Morgunblaðið - 20.09.1940, Page 6

Morgunblaðið - 20.09.1940, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 20. sept. 1940, Kvenmaður nauðlega stadd- urá NJartargðtu Sjónarvottar beðnir að koma é Iðgreglustöðina Ifyrrinótt komu tveir menn á lögreglustöðina og skýrðu frá því, að þeir hefðu ekið bíl eftir Njarðargötu sunnan Hringbrautar og orðið þess varir þar, að kven- maður hefði þar verið nauðuglega staddur í höndum bresks her- manns. En er þeir hefðu ætlað að koma henni til hjálpar, hefði hermaður- inn, þó drukkinn væri, miðað byssu sinni á þá, og hefðu þeir því tekið það ráð, að hverfa það- an og segja hvemig komið var. Lögregla, bresk og íslensk, vatt sjer á vettvang og tók með sjer bæði dátann og kvenmanninn, en stúlkan sagði sínar farir ekki sljettar, Hún var að koma heim til sín er hermaðurinn tók hana höndum og dróg hana með sjer niður í mýri. Sáust á klæðum hennar verksummerki eftir svift- ingarnar þeirra í milli. En áður en þeir sem sögðu lög- reglunni frá þessu komu þar að höfðu tveir aðrir menn orðið varir við viðureignina á Njarðargöt- unni, en ekki treyst sjer til að ráðast til atlögu gegn hermanniu- um vegna þess hve hann var vopn- um búinn og gerði sig líklegan til að neyta þess aðstöðumunar. Lögreglan biður þessa tvo menn að koma til viðtals á lögreglu- stöðina. Ánnar skóla- stjórafundur FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. ýmsar fleiri ráðstafanir sem skólastjórunum þykja æskileg- ar. Umræður voru yfrileitt fjör- ugar á þessum fundi og komu þar fram ýmsar hugmyndir og upplýsingar um starf skólanna. Á fimtudag var svo haldinn einskonar framhaldsfundur, og hafði Ágúst H. Bjarnason þar framsögu. Bar hann fram þá tillögu, að skólastjórafundur yrði haldinn í júlíbyrjun næsta sumar. Var gerður að því góð- ur rómur. Ágúst prófessor bar og fram nokkrar tillögur um breytingar á skólakerfi lands- ins, er verða ræddar nánar síð- ar. Fimm manna nefnd var kosin til þess að undirbúa fundinn að sumri, og voru þessir menn kosn ir í nefndina: Ágúst H. Bjarnason formað- ur, Sigurður Guðmundsson skóla meistari fyrir mentaskólana, Ingimar Jónsson fyrir gagn- fræðaskólana, Bjarni Bjarna- son fyrir hjeraðsskólana og Sig- urður Thorlacius fyrir barna- skólana. Flokksstarfsemi Sjðlfstæðisflokksins FRAMH. AF ÞREÐJU SÍÐU. ar. í sambandi við fundarhðldin voru stofnuð 3 fjelög Sjálfstæð- ismanna: í Fellshreppi, Höfs- hreppi og Rípurhreppi. Fyrir 2 fymefndu fjelögin voru kosnar bráðabyrgðastjómir, og í ráði að þær undirbyggju hið bráðasta framhaldsstofnfundi, þar sem end- anlega væri gengið frá lagasam- þyktum og stjómarkosningum. Bráðabyrgðastjórn Fellshreppsfje- lagsins skipa: Eiður Sigurjónsson, Skálá, Pjetur Jóhannsson, Glæsi- bæ, og Tryggvi.Guðlaugsson, Lón- koti; en stjórn Hofshreppsfjelags- ins skipa: Bragi Ólafsson, læknir, Hofsósi, Vilhelm Erlendsson, Hofs- ósi, Jón Konráðsson og Björn Jónsson, Bæ. Stjórn Sjálfstæðis- fjelags Rípurhrepps skipa Magn- ús Gunnarsson, Utanverðunesi, for maður, Björn Jónsson, Keldudal, ritari, og Páll Jónasson, Hróars- dal, gjaldkeri. Auk þessara ný- stofnuðu fjelaga er utvö eldri fje- lög starfandi, á Sauðárkróki og nágrenni og í Akrahreppi. Á trúnaðarmannafundinum fór fram hjeraðsstjórnarkosning Sjált' stæðismanna í Skagafirði, og er hjeraðsstjórnin nú skipuð þessum mönnum: Valgarð Blöndal, póst- afgreiðslumaður, Sauðárkróki, for maður, Pjetur Hannesson, spari- sjóðsstjóri, Sauðárkróki, ritari, Eysteinn Bjarnason, Sauðárkróki, gjaldkeri, Ámi Sveinsson, Kálfs- stöðum, Hólahreppi, Eiður Sigur- jónsson, Skálá, Fellshreppi, Har- aldur Jónasson, Völlum, Seylu- hreppi, Jóhannes Kristjánsson, Brúnastöðum, Lýtingsstaðahreppi, Jón Sigurðsson, Reynistað, Stað- arhreppi, Sigurður Sigurðsson, sýslumaður, Sauðárkróki. Úr Vestur-Húnavatnssýslu. í Vestur-Húnavatnssýslu er aðeins eitt Sjálfstæðisfjelag, „Fjölnir“, á Vatnsnesi. Fyrir forgöngu þess fjelags hefir að undanförnu verið unnið að því að styrkja skipulag flokksstarfseminnar innan sýsl- unnar. Hefir Guðjón Jósefsson frá Ásbjarnarstöðum, formaður fje- lagsins, sýnt mikinn áhuga fyrir því starfi. í sambandi við komu erindreka flokksins var gengið til hlýtar frá skipun hjeraðsnefndar og öðru þar að lútandi. Sunnu- daginn 15. þ. m. var haldinn fund- ur í Sjálfstæðisfjelaginu Fjölni að Illugastöðum. Auk fjelags- manna mættu þar fulltrúar úr öðr- um hreppum. Var rætt um stjórn- málaviðhorfið alment, en auk þess sjerstaklega um skipulag flokks- ins innan sýslunnar. Nutu fund- armenn mikillar gestrisni Guð- mundar Arasonar, bónda á III ugastöðum, og konu hans. Þrátt fyrir það, þó að Sjálf- stæðismenn í Vestur-Húnavatns- sýslu hafi átt við erfiðar aðstæð- ur að etja, ríkir mjög einbeittur áhugi meðal hinna mörgu ágætu fyrirsvarsmanna, sem flokkurinn á þar á að skipa, fyrir því, að efla samtökin með tilliti til þess að geta skapað sterka og hreina flokksafstöðu þegar til þeirra kasta kemur í framtíðinni. 65 ára er í dag Emanuel Cortes prentari. Ávarp skólastjóranna FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. jvirðing þjóðarinnar, sæmd skólanna og sómi hvers nemanda, er í hætfu, ef út af er brugðið.,, Er því meiri ástæða til að minna á þetta af því, að nokkrar mis- fellur hafa orðið á um þessi efni. Verður tekið hart á því, ef skóla- nemendur gerast sekir um ókurteisi eða skort á háttprýði. Frelsið er dýrmætasta hnoss hverrar þjóðar. Því aðeins getur þjóð vor vænst að öðlast það aftur, að hver og einn geri sig þess maklegan með framkomu sinni, og missi aldrei sjónar á baráttu þjóð- arinnar á undanförnum áratugum, nje heldur á því markmði, er allri þjóðinni ber að keppa að. Undirritaðir forráðamenn skólanna heita á liðsinni allra góðra fslendinga að stuðla að því, að halda heilbrigðum þjóðarmetnaði vor- um vakandi og styðja viðleitni vora að glæða með æskulýð landsins drengilegt viðhorf við lífinu og viðfangsefnum þess og trú á framtíð þjóðarinnar og þegnfrelsi. Ágúst H. Bjarnason, prófessor, skólastjóri Gagnfræða- skóla Reykvíkinga. Alexander Jóhannesson, rektor Háskólans. Arngrímur Kristjánsson, skólastjóri Skildinganesskóla, Reykjavík. Bjarni Bjarnason, skólastjóri, Laugarvatni. Björn Guðmundsson, skólastjóri Hjeraðsskólans að Núpi í Dýrafirði. Freysteinn Gunnarsson, . skólastjóri Kennaraskólans. Friðrik Ólafsson, skólastjóri Stýrimannaskólans. Guðjón Guðjónsson, skólastjóri barnaskóla Hafnar- fjarðar. Guðlaugur Rósinkranz, f. h. Samvinnuskólans, Reykjavík. Guðmundur Gíslason, skólastjóri Hjeraðsskólans að Reykjum í Hrútafirði. Hallgrímur Jónsson, skólastjóri Miðbæjarskólans, Reykjavík. Hannibal Valdimarsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans á ísafirði. Helgi H. Eiríksson, skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík, Ingibjörg H. Bjarnason, forstöðukona Kvennaskólans í Reykjavík. Ingimar Jónsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans í Reykjavík. E. Jessen, skólastjóri Vjelstjóraskólans.. Jóhann Frímann, skólastjóri Hjeraðsskólans í Reykholti. Jón Jónsson, skólastjóri Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Jón Sigurðsson, skólastjóri Laugarnesskóla, Reykjavík. Lárus Bjarnason, skólastjóri, Flensborg, Leifur Ásgeirsson, skólastjóri Hjeraðsskólans að Laugum. Oddur A. Sigurjónsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans, Norðfirði. Pálmi Hannesson, rektor Mentaskólans í Reykjavík. Sigurður Guðmundsson, skólameistari, Akureyri. Sigurður Thorlacius, skólastjóri Austurbæjarskólans í Reykjavík. Snorri SiSgfússon, skólastjóri, Akureyri, Vilhjálmur Þ. Gíslason, skólastj óri Verslunarskólans. Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akureyri. Þorsteinn Þ. Víglundarson, skólastjóri Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Björgunin FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Nú lögðumst við upp að hlið tundurspillisins og fóru þeir menn, sem við höfðum bjargað í tundurspillinn. Ekki höfðum við tölu á því, hve mörgum við björguðum. En þeir voru 18 í bátnum eitt sinn er jeg taldi þá. Við áætluð- um að við hefðum náð nokkuð á 3. hundrað manns. En Arin- björn bjargaði úr bátunum nokkuð á 2. hundrað manns. Skipið, sem þarna var á ferð var franskt, hjet Asca og var 8000 smálestir að stærð. Á því áttu að hafa verið 620 manns alls, Englendingar og Frakkar, og nokkuð af blökkumönnum. Þeir dökku báru sig illa. Hinir komu fram sem hetjur. [ Klukkunni seinkaO I nóvember Það hefir verið ákveðið, að sumartími í Englandi skuli enda nóttina milli 16. og 17. nóvember. Verður klukk- unni þá seinkað^um 1 klst. Líklegt er að klukkunni verði seinkað hjer á landi um sama leyti. Maccaroni Núðlur Nýlokið hafa prófi í kvenhatta saumi Árný Guðmundsdóttir, Aust Urstræti 6; Guðfinna Gísladóttir, Austurstræti 14, og Sonja Schmidt, Laugaveg 5. vum Laugaveg 1. Fjölnisveg 2. Athugasemd rikisspítalanna ¥ tilefni af grein herra Ófeigs * ófeigssonar læknis í Morg- unblaðinu 17. þ. m., leyfir skrif- stofa ríkisspítalanna sjer að biðja fyrir eftirfarandi athuga- semd: Við móttöku stállungans greiddum vjer venjulegan kostnað við vörusend- ingar frá útlöndum, eða, sem hjer grein- ir: Kostnað við farmskýrteini o. fl. í Hull £ 0:8:0 Kostnað við vátryggingu £ 1:14:8' Flutningsgjald £ 5:5:0 Uppskipun kr. 7,00 Toll — 130,51 Þar sem aðrar kröfur fylgdu ekVri tækinu, gerðoun vjer ráð fyrir að send- andi hefði nanast um umbúðakostnaö og flutningskostnað til hafnar í Eng- landi. Dráttur sá, ca. 7 vikur, sem varð á því að fá tækið af afgreiðslu Eim- skipafjelagsins, orsakaðist fyrst og fremst af því a ðsótt var til ráðnneyt- isins um undanþágu frá tolli, og eftir að þeirri málaleitun var synjað, drógst afgreiðslan hjá tollstjóra vegna þese, að þar sem tækið var gjöf, var eng- inn reikningur fyrir hendi, og því óvíst af hvað hárri upphæð bæri að greiðai innflutningsgjald. Júnas Kristjánsson FRAMH. AF. FIMTU SÍÐU. okkar og fáum þannig lifandi fæðu í brauðinu. Svo er það græn- metið. Við þurfum að leggja á- herslu á það, og helst að koma því þannig fyrir, að við borðum altaf, eða sem flesta daga ársins eitt- hvað af ósoðnn grænmeti. Þar fá- um við fjörefnin óskemd og málm- sölt þau, sem okkur vanhagar svo um. Margir lifa hjer alla sína æfi í eilífum fjörefnaskorti. Og því fer sem fer. Þeir missa heilsuna. Viðnámsþróttur þeirra gegn ýms- nm sjúkdómum bilar. Og menn lifa engan dag fullhraustir, líta aldrei glaðan dag að heitið geti. Jeg veit þess dæmi, þó jeg í því sambandi vilji ekki nefna nein nöfn, að menn, sem árum samau hafa ekki getað á heilum sjer tek- ið, og hafa verið komnir að heita má á grafarbakkann, þeir hafa rjett við og hafa fengið heilsu og fjör, með þeim einu ráðum að breyta um mataræði og fá holla, ljetta og lifandi fæðu. Smátt og smátt eykst lífsþrótturinn við þetta, og líkaminn eyðir sjúkdóm- um, sem engin meðnl eða læknis- hnífar hafa áður getað spornað gegn. En til þess að breyta mataræði þjóðarinnar gagngert, þarf mikla vinnu, mikinn áróður, miklar leið- beiningar. Jeg ætla að vinna að því, það sem eftir er æfinnar og vona, að jeg hafi góðan tíma, því jeg er ekki nema sjötngur enn, sagði Jónas læknir. V. St. 500 FLUGVJELAR Amerískt flugmálatímarit skýr- ir frá því, að Bretar fái nú 500 flugvjelar á mánuði frá Banda. ríkjunum. Næsta vor er gert ráð fyrir að Bretar fái 1000 flngvjelar mánað- arlega vestan um haf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.