Morgunblaðið - 08.09.1940, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.1940, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Snnnudagur 8. sept. 1940. Mesla loflárásin fram til þessa — Eldar lýsa upp himininn yfir Austur-London Hrannir af flugvjelum yfir borginni EFTIR að Lundúnabúar höfðu haft ró í 18 klst., frá því í fyrrakvöld, hófst um miðjan dag í gær mesta loftárásin á London frá því að stríðið hófst. Loftárásin stóð í 2 klst., og í fregn frá London í gærkvöldi var sagt, að rauður bjarmi lýsti upp himininn yfir iðnaðarhverfinu í austurhluta borgarinnar, þar sem loftárásin var hörðust. Kl. 8y2 í gærkvöldi, eftir staðartíma, hófu Þjóðverjar aðra loftárás og gátu flugmennirnir tekið mið af eldun- um, sem ennþá loguðu í Austur-London. Kl. 2 í nótt eftir staðartíma stóð þessi loftárás enn yfir. Þýska útvarpið sagði í gær, að loftárásir þessar, sem væru fyrstu loftárásirnar, sem gerðar hefðu verið á London, væru gerðar í hefndarskyni við hinar handahófslegu loftárásir Breta á Berlín. Útvarpið skýrði jafnóðum frá gangi loftárásarinnar, sem gerð var um miðjan dag, frá því að hún hófst og þar til henni var lokið. Þegar þessari fyrstu árás var lokið, sagði útvarpið að skotnar hefðu verið niður 31 bresk flugvjel. Bretar sögðu að fram til kl'. 8 hefði verið skotnar niður 21 þýsk flugvjel. f frásögn breska flugmálaráðuneytisins er það viðurkent, að flugvjelunum hafi tekist að brjótast í gegnum vamir Breta og varpa sprengjum yfir iðnaðarhverfið í austur- hluta Lundúna, þar sem komu upp nokkrir eldar og yfir höfnina í borginni. 1 tilkynningu fluginálaráðuneytisins segir, að þýskar flug- vjelar hafi komið í hrönnum inn yfir suð-austur-ströndina og Thamesárósa, en að breskar loftvarnabyssur og breskar orustu- flugvjelar hafi tekið á móti þeim. Flugvjelunum tókst samt sem áður að brjótast í gegn og varpa sprengjum yfir austurhluta Lundúnaborgar. Rafmagnsorkuver og nokkrar aðrar opinberar stofnanir voru gerðar óstarfhæfar og einnig varð nokkur röskun á samgöngum. Sprengjum var einnig varpað yfir Lundúnahöfn. Nokkuð tjón varð einnig í iðnveri á norðurbakka Thames- árósa. { Ekki er að svo stöddu hægt að skýra frá hvert manntjón hefir orðið eða hve mikið, — þannig lýkur tilkynningu flug- málaráðuneytisins. . En breskar frjettastofufregnir skýra nokkru nánar frá árás-, inni. Þær segja, að glaðasólskin hafi verið þegar árásin var gerð. Flugvjelarnar komu í 12 þús. feta hæð, og voru ofar loft- þeljgastálgrindunum. Einn sjónarvottur skýrir svo frá: Það glampaði, á stálgrindurnar í sólskininu, en ofar þeim þrumuðu þýsku flugvjelarnar. En þar fyrir ofan sáust bresku Spitfire-flug- vjelarnar sem steyptu sjer yfir hinar þýsku flugvjelar. Annar sjónarvottur skýrir svo frá: „Jeg sá 5 flugsveitir koma yfir borgina og voru a. m. k. 100 flugvjelar í hverri. Það var eins og látlausar þrumur færu um loftið“. í annari fregn frá London segir, að flugvjelarnar hafi kom- ið í hópum, stundum 8 saman og stundum fleiri. En þær komu svo þjett, að flugvjelarnar, sem lokið höfðu að kasta niður sprengjum sínum mættu örðum, sem voru á leiðinni með farm sinn, yfir borginni. í þýskum fregnum er skýrt frá því, að þykkan reykjar- mökk hafi lagt yfir borgina, frá eldunum í iðnaðarhverfinu. Þjóðverjar segjast einnig hafa lagt í rúst flugskýli og birgða- geymslur breska flughersins víða við Thamesárósa. Þeip segja að varnir Breta hafi verið harðar yfir ströndinni. en þegar yfir „hjarta breska heimsveldisins“ hafi verið komið, hafi þær bilað. Hver flugvjel, sem flaug yfir borgina flutti 2 smálestir af sprengjum, segja Þjóðverjar. 1 loftárásinni í gærkvöldi, sem stóð yfir enn í nótt, var m. a. hæft fjölleikahús og stór verslunarbygging, segir í fregn frá London. Engin opinber tilkynning hafði verið birt um þessa árás, þegar síðast frjettist. „Mesta loftárásin á Berlíf Bretar gerðu loftárás á Berlín í fyrrakvöld, hina mestu, sem gerð hefir verið til þessa, að því er amerískir frjettaritarar í borginni herma. Orkuver var hæft, einnig jámbrautarport og hreyfla- verksmiðja í Spandau, að því er breska flugmálaráðuneytið tih kynnir. Loft var skýjað, svo að allar flugvjelarnar gátu ekki fundið þá staði, sem þeim var ætlað að gera árás á, og sneru þær heim með sprengjur sínar. Amerískir frjettaritarar í Berlín segja, að bresku flugvjelarnar hafi flogið óvenjulega lágt. Flugvjel- arnar voru yfir miðborginni og Tiergarten og fjellu tundur- sprengjur m. a. í Tiergarten, ekkí langt frá Wilhelmsstrasse, þar sem allar stjórnarbyggingarnar eru. í tilkynningu þýsku herstjórn- arinnar segir, að flestar sprengj- urnar hafi fallið á verkamanna- hverfið Wedding, í norðurhlutá borgarinnar. Auk Berlínar, gerðu ensku flug- vjelarnar í fyrradag árás L Schwarzwald, þar sem hæfðar voru birgðastöðvar, sem huldar voru í skóginum, og nýir eldar kveiktir á stóru svæði. Árás var einnig gerð á Borkum, Kassel, Mannheim og Hamn. Einnig var gerð árás á Brússel og á frönsku borgirnar Calais, Dunkerque og Abbeville. Fimra smálestum af sprengjum var varp- að yfir Boulogne. Einnig var gerð árás á fall- byssustæði Frakka í Cap Gris Nez 65 flugvjelar Seint í gærkvöldi tilkynti breska flugmálaráðuneyt- að 65 þýskar flugvjelar hefðu verið skotnar niður yfir Lond- on í gær. Sjálfir sögðust Bretar hafa mist 18. BanalilræHi vlð Karol konung FREGNIR hafa borist til New York um að Karol konungi hafi verið sýnt banatilræði, er einkalestin, sem hann og fylgdarlið hans var í, var að fara yfir landamærin frá Rúmeníu. Hópur járnvarðaliðsmanna hafði safnast þarna saman, og þegar lestin fór fram hjá skutu þeir á haria af rifflum. En engan mann sakaði. Með Karol í lestinni var Madame Lupescu og faðir hennar, nokkrir nánustu hirðgæðingar konungs, Manulescu, fyrverandi lög- reglustjóri í Búkarest, Popescu, fyrverandi innanríkismálaráðherra o. fl. — samtals 37 manns. Daladíer, Reynattd, Gameíín handteknír ■.— % að var opinberlega staðfest í Vichy í gær, að Edouard Daladier og Poul Reynaud, báðir fyrirverandi forsætisráðherrar Frakklands, og Marie Gustave Gamelin, fyrverandi yfirhershöfð- ingi Frakka, hafi verið teknir fastir og sjeu hafðir í haldi í kastala einum hjá Biom. Sú skýring er gefin, að hand- taka þeirra hafi farið fram, sam- kvæmt nýrri reglugerð um vernd á öryggi ríkisins. Þeir sjeu hafðir í haldi til þess að þeir sjeu jafn- an til staðar til að svara spurn- ingum, sem hæstirjetturinn í Riom kunni að vilja leggja fyrir, þá. En hæstirjetturinn í Riom hefir til meðferðar málaferlin, sem Petainstjóynin hefir stofnað til, til þess að grafast fyrir um hver á sökina á því að Frakkar fóru í stríðið. Fregn hefir borist til New Yorh um, að Pierre Cot, fyrverandi flugmálaráðherra, og Guy la. Chambre, fyrverandi flotamálaráð- herra, hafi komist hjá handtöku, með því að fara huldu höfði. Það hefir verið vitað nú um langt skeið, að draga ætti Daladier og Reynaud fyrir dómstólana. Um miðjan ágúst barst sú fregn til London, að Reynaud, sem þá var frjáls maður, væri að undirbúa vörn þá, sem hann ætlaði að flytja fyrir rjetti. Karol lagði ekki af stað frá Bú- karest fyri en í gærmorgun. Hann varð að bíða eftir leyíi stjórnar- innar í Júgóslafíu og Ítalíu til þess að fá að fara yfir þessi lönd, á leið sinni til Sviss. En í Sviss hefir hann fengið mánaðar dval- arleyfi. Ekki er vitað hvar konungur ætlar að taka sjer varanlegt að- setur, sumar fregnir segja í Suð- ur-Ameríku, aðrar í Kanada, og sumir segja að hann ætli að fara til Bandaríkjanna. Antonescu, ríkisleiðtogi Rúmena, ætlaði að láta stjórn sína sverja Michael konungi hollustueiða í gær. Er gért ráð fyrir að stjórnin sitji, eins og hun er nú skipuð, þar til 15. sept. en að Antonescu hafi þá lokið að mynda nýja stjórn. Tveir af kunnustu stjórnmála- mönnum ' Rúmena, dr. Maniu og dr. Bratianu, hafa heitið að styðja Antonescu, ef hann hverfur aftur til þingræðisstjórnar. Antonescu hefir sent Hitler sím- skeyti, þar sem hann segist minn- ast, ásamt rúmensku þjóðinni, hins sögulega dags, er eining þjóð- arinnar hafi verið trygð. Lætur hann í ljós þakklæti sitt til þýsku þjóðarinnar og yfirlýsingu um fylgi við Hitler. Hann hefir einn- ig sent Mussolini skeyti, þar sem hann talar um hið vaxandi róm- verska ríki. Sima, foringi járnvarðaliðsins, bannaði í gær allar hópgöngur liðsmanna sinna. Hafnbanninu Ijett af de Gaulle-nflendunum Hafnbanninu hefir verið ljett af þeim nýlendum Frakka, sem gengið hafa í lið með de Gaulle.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.