Morgunblaðið - 08.09.1940, Blaðsíða 7
Sunnudagur 8. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Búlgarla fær
aftur landamær-
In 1912
Samningar voru undirritaðir
í gær milli Rúmena og
Búlgara um afsal Suður-Dobru-
dja hjeraðsins í hendur Búlg-
brum. Forsætisráðherra Búlgara
skýrði frá því í útvarpsræðu í
gærkvöldi, að landamæri Búlg-
aríu og Rúmeníu væru nú hin
fiömu og árið 1912 .
1 Berlín hafa þessi tíðindi
vakið feikilegan fögnuð. Búlg-
arar hafa endurheimt 7.726
ferkílómetra lands þar sem búa
4548 þús. manns.
En þar af eru um 100 þús.
Rúmenar og er í samningnum
gert ráð fyrir íbúaskiftum. Rúm
enarnir munu flytja til Norð-
ur-Dobudja en um 25 þús. Búlg-
arar sem búa í Norður-Dobu'dja
munu flytja til Búlgaríu.
Opinberir starfsmenn frá
Búlgaríu munu byrja að taka
við Suður-Dobudja úr höndum
Rúmena þ. 15. sept. En þ. 21.
september mun her Búlgara
hefja innreið sína í hjeraðið og
á hann að hafa lokið við að
taka hjeraðið alt fyrir 31. dés-
ember.
4.3 mílj. smá-
lestum sökt
f herstjórnartilkynningu Þjóð-
verja í gær er skýrt frá því,
að þýsk ofansjávar- og neðan-
sjávarskip hafi sökt frá því að
; stríðið hófst, skipum óvinanna
og gagnlegum óvinunum, sem
voru samtals 4,3 miljónir smá-
lesta. Aðeins í ágúst síðastliðn-
um var sökt 596 þús. smálestum.
Af þessum 596 þús. smálest-
um söktu kafbátar 503 þús. en
ofansjávarskip 93 þús. smálest-
um.
En samtals hafa þýskir kaf-
bátar sökt frá því að stríðið
hófst 2.768.000 smálestum, en
ofansjávarskip 1.594.000 smá-
lestum (samtals 4.373.000 smá-
lestir).
AUGAÐ hvílist
með gleraugum frá
THIELE
ehol |
1 TOILET SOAP f
t $
Framköllun.
Kopiering.
Stækkanir.
Amatördeildin — Vignir
Nýr stríðs-
vettvangur í
Austur-Asíu?
Kínverjar munu ráðast með
her inn í Indo-Kína ef
það reynist rjett, að stjórnin í
Indo-Kína hafi leyft Japönum
að flytja herlið yfir landið til
Kína, að því er segir í fregn
frá Tschinghuy.
Kínverjar segjast hafa öflugt
lið við landamæri Indo-Kína og
telja að þeir hafi þar góða að-
stöðu til innrásár.
Lítill vafi er talinn á því, að
fregnin um samkomulag Frakka
og Japana sje rjett. Japanar
eiga að fá að flytja herlið yfir
Haiphay, en herliðið má hvergi
stíga út úr járnbrautarlestinni.
Aftur á móti neituðu Frakkar
að láta Japana fá flugvelli.
í fregn frá Vichy er því hald-
ið fram, að bardagar sjeu þegar
byrjaðir á landamærum Indo-
Kína milli Kínverja og franska
nýlenduhersins. Segir í fregn-
inni að árás Kínverja hafi ver-
ið hrundið.
Frakkar segjast hafa sent
liðsauka til landamæranna.
NÝJA BÍÓ
Ný stórmynd ínn-
an skams
Nýja Bíó mun á næstunni sýna
stórmynd eina, sem mikið
lof hefir hlotið erlendis. Er það
,,Mr. Smith goes to Washington“.
Myndin fjallar um nngan hug-
sjónamann, sem kémst í ríkisþing-
ið í l^ashington, lendir þar í hönd
um ófyrirleitins náunga, sem
hyggst eyðileggja framtíð hans, ef
hann hagar sjer ekki samkvæmt
gefnum fvrirskipunum.
Frank Capra hefir sjeð um töku
myndarinnar og ætti það nafn að
nægja hverjum, sem áhuga hefir
fvrir góðum kvikmyndum.
Aðalhlut.verkið, Mr. Smith, leik
ur James Stewart og tekst prýði
lega. Önnur stærri hlutverk hafa
Edward Arnola, H. B. Warner,
Eugen Poulett, Guy Kible og Jean
Anthew. Má sjá á þessú, að ekki
hefir verið sparað1 hvað snertir
góða leikkrafta.
Ægir, 8. tbl. þ. á., er kominn
iit. Efni m. a.: Hvenær læra Is-
lendingar að eta síld? Tilskipun
um fiskveiðar frá 1758. Ultra-
fjólubláir geislar og fiskflökun.
Sigurður Pjetursson skipstjóri
sextugur. Hinir sex nýju atvinnu-
þættir. Síldargengdin mikla o. m.
fl., snertandi hag og afkomu út-
gerðar og sjómanna.
KartAflnr
ágætar, nýar.
Lækkað verð.
VÍ5II1
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
Dagbók
| Stuart 59409108
Mikilsvarðandi mál til umræðu.
I. O.fÓ.F. 3 á 122998 2
Helgidagslæknir er í dag Kjart-
an ólafsson,
Nætnrlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Ingólfs Apó
teki og Laugavegs Apóteki.
75 ára er á morgun (mánudag)
frú Þóra Bjarnadóttir, Hverfis-
götu 91.
50 ára er í dag Jón Sigurgeirs-
son verslm., Hverfisgötu 13 B,
Hafnarfirði.
Fimtugsafmæli átti í gær Aðal-
steinn Stefánsson, Lundargötu 3,
Akureyri. Hann er verkstjóri við
ýmsar framkvæmdir bæjarins.
Hjúskapur. í gær voru gefiu
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Sigríður Þor-
geirsdóttir og Axel Thorsteinsson
blaðamaður. Heimili þeirra verður
á Rauðarárstíg 36.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína Ingibjörg Þorsteins-
dóttir, Haukalandi, og Alf Johan-
son frá Gautaborg.
Slökkviliðið var kallað út tvisv-
ar sinnum í gær. í fyrra skiftið
hafði kviknað út frá miðstöð á
Ránargötu 34, en eldurinn var
slöktur áður en nokkrar skemdir
urðu. Síðdegis í gær var slökkvi-
liðið kallað á Hverfisgötu 62, þar
sem kviknað hafði út frá gati á
reykháf. En eldurinn var slöktur
einnig þar, áður en nok-krar skemd
ir urðu.
Freyr, 9. tbl. þ. á., er kominn út.
Efni m. a.: Auður mýranna, eft-
ir Árna G. Eylands. Haustbeit
kunna, eftir P. Zoph. Heyskapur-
inn í sumar og fóðurbætisþörfin,
eftir P. Zoph. Vinnubækur, eftir
Dag Brynjólfsson. Ráðningarstofa
landbúnaðarins, skýrsla Jens Hólm
geirsonar. Margar fleiri greinar,
varðandi búnaðarmál, eru í þessu
hefti.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisxitvarp.
14.00 Messa í fríkirkjunni (síra
Árni Sigurðsson).
39.30 Hljómplötur; „Daphne og
Chloé“, lagaflokkur eftir Ravel.
20.30 Danshljómsveit Bjarna
Böðvarssonar leikur og syngur.
21.00 Leikþáttur: „Nilli í Naust-
inni, V: Sættir“, eftir Loft
'Guðmundsson (Friðfinnur Guð-
jónsson, Anna Guðmundsdóttxr)
21.45 Frjettir.
Útvarpið á morgun:
19.30 Hljómplötur; Lítil svíta éft-
ir Tavlor.
20.30 Sumarþættir (Sigfús Hal'-
dórs frá Höfnum).
20.50 Utvarpshljómsveitin; LÖg
eftir íslenska höfunda.
21.20 Hljómplötur: Kvartett í B-
dúr eftir Josep Sulc.
Fyrirliggfatidft
Hveiti — Haframjöl
Kokosmjöl — Kanell heill
Cacao — The
Eggert Kristfánsson & Co."i».f.
Sími 1400.
Reykjavík - Akureyri
Hraðferðir alla daga.jj
Bifreiðastöð Akureyrar. Bitreiðastðð Steindórs
Bifreiðarstjóri
með meira prófi og bílaviðgerð-
armaður, geta fengið jatvinna. —
Afgr. vísar á.|
Hðrkambar — Hárspennur
Nýasta tíska frá New York.
MIKIÐ ÚRVAL.
K. Einarsson & Björnsson
BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU.
'ZýlýV
Jarðarför mannsins míns og föður,
ÞÓRÐAR HJARTAR,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. þ. mán. og hefst
með húskveðju á heimili okkar, Öldugötu 42, kl. V/2 e. hád.
Reykjavík, 8. september 1940.
Aurora Hjartar og dóttir.
Jarðarför
JAKOBÍNU SIGURÐARDÓTTUR
frá Káranesi í Kjós, sem andaðist 4. sept., fer fram frá heimili
hennar, Grettisgötu 49, þriðjudaginn 10. þ. m. kl. 3V2.
Ættingjar.
Innilegt hjartans þakklæti til allri þeirra er sýndu okkur
vináttu og samúð við andlát og jarðarför sonar okkar,
KRISTJÁNS læknis.
Vilborg Sigurðardóttir og Grímur Sigurðsson frá Nikhól.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda hluttekningu við and-
lát og jarðarför
Dr. phil. BEN. S. ÞÓRARINSSONAR.
Hansína Eiríksdóttir, börn, tengdabörn og bamabörn.
Þökkum hjartanlega öllum nær og fjær auðsýnda hjálp-
semi og samúð við fráfall og jarðarför mannsins miris og
föður okkar,
INGVARS SIGURÐSSONAR,
Vegamótastíg 9.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.