Morgunblaðið - 21.07.1940, Side 8

Morgunblaðið - 21.07.1940, Side 8
8 JfKorgttstM&ftifr Sunnudaffur 21. júlí 1940.. "fjelagslíf ALLHERJARMÓTIÐ. Samkvæmt úrskurði í. S. í. verð- ur að fresta undanrásum 100 og 200 metra hlaupsins, sem fram áttu að fara í dag. Und-> anrásir í spretthlaupunum fara fram sem hjer segir: Mánudag- inn 22. júlí kl. 6 e. h. í 100 metra hlaupi. Þriðjudaginn 23 júlí kl. 6 e. h. í 200 metra hlaupi og miðvikudaginn 24 júlí kl. 6 e. h. í 400 metra hlaupi. Keppendur og starfs menn eru beðnir um að mæta stundvíslega, því kepnin hefst rjettstundis. Framkvæmdanefndin. Búðarlólkið FILADELFIA, Hverfisgötu 44 Samkomur í dag kl. 4 og 8^4 e. h. Eric Ericson og Jónas Jak- obsson tala. Allir velkomnir! ZION Bergstaðastræti 12 B. Samkoma í kvöld kl. 8. Hafnarfirði Linn etsstíg 2. Samkoma kl. 4. Allir velkomnir. K. F. U. M. Almenn samkoma í kvöld kl 8^4- Jóhs. Sigurðsson talar. All- ir velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN. Samkomur í dag kl. 11, 4 og 8,30 Adj. H. Kjæreng stj. Lúðra flokkur og strengjasveit leika Allir velkmonir! BETANÍA. Samkoma í kvöld kl. 8Í/4. Síra Bjarni Jónsson talar. L O. G. T. ST. FRAMTÍÐIN NR. 173 Fundur annað kvöld kl. 814 í Bindindishöllinni. Þórunn Magn- úsdóttir skáldkona: Sjálfvalið efni. TEMPLARAR Munið skemtunina á Jaðri í dag kl. 214. Veitingar á staðnum Bílferðir hefjast frá Templara- húsinu kl. 10 árd. TIL SÖLU Biblíuljóðin, Enskar orðabækur, Stjórnaróður. Einnig Rafsuðu plata, Tjald, Kvenreiðhjól og Baðker. Sími 4289 NÝ FERÐARITVJEL til sölu. — Sími 5737. KÁPUBÚÐIN, Laugaveg 35 Svaggerar, frakkar og kápur, seljast með niðursettu verði út þennan mánuð og næsta mán- uð. Ódýrar kvenleðurtöskur og kjólablóm. KAUPUM allskonar húsgögn, skófatnað og karlmannaföt. Staðgreiðsla. Nýja fornsalan, Kirkjustræti 4. MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR keypt daglega. Sparið millilið- ina og komið til okkar, þar sem þjer fáið hæst verð. Hringið í síma 1S16. Við sækjúm. Lauga- vegs Apótek. 42. dagui Það líður að nóttu. Rjett fyrir ellefu kom Erik út frá Silkideildinni. Hann var ó- hreinn um hendurnar og hafði höfuðverk. Hinir hjeldu áfram að vinna án hans. Honum var hálf- kalt og hann var mjög þreyttur. Svona stórt vöruhús að nóttu til er ekki beint notalegt, hugsaði hann. Hann þurfti að fara í gegn- um japönsku deildina. Þar var dimt. Hann dró upp vasaljósið. Hjer og þar komu Buddha-myndir fram úr skugganum. Hann stóð drykklanga stund fyrir utan lyftuna og leitaði að lyklunum þar til hann mundi að hann hafði lánað þá. „Hver skratt- inn“, sagði hann. Honum fanst leiðin upp í vinnuherbergið á 12. hæð óendanlega löng og næstum ógjörningur að komast þangað.. Snmstynjandi komst hami að stiganum og með smástunum byrj- aði hann að færast upp á við. Það var eins og erfið fjallganga. Hann komst smám saman hærra, en var þegar orðinn lafmóður á 8. hæð. Hann staðnæmdist og litlu seinna heyrði hann fótatak. Eins og hann grunaði var það nætur- vörðurinn. &í£&tfnnbngav REYKHÚS Harðfisksölunnar við Þvergötu, tekur lax, kjöt og fisk og aðrar vörur til reykingar. Eftir VICKI BAUM KIRKJUBÆJARKLAUSTUR — REYKJAVlK _ Fastar áætlunarferðir frá Reykjavík alla þriðjudaga, að austan föstudaga. Afgreiðsla: Bifreiðstöð Islands, sími 1540. Siggeir Lárusson. HAFNFIRÐINGAR. Vanti yður leigubifreið, þá hringið í síma 9084. Á kvöldin í síma 9141. Turninn. SLYSAVARNAFJELAG fSLANDS selur minningarspjöld. — Skrif- stofa í Hafnarhúsinu við Geirs- götu. Sími 4897. 5cqui£-furuUð HANSKI TAPAÐIST s. 1. sunnudagskvöld í Austur- bænum Skilist á Leifsgötu 17 Fundarlaun. OTTO B. ARNAR löggiltur útvrapsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- ing og viðgerðir á útvarpstækj um og loftnetum. „Þjer vilduð víst ekki fara með mig upp á vinnustofuna“, sagði hann vandræðalega. Alt í einu mundi hann að hann gat ekki komist þangað inn þegar Lillian var með lyklana. Vörðurinn muldraði eitthvað, hann fór þessar eftirlitsferðir hálf- sofandi og honum fanst óþægilegt að láta trufla sig. Að lokum þókn- aðist honum þó að fara með Erik upp á 12. hæð. „Við höfum óholla vinnu“, sagði Erik á meðan þeir gengu eftir ganginum að vinnustofunni, fram hjá slökkvitækinu. „Á hvern háttf ‘ spurði vörður- inn. „Jeg á við — getið þjer sofið á daginnf' spurði Erik. „Hvort jeg get“, sagði vörður- inn með breiðu brosi. „Þess betra fyrir yður. Jeg get það ekki“, sagði Erik. Hann tók cigarettupakka úr vasa sínum' og stakk í brjóstvasa á einkennisföt- um varðarins. ,JÞað er opið“, sagði vörðurinn, eftir að hafa stungið lyklinum í skráargatið. „Er það? Það er prýðilegt“, sagði Erik. „Þakka yður fyrir. Góða nótt“. Hann hikaði augnablik áður en hann fór inn. Lillian er þegar komin, hugsaði hann. Honum fanst hann vera að sligast af þreytu og hafa enga krafta til þess að ljúka* við myndina. Fari verðlaunin norðnr og niður, hugsaði hann. Honum fanst hann ekki hafa sof- ið í margar vikur. Ekki síðan Nína fór frá honum. Hann herti sig upp og opnaði dyrnar. Lillian var þar ekki þótt hon- um virtist eitthvað lifandi hljóta að vera í herberginu. Það einasta sem hann sá var seðill, sem festur var við klæðið utan um myndina. Hann gekk rösklega þangað; á miðanum stóð: „Gjörið mjer þann greiða að lofa Skimpy að vera hjerna í nótt. Ef eitthvað kemur fyrir væri best að fara með hana á St. Mary sjúkrahúsið í fyrra- mélið. Þúsundfaldar þakkir. — Philipp“. Erik litaðist um og kom ekki auga á barnið strax. Skimpy hafði hnoðað' sjer í kút í insta hornið á sófanum áður en hún sofnaði. Hún hafði breitt frakka Eriks yfir sig og útundan stakst brúðuhaus. Húu andaði reglulega og róandi áhrifa gætti frá sofandi barninu. Ef jeg sest augnablik hjá henni sofna jeg líka, hugsaði Erik og gekk eirðar- laus um gólf. Að loltum settist’ hann í strástól úti í horni. Hann beið dauðuppgefins. Klukkan sló ellefu, og enn beið hann. Lilliau kom ekki. Erik greip símann og Joe svaraði. „Halló, Joe“, sagði hann. „Er enginn sem hefir spurt um mig? Engin skilaboð til mín? Ileyrðu, Joe, jeg á von á einni stúlkunm úr kjóladeildinni. Sendu hana hingað um leið og hrin keinur. Láttu hana fara upp frá gang nr. 5. Já, auðvitað. Góða nótt“. 23.30. Þessi stúlka reynir á taugarnar, hugsaði Erik. Hann lyfti klæðinu frá málverkinu og horfði á myndina. Nei — hann var ekki í skapi til að mála. Skimpy lá úti í horni og dró and- pl). rú ka GERI VIÐ saumavjelar, skrár og allskonar heimilisvj^lar. H. Sandholt, Klapparstíg 11. Sími 2635. TJÖLD SÚLUR og SÓ.LSKÝLI Verbúð 2, Sími 5840 og 2731 Jón prestur Ásgeirsson í Stapa- túni, er þjónaði Nesþingum 1792 —1834, kom eitt sinn um vertíð að Ingjaldshóli til messugjörðar. Fátt var af sóknarmönnum í kirkju, en margt vermanna. Þegar prestur gekk í kirkju, leit hann yfir söfnuðinn og sagði: Fátt af guðsbörnum, flest útróðarmenn. ★ Haft er eftir Einari, föður Látra-Bjargar: Það er ekki gjör- andi nema fyrir flugskýra menn að stela. — Sagt var að hann tal- aði af reynslu, en hann var maður óheimskur. ★ Guðmundur hjet maður norður í Fnjóskadal. Hann misti konu sína, er Guðrún hjet, skömmu eftir Jónsmessu. Þá segir bóndi; Oft hefir Guðrún verið mjer hvumleið, en aldrei hefir hún tekið upp á þeim skratta, eins og hún gerði núna, að deyja þegar verst stóð tá, rjett fyrir sláttinn. ★ Prófastur nokkur spurði Geir hiskup Vídalín, hvers vegna hann hefði fvrst, tekið djöfulinn úr messusöngsbókinni og sett hann svo inu í seinni útgáfu. — Það skal jeg segja þjer, barnig mitt, segir biskup: Enginn veit hvað átt hefir, fyr en mist hefir. Ólafur -hjet maður. Hann var vesalmenni, auðnulítill og einfald- ur, en hrekklaus og ráðvandur. Einu sinni kom hann að Bægisá og gisti hjá Jóni presti Þorláks- syni, þjóðskáldinu fræga. Hafði prestur ga’man af að láta Ólaf kveða og kvaðst á við hann. Sagði Ólafur frá því síðar, að þeir hefðu verið að yrkja saman og var drjúg ur yfir. — „Báðir gátu nokkuð“, er haft, eftir honum. ★ — Fátt er svo með öllu ilt að ekki fylgi eitthvað gott, sagði sköllótti maðurinn, þegar konan ætlaði að hárreita hann. * Maðurinn við konu sína: Jeg ætla að biðja þig að vera ekki að rífast við mig úti á götu. Til hvers höfum við heimili? ★ í samkvæmi einu, þar sem vel var orðið glatt >á hjalla, veðjuðu menn um hver gæti sett á sig heimskulegastan svip. Hver skældi sig sem betur gat og reyndi að líta einfeldnislega vit. „Ágætt, þjer hafið unnið verðlaunin", sagði ung stúlka við mann sem sat úti í horni. „Jeg.“ sagði mann- auminginn, „jeg hefi alls ekki reynt að setja neinn svip á mig“. ann reglulega. Erik lagðist vi5 hliðina á henni og stundi þung- ann. Hasn vildi ekki sofna, en svefninn sigraði hann áður en. varði Litli erreifinn. „Á miðvikudagskvöld verða:. gestir — jeg ætla að kynna þig fyrir vinum mínum“, sagði Steve- við Nínu eftir kvoldið, sem alt fór í handaskolum. Hann gerði. eins og aðrir menn í hans stöðæ og á hans aldri. Þegar hann gat ekki eignast Nínu, vildi hann þó hafa hana til sýnis. Hann ljefc- hana sjiást með sjer í leikhúsum og á veitingahúsum. Hann hafði neytt hana til að taka við nokkr- um fallegum kjólum, en fór að öðru leyti með. hana eins og unga drotningu í dularklæðum. í leynd óskaði hann þess af öllu hjarta að’ Lucie myndi rekast á hann ein- hversstaðar með Nínu. Af sömu ástæðu bauð hann vinum sínum heim. Hann var þess viss, að ein- hver þeirra segði fyrverandi konu hans að ung stúlka ætti heima hjá honum og hann liti út fyrir- að vera hamingjusamur. Það var liðið á aðra viku, sem Nína bjó í húsi Thorpe í White Plains. Henni hafði tekist að læra að halda í silkiteppin á meðan, hún svaf á næturna, svo þau< runnu ekki niður á gólf, að stand- ast augnaráð þjónanna og að vera- Steve til ánægju á kvöldin. Hana svimaði oft og virtist mestan tímai svífa eins og í þoku. Ilún hafði ekki kjark í sjer til að spvrja Steve hvenær hann ætlaði að' leigja herbergi handa henni eins og hann hafði lofað, og Steve virtist vera alt of önnum kafinn til þe‘ss að hugsa um það. Tvo seinustu dagana hafði hann reyntr að skýra fyrir henni grundvallar- atriðin í bridge. Hún hlustaði á með starandi augu og án þess að'* skilja hið minsta. Hann var með hótanir í þá átt að fá söngkenn- ara handa henni. Hann var mjög! viðkvæmur í öllu sem snerti hljóm- list og vildi láta Nínu syngja fyr- ir sig með sinni veiku rödd. Síðan. kvöldið sem hann hafði gert hana.' ölvaða og hún hafði orðið heldur- opinská, hafði hann ekki verið', nærgöngull við hana. Nína hafði' samviskubit. Hún fekk borgun ám nokkurs endurgjalds. í Central hafði hún fengið óljósa h ugmynd.' um að kaup og sala væru grund- vallaratriði lífsins. Hún vissi að; það gat ekki gengið svona til' lengdar. Fná öllum hliðum var- þessi staða hennar ósönn. Það var um að gera fyrir hana að láta. Stevei í tje það sem honum bar. „Það er fallegt hjá þjer að lofa mjer að átta mig“, hvíslaði hún> hálfhrædd. Á meðan hana dreymdí Erik í svefni og vöku var hún> ekki alveg viðbúin að taka öllu. Miðvikudagskvöldið kom. Hún var ekki laus við að vera tauga- óstyrk. Steve kom heim fyr e» venjulega frá skrifstofunni og fór strax inn í búningsherbergi sitt. „f hvaða kjól á jeg að fara?“ spurði Nína biðjandi fyrir utan dyrnar. „Þann dökkrauða", var svarið. Eitt augnablik varð hún undr- andi yfir að hann skyldi vita hvaða litur var á fötum hennar. Hún fór í þann dökkrauða, en í miðju kafi fekk hún ákafan svima og þurfti að setjast. Varir hennar urðu alt í einu ískaldar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.