 0 (2). Munnangur 6 (0).
Illaupabóla 5 (5). Ristill 1 (0).
Stingsótt .0 (2)- Mannslát 7 (9).
Landlæknsiskrifstofan (FB.).
Farsóttir og manndauði í Ryík
vikuna 5.—11. maí (í svigum’ töl-
ur næstu ,viku á undan) : Háls-
bólga 49 (36). Kvefsótt 117 (129).
Blóðsótt 26 (12). Iðrakvef 34 (23).
Kveflungnabólga 1 (6). Taksótt 2
(0). Munnangur 0 (6). Hlaupa-
bóla 0 (5). Ristill 0 (1). Kossa-
geit 1 (0). Mannslát 4 (7). —
Landlæknisskrifstpfan, (FB.).
Útvarpið í dag:
11.00 Sjómannamessa í Dómkirkj-
unni (síra Sigurður Einarsson
dósent).
12.15 Hádegisútvarp.
13.30 Útvarp frá útihátíð sjó-
mannadagsins í Reykjavík:
a) Lúðrasveit leikur á Austur-
velli. b) 14.00 Ræður af svölunk;
Alþingishússins. i j,
Lúðrasveit leikur.
19.30 Hljómplötur: Harmonikulög
20.00 Frjettir.
20.30 Hátíð sjómannadagsins:
a) Erindi: Nýtt landnám (í>orri(
grímur Sveinsson skipstjóri).
b) íslensk lög (plötur),
c) 21.00 Útvarp frá sjómanna-
fagnaði að Hótel Borg: Ávörp
og ræður, söngur, hljóðfæra-
leikur o. fl.
21.45 Frjettir.
Útvarpið á morgun:
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur: Danssýningar-
lög.
20.00 Frjettir.
20-30 Sumarþættir (Sigurður. Bene
diktsson blaðamaður).
20.55 Hljómplötur: Hreinn Páls-
son syngur.
21.10 Kvæði kvöldsins.
21.15 Útvarpshljómsveitin: ísl. al-
þýðulög.
21.45 Frjettir.
K.I.B.S.-Kvartettinn!
heldur SÖNGSKEMTUN í Gamla Bíó í dag, sunnu- •
daginn 2. júní, kl. 3, með aðstoð Z
€arl Billich
Aðgöngumiðar seldir í Gamla Bíó frá kl. 1. I
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
-íir >o a'-
Móðir og tengdamóðir okkar,
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
andaðist 31. maí á heimili sínu, Baxónsstíg 20. Jarðarförin .
auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Erlendína Jónsdóttir. Sveinn Jónsson.
Maðurinn minn elskulegur,
SVEINN HALLGRÍMSSON,
andaðist í gærmorgun.
Anna Hallgrímsson.
Það tilkynnist að jarðarför sonar míns og bróður okkar,
GUÐMUNDAR KRISTJÁNSSONAR,
sem andaðist að Vífilsstöðumi 26. maí, fer fram frá Fríkirkj-
unni þriðjudaginn 4. júní kl. 2 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Rósa Kristjánsdóttir og systkini.
Útför
SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR,
ekkju síra Janusar Jónssonar, fer fram briðjudag 4. júní frá
heimili mínu, Bókhlöðustíg 9; hefst kl. iy2 e. h.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristinn Daníelsson.
Jarðarför okkar ástkæru eiginkonu og móður,
MARGRJETAR SIGURÐARÐÓTTUR,
Halldórshúsi, Akranesi, fer fram frá heimili hennar miðviku-
daginn 5. júní kl. 2 e. h.
1 Daníel Pjetursson. Pjetur Daníelsson. ,