Morgunblaðið - 20.09.1940, Síða 2

Morgunblaðið - 20.09.1940, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ Fögtudagur 29. sept. 1949. von Ribbentrop ræðir við Musso- lini um „nýjan þátt ístríðinu 44 Innrás í England eða Miðjarðarhaftð 103. loflárásin á London ÞÝSKAR FLUGYJELAR hjeldu áfram ferðum sínum yfir Ermarsund í gær, þrátt fyrir að suðvestan rok geysaði á sundinu. Loftárás- armerki var gefið í London í 103. sinn frá því stríðið hófst klukkan 8 í gærkvöldi, eða um svipað leyti og und- anfarin kvöld. von RIBBENTROP í RÓM Um sama leyti sat von. Ribbentrop veislu hjá Ciano greifa í Rómaborg, eftir að hafa rætt við Mussolini í tvær klukkustundir um nýjan þátt í stríðinu gegn Englandi. von Ribbentrop kom til Rómaborgar í brynvarinni lest með tveim loftvarnabyssum í gærmorgun. Ciano greifi var á járn- brautarstöðinni, sem skreytt hafði verið 1 tilefni af komu Ribb- entrops. Eftir fundinn með Mussolini, sem haldinn var í Feneyjahöll- inni síðdegis í gær, var birt opinber tilkynning þar sem segir að viðræðurnar hafi verið hjartanlegar og að viðstaddir hafi verið Ciano greifi, von Mackensen, sendiherra Þjóðverja í Rómaborg og Dino Alfieri, sendiherra ítala í Berlín. En engar upplýsingar voru gefnar um það, um hvað rætt hafi verið. „ÁÞREIFANLEGUR ÁRANGUR“ En þýsk og ítölsk blöð gefa í skyn að rætt hafi verið um „nýjan þátt í stríðinu gegn Englandi“, um Gibraltar, um lausn á vándamálum á Balkanskagá, öðrum en þeim, sem þegar hafa verið leyst, einkum um afstöðuna til Grikkja og Tyrkja, o. fl. Sumar fregnir herma, að rætt hafi verið urrj nýlendumál og að Þjóðverjar leggi til að Afríku verði skift í þrjú hagsmunasvið, Norður-Afríku, sem Italir og Spánverjar eiga að fá að ráða yf- ir, Mið-Afríku, sem Þjóðverjar ætla sjer sjálfir, og Suður-Afríku, sem á að fá að halda sjálfstæði sínu. Signor Gayda skrifar í blað sitt í gær, að viðræðurnar muni bera „áþreifanlegan árangur“. INNRÁS? Associated Press frjettastofan skýrði frá því í gærkvöldi, að viðræður von Rbibentrops og Mussolinis væru aðeins undirbún- ingsvíðræður og að Hitler og Mussolini muni hittast sjálfir inn- an skamms til þess að taka endanlegar ákvarðanir. í sambandi við heimsókn von Ribbentrops í Róm, eru uppi ýmsar bollaleggingár um framhald stríðsins. Sumir telja að markmið Þjóðverja og ftala sje að láta til skarar skríða í Miðjarðarhafi, en halda samtímis áfram loftárásum á England, svo að Bretar þori ekki að flytja herlið þaðan til Afríku. Aðrir benda aftur á móti á, að þýsku blöðin sjeu farin að tala um að Þjóðverjar sjeu um það bil að ná yfirtökunum í lofti yfir Englandi og þykir það benda til að innrásin sje nú fyrir höndum. Hernaðarsjer- fræðingar eru einnig farnir að benda á að þótt haustvindarn- ir geti eyðilagt sigurvon Hitlers, ef hann ætlar að senda her yfir Ermarsund, þá sje þó ekki alltaf hvassviðri á sundinu og þess FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Suner ræðir aftur við Hitler Serrano Suner er enn staddur í Berlín. í Reutersfregn frá Madrid er skýrt frá því að hann muni að líkindum ræða við Hitler í annað sinn á laugardaginn. Loftárásírnar ræddar á lokuðum fundi Loftárásirnar í gær Þjóðverjar auka loftvarn- irnar i Frakk- landsstrðnd Lokaður fundur Amr haldinn í breska þinginu í gær, til að ræða loftárásirnar á England. Að fundinnm loknum var gefin út tilkynning, þar sem skýrt er frá því, að þingmenn hafi borið fram spurningar, sem ráðberrarnir hefðu svarað. Par til í gærkvöldi hÖfðu loftárásir Þjóðverja á Eng land verið með minsta móti í gær, enda hefir veður hamlað hern- aðaraðgerðum í lofti. En í gærkvöldi og í nótt voru þýskar flugvjelar yfir úthverfum Lund- úna og einnig yfir miðborginni. I fregn frá London á mið- nætti í nótt var skýrt frá því, að sprengjur hefðu þegar fall- ið víðsvegar í borginni. Fregnir höfðu einnig borist af þýskum flugvjelum ýfir Midlands og hjeruðunum á suð- austur og austurströndinni. Nýjar hefndir. í Þýskalandi ríkir mikil gremja yfir árás, sem breskar flugvjelar eru sagðar Ijafa gert í fyrrakvöld á Bethelssjúkra- húsin við Bielefeld í Westphal- én. Þrjú sjúkrahús, sem voru greinilega merkt með rauða krossinum voru eyðilögðu. og 9 börn fórust, en 12 særðust. Tala Þjóðverjar í þessu samþandi um launmorð, sem þeir segja að krefjist miskunnarlausrar hefnd ar. Árásir á hafnar- borgirnar. Breskar flugvjelar hjeldu á- fram loftárásum á hafnarborg- irnar við Ermarsund í gær kvöldi, einkum á Boulogne og Calais. Breska flugmálaráðu- neytið tilkynti í gær, að í fyrra- kvöld hafi verið gerðar árásir á borgir norðan frá Zeebrúgge suður til Le Havre. Einkum var árásin hörð á Le Havre, þar sem varpað var niður mörgum smá- lestum af tundursprengjum. Þrátt fyrir slæmt skygni, gátu menn sjeð frá ströndinni á Eng- landi skotglampana frá loft- varnabyssum Þjóðverja handan við sundið. í gærkvöldi var sagt, að skot- hríðargirðingin úr loftvarnabyss um Þjóðverja væri þjettari en nokkru sinni og þykir það benda Kanada og Bret- land vilja hafa „mikinn herafla á íslandi“ „Varnir íslands“ ræddar í landvarnanefnd Kanada og Bandaríkjanna HERMÁLARÁÐHERRA Kanada, Mr. Ralston, sagði við blaðamenn í Ottawa í gær, að Stóra-Bretland og Kanada væru á einu máli um að hafa þyrfti mikinn herafla (substantial forces) til varnar á íslandi. I Reutersfregn frá Ottawa segir, að hin sam- eiginlega landvarnanefnd Kanada og Bandaríkj- anna muni f jalla m. a. um varnir íslands, og hafi þegar tekið það mál til meðferðar. Bresk herskip skjóta «ÍSv á innrásarher Itala B FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. RESK HERSKIP hafa skotið á norðurvæng ítalska innrásarhersins í Egyptalandi, sem nú sækir frá Sidi Barani 150 km. leið í áttina til Mersa Matruh. í tilkynningu breska flugmálaráðuneytisins í gær, er skýrt frá því, að bresk flotadeild hafi síðastliðinn þriðjudag skotið á ítalskt herlið hjá Sollum, skamt frá landamærum Libyu og að önnur flotadeild hafi um sama leyti skotið á norðurvæng ítalska sóknarliðsins hjá Sidi Barani. I tilkynningu þýsku herstjórn arinnar í gær, er viðurkent, að herskip Breta hafi gert skot- hríð á ströndina milli Bardia og Sidi Barani, en því er haldið fram, að’ ítalskar flugvjelar hafi hrakið herskipin brott. Tundurskeyti úr ítalskri tund- urskeytaflugvjel er sagt hafa hæft 10 þús. smálesta breskt beitiskip og laskað það. í tilkynningu bresku her- stjórnarinnar í Kairo í gær, er sagt að ítalir haldi áfram að búa um sig hjá Sidi Barani, en að hernaðaraðstaðan sje ó- breytt. Ekkert er að frjetta af öðrum vígstöðvum í Norður-r Afríku, segir í tilkynningunni. Bresk herskip, sem verið hafa á siglingu um austanvert Mið- jarðarhaf, hafa ekkert orðið varir við flota ítala, segir í fregn frá London. En í leit þeirra að ítals'ka flotanum hafa þau að líkindum sökt tveimur ítölskum kafbátum. Bretar tilkynha, að flugvjel- ar þeirra hafi gert loftárásir á Rohdos og Leros, eyjar í Dodo- canes-eyjaklasanum. Samningarnir í Indo- Kína komnir á „hættu- legt stig“ Fxað var staðfest í Yichy í gær, *• að Japanar kefðu borið fram nýjar kröfnr um Indo-Kína. I fregn frá Viehy segir, að samn- ingar milli Frakka og Japana haldi áfram, en þeir sjeu nú komn- ir á hættulegt stig. Thailand (Síam) hefir einnig gert kröfur á hendur stjórninni í Indo-Kína, um breytingar á landa- mærunum, sem fela í sjer land- aukningu Thailands. gæti farið, að England yrði sigr- að á 30 dögum. Þjóðverjar hafa látið dreifa flug miðum í Póllandi, þar sem menn af þýskir þjóðerni eru varaðir við að hafa samneyti við Pólverja — þar sem þeir sjeu ljelegur kyn- flokkur eins og Gyðingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.