Morgunblaðið - 20.09.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.09.1940, Blaðsíða 7
Föstudagur 20. sept. 1940. ---Brfef senð Mbl. i_—,— Heimsóknin i breska barnaskólann Herra ritstjóri! Morgunblaðinu í fyrradag birt- ist útdráttur úr ferðaskýrslu Snorra Sigfússonar skólastjóra um ferð hans til Englands og Danmerk ur í fyrra. í þessum útdrætti lýs- ir Snorri heimsókn sinni í breska barnaskóla. Eitt af því sem virðist hafa haft hvað mest áhrif á Snorra, er guðræknisstund, sem hann var viðstaddur í einum barnaskóla. Snorri spurði skóla- stjórann hvort slíkar stundir væru algengar í skólanum. Enski skóla- stjórinn virtist hissa á spurningu íslenska skólastjórans og svaraði: „Auðvitað. Hvorki við nje börn- in mega án þeirra vera“. Og síðan lýsir Snorri guðræknis- stund í hinum enska skóla: Skóla- stjðrinn stóð við púlt fyrir miðj- um vegg og kennaraliðið þar hjá. Á töflu voru skrifuð tvö vers, er syngja átti, og ljek einn kennar- inn á hljóðfæri. Allir sungu vers- in. Og síðan flutti skólastjórinn örstutta bæn. Að henni lokinni hjelt hver til sinnar stofu. En íslenski skólastjórinn stóð eftir hissa og hrifinn. Og hann „gat ekki annað en hugsað heim og einnig öfundað kennarana, sem gengu til starfa með þessum ung- mennum, er þannig hófu dags- verkið* ‘. ★ Jég efa ekki að þessi stund hafi verið hátíðleg, og jeg vildi mega óska gömlum kunningja mínum, Snbrra Sigfússyni, þess, að hann megi minpast hennar lengi. Jeg vildi óska honum þess að_ hann myndi hana jafn lengi eins og jeg og skólasystkini mín muna hvem- ig við vorum látin byrja dags- verkið í barnaskólanum á ísafirði fyrir tæpum fjörutíu árum. En það var á þessa leið: Rjett áður en keilsla í skólanum átti að H cf;j - ast söfnuðust öll börnin í stærstu skólastofuna. Skólastjórinn — fyrst dr. Björn Bjarnason frá Við- firði og síðar Bjarni Jónsson vígslubiskup — stóð við púlt fyrir miðjum vegg og kennaraliðið þar hjá. Börnin höfðu lítið sálmakver og á töflu voru skrifuð númer á tveimur sálmum er syngja átti. Einn kennarinn ljek á hljóðfæri. Allir sungu sálmana, og flestir bókarlaust eftir stuttan tíma. Og síðan flutti skólastjórinn, eða eitt- hvað af eldri börnunum er hann til kvaddi, stutta bæn. Að henni lokinni var síðari sálmurinn sung- ínn. Og síðan hjelt hver til sinnar stofu og kenslustarfið hófst. ★ Þannig byrjaði dagsverkið í þarnaskólanum á ísafirði fyrir fjörutíu árum. Á hverju byrjar MÍLAFLiniNGSSKSlFSTOFA Pjetur Magnússon. Einar B. Guðmundsson. Guðlaugur Þorláksson. Símar 3602, 3202, 2002. Austurstræti 7. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. dagsverkið nú, eftir að skólarnir hafa verið „skipulagðir“ ? Jeg veit það ekki. En sýnilega hefir orðið mikil breyting þar á, fyrst einn áhugasamasti skólastjón landsins þarf að fara til Englands til þess að vera viðstaddur guð- ræknisstund í barnaskóla. Og tal- ar það ekki sínu máli um ástand- ið í barnaskólunum, þegar þessi sami áhugasami skólastjóri verður bæði hissa og hrifinn að aflok- inni bænagjörð í enska skólanum ? Er ekki hugsanlegt að þangað megi rekja að einhverju leyti á- stæðurnar til þess, að 30 skóla- stjórar sitja nú á fundi til þess m. a. að ræða og reyna að ráða bót á hegðun Unglinga, sem sumir hverjir sitja enn í skólunum, og sem hverjum hugsandi manni er orðið hið alvarlegasta áhyggju- efni? ★ íslenska skóJastjóranum varð hugsað heim að aflokinni bænar- gjörðinni í enska barnaskólanum. Hann sá þar að vísu ekki annað en það, sem hann hefði getað sjeð í flestum barnaskólum hjer á landi fyrir tæpri hálfri öld. En skylt er að þakka það að augu hans hafa opnast. Jeg vona að hann sje enn svo mikill áhrifa- maður í umbótaflokki sínum, að honum auðnist að koma því fyrir- komulagi á, sem hann .yarð svo hrifinn af, og sem áreiðanlega leið- ir ekki annað en gott af sjer. Og takist honum það, þá hefir för hans til Englands vissulega ekki verið til ónýtis farin. M. Sch. Thorsteinsson. Sameining Bret- lands og Banda- ríkjanna? Mr. Attlee sagði í breska þinginu í gær, að ef á- kveðið yrði að gera Bandaríkj- unum sömu boð og Frökkum var gert, um að sameina .stjórn landánna, þá myndi þinginu verða gerður kostur á að r^eða málið áður. Bretar gerðu eins og kunn- ugt er Frökkum, rjett áður en þeir gáfust upp í júní það boð, að setja upp sameiginlegt þing fyrir Frakkland og Bretland, sameiginlega stjórn o. s. frv. Hus úr járnbentrí steínsteypu ðruggarí - ¥ fregn frá'Londön er skýrt frá því, að sprengja hafi í fyrra- kvöld fallið á hús úr járnbentrí steinstevpu og hafi tjónið af sprengjunni orðið tiltölulega lítið. Þykir þettá benda til þess, að hús úr járnbentri steinstevpu sjeu öruggari en hús, sem hlaðin eru úr sementssteini. * ORGUNBLAÐIÐ Loftáiásirnar Menn verða sjáltir að sjá íjer fyrir útsæðis- kartóflum næsta vor! jAðvörun, sem taha , þarf fil grelna Kartöfluuppskeran virðist ætla að verða ennþá minni en menn gerðú sjer vonir um, sá'gði Árni G. Eylands í gær. Mikið hef- ir eyðst af hinni nýju uppskeru síðan byrjað var að taka upp úr görðunum, og stafar þetta að nokkru leyti af því, að nú eru fleiri neytendur hjer en áður hafa verið. Eftirspurnin eftir kartöflum hefir undanfarið verið svo mikil, að verðið hefir ekkert lækkað, eins og vant er á haustin, þegar nýja uppskeran kemur á markað- inn. Má jafnvel búast við, að verð- ið á innlendu kartöflunum fari að nálgast eða geti brátt orðið hærra, en verðlag yrði á innfluttum kartöflum. Það er sýnilegt, að mjög bráð- lega verður nauðsynlegt að fá kartöflur frá útlondum. En eitt vil jeg leggja áherslu á, sagði Árni, og það nú strax. Að þeir, sem hugsa sjer að rækta kartöflur að ári, þeir verða að hafa fyrirhyggju með það, að þeir hafi þá útsæði. Þó hægt yerði að íá kartöflur til landsins til matar í vetur, þá er. ekki þar með sagt, að nokkur möguleiki verði á því að fá hing- að kartöflur að vori, sem nokk- urt vit er í að nota hjer til út- sæðis. Það verða kartöfluframleiðend- ur að muna. Verður gerð innrás? FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. vegna geti Hitler gert innrásar- tilraun sína jafnvel þótt komiS sje fram á vetur. Þýsk blöð birtu í gær stórar fyrirsagnir á íorsíðu á þessa leið: „2000 breskar flugvjelar skdtnár niður síðan í ágúst.“ í ágústmánuði voru 1354 skotn- ar niður og fýrstu tvær víkurn- ar í september, 481 og 261 flug vjel. f , , | I L°ndon hefir verið skýrt frá ’ því, að þýski innrásarherinn hafi hafst við um borð í skipum í Erm- arsundi. skamt frá Frakklands- strönd, undanfarnar vikur. Er talið að tilgangúrinn með þessú hafi verið að venjá hermennina yið sjóinn. En þegar storminn gerði á mánudaginn hafi skipin orðið að leita hafnar. Stimson, hermálaréðherra Banda ríkjanna, sagði í gær, að hann liefði undanfarið verið að kynna sj’er skýrslur, «em erindrekar Bandaríkjastjórnar í ' Englandi hefðu sent, stjórninni, um hernað- araðgerðirnar þar og horfurnar. Ilann sagði, að skýrslur þessar væri ekki í neinu verulegu atriði frábrugðnar þeim lýsingum, sem birtar væru blöðunum og sjer virt- ust möguleikar Breta til að verj- ast mun betri en fyrir 6 vikum. En þá 1 jet Stimson svo um mælt í ræðu, sem hann flutti, að svo FSAMH. AF ANNARI SÍÐU til þess, að Þjóðverjar hafi flutt nýjar loftvarnabyssur til Ermar- sundsstrandarinnar til að verja heri sína þar. Aðrar borgir, sem sprengjum var varpað á í fyrrakvöld voru: Calais, Ostend, Boulogne, Dunkerque, og Dieppe. Einnig var gerð árás á Cap Gris Nez, þar sem fallbyssustæði Þjóð- verja eru, á Brússel, á skipalest hjá eynni Borkum, þar sem hæfður var þýskur tundurspilli og á borgir í Þýskalandi, Osna- brúck, Hamm, Eirann og Mann- heim, segir breska flugmála- ráðuneytið. 1 tilkynningu þýsku herstjórn- arinnar segir þó, að breskar flugvjelar, sem reyndu að fljúga inn í Þýskaland hafi ver- ið neyddar til að, snúa við. Þýska herstjórnar- tilkynningin. { í tilkynningu herstjórnarinnar segir,, að þýskar flugvjelar hafi í fyrradag, þrátt fyrir óhagstætt úeður, gert harðar loftárásir á London og umhverfi hennar. Tíl dæmis var ráðist á skipakvíarnar í Tilbery og olíustöðvarnar í Port Vietoría. Sprengjur fjellu einnig á olín skip eitt þar á höfninni. Refsiaðgerðunum gegn London e|‘ lialdíð áfram. Víða um borgina eru uppi eldar miklir. Loftárásir hafa einnig verið gerðár á aðrar borgir Englands, sýo sem höfn og skipakvíar í Liv- erpopol. höfnina ,í Neweastle og víðar. í Haldið var áfrain að leggja tund urduflum úr flugvjelum úti fyrir höfnum Bretlands. British Museum hæft. Bretar mistu í gær, að sögn hpfstjórnarinnar, 38 flugvjelar, og voru 24 Skotnar niður í loftárás- uin. Sjálfir segjast Þjóðverjar hafa mist 13 flugvjelar. . Bretar segja að Þjóðverjar .hafi mjs't í fyrradag 48 flugyjelar, en sjálfir segjast þeir hafa mist 12. í loftárásinni á London 1 fyrri- nótt, sem stóð yfir í 9% klst., segja Bretar, að manntjón hafi sennilega verið mikið. Bráða- birgðatölur, sem birtar voru í gær- morgun, herma, að 90 manns hafi farist og 350 særst. Nýjar upplýsingar voru birtar í gær um tjón í London, m. a. er skýrt frá því að sprengja hafi hæft British Museum. Fjöldi manna leitar nú hælis að næturlagi í stöðvum neðanjarðar- - járnbrautanna. Hafa menn með sjer teppi til skjóls. Fólki í London er ráðlagt að hafa glugga sína opna meðan loft- árásir standa yfir, því að þá er síður hætt við að rúður brotni. Dagbók I. O. O.F.ls 1229208V2 &IIIII Næturlæknir er í nótt Daníel Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími 3272. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Næturakstur næstu nótt annast Bifreiðastöð Reykjavíkur. Sími 1720. ‘ víV Trúlofun sína hafa nýlega opin- berað ungfrú Helga Júníusdóttir frá Rútsstöðum í Flóa og Þórir Jónsson frá Seyðisfirði. Hjónaefni. í fyrradag opinber- uðu trúlofun sína á Húsavík ung- frú Guðrún Kristjánsdóttir, Hóli, Húsavík, og Sigurður Baldursson, Lundabrekku, Bárðardal. Útvarpið í dag: 12.00 Hádegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Tataralög. 20.00 Frjettir. !,(;> >o! 20.30 íþróttaþáttur (Steinþór Sig- urðsson). 26.45 Útvarpstríóið: Tríó eftir Mozart (nr. 2, B-dúr). ,21.05 Erindi: Bálfarir og jarðar- farir (Björn Ólafsson kaupm.). 21.20 Hljómplötur: Sónata eftir Beethoven (Op. 27, nr. 1, Es- dúr). 21.45 Frjettir. með meira [prófi og {bilavlðgerð- armaður, [geta fengið atvinnn. — Afgr. vísar á. Móðir okkar, VALGERÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, andaðist á heimili sínu, Kárastíg 8, 18. þessa mánaðar. Börn hinnar látnu. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN JÓNSSON, andaðist 18. þ. m. á Landakots sjúkrahúsi. Jónína Jónsdóttir. Lárus Jónsson. Jón Bach og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.