Morgunblaðið - 25.03.1941, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. mars 1941.
Júgóslafnesku ráðherrarn-
ir fóru til Vínar í gærkvöldi
Vndirskriít á
hádegi í dag
HÖRÐUSTU ÁTÖKUNUM, sem um getur í
hinni diplomatisku orustu um Balkanskag-,
ann, virðist nú vera lokið, með því að Júgó-
slafar ætla að undirskrifa einhverskonar vináttusáttmála
við Þjóðverja. Samhljóða fregnir frá Berlín og London í
nótt hermdu, að Dragisha Cvetkovic, forsætisráðherra og
Cincar-Markowitsch, utanríkismálaráðherra Júgóslafa
hefðu lagt af stað í einkalest frá Belgrad, áleiðis til Vínar-
borgar kl. 10 í gærkvöldi.
í för með ráðherrunum var von Heeren, sendiherra
Þjóðverja í Belgrad. Búist er við því, að þeir verði komnir
nógu snemma til Vínarborgar, til þess að hitta þar von
Eibbentrop og undirskrifa ásamt honum samning á há-
degi í dag.
Þýska frjettastofan (D. N. B.) skýrir frá því, að ýmsír helstu
ráðherrar Júgóslafa, ásamt sendiherrum ítala, Rúmena og Búlg-
ara, hafi verið staddir á brautarstöðinni í Belgrad þegar ráð-
herrarnir lögðu af stað.
dr. Matchek, foringi Króata og varaforsætisráðherra, gegnir
störfum forsætisráðherra í fjarveru Cvetkovic.
Yfir helgina hafa átt sjer stað miklar stjórnmálaviðræður
í höll Páls ríkisstjóra, „hvítu höllinni“ í Belgrad, og á meðan
beið aukalestin á járnbrautarstöðinni, sem flytja átti júgóslaf-
nesku ráðherrana til Vínarborgar. Stjórnmálaviðræðurnar mið-
uðu að því að fylla upp í skörðin, sem urðu í ríkisstjórninni
við það, að þrír af serbnesku ráðherrunum sögðu af! sjer.
» Það var ekki fyr en í gær, að tekist hafði að finná nýjan land-
búnaðarmálaráðherra og nýjan fjelagsmálaráðherra. En þriðji ráð-
herrann, dómsmálaráðherrann, sá sig um hönd og tók aftur lausnar-
beiðni sína.
Síðdegis í gær kom stjórnin saman á fund, þar sem hinir nýjn
ráðherrar voru viðstaddir, og voru þá undirbúnir til hlítar samning-
arnir við Þjóðverja. Einnig er talið, að i’ædd hafi verið orðsending,
sem Ronald Campbell, sendiherra Breta í Belgrad afhenti júgóslaf-
nesku stjórnnni í gær.
Samkvæmt fregn frá Kairo,
en þar er Mr. Eden, utanríkis-
málaráðherra Breta enn stadd-
ur, var í orðsendingu þessari
beht á hina vinsamlegu sam-
búð, sem verið hefði með Bret-
um og Júgóslöfum frá því heims
styrjöldinni lauk. í orðsending-
unni er júgóslafneska stjórnin
vöruð við því, að hún muni ekki
bíða þess bætur, ef hún fylgi
nú í fótspor Búlgara og Rúm-
ena og geri bandalag við öxuls-
ríkin.
Stjórnmálamenn í London benda.
'-á, að hversu sem samning þeim,
sem Júgóslafar hafa fallist á að
undirskrifa iíreð Þjóðverjum, sje í
hóf stilt.' þá hljóti þessi samning-
ur að verða upphafið að yfirdrotn-
un . Þjóðverja-í Júgóslafíu. Ef
einnig á það bent, að breslca
stjórnin hafi hvað eftir annað
gert grein fyrir skoðunum sínum
við júgóslafnesku stjórnina, og að
það sje sjálfsblekking tóm, ef hún
heldur nú, að breska stjórnin
muni geta sætt sig við samning
þahn, sem Júgóslafar eru nú um
það bil að gera við Þjóðverja.
í London er því haldið fram, að
andúðin meðal almennings í Júgó-
slafíu gegn því, að gert sje nokk-
urt bandalag við Þjóðverja, sje
að breiðast út. Er einkum talao
um öfluga andúðaröldu í Monten-
egro (við landamæri Albaníu) og
víða í sveitum.
Breskar frjettastofufregnír
herma, að rnikil andíið < hafi verið
látin í ljós í borgum, þar sem vara-
lið hefir verið kvatt tii vojfna síð-
ustu dagana.,
Aðrar fregnir herma, að flug-
miðum liafi verið dreift í Belgrad
í gærkvöldi, þar sem því er hótað
að mvrða þá ráðherra, sem undir-
skrifa samninga við-Þ.jóðverja.
í þýskum fregnum er það borið
til baka, að nokkur ókyrð eigi
sjer stað í Júgóslafíu. Er því
lialdíð fram, að hjer sje um áróð-
ursfregnir að ræða, sem dreift sje
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Grikhir trúa ekki —
Gríska útvarpið sagði í gær-
kvöldi, að Grikkií- fengjust
ekki til að trúa því, að .Túgóslaf
ar ætluðu að gera samning við
Þjóðverja, sem setti smánarblett
á heiður þeirra, og væri, með til-
liti til þess, að gert er ráð fyrir
að Þjóðverjum verði leyft að
flytja hergögn vfir Júgóslafíu,
fjandsamlegur í garð Grikkja.
Vfirlýsiog Rússa og Tyrkfa
Sitja hjá ef á
annaðhvort ríkið
verður ráðist
Opinberar stjórnaryfirlýsingar voru birtar samtímis í
Moskva, höfuðborg Rússlands og Ankara,höfuð-
borg Tyrklands, í gærkvöldi um afstöðu Rússa og Tyrkja,
ef svo skyldi fara, að á aðra hvora þjóðina yrði ráðist.
í yfirlýsingu Rússa segir, að ef ráðist verður á Tyrki, eða
ef þeir á annan hátt dragast inn í styrjöld, þá muni Sovjet-
stjórnin sýna þeim fullan skilning og ekkert aðhafast, sem
orðið getur þeim til tjóns, og gæta fullkomins hlutleysis.
f yfirlýsingunni, sem gefin var út í Ankara, er lýst yfir ein-
lægu þakklæti fyrir þetta loforð Rússa, og því bætt við, að
Rússar geti, ef svo skyldi fara að þeir lentu í eitthvað svip-
aðri aðstöðu, treyst því að Tyrkir muni sýna þeim fullan
skilning.
10 þúsund eld-
sprengjum varp-
sð yfir Berlfn
Bretar sendu pólska flug-
menn til að gera 38. loft-
árásina á Berlín í fyrrinótt. Á
meðan pólsku flugmennirnir
vörpuðu 10 þús. eldsprengjum
og mörgum þungum tundur-
sprengjum yfir höfuðborg
Þýskalands, var tiltölulega kyrt
yfir Englandi. Þjóðverjar skýra
ekki frá neinni stórárás á Eng-
Iand í fyrrinótt.
Breska flugmálaráðuneytið
skýrir frá því að tundursprengj-
urnar er varpað var yfir Berlín,
hafi verið af annari og þyngri
gerð, en nokkru sinni hafi verið
slept áður yfir þýskar borgir. I
fylgd með pólsku flugmönnun-
um voru breskir flugmenn, sem
gert höfðu oft áður loftárás á
Berlín, og breska flugmálaráðu-
neytið skýrir frá því, að flug-
mennirnir hafi, þrátt fyrir ákafa
loftvarnaskothríð flogið hvað
eftir annað fram og aftur yfir
miðbik borgarinnar.
Frjettaritari amerísku „Nati-
onal Broadcasting“ stofnunar-
innar í Berlín símar, að sjer
hafi virst árásin hafa verið gerð
af einstökum breskum flugvjel-
um, en ekki flugvjelahópum. —
Frjettarítarinn vitnar í þýsku
herstjórnina og segir, að aðeins
fáum flugvjelum hafi tekist að
brjóta sjer leið alla leið leið til
Berlín.
Bretar segja að margir eld-
ar hafi komið upp og að flug-
mennirnir hafi haft not af þeim,
eins og þeir væru ljósker. Slug-
mennirnir eru m. a. sagðir hafa
flogið yfir Unter den Linden.
Malzuoka ræðlr
við Stalin
„Mikilvægasta
§porið“
Matzuoka, utanríkismálaráð-
herra Japana, var í Moskva
í gær, en fór þaðan í gærkvöldi
áleiðis til Berlínar. Hann er vænt
anlegur til Berlínar á morgun.
Síðdegis í gær átti Matzuoka
klukku.stundar samtal við Molo-
toff, forsætis- og utanríkismála-
ráðherra Russa og var Stalin sjálf
ur yiðstaddur, ásamt sendiherra
Japana, Tatekawa. Opinbérlega er
látið í veðri vaka, að hann hafi
farið á fund Molotoffs til að
þakka honum fyrir þá velvild, að
leyfa honum að ferðast yfir Sov-
jet-Rússlands, en talið er að rætt
hafi verið um samninga Rússa og
Japana, sem nú hafa staðið yfir í
nokkra mánuði.
Fr.egnir hafa borist um, að Mat-
. zuoka muni hafa lengri viðdvöl
í Moskva, þegar hann fer aftur
heimleiðis. %
, í gærmorgun sat Matzuoka ár-
degisveislu hjá von ScKulenburg,
sendiherra Þjóðverja í Moskva.
Viðstaddir voru sendiherrar ítala,
Ungverja, Rúmena og Búlgara.
Skömmu áður en Matzuoka hjelt
áfram ferð sinni til Berlín, fór
hann í kurteisisheimsókn til sendi-
herra Breta, Sir Staffords Cripps
og sendiherra Frakka.
í samtali sem ráðherrann átti
við þýska blaðamenn í Moskva í
gær, sagði hann að með þrívelda-
bandalaginu hefðu Japanar stigið
mikilvægara spor í utanríkismál-
um, en þeir hefðu nokkru sinni
gert áður.
Úrslltaorusta
um Keren
hatin?
U regnir frá Kairo í nótt
* hermdu, að stórorustur stæðu
nú 6—8 km. frá Keren. í tilkynn-
ingu herstjómarinnar í Kairo í
gær var skýrt frá því, að undan-
farna daga hefði 7 gagnáhlaup-
um ftala hjá Keren verið hrund-
ið og að hernaðaraðgerðir þær,
sem Bretar hefðu nú getað byrj-
að aftur, gengju samkvæmt á-
ætlun.
í Kairo-fregninni í nótt var
skýrt frá því, að ítalir berðust
vasklegar hjá Keren, heldur en
nokkurntíma áður, síðan sókn
Breta í Afríku hófst.
í Abyssiníu miðar sókn Breta
einnig áfram. Er nú járnbrautinni
frá Addis Abeba til Djibouti, einu
járnbrautinúi í Abyssiníu, nokkur
hætta búin frá bresku hersveit-
unum, sem sækja norður á bóginn
frá Jajiga. Breskar flugvjelar
hafa gert nokkrar árásir á braut-
ina og truflað þar samgöngur, eu
þó aðallega valdið tjóni á flutn-
ingalestum Itala.
Bretar sækja fram á 12 víg-
stöðvum í Abyssiníu.
Það var tilkynt í Nairobi (Ke-
nyu) í gær, að alt breska Somali-
land væri nú alt á valdi Breta.
7 miljarða frumvarpið
orðið að löguin „með
amerískum hraða"
Amerísk sjóflugvjel var í
gærkvöldi á leiðinni suður
Karabiska hafið, með frum-
varpið um 7 miljarð dollara
fjárveitinguna til framkvæmda
á ákæðum láns- og leigulag-
anna. Frumvarpið hafði verið
samþykt í öldungadeild Banda-
ríkjaþings fyr um daginn með
69 atkvæðum gegn 9, og vant-
aði þá ekki annað en und-
irskrift Roosevelts til þess að
það yrði að lögum.
Roosevelt er staddur um borð
í snekkju sinni „Potomac" í
Karabiska hafinu, og sjóflug-
vjelin var því send með frum-
varpið, til þess að engin töf yrði
á því, að það yrði að lögum.
Loftfiernaðurínn
Engar stór-árásir voru gerð-
ar á England úr lofti í nótt
(að því er fregnir frá London
herma). Er þetta önnur nóttin
í röð, sem Þjóðverjar sýna sig
ekki.