Morgunblaðið - 28.12.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.12.1940, Blaðsíða 3
Laugardagur 28. des. 1940. M O K (j U :V B L A • t> 3 Sjómenn stríðs- vátrygðir við strendur landsins Reglugerð sem vantar þó allan grundvöll undir ÞAÐ er svo fyrir mælt í lögum um stríðsvá- tryggingar sjómanna, að fjelagsmálaráðherra geti með reglugerð ákveðið ný hættusvæði, sem lögin skuli ná til. Hingað til hafa, sem kunnugt er, lögin aðeins náð til siglinga milli landa. En með reglugerð, sem fjelagsmálaráðherra gaf út á að- fangadag .jóla, er svo fyrir mælt, að allur sjórimi við strendur Is- lands skuli vera hættusvæði. En það þýðir, að sjómenn við fiskveiðar á miðunum og við siglingar með ströndum fram, skulu hjer eftir vera stríðsvátrygðir. Þetta nær þó aðeins til skipa, sem eru lögskráning- arskyld. En hvernig verður þessi trygg- ' t /' ;' ;; ff f • ' Breskt orustubeitiskip ÞaS eru engin smáverkfæri fallbyssurnar á stóru, bresku orustuskipunum ,,Renown“ og „Repulse". Þessi mynd er tekin um borð í „Repulse“ og sýnir fram fallbyssurnar og stjórn- turninn. Á þilfari sjást sjóliðar, sem hafa stilt sjer upp til liðskönnunar. Kaupgjaldsmálln Sáttasemjari fær togarafjelðgin TOGARAFJELÖGIN hafa sent kaupgjaldsmál sín til sáttasemjara, með ósk imi, að hann reyni að finna lausn þeirra. Dagsbrún hefir tilkynt Vinnuveitendafjelaginu, að vinnu- stöðvun hefjist frá áramótum, ef ekki verður komið sam- komulag fyrir þann tíma. Síðdegis í gær fóru fram viðræður milli stjórna Vinnu- veitendafjelagsins og Alþýðusambandsins, en þar gerðist ekk- ert sem í frásögu er færandi. Áður hafði samninganefnd Dagsbrúnar rætt við stjórn Vinnuveitendafjelagsins. Full- trúar frá Iðju (fjelagi verksmiðjufólks) og Fjelagi ísl. iðn- rekenda ræddust einnig við í gær. Fulltrúar Prentarafjelags- ins og Fjelags prentsmiðjueigenda hafa setið á nokkrum fundum undanfarið. Annars er ilt, að samningsaðilar dragi til síðustu stund- ar að ræða málin, því að oft vill hlaupa snurða á meðan á samningum stendur, sem hægt er að leysa, ef nægur tími er til, en verður erfiðara viðfangs, eftir að vinnustöðvun er komin á. ing í framkvæmd og liver er grundvöllurinn, sem hún hvílir á ?, munu menn spyrja. Moorgunblaðið spurðist einnig fvrir um þetta í gær hjá stjórnendum tryggingar- stofnunarinnar og svöruðu þeir, að ekki væri búið að ganga frá þessu ennþá. Virðist það harla undarlegt af f jelagsmálaráðherra, að tilkynna þessi hættusvæði, án þess áður að vera búinn að koma sjálfri trygg- ingunni í lag. En tryggingin er alls ekki komin í lag og enginn grundvöllur fenginn undir hana ennþá. Gegnir satt að segja furðu, að fjelagsmálaráðherrann skulí gefa út svona reglugerð, án þess að undirbúa málið rækilega áður. Því varla er sá tilgangurinn hjá ráð- herra, að með þessu eigi að tor- velda samningana milli útgerðar- manna og sjómanna, sem nú standa fyrir dyrum í flestum eða öllum verstöðvum landsins. En Alþýðublaðið notar þessa reglu- gerð fjelagsmálaráðherra í gær, til þess að hvetja sjómenn, að gera nú nýjar kröfur um áhættuþókn- un, og láta sjer ekki nægja stríðs- vátrvggingnn a. En þetta gæti vit- anlega orðið deiluatriði, sem erfitt yrði að leysa í skjótri svipan. Pylsuvagnarnir fluttir í Kolasund Pylsuvagnarnir, sem hafa hingað til verið við suð- ur- og austurhlið Útvegsbank- ans verða nú að víkja þaðan samkvæmt ákvörðun bæjarráðs. Þetta var samþykt á síðastá fundi bæjarráðsins. Bæjarráð hefir ætlað pylsu- vögnunum stað í Kolasundi. Hitler i Berlin Hitler var í Berlín í gær. Heimsótti hann Lutze foringja þýska stormsveita- liðsins í tilefni af fimtugsaf- mæli hans. VerOur hættu- svæðiO fyrir VestfjðrOum minkað? Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefir fengið, eru sterkar líkur til þess, að hættusvæðið fyrir Vestfjörðum verði minkað nú alveg á næstunni, þannig, að suðurtakmörk svæðisins færist norður um 20' (mínútur). Ef þessi breyting verður gerð, sem góðar horfur eru á, verða miðin fyrir suðurfjörðunum — Önundarfirði og Súgandafirði —utan við hættusvæðið og geta bátar þá farið að stunda veið- ar þar. Suðurtakmörk svæðis- ins verða þá við ísafjarðardjúp, en bátar úr verstöðvunum við Djúpið geta farið á suðurmiðin. Breyting þessi á hættusvæðinu myndi því verða til mikilla hagsbóta fyrir Vestfjarðabáta. Ekki er enn búið formlega að tilkynna þessa breytingu á hættusvæðinu og meðan það er ógert, gilda hin fyrri takmörk svæðisins. „Sumarg jöf“ f ær 5000 kr. styrk frá bænom Bæjarráð samþykti á síð- asta fundi sínum að veita barnavinafjelaginu „Sumar- gjöf“ 5000 króna styrk úr bæjarsjóði til í starfrækslu barnaheimilis í Vesturborg nú í vetur. Fje þetta á að færa til gjalda á reikningi bæjarins 1940. Bæjarráð hefir sýnt hjer enn einu sinni verðugan skilning á starfsemi „Sumargjafar". Bjarni Jónsson læknir kemur beim Samkv. upplýsingum, sem Morgunblaðið fjekk í gærkvöldi, er nú svo komið mál Bjarna Jónssonar læknis í Eng- landi, að hann er í þann veginn að losna úr haldi þar og mun koma heim innan skamms. Bjarni læknir var, sem kunn ugt er, einn þeirra þriggja Esju farþega, sem ekki fengu að fara í land hjer, en voru flutt- ir til Englands, til framhalds- rannsóknar þar. Hinir tveir voru ungir sjómenn, sem komu um borð í Esju í Þrándheimi. Áður var komin fregn um það, að þeir væru lausir, og væntan- legir heim með fyrstu ferð. María Markan í Ameríku Al" aría Markan, hin ágæta óperusöngkona vor, er um þessar mundir í Ameríku, og er að öllum líkindum á söng- ferðalagi um Kanada nú: Faðir hennar, Einar Mark- ússon fjekk símskeyti frá söng- konunni á aðfangadag, þar sem hún segist vera stödd hjá vin- um sínum í Vancouver, vera ráðin að syngja þar með sym- phoniuorkestrum og víðar, en næst í Winnipeg. María Markan hefir sem kunnugt er undanfarna mánuði verið á ferðalagi í Ástralíu og sungið þar í helstu borgum álf- unnar. Frjettist af henni þar síðast í september síðastliðn- um og ljet hún þá vel yfir sjer. Alstaðar þar sem María Markan hefir komið, hefir hún getið sjer góðan orðstír. „Armbjörn hersír“ lítíð skemdur Meídsíí sjómann- anna smávægííeg C amkvæmt skeyti, sem ríkis- k-'1 stjórninni hefir borist frá Pjetri Benediktssyni sendi- fulltrúa í London, er togarinn „Arinbjörn hersir“ lítið skemd- ur, eftir loftárásina á sunnu- daginn var. Mun togarinn fá í Skotlandi þá viðgerð, sem með þarf, en síðan koma heim. Eins og getið var um í síð- asta blaði, gerði ríkisstjórnin fyrirspurn um meiðsli sjómann- anna á togaranum. Svarið var, að 5 menn hefðu meiðst, en enginn hættulega og liði þeim öllum vel. Mennirnir, sem middust eru: Guðjón Eyjólfsson, ólafur Ingvarsson, Guðmundur R. Ól- afsson, Jón Kristjánsson og Guðmundur Helgason. Allir þessir menn munu verða ferðafærir með togaran- um heim, nema tveir, sem bú- ist er við að dvelja þurfi á spítala 2—3 vikur. Hverjir þessir tveir eru, veit Mbl. ekki. Flugstyrkur Þjóðverja Breskur flugmálasjerfræð- ingur, Oliver Stuart, sem oft flytur erindi um flugmál í breska útvarpið áætlaði í erindi sem hann flutti í gær, að Þjóð- verjar ættu í lok ársins 1940 innan við 6 þús. starfhæfar („fyrstu herlínu“) flugvjelar, en um 35 þús. flugvjelar, ef allur flugfloti þeirra er talinn, þar með æfingaflugvjelar og varaflugvjelar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.