Morgunblaðið - 06.09.1940, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Kolbcinn Árnason
sfötiu og ffii
’C’ jöldi Reykvíkinga, sem kömn-
ir eru til aldurs, kannast við
Kolbein Árnason á Baldursgötu
11 hjer í bæ. — Á yngri árum
dvaldi hann á ýmsum stöðum, en
lengst á Akureyri, þar sem hann
rak verslun um mörg ár. — Hjer
hefir hann nú búið nokkuð á 3.
tug ára. — Hann er 75 ára í dag.
Þetta >þykir nokkuð hár aldur, en
gleðiefni er það öllum vinum hans
— og þeir eru margir, — hve ald-
urinn fer honum vel. Enn er hann
oftast snemma á ferli, ljettúr í
spori og kvikur í öllum hreyfing-
tm. Á yngri árum var honum þó
lítt hlíft af þeim, sem yfir honum
höfðu að segja, og því síður hefir
honum sjálfum verið lagið að
draga sig í hlje í önnum og erfiði
lífsins. — Margt hefir hann feng-
ist við um dagana, svo sem smala-
mensku og fjárhirðing, sjómensku
■og erfið ferðalög á landi, verslun-
arstörf, jafnt utan búðar sem inn-
an, auk ýmsra trúnaðarstarfa.
Mun það dómur allra, sem til
þekkja, að hann hafi borið af öðr-
um í hverju því, er hann tók sjer
fyrir hendur, og svo er fyrir
þakkandi, að enn mundi hann
þykja liðtækur á borð við hvern
meðalmann á besta aldri, ef á það
skyldi reynt. Um slíkt er þó varla
að tala, því menn á hans reki —-
og jafnvel miklu yngri — eru nú
taldir vargar í vjeum, ef þeir
reyna að „taka brauðið frá börn-
unum“ með því að stunda þá
vinnu, sem þeir kunna að hafa
geð eða gerð til.
Kolbeinn er af góðu bergi brot-
inn, og enginn ættleri, en ekki
verður reynt að rekja ætt hans
hjer. Nægir, að geta þess, að hanu
ber nafn forföður síns, síra Kol-
beins Þorsteinssonar í Miðdal, sem
var nafntogaður klerkur ög skáld
á sinni tíð, og eru margir afkom-
1 Ligerhillir I
1* 's'
X og einn skápur, með gler- X
♦*♦
Ý hurð, hentugur fyrir sýnis- g
11111
ára
X horn o. fl., til sölu nú þegar. X
A _ __ .;*
T Upplýsingar í síma 3532. y
X " %
Kolbeinn Arnason.
endur hans afreksmenn á ýmsa
lund.
Pöður sinn misti Kolbeinn er
hann var barn að aldri. Olst hann
að mestu upp hjá vandamönnum
sínum, en annars hefir hann orðið
alla tíð að spila upp eigin spýt-
ur. Það hefir gefist honum vel,
enda mun það hollast hverjum
þeim, sém eiga dáð og dug til
þess. Ilonum hefir farnast vel og
margir eru þeir, skyldir og vánda
lausir, sem notið hafa góðs af því
að hann hefir jafnan verið veit-
andi, en aldrei þiggjandi. Páir
munu honum hjálpsamari, ef ein-
hvern rekur í nauðir.
Kólbeinn hefir alla tíð verið
gæfumaður og kannast við það
sjálfur. Hann eignaðist þá konu,
sem telja má ^afbragð annara
kvenna að viti og mannkostum,
og hefir sambúð þeirra verið til
fyrirmyndar. Það má og til láns
telja, hve vinsæll hánn hefir ver-
ið. Sjálfur er hann sverð og
skjöldur vinum sínum.
Hófsmaður er Kolbeinn með af-
brigðum, en gleði og gáman gista
saman hvar sem hann fer. Fyrir
kemur það líka, að gamanyrði
hans verða að gletni, sem svíður
undan, þótt eigi sje að því stefnt.
Gott er að vera gestur Kolbeins
og konu hans. Munu það margir
reyna enn í dag, en margfalt fleiri
eru hinir, vinir og vandamenn,
sem eiga þess engan kost að taka
í hönd þeirra hjóna á þessum af-
mælisdegi húsbóndans, en þakkir
fyrir liðnu árin og blessunaróskir
á komandi árum svífa til þeirra
hvaðanæfa, á vængjum vindanna,
ef ekki er annars kostur. B.
Ræða Churchill
PRAMH. AP ANNAJRI SÍÐU.
þótt manntjón þetta hefði verið tvisvar
eða þrisvar sinnnm meira, þá verðúr
það að teljast lítið samanborið við
mikilvægi þeirra málefna, sem um væri
barist.
Churchill upplýsti, að 800 hús hefðu
verið eyðilögð, svo að ekki væri hægt
að gera við þau. En það væri ekki
mikið þegar á það væri litið, að í
Englandi væri 13 miljónir hósa.
f þessu sambandi upplýsti Churchill
að hann hefði falið fjármálaráðherra
smum að gera tillögur um vátryggingu
husa, svo að hægt væxi að bæta upp
tjón manna, sem lítil efni hefðu, sem
næst því að fullu. ^etta væri hægt að
gera, vegna þess hve tjónið væri til-
tölulega lítið og það væri rjettmætt að
dreifa byrðunum, svö að þær kæmu
sem jafnast niður á allri þjóðinni
Um innrásarhættuna sagði Churchill
að hann liti svo á, að hún væri ekki
liðin hjá, og myndi ekki vera liðin hjá,
þótt komið væri fram yfir 15. septem-
b‘er. En í vetur þegar veður harðna og
ájói verður sollinn, getur þetta breyst.
En jeg ljósta ekki upp neinum hem-
aðarleyndarmálum, þótt jeg segi, að
við erum miklu betur undir iniirásina
búnir heldur en í júní. í júní var inn-
rás í England ýmsum örðugleikum
bundin, en þessir örðugleikar era marg-
falt meiri í september, sagði hann.
Loftárásirnar
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU,
f gærmorgun tókst flugvjelum
Þjóðverja að brjótast í gegnum
varnir Breta á suð-austurströnd-
inni og varpa niður sprengjum
yfir flugvelli og flugvjelaskýli.
Síðar um daginn flaug öflug þýsk
flugsveit yfir Thamesárósa og
skifti þar liði og gerði loftárásir
,á flugvelli norðan og sunnan við
ósana. Það er viðurkent að nokk-
urt tjón hafi orðið í þessum árás-
um.
TJm miðjan dag í gær sögðust Þjóð-
verjar vera búnir að skjóta niður 20
þýskar flugvjelar og missa sjálfir 5. En
Bretar sögðust hafa skotið niður 39
þýskar flugvjelar og mist sjálfir 20.
Breska flugmálaráðuneytið tilkvnnir,
að breskar flugvjelar hafi í fyrrakvöld
haldið áfram árásum á skóga í Þýska-
landi, þ. á m. Thúringer-skóginn, Harz-
skóginn og Schwarzwald, og varpað
niður hundruðum eldsprengja. Skógar-
eldar geysa á margra mílna svæði í
þessum' skógum.
Loftárás var gerð á Berlín og orku-
ver í Charlottenborg og í Spandau haft.
Bresku flugvjelamar fóru alla leið
austur til Pulitz í fyrrakvöld, og er
það lengsta flug þeirra austur á bóg-
inn yfir ÞýskalandL
Dagbók
I. O. O.F.ls 122968^2 s
Næturlæknir er í nótt Kristín
Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14. Sími
2161.
Næturvörður er í íteykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Gullbrúðkaup eiga í dag merk-
ishjónin Ásgerður Arnfinnsdóttir
og Ágúst Þórarinsson, kaupmaður
í Stykkishólmi.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman ungfrú Jósefína Kristjáns-
dóttir og Tryggvi Sigurðsson stýri
maður. Heimili þeirra Verður á
Leifsgötu 28.
Spegillinn kemur út í dag, síð-
degis. ,
f minningarkvæðinu í blaðinú í
gær — um jón Árnason frá Króks
húsum — hefir misprentai|t í öðru
versinu 4. ljóðlínu, „beri ekki“ —-
í stað „bæri ekki“.
Útvarpið í dag:
19.3Q Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvar.
21.05 Hlj'ómplötur; a) Sónata eft-
ir Beethoven (Op. 10, nr. 3,
D-dúr). b) 21.30 Óperulög.
LEIÐRJETTING
Igrein Jóns Fannberg í blað-
inu í gær hafa af vangá ver-
ið prentaðar nokkrar setningar,
er falla áttu burt úr handritinu,
og efni greinarinnar ruglast af
þessum ástæðum. Málsgreinin í 2.
dálki: „Fáum við leyfi“ og tvær
næstu málsgreinar eiga að, falja
burtu.
Nýkomiö:
Kalk óleskjað.
Eldhúsvaskar, sjerstaklega ódýrir.
Rörkítti.
J. Þorláksson & Norðmann
Bankastræti 11. Sími 1280.
JPyrirligglandl
Umbúðapappír í 20 cm. og 40 cm. rúllum.
W.C.-pappír.
Eggert Kristfánsson & Co. fii.f.
Sími 1400.
Bifreiðarstjóri
með mefira próffi og bílavlðgerð*
armaður, gcta fengfið atvinns. —
Afgr. vísar á.
Reykjavfk - Akureyri
pfraðferðir alla daga.
Biíreiöastöð Akureyrar. Bifreiðastöð Steindórs
aiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiii
Mý bók eftir Helgu Sigurbardóttur: §
IGRÆNMETIOG BED ALT ÁRIB. I
SOO nýir furfiarfetlir.
Helga segir í formála bókarinnar meðal annars: í þessari bók legg jeg aðaláhersl-
una á, hvernig geyma megi til vetrarforða grænmeti, ber og rabarbara, svo að það missi
sem minst af hinum verðmætu efnum sínum. Tilætlunin er, eins og nafn bókarinnar
bendir til, að hægt sje að borða þetta allan ársins hring, en ekki aðeins þann stutta
tíma, sem jurtirnar eru fáanlegar nýjar.
Hjer fá húsmæður bók, sem þær hafa lengi beðið eftir.
1 Fæst í öllum bókaverslunum.
| Bókaversltm Isafoldarprentsmíðjtt. j
jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiií
Skrifstofum okkac
og afgrefiðslu
verður lokað íi dag [frá
kl. 1-4 vegna farðaifaiai*
J.^Þorláksson & Norðmann.
l’IV
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför mannsins míns,
KRISTJÁNS GRÍMSSONAR læknis.
Bengta Grímsson og börn.