Alþýðublaðið - 25.06.1958, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 25.06.1958, Blaðsíða 9
) Miðvikudagur 25. júní 1958. A 1 b ý ð u b 1 a ð i 3 9 ít>rótfit* íslandsmótið: Valur sigraði Hafnfirðinga með 6 gegn 3 ANNAR leikur Knattspyrnu móts íslands, fór fram á mánu dagskvöldið var. Léku þá Valur og Hafnfirðingar. Valur sigraði 1 með yfirburðum, að því er til marka tekur, og sömuleiðis um , Jeikgetu, einkum þó í fyrrj hálf leiknum, en þá skoruðu Vals menn 4 mörk gegn aðeins einu. í síðari hálfleiknum náðu Hafnfirðingar sér betur a strik, enda þol þeirra mun meira en , mótherjanna, sem m. a. af þeim sökum gátu ekki ihaft þann hraða á, sem í fyrri hálfleik. Seinni hálfleiknum lauk meo jafntefli 2 mörk gegn 2. Leikurinn var í heild mjög hraður og sýndu Valsmenn oft, einkum þó í fyrrihálfleiknum, góða samleikskafla, enda léku þeir þá, hina tiltölulega veiku vörn Hafnfirðinganna, sundur og saman, eins og markatalan gefur til kynna. Hafnfirðingum tókst nú e'kki eins vel upp og í leiknum við Akurnesinga á dögunum, þar sem þeir sýndu hvað eftir annað furðunákvæman samleik. Nú skyldi brjótast það beint, milli liðalaust, ón fyrirsendinga utan frá köntunum. Hörkusendingar fram >á völlinn, síðan allir fram herjarnir á harðaspretti að marki mótherjans, studdir af framvörðum1, var höfuðeinkenni hafnfirzku sóknarinnar i leikn um, þó einkum í síðari háif jeiknum. Sambandið milii sókn ar og varnar liðsins var þar með rofin, svo óuppfyllt og autt bil myndaðist. Hefðu Valsmenn notað svipaða sóknaraðferð í síðari hálfleiknum, hefðu þeir áreiðanlega getað bætt nokkr um mörkum, við, án þess að bakverðirnir eða hinn enn lítt reyndi markvörður hefði við neitt ráðið. >En aftasta vörnin er Akillesar-hæll hafnfirzka liðs ms, enn sem komið er. 4 MÖRK GEG.N 1. Um leið og leikurinn hófst, sækir Valur á og fær horn- Víkingur - Ves!- mannaeyjar 2:2. í FYRRADAG fór fram II. dcildar-leikur á Melaveilinum milli Víkings og fþ.róttabanda- lags Vestmannaeyja. Leiknum lauk með jafntefli, 2:2, og voru öll mörkin skoruð í síðari hálf- leik. Dómari var Ólafur Hann- esson. Þessi úrslit geta ta-lizt sann- gjörn eftir gangi leiksmr, að dæma. í fyrri hálfleik áttu Eyja menn oftar frumkvæðið, enda þótt ekki tækist þéim að skora. Síðari hálfleikur var jafnari. — Víkingar skoruðu fyrsta mark- ið, Eyjamenn jöfnuðu og skor- uðu síðan annað en að lokum jöfnuðu Víkingar og lauk þann- ig leiknum. Leikurinn var harð ur á köflum einkum eftir að mörkin voru gerð og sýnilega vildi hvorugur aðilinn láta sinn hlut að óreyndu. — Eftir sex leiki í II. deild hefur Þróttur 6 stig, Víkingur 5 og ÍBV 1. spyrnu þegar á fyrstu mínútu. V.úth. Matthías Hjartarson framkvæmir spyrnuna og skor- ar beint úr henni. Markvörður inn nær að vísu til knattarins, sem skrúfast milli handa hans og inn. Megin'hluta hálfleiksins voru svo Valsmenn í sókn, þann ig að á fyrstu 30 mínútunum eiga Hafnfirðingar vart nema eitt gott tækifæri, er v.innherji þeirra komst innfyrir Valsvörn ina á 7. mínútu, en af fijótræði skaut framhjá. Með rólegri vfir vegun heíði hann átt að geta jafnað þá fyrir lið sitt. Auka spyrna sem Valur fær skömmu síðar og Árni tók og Björgvin framlengdí með góðu skoti, hafði nær kostað Hafnfirðinga annað rnark, en knötturinn flaug rétt ýfir slá. Þegar eru Valsmenn aftur í sókn, Matt hías sendir laglega fyrir markið og Gunnlaugur skallar snöggt og skorar. Á 28. og 29. mínútu skora Valsmenn mörk, sem þeir Matthías og Gunnlaugur vinna báðir að í sameiningu, en Matt hías skorar bæði mörkin. Loks á 30. mínútu tekst Hafnfirð ingum að sköra sitt fyrsta mark í leiknum. Það gerði Sigurjón v.innherji, með skalla, eftir loft sendingu frá Albert. Tvívegis á þeim tíma, sem eftir var má segja að engu munaði að Vals menn ekki bættu mörkum við. í fyrra skiptið skallar Mattnías, en markverði tekst með naum indum að slá yfir og í síðara skiptið skellur knötturinn inn an á marksúluna, eftir gott skot frá Einari Halldórssyni og það an í fangið á markverði. SÍÐARI HÁLFLEIKUR — JAFNTEFLI. • 'Hafnfirðingar hefja leikinn með mikilli sókn og auknum hraða. Fyrstu 15 mínúturnar sækja 'þeir mjög fast á. En Valsvörninni tekst að bægja hættunni frá þó oft muni mjóu, en aldrei þó eins og þegar knött urinn „dansaði“ t>ví eða þrívegis á marklínunni í einni og sömu lotunni, þar tii Árna Njálssyni tókst að senda hann burt. Á 19. mínútu skora svo Hafnfirðingar fyrra mark sitt, það gerði A1 bert eftir sendingu frá Sigur jóni, og með hörkuskoti. Björg vin snerti knöttinn að vísu um leið og hann þaut í netið, held ur ekki meir. Fimm mínútum síðar jafnar svo Matthías, og sex mínútum þar á> eftir bætir Björgvin Dan. síðara marki Vals í þessum hálfleik, við með ágætu skoti og lítt verjandi, eftir sendingu frá Gunnlaugi, er honum hafði tekizt að skjót ast fram hjá Einari Sigurðssyni útverði H’f. Rétt á eftir jafna svo Hafnfirðingar metin, eftir langseindingu ''inn fyrir ValS vörnina og skoti miðherjans. Ekki er. annað hægt að segia en að leikur þessi hafi verið spennandi og fjörugur. Af hálfu Vals er þetta einn bezti leikur liðsins, það sem af er keppnistímaþilinu. Hafnfirðing arnir eru harðsnúnir og þolnir, og liafa sýnt það að þeir kunna ýmislegt fyrir sér og með -or uggari vörn, væru þeir torsótt ari. Albert er hið opinbera ,,leynivopn“ þeirra, en Vals menn reyndu að deyfa eggjar þess og tókst furðanlega, þó oft kostaði það ýmiskonar stíma brak og jafnvel aukaspyr»ur, sem þó orkuðu tvímælis á stund um. Rétt fyrir leikslok lenti í orða skaki milli dómarans og Einars Halldórssonar, sem lauk með því að dómarinn vísaði Einari út af véllinum. Sjálfsagt er fyrir dómarana að halda uppi aga og fullri virðingu sér til handa log þá með útafrekstrum ef þeir telja sig ekki geta gert það með öðrum hætti. Mestrar virðingar hlýtur sá dómari að njóta, sem dæmir ákveðið og hlutdrægnislaust, grípur ekki inn í leikinn með ýmiskonar smámunasemi, sem manni er nær að halda að sé gert til að vekja athygli á eigin ágæti. Það er góð regla og eftirbreytn is verð sem hljóðar svo og er í knattspyrnulögunum, í sam bandi við dómarastarf: „Sam kvæmt anda laganna á dómar inn að láta leikinn fara fram með sem minnstri íhluiun af sinni hálfu“. Dómari í þessum leik var Hannes Sigurðsson, sem er einn af vorum reyndustu dóm urum. EB. Prestasfefnan Framhald af 12. síðu. Prestastefnan samþykkir, að æskulýðsnefnd kirkjunnar at- hugi í samráði við biskup ís- lands möguleika á byggingu og starfrækslu sumarbúða í Skál- holti og hefji framkvæmdir er traustur fjiárhagsgrundvöllur er fenginn. Prestastefnan ályktar, að þörfin á auknu æskulýðsstarfi 'kirkjunnar sé orðinn svo mikil, að nauðsyn beri til þess að ráða sérsta'kan starfsmann, sem vinni að framfevæmd og út- breiðslu þeirra mála. Prestastefnan samþyfekir að fela æskulýðsnefndinni að vinna að samræmingu námsefn- is fyrir barnastarf þjóðkirkj- unnar og starfa ötullega að því að komið verði upp miðstöð 6.1 útvegunr á ýmsum hjálpar- gögnum. Prestastefna Islands lýsir djúpri hryggð sinni yfir aftök- unum í Ungverjalandi og telur jþann atburð enn eina áþreifan- lega sönnun þess, hvert öryggis- leysi og ófrelsi afkristnunin leiðir yfir þjóðir og einstakl- inga. Nálega 95 prestar og próf- astar sóttu prestastefnuná og komu þeir saman í veizlu til biskups að loknum störfum á laugardagskvöld. ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ! er selt á þessum stöðum: Austurbœr: r Adlonbar, Bankastræti 12. Adlon, Laugavegi 11 Adlon, Laugavegi 126 Ásbyrgi, Laugavegi 139 Ásinn, Grensásvegi 26 Austurbæjarbar, Austurbæjarbíói. Blaðasalan, Brekkulæk 1. Blaðasalan, Hátúni 1. | Blaðasalan, Laugavegi 8. 1 ! Bókaverzl., Hólmgarði. Café Florida, HÝerfisgötu 69 Drífandi, Samtúni 12 Flugbarinn, Reykjavíkurflugvelli Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 Gosi, Skólavörðustíg 10 Hafliðabúð, Njálsgötu 1 Havana, Týsgötu 1 Krónan, Mávahlíð 25 Matsv. og vejtingaþj. skr., Sjómannask. Mjólkurbúðin, Nökkvavogi 13 Rangá, Skipasundi 56 Veitingastofan, Bankastræti 11 Tóbaks- og sælgætisverzlun, Hverfisg. 50 Tóbaks- og sælgætisverzlun, Langholtsv, 131 Siiró. Bergst. 54. Stjörnukaffi, Laugavegi 86 Söluturn Austurhæjar, Hlemmtorgi Söluturninn, Arnarhóli Söluturniinn, Barónsstíg 3. Söluturninn, Barónsstíg 27 Söluturninn, Borgartúni 3. Söluturninn, Laugavegi 30 B Söluturninn, Laugarnesvegi 52 Tóbaksbúðin, Laugavegi 34 Tóbaksbúðin, Laugavegi 12 Turninn, Réttarholtsvegi 1. Veitingastofan, Þórsgöíu 14 Veitingastofan, Óðinsgötu 5 Verzlunin Bergþórugötu 23 Verzlunin Hverfisgötu 117 Verzlun Jóns J. Jónssonar, Bergstaðastræti 40. Verzlun Árna Sigurðssonar, Langholtsvegi 174 Verzl. Víðir, Fjöln'isvegi 2. Vinnufatakjallarinn, Barónsstíg 12. Vitabarinn, Bergþórugötu 21 Vöggur, Laugavegi 64 Þorsteinsbúð, Snorrabúð 61 Útsalan. (Þórsgötu 29) iLokastíg 28. Vesturbœr: Adlon, Aðalstræti 8 Bókastöð Eimreiðarinnar, Lækjargötu 2 Bifreiðastöð íslands. Birkiturninn, Hringbraut/Birkimel. Drífandi, Kaplaskjólsveg 1 Fjóla, Vesturgötu 29 Hressingarskálinn, Austurstræti Hreyfilsbúðin. Konfektbúðin, Vesturgötu 14 Matstofan, Vesturgötu 53 Melaturninn, Hagamel 39. Nesi, Fossvogi. Pétursbúð, Nesvegi 39. Pylsusalan, Austurstræti Pylsubarinn, Lauavegi 116. | Sælgætisverzl, Aðalstræti 3. Sælgætisbúðin, Bræðraborgarstíg 29 Sælgætisalan, Lækjargötu 8. Söluturninn, Blómv. 10. Söluturninn, Lækjartorgi Söluturninn, Veltusundi Söluturninn, Vesturgötu 2 Söluturninn, Thorvaldsensstfæti ,6 Verzl. Hraunsholt. Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33 West-End, Vesturgötu 45 Tóbaksbúðin, Kolasundi. ■ ríf'á; Kópcwogur: Biðskýlið, Kópavogi Verzlunin Fossvogur Kaupfélagið, Kópavogi » «8T«5s • \ " - Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.