Morgunblaðið - 19.09.1940, Page 2
- •2'-”
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 19. sept. 1940.
Stærstu loftárásir
Breta í styrjöldinni
HUUHUIIHIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIUUIIHIIIIIIIIIHNUUIIUy
Allir !
| karlmenn ]
| vopnaðir I
|niiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiimiiiiiiH!iiimnu
| Breskir loft-
| varnabelglr
| valda tjéni
11 Svfþjéð og
I Ðanmörku
iiiiimmniiiiiiniinun
60—80
varnabelgi rak
í fyrrinótt og í gær inn yfir
strendur Svíþjóðar og urðu
víða af miklar skemdir, eink-
um á rafmagns- og símalínum.
Meðal annars hafa loftvarna-
belgirnir bresku valdið skemd-
um á háspennuleiðslum frá raf-
magnsstöðinni í Trollháttan, rif-
ið niður loftnet útvarpsstöðv-
arinnar í Motala og jafnvel
valdið skemdum á sporvagna-
kerfi Stokkhólmsborgar.
Eins og kunnugt er, eru loft-
varnabelgir festir með löngum
stálvírum á þeim stöðum, sem
þeir eru settir upp til varnar
gegn sprengjuflugvjelum, en í
hvassviðrinu sem geisað hefir í
Suður-Englandi undanfarið,
hafa belgirnir slitnað upp
hundruðum saman og rekið yf-
ir Norðursjó og alia leið til Sví-
þjóðar.
í Svíþjóð var fyrir myrkur í
gærkvöldi búið að ná 15 loft-
varnabelgjum heilum og ó-
skemdum og 8 belgir höfðu ver-
ið skotnir niður með vjelbyssu-
skothríð úr flugvjelum.
Mikið lögreglulið og fjöldi
hermanna í Svíþjóð vinnur að
því að eyðileggja loftvarnabelg-
ina og ná þeim niður.
Fólk er varað við að reykja
sígarettur eða vindla nálægt
þar sem loftvarnabelgur hefir
fallið niður, eða yfirleitt vera
með óbyrgð ljós, því belgirnir
•eru fyltir með eldfimu gasi. Er
þess dæmi í Noregi, að maður
einn, sem var að kveikja sjer í
pípu fórst er eldur kom upp í
loftvarnabelg, sem hann var að
skoða.
í Svíþjóð og Danmörku hafa
járnbrautarlestir, sem ganga
fyrir rafmagni stöðvast og ferð-
um þeirra seinkað mjög vegna
þess, að vírar frá loftvarnabelgj
um ollu straumrofi á rafmagns-
línunni.
í DANMÖRKU.
Frá Danmörku hafa einnig
borist frjettir um að loftvarna-
belgir hafi valdið miklu tjóni
«g einu dauðaslysi.
Dauðaslysið varð hjá' Hader-
Stöðugar loftárás-
ir á Ermarsunds-
hafnir Þjóðverja
Klaustvindarnir byrj-
aðir í Ermarsnndi
iiiiiiiiiiiiiniiiiiiiliiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiiitiiir ~
immiiliitiiiiiiiiiii!iii
BRESKI FLUGHERINN gerði stærstu loftárás
ir, sem hann hefir enn gert í styrjöldinni,
á Ermarsundshafnir Þjóðverja og borgir í
Hollandi og Belgíu í fyrrakvöld og fyrrinótt. Hafa aldrei
áður verið sendar út jafn margar flugvjelar frá Englandi
á einum degi.
Árásir voru gerðar á þær borgir, sem Þjóðverjar hafa
safnað liði í og flutningaskipum og bátum til innrásarinnar
í England, og einnig á járnbrautarstöðvar í Vestur-Þýska-
landi. Þá var tilkynt í London í gær, að tundurduflum
hefði verið lagt á um 30 svæðum í landhelgi Þjóðverja,
frá Noregi til Biscaya-flóa. Sumstaðar alveg upp í land-
steina.
„SÍÐASTI SAMHERJINN‘
Suðvestan hvassviðri geisar enn í Ermarsundí og er talið ó-
hugsandi að Þjóðverjar muni gera tilraun til innrásar á meðan
sjógangur er jafnmikill og hann er nú í Ermarsundi. í Englandi
eru haustvindarnir í Ermarsundi taldir „síðasti samherji Breta“,
sem tvisvar áður hafi bjargað lándinu frá innrás. (Spanski flot-
inn ósigrandi og Napoleon).
Tjón af völdum loftárása Breta á Ermarsundshafnir hefir
aldrei verið jafnmikið og í fyrrinótt, segir í tilkynningu
flugmálaráðuneytisins breska í gærkvöldi.
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Brctar fá
„fljúgandí
vírkí!“
A iveðið hefir verið í Bandaríkj-
aðiselja Bretum þá teg-
und amerískra hernaðarflugvjela,
sem nefndar eru hin „fljiigandi
virki“. Eru þetta gríðar vandaðar
og stórar flugvjelar, sem talið er
að muni koma Bretum að ómetan-
legum notum í vörnum stórhorga
eins og Löiidon.
Breskur kafbátur
ferst
Breska flotamálaráðuneytið
tilkynti í gærkvöldi að
þar sem alllangt sje liðið síðan
kafbáturinn „Narwhale“ hafi
átt að vera kominn til bæki-
stöðvar sinnar en sje enn ókom-
inn, verði að líta svo á, að hann
hafi farist.
Breskir karlmenn af öllum stjettum og öllum aldri |
| hafa fengið vopn í hönd. Jafnvel burðarkarlar á járn- §
| brautarstöðvum læra að skjóta úr rifflum. Á myndinni I
| sjást burðarkarlar verað að æfa sig með riffla.
íiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiimniiiiiiHT
Verða Spánverjar neydd*
ir út í styrjöldina?
Viðræðnr von Rlbbenlrops
og Mussolinis
Aðallega var valdið tjóni á
hafnarmannvirkum og flutn-
ingaskipum.
I Caiais kom upp eldur sem
náði yfir 14 mílu og sást langt
á haf út. Einnig var gerð árás
á stæði langdrægra fallbyssa
hjá Gris Nez höfða.
í Dunkerque var mikið tjón
á hafnarmannvirkjum og flutn-
ingabátum.
I Boulogne kom upp eldur,
sem sást 30 km. á haf út.
í Zebriigge urðu skemdir á
hafnarmannvirkjum og þar kom
upp eldur í stóru flutningaskipi.
í Ostende kviknaði í timbur-
hlaða og járnbrautarstöð varð
fyrir miklum skemdum.
I Antwerpen var varpað eld-
sprengjum á hús við höfnina.
í Cherbourg komu sprengjur
á tvö stór skip og er talið að
annað hafi verið tundurspillir.
I Hamborg kom upp mikill
eldur.
Auk þess voru gerðar stór-
kostlegar árásir á iðnaðarborgir
í Rínarhjeruðum og járnbraut-
arstöðvar, m. a. í Krefeld.
í öllum þessum árásum segj-
ast Bretar hafa mist aðeins
tvær flugvjelar.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA Þýskalands,
von Ribbentrop, er á leið til Ítalíu til við-
ræðna við Mussolini. Ferðast hann í bryn-
varinni einkajárnbrautarlest með loftvarnabyssum.
Talið er, að viðræður þeirra von Ribbentrops og Mussolinis
muni aðallega snúast um Miðjarðarhafsmálin og amerískir
frjettaritarar í Berlín telja að þeir muni ræða um afstöðu Spán-
verja til styrjaldarinnar.
Amerísku frjettaritararnir
telja að ferð Suners,
(„sterka manns Spánar“)
tilBerlín muni standa í sam
bandi við það, að ítalir og
Þjóðverjar vilji neyða Spán
verja til að taka virkan
þátt í styrjöldinni.
Um afstöðu Spánverja er
það vitað, að þeir óska ekki að
taka þátt í styrjöldinni, að
minsta kosti ekki að svo
^töddu.
Þá er talið að von Ribbentrop
og Mussolini muni ræða um inn-
rásina í Egyptaland. Er litið svcv
á í London, að Mussolini sje
Gandhi hvetur
tii friðar
T-|ing indyerska Congress-flokks
ins hefir hvatt Indverja ti)
að grípa ekki til neinna óvin-
samlegra ráðstafana í garð Breta
að svo stöddu.
Gandhi hefir gefið út yfirlýs-
ingu til flokksmanna sinna, þar
sem hann hvetur þá til að sýna
þolinmæði og rasa ekki um ráð
fram.
í yfirlýsingunni segir Gandhi,
að viðræður hans við varakonung-
inn gangi vel og fari vinsamlega
fram.
Höfðu leyfi
Breta
■0 rönsku herskipin sex, sem
* nýlega fóru um Gibralt-
arsund til Dakar í Norður-Af-
ríku höfðu til þess leyfi Breta.
Frá þessu var skýrt í London
í gær.
Allmargir franskir stríðs-
fangar, sem Þjóðverjar tóku í
Frakklandi voru fluttir til
Frakklands í lok þessa mánað-
ar. í þýskum fregnum er sú
skýring gefin á þessari ráðstöf-
un, að fangarnir þoli illa lofts-
lagið í Þýskalandi.
ekki um að leggja út í ævintýri
í Egyptalandi nema hann sje
viss um að Þjóðverjar reyni að
gera innrás sína í England í
haust, þar sem hann ætli sjer
að leika sama leikinn og gagn-
vart Frökkum, það er að láta
Þjóðverja sigra Englendinga
heima fyrir áður en hann ræðst
á nýlendur Breta í Afríku fyrir
alvöru.
Framsókn ítalska hersins í
Egyptalandi er nú stöðvuð í bili.
Er ítalski herinn nú að
treysta aðstöðu sína í Sidi Bar-
ani og þar í kring, sem er um
100 km. fyrir innan landamæri
Egyptalands.
Hafa Bretar gert loftárásir á
stöðvar ítala hjá Sidi Barani, að
þeir telja með góðum árangri.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.