Morgunblaðið - 31.08.1940, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.08.1940, Blaðsíða 8
Laugardagur 31. ágúst 1940. r $ £€u&ruv&l ÞAÐ ER EKKI UNT að fá leigjendur eða húsnæði, ef það tekst ekki með auglýs- ingu í Morgunblaðinu. HERBERGI nálægt Miðbænum til leigu 1. sept. Upplýsingar í síma 4985. BARNLAUS HJÓN óska eftir 1 herbergi og eldun- arplássi 1. október. Sími 2891. ÞÚSUNDIRMANNA lesa kaupskaparauglýsingar Morgunblaðsins. Það getur því ekki hjá því farið, að þær hrífi. Kaupið Úrvalsljóð Einars Benediktssonar ________í dag. RABARBAR Kartöflur, nýar og gamlar, nýar gulrófur. Verslun Guðjóns Jónssonar, Hverfisgötu 50. Sími 3414. 1% TONS FORD vörubíll til sölu. Upplýsingar í .síma 4892. -... !■— ... — — .Ml ■■ ■!. MÓTORHJÓL til sölu. Ódýrt. Uppl. gefur Sveinn Ásmundsson, bílavið- gerðarmaður. Hverfisgötu 78. JÖRÐIN KÁRANES í Kjós er til sölu og ábúðar næsta vor. Tilboð sendist Jóni Halldórssyni, Seljaveg 15, Rvík. KÁPUBÚÐIN Laugaveg 35. Úrval af kápum og Swaggerum. Einnig fallegar kventöskur. FRAKKAR og SVAGGERAR fyrirliggjandi í miklu úrvali. Guðm. Guðmundsson, klæð- skeri. Kirkjuhvoli. MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR keypt daglega. Sparið millilið- ína og komið til okkar, þar sem þjer fáið hæst verð. Hringið í slma 1616. Við sækjum. Lauga- vegs Apótek. SPARTA-DRENGJAFÖT Laugaveg 10 — við allra hæfi. HARÐFISKSALAN Þvergötu, selur góðan saltfisk Simi 3448. hraðritunarskólinn Kensla byrjuð. Helgi Tryggva- son. Sími 3703. ENSKU, frönsku, dönsku námskeið byrja 1. september. Vönduð kensla.Sanngjarnt verð Harry Villemsen. NÁMSKEIÐ í þýsku byrja 1. og 15. sept. Þátttaka tilkynnist í síma 5737 föstudag og laugardag, frá kl. 9—io á kvöldin. Harry Villem- sen. '&í&íynnvngav K. F. U. M. Fórnarsamkoma annað kvöld kl. 81/2 . Jóhannes Sigurðsson talar. Allir velkomnir. Ferð til Kanaríeyja .... 23. dagur Eftir A. J. CRONIN „Jeg geri ráð fyrir að yður finnist að jeg hafði líka haft það leiðinlegt í dag“, sagði hann brosandi og hallaði sjer að henni. „Samt sem áður er það orð sem jeg forðast að nota. Maður hefir þó góða samvisku af að hafa gert skyldu sína. Heimsókn okkar í Arncas getur borið ávöxt, að því er snertir trúboðsstarfsemi okkar. Fólkið hjerna hefir lofað að styrkja starfsemi okkar fjárhags- lega. Við höfum brjef meðferðir, sem á að kvnna okkur fyrir ekrueiganda í Laguna, sem er á- hrifamesti maðurinn þar. Nú get- um við byrjað með fullum krafti“. Hann þagnaði augnablik og var hugsi. „Það er skrítið, en í allan dag hefi jeg hugsað með skelfingu um áform okkar, en nú þegar jeg er hjerna að tala við yður er jeg aílur annar maður. Fullur af á- huga. Þetta hefir svo mikið að Segja fyrir mig“. „Af hverjuf‘ „Alt mitt líf hefir verið vinna fyrir þetta málefni. Jeg kyntist snemma bæninni. Jeg frelsaðist þegar jeg var lítill drengur og jeg var mjög fátækur. Að komast áfram og geta gengið á presta- skóla, hefir kostað mikið stríð og jeg liefi Iíka þurft að stríða mik- ið við sjálfan mig til þess að verða hæfur að vinná í víngarði Drottins“. Hún trúði varla augum sínum að þessi maður væri lifandi. „Eruð þjer að segja mjer ævi- sögu yðar?“ „Nei, nei“, sagði hann. „Ein- hvern veginn er það svo, að jeg verð að fá að segja yður frá öllu — öllu um sjálfan mig“. TÝNDIR MUNIR koma nær altaf til skila, ef þeir eru auglýstir í Morgunblaðinu. 27 ára reynsla. GRÁR KARLMANNSJAKKI tapaðist í fyrradag frá olíustöð- inni Klöpp að Eiríksgötu. Vin- samlegast skilið olíustöðinni Klöpp, eða hringið í síma 3465 MATSÖLU opna jeg á Vesturgötu 10, 1. sept. Til viðtals kl. 1—6. Laila Jörgensen. fyiwna. BESTI TENGILIÐUR milli vinnuveitenda og vinnu- þiggjenda er smáauglýsing und- ir þessari fyrirsögn. STÚLKA VÖN KÁPUSAUM óskast nú þegar. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Guðm. Guð- mundsson, klæðskeri, Kirkju- hvoli. UNGSTÚLKA með gagnfræðaprófi, góð í ensku, handlagin, óskar eftir einhverri atvinnu. Tilboð merkt „Enska“, leggist inn á afgr. blaðsins. Það varð þögn; svo spurði hún og lyfti ögn annari augabrúninni: „Hafið þjer nokkurntíma verið við kvenmann kendur ?“ „Aldrei“. „Aldrei?“ Hann hristi höfuðið og liorfði á hana eins og hundur horfir á hús- móður sína. „Einmitt“, sagði hún, eins og við sjálfa sig. „Svo það er satt. Og kominn alla leið frá Connecti- cut“. „Hvað Aoruð þjer að segja, frú ?“ „J«g er að hugsa um að kalla yður .Jósef“. ITann roðnaði. „Jósef?“ stamaði hann. „En jeg heiti Robert“. „Jeg mun altaf hugsa um yður eins og að þjer hjetuð Jósef. Fyr- ir mjer eruð þjer endurfæddur nndir því nafni“. Hún var aivarleg á svipinn, eii samt fanst honum eins og væri að liæðast að honum. „Mjer hefir þótt verulega vænt um að fá að kynnast yður“, sagði. hann ákaflega alvarlegur. „Mjer þykir svo vænt um það, að jeg get ekki hugsað mjer að við eig- um ekki eftir að hittast framar í lífínu — eins og skip, sem mætast á nóttu. Það er eitthvað svo til- gangslaust. 011 samtöl okkar mega eþki fara út í bláinn. Jeg vildi gefa hægri hönd mína til þess að vera það verkfæri, sem frelsar yður. Mig langar til þess að g-efa vður dálítið. Svoleiðis eru mínar tilfinningar gagnvart yður. Ef þjer viljið taka á móti því, þá hlut, sem er mjer mjög dýrmætur. ■Teg á litla bók, sem móðir mín átti.. Það er ekki mikið — Iítil bók sem aðeins inniheldur hug- næm orð. En jeg hefi borið hana á mjer síðustu tuttugu árin. Vilduð þjer — vilcluð þjer þiggja hana?“ Hann tók utan um handlegginn á henni. Hún Ieit upp, en leit svo snögg- lega undan. „Þessi gasalegi kvenmaður í horninu starir úr sjer augun á yður“, sagði hún eins og af hend- ingu. „Mjer er alveg nákvæmlega sama, en yður er það kannske ekki“. Hann sneri sjer við og leit beint framan í móðir Henningway, sem starði á hann án þess að blikna. „Nei, nei“, sagði hann. „Mjer er alveg sama“. Samt dró hann hendina að sjer. „Þjer skuluð gefa mjer hana eftir miðdegisverðinn1 ‘, sagði Elissa alt í einu. „Þegar við sigl- um út og það er orðið dimt, þá er alt svo leyndardómsfult. Svo hefir það líka ofan af fyrir mjer í kvöld“. Hann liorfði hugfanginn á hana. Fvrir aftan þau dró móðir Henn- ingway sig upp úr stólnum og dróst niður stigann. Hún hafði sjeð það sem hún vildi og nú var henni heldur illgirnislega skemt. Feita vömbin á henni gekk í bylgjum af hlátrinum, sem hún hjelt niðri í sjer. „Þetta er nú það besta, sem jeg hefi lengi sjeð“, muldraði húu við sjálfa sig. „Sankti María get- ur klórað mjer í kúpunne ef það er ekki rjett. GVöð almáttögur, sú er sæt! Sem jeg lefi, er ekki hægt að halda kjafte um svona hlöt“. Hián flissaði af ánægju, læddist eins og padcla eftir g'anginum og skaut sjer á ská inn í klefann sinn. Susan var þar, eins og hún hafði búist við. Hún lá fyrir með blautan klút yfir andlitjnu. „Halló, halló!‘‘ hrópaði hún með mestu glaðværð. „Hún er að láta sjer renna í brjóst. Það er alveg rjett. Þjer verðið að gæta heils- önnar, annars jeta draugarnir yð- ör. Takið því með ró, vena, eins og hann bróðir yðar \ipp á stjórn- pallenöm". Susan tók frá öðru auganu. „Bróðir minn?“ „Sá sami“, sagði móðir Henrx- ingway og hallaði sjer aftur á bak, með mestu hjartagæsku. „Sá sami höggölegi orgelspelarL. Sankti María, hann er nú 'altleil- es ekki að spela núna. Ekki það að jeg sje að ásaka hann. „Eilíf venna og engar skemtanir gera. Jón að leiðenlegöm strák“. Það hefir verið einkunnarorð okkar Sénningwayanna í meir eir höndr- að ár“. • Susan tók frá hinu auganu líka. „Við hvað eigið þjer?“ Móðir Henningway fór að skelli- lilæja. „Verið þjer ekki æstar, andar- unginn menn. Alt í lagi með líobbie letla. Hann er mannlegur, þrátt ferir alt. Eða livers vegna. skyldi Gv’öð hafa fundið upp pils ?“ Susan Iá með lokuð augun. „Kannske við liefðimi hljótt dá— litla stund. Mjer er ilt í höfðinu“. Móðir Henningway ljet sjer- hvergi bregða. „Það veit Gvöð að oft hefi jeg haft hausverk, sjerstaklega þó > þegar jeg hefi verið timbröð. Jeg: ætlaði ekki að gera neitt ilt, vena. Jeg hjelt bara að yðör þætti gam- an að veta að bróðir eðar hefir aldrei skemt sjer betur en nú, með Baynhamsfrúnni. Þau lijeld- ust í hendur og alt það. Jeg varð þyrst af að horfa á þau“. Nú> greip hún vatnSglas og fór að skola hálsinn með miklum gaura- gangi. Susan settist upp, fór hægt. á fætur og út úr klefanum. Móðir Henningway, sem virtist athugai hverja hreyfingu hennar með kænu augnaráði, kallaði á eftir- lxenni: „Vena mín, takið sjalið mett með.Sólin er að setjast og það er kalt að vera að sveima öppe- núna“. Hún Ijet fallast niður á legubekkinn með spentar greipar og rak upp hverja hláturgusuna. á fætur annari. Framh. Kaupið Úrvalsljóð Einars Benediktssonar í dag. Kona nokkur kom til Edinborg- ar og sá undarlega sjón á Prince Street. „Sjáðu!“ kallaði hún. „Það eru menn í knattspyrnu á götunni“. „Nei, nei“, sagði fylgdarmaður hennar; „þetta er ekki knatt- spyrna“. „Víst er það“, sagði konan. „Það er þetta sem þeir kalla bendu“. „Ekki liggur þannig í málinu“, sagði fylgdarmaðurinn. „Þetta er algeng sjón hjer í Skotlandi, að sjá menn hópast svona saman, en þetta er ekki benda. Einhver hefir kveikt á eldspýtu og hinir hafa allir komið hlaupandi til þess að kveikja í cigarettum sínum áður en slokknar á eldspýtunni“. ★ Tveir 'Gyðingar stóðu á götu- horni, þegár slökkviliðið fór fram hjá. „Þarna fara þeir“, sagði ann- ar þeirra, „þessir djöflar, sem altaf vUja blanda sjer í annara manna málefni“. ísak var fátækur Gyðingur, sem flúið liafði frá Rússlandi til Eng- lands. Hann fór strax á fund hinna lærðu í synagogu einni. Honum var boðin staða- sem hús- vörður við synágoguna. Honum var sagt að hann ætti að hafa yfirumsjón yfir stáðnum, halda, honum hreinum og halda skýrslu um hverjum væri leigður salur einn, sem var áfastur. ísak benti á að hann var hvorki læs nje skrifandi og þess vegna ekki hæf- nr í stöðuna. Bauðst þá ríkur Gyðingur að setja upp litla búð fyrir hann í Bandaríkjunum. Isak þakkaði boðið og fór til Ameríku Árin liðu og honum græddist fje á tá og fingri. Ákvað hann þá að heimsækja vini sína í Englandi og fór því í bankann til þess að opna reikningslán þar. Forstjórinn var mjög kurteis: „Skrifið aðeins undir þetta skjal og jeg skal sjá um alt annað. Hvað þurfið þjer mikið?“, sagði hann. „20 þúsund dollara“, sagði ísak. „En jeg get ekki skrifað undir þetta, því jeg er hvorki læs nje- skrifandi“. „Hvað!“ sagði forstjóriitn. „Miljónamæringurinn ísak kann..> hvorki að lesa nje skrifa. Mjer þætti gaman að vita livað úr yður hefðin orðið, ef þjer hefðuð kunn-> að það“-. „Húsvörður í synagogu, býsfc. jeg við“, svaraði ísak. ★ Um einn af bresku þingmönn- unnm, sem kunnur var að þvx,. að halda langar, leiðinlegar og innihaldssnauðar ræður, sagði Miv Winston Churchill svo: „Áður eu þessi háttvirti þingmaður rís upp úr sæti sínu, hefir hann ekki. minstu hugmynd um hvað liann ætlar að segja, meðan liann er að halda ræðu sína hefir hann ekki nokkra hugmynd um hvað hann er - að segja, og svo loks þegar hann er hættur að tala, þá hefir hann> enga hugmynd um hvað hann hef- ir sagt“. «T /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.