Morgunblaðið - 10.12.1940, Page 7
Þriðjudagur 10. des. 1940.
7
Minning Jðhannesar
Guðmnndssonar
Idag verður til moldar bor-
inn, að Hvammi í Dölum,
Jóhannes Guðmundsson, kenn-
ari frá Teigi.
Hann var fæddur 2. júní
1874, sonur merkishjónanna
Guðmundar Pantaieonssonar og
Guðrúnar Jónsdóttur, er lengi
bjuggu á Ketilsstöðum í
Hvammssveit. Snemma var Jó-
hannes fróðleiksfús og með lítil
>efni, en mikinn áhuga fór hann
í Ólafsdalsskóla og var þar í
tvö ár, hjá hinum þjóðkunna
merkismanni, Torfa Bjarna-
jsyni, skólastjóra.
í Að því loknu lagði Jóhannes
fyrir sig barnakenslu á vetrum,
en ferðaðist á sumrin um land-
ið með dr. Helga Jónssyni og
varð þess vegna manna fróðast-
ur um íslenskan gróður. Árið
1904 kvæntist hann Helgu Sig-
mundsdóttur, frá Skarfsstöð-
lum, hinni ágætustu konu.
! Bjuggu þau í Teigi í Hvamms-
sveit og eignuðust 6 börn og
eru 5 þeirra á lífi. Árið 1927
misti Jóhannes konu sína, og
brá hann þá búi skömmu síð-
ar. Tók hann þá upp fyrri hætti
og stundaði barnakenslu á vetr-
um. Hann dvaldi á sumrum oft-
ast hjer í Reykjavík, hjá Ásu
Benediktsdóttur, er reyndist
, honurn og börnum hans hin á-
gætasta.
Jóhannes unni mjög blómum
og átti sjer fagran garð í
'Teigi. Hann hafði einnig mikið
yndi af söng, og aldrei var
bann ánægðari, en þegar hann
sat við hljóðfærið og hópur
barna og unglinga stóð hjá og
söng.
Jóhannes var góður og vin-
sæll kennari, og ungmennafje-
lagi var hann fram á síðustu ár,
og má af því marka hve vel
hann skildi æskuna. Allir, er
þektu hann, sakna hans. Bless-
uð sje minning hans.
H. S. Þ.
Ny bók handa ungum stúlkum.
ísak Jónsson kennari hefir á und-
anförnum árum samið og þýtt
mafgar bækur handa börnum og
unglingum. Má þar til dæmis
nefna bókina „Gagn og gaman“,
sem hann og Helgi Elíasson sömdu
í fjelagi og „Drengirnir mínir“,
sein ísak þýcidi eftir Geijerstam.
Nú hefir hann þýtt nýja unglinga-
bók, og að þessu sinni handa stúlk-
um. Heitir hún Tvíburasysturnar,
eftir sænska skáldkonu. Bókin er
svo skemtileg, og þó svo látlaust
rituð, að sönn ánægja er að lesa
han*.
Egyptaland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
víglínu Itíi a. Breskir liermenn voru
þama á sv anudaginn án þess að kom-
iö væri auga á þá úr ítölsku könnun-
arflugvjelunum. Aðfaranótt mánu-
dags hjelt herinn síöan í stöðvar rjett
framan við 6 ítalskar herstöövar og
um dögun á mánudagsmorgun hóf
hann sókn. Þegar á fyrstu klukkutím-
unum tókst honum að vinna einaí
hemaðarstöðina.
í fregn frá London í nótt segir,
að auk ítalska flughersins, sem
vai-paði sprengjum á víglínu It-
ala, hafi breski flotinn stutt
sókn lasndhersins.
EKKI Á ÓVART.
Það kemur ekki á óvart, að hern-
aðaraðgerðir skuli hefjast í Egypta-
landi einmitt nú. Síðustu dagana hafa
verið a!jö berast fregnir um að ítalir
kynnu að ætla að vinna upp þann
álitshnekki, sem þeir hafa beðið í Al-
baníu, með því að hefja sókn í Egypta-
landi. En með því að verða fyrri til
a,ð hefja sókn, hafa Bretar getað hag-
nýtt sjer, að koma óvinunum á óvart,
sem er svo mikilvægt í öllum hemaði.
Markmið Breta með því að hefja
sókn kann að vera að greiða Itölum
það högg „sem neyði þá til a,ð draga
sig út úr styrjöldinni“, eins og svo
ákaft hefir verið óskað eftir í Eng-
landi síðustu vikuriiar. Sú skoðun hef-
ir komið fram í Bretlandi, að tæki-
færið hafi aldrei verið betra til þessa
en nú, þegar óánægju er mjög farið
að gæta í Ítalíu, út af ósigrum ítalska
hersins í Albaníu, og þegar ítalski
flotinn liggur í sárum í höfninni í
Taranto.
Grikkland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
Sókn heldur áfram og næsta
stórborgin, sem Grikkir stefna að,
er Vallona. En áður en þangað
kemur verða þeir að ná borginni
Kinnara á sitt vald, sem er nokkuð
sunnar.
En á meðan gríski herinn sæk-
ir fram syðst á vígstöðvunum,
hefir viðnám ítala á miðvígstöðv-
unum og norðurvígstöðvunum, hjá
Pogradec, harðnað. Fregnir frá
Júgóslafíu herma, að Grikkir hafi
jafnvel orðið að hörfa lítið eitt á
jíessum vígstöðvum. En í fregn
frá Aþenu segir, að flóttinn í liði
ítala sje orðinn svo mikill, að fyrst
í stað sje engin hætta á að hann
geti hafið neina verulegá gagn-
sókn.
Árni (rá GeitaskarOi
FRAMH. AF SJÖTTU SÍÐU
ur benda til voru: fyrirhyggja og
glögg útsjón á fjármálasviðinu,
glaðværð og gestrisni. Hann var
uppalinn við þröngan hag, sterka
aðgæslu og því nokkra þröngsýni.
En hann gerðist góður fjelasgmað-
ur og forvígismaður um ýmsa
hluti á því sviði. — Kona Árna,
Hildur Sveinsdóttir andaðist 14.
ágúst 1932 og tók hann sjer missi
hennar mjög nærri, enda þá far-
inn að bila að kröftum, eins og
að líkum ræður. Nú þegar hann
er einnig horfinn, þá hópast
bjartar minningar saman í hug-
um ástvina, kunningja og frænda.
Þær minningar blessa þeir allir
og óska sínum gamla vini friðar
og gleði í hinum nýja heimi.
Jón Pálmason.
MORGuNBLAÐIÐ
(Íj Helgafell 594012107 - VI. - 2.
I.O.O.F. Rb.st. 1 Bþ. 9012108y2.
Næturlæknir er í nótt Gísli Páls-
son, Laugaveg 15. Sími 2472.
Síra Ragnar Benediktsson mess-
ar á Elliheimilinu Grund í kvöld
kl. 8. (Gengið inn um eystri dyr).
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í borgáralegt hjónaband
ungfrú María Guðjónsdóttir versl-
unarmær, Garðastræti 13, og Þor-
lákur Eiríksson frá Borgarfirði
eystra. Heimili þeirra er á Báru-
götu 36.
Hjónaefni. Trúlofun sína opin-
beruðu þ. 6. þ. m. ungfrú María
Júlíusdóttir, Keflavík, og Guð-
mundur Ólafsson frá Hagavík í
Grafningi.
Skíðaferðir um helgina. All-
margt bæjarmanna fór í skíðaferð-
ir um helgina. Var skíðafæri víða
gott, en nokkur ófærð var á Hell-
isheiði.
Prestkosningarnar. Vegna fyrir-
spurna, sem blaðinu hafa borist,
er rjett að geta þess, að Miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins hefir ekki tek-
ið neina afstöðu til í hönd farandi
prestkosninga hjer í bænum. Hefir
flokkurinn aldrei blandað sjer inn
í trúarskoðanir manna, enda eru
meðal stuðningsmanna hans, menn
með gjörólíkar trúarskoðanir.
Miðlunar- og lögfræðiskrifstofu
hafa þeir feðgarnir Geir Gunnars-
son og Gunnar Sigurðsson frá
Selalæk sett á stofn fyrir nokkru
og hafa skrifstofu sína í Hafnar-
stræti 4. í auglýsingu frá þeim á
sunnudaginn var, varð sú mis-
prentun, að Geir var kallaður Sig-
urðsson.
Skrifstofa Vetrarhjálparinnar
er í Tryggvagötu 28 og síminn er
1267. Þar er tekið á móti peninga-
til sðln
hreinn og góður.
M Fljót afgreiðsla — 10-12 smá- j§
lestir á klukkustund.
Útgerðarmenn
pantið sem fyrst.
= Allar upplýsingar gefur 1
| Ólafur O. Guðmundsson, |
H Keflavík. Símar 21 og 71. =>
H.F. ODDGEIR.
Húsmæöur!
Hafið þið gert ykkur grein
fyrir því, hvað dýrtíðin hefir
aukist? Vitið þjer hvaða liðir
það eru, sem helst væri hægt að
spara? Ef þið hafið Heimilis-
bókina við höndina, sjáið þið
þetta fyrirhafnarlaust.
HEIMILISBÓKINA ætti hver
húsmóðir að eiga, og færa í hana
jþó ekki væri nema einn mánuð
á ári. — Það getur sparað yður
meira fje en yður grunar.
Bókin fæst í öllum bókaversl-
unum.
Bókaverslun
Isafoldarprentsmiðju.
g.jöfum og hverskonar öðrum gjöf
um til starfseminnar.
Afgreiðsla Morgunblaðsins tek-
ur á móti peningagjöfum til Vetr-
arhjálparinnar.
Háskólafyrirlestur flytur dr.
Símon Jóh. Ágústsson í 3. kenslu-
stofu Háskólans í dag kl. 6.15.
Efni: Stöðuval. Öllum heimill að-
gangur;
Bæjarráð hefir falið borgai*-
stjóra að bera fram mótmæli við
rjetta hlutaðeigendur yfir því að
byrjað er á byggingu á lóðinni nr.
6 við Túngötu. Telur bæjarráð ó-
hæft að hús verði reist á þessum
stað.
Hálkan. Góður borgari bæjarins
hringdi í gær og hað Morgunblað-
ið að minna stjórnarvöld bæjar-
ins á hálkuna á götunum.
Bátafjelagið „Björg‘‘ hefir sent
bæjarráði brjef og kvartað yfir
aðbúnaði smábáta hjer í höfninni.
Bæjarráð vísaði málinn til hafn-
arstjórnar.
Þrjár nýjar barnabækur koma
á markaðinn í dag: Trölli, ævin-
týr með myndum eftir Atla Má og
Árna Óla, saga um tröllbarn og
gerist á afrjetti Borgfirðinga. Er
það bók, sem á engan sinn líka,
svo er hún frábrugðin öðrum
barnasögum. Onnur bókin er
Ljósmóðirin í Stöðlakoti eftir
Árna Óla, og með myndum eftir
Atla Má Ámason. Er það huldu-
fólksævintýr, sem gerist hjer í
Reykjavík og Beneventum. Um
báðar þessar bækur má segja það,
að þær ern ramíslenskar að efni
og sækja það í íslenskan ævin-
týraheim. Þriðja bókin er Sæmund
ur fróði með myndnm eftir Jó-
hann Briem. Eru þar birtar flest-
ar þjóðsögurnar um þennan merki-
lega íslenska töframann, en endur-
sagðar svo, að þær eru við barna
og unglinga hæfi.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
12.55 Tíundi dráttur í happdrætti
háskólans.
19.00 Enskukensla, 2. fl.
19.25 Hljómplötui*: Lög úr óper-
ettum og filmum.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Ungir rithöfundar
á Norðurlöndum (Kristmann
Guðmundsson rithöf.).
10.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
a) Tríó í D-dúr, eftir Haydn.
b) Tríó, Op. 11. B-dúr, eftir
Beethoven.
21.30 Hljómplötur; „Don Quix-
ote“, tónverk eftir Richard
Strauss.
22.05 Frjettir.
Hjálparbeíðní
jer í bænum er fátæk
kona á sextugs aldri,
sfem er algjör einstæðingur.
Hún hefir orðið fyrir því sjúk-
dómsáfalli, að hún kemst ekki
hjáiparlaust úr herbergi sínu,
og hún hefir ekki annað af að
lifa, en þær örorkubætur sem
henni eru veittar. Hún er altaf
ein nema þá sjaldan einhver
kunnugur lítur inn til hennar,
og ekkert getur hún unnið í
höndunum sjer til dægrastytt-
ingar og gagns. Eins og skilj-
anlegt er, finst henni dagarn-
ir langir í einverunni. Ef ein-
hverjir kynnu að vilja láta fá-
einar krónur af hendi rakna til
þess að kaupa ódýrt útvarps-
tæki handa þessari bágstöddu
konu, mun Morgunblaðið veita
þeim viðtöku og koma þeim til
skila.
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist að heimili okkar, Vífilsgötu 15, í gær, 9. desember.
Jóhs. Sigurðsson og dætur.
Móðir mín,
MARGRJET TÓMASDÓTTIR,
andaðist að morgni hins 9. þ. m. að heimili sínu, Ingólfi við
Ölfusá.
Einar Loftsson.
Þökkum hjartanlega öllum þeim mörgu, er sýndu okkur
samúð og vinarþel við ándlát og jarðarför sonar okkar og
bróður,
ÞORLEIKS HALLDÓRSSONAR (TOLLA LITLA)
Guð blessi ykkur öll.
Ásbyrgi, Hafnarfirði, 9. des. 1940.
Margrjet Sigurjónsdóttir. Halldór M. Sigurgeirsson.
Hrafnhildur Halldórsdóttir.
Þökkum innilega öllum, f jær og nær, fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug, þegar við mistum elskulegan son okkar og bróður,
GUNNAR ÓLAF.
Björg Ólafsdóttir, Haraldur Jónsson og börn.
Þökkum auðsýnda margháttaða hjálp, samúð og vináttu,
í veikindum og við andlát og jarðarför
ÞÓRU
dóttur okkar.
Sólveig Jónsdóttir, Valgeir Bjarnason, Höfn, Hornafirði.