Morgunblaðið - 25.03.1941, Síða 7
í>riðjudagur 25. mars 1941.
MORGUN BLAÐIÐ
n
Fundahöld um
siglingarnar
TT' ulltrúar útgerðarmanna og
sjómanna hafa undan-
farna daga verið á fundum til
þess að ræða um siglingamálin,
Og stýrir atvinnumálaráðherra
þeim umræðum.
Ekkert er hægt, að svo stöddu
að segja frá því, sem gerst hef-
ir á fundum þessum, enda eru
engar fullnaðarályktanir tekn-
ar. En eitt er víst, að á fundum
þessum hefir ríkt algerð eining
allra um það, að siglingar verði
ekki teknar upp að nýju fyrri
en sjeð er fyrir auknu öryggi
á sjónum.
Farið er nú að skipa upp
fiski úr skipum þeim, sem hlað-
in voru til útflutnings, er sigl-
ingar teptust.
Málfundafjelagið „Þór“ í Hafn-
arfirði hjelt fund s.l. sunnudag.
Gunnar Thoroddsen prófessor
flutti erindi á fundinum um upp-
haf og þróun verklýðshreyfingar-
innar. Yar erindið ítarlegt og var
ræðumanni tekið afburðavel. —
Fundurinn var vel sóttur. Fund-
urinn samþykti eftirfarandi til-
lögu: „Fundur í málfundafjelag-
inu Þór í Hafnarfirði lýsir yfir
fylstu ánægju sinni með útgáfu
blaðs Landssambands sjálfstæðis-
verkamanna og sjómanna og heit-
ir blaðinu fylsta' stuðningi sínum
í framtíðinni“.
ei
3E
KAUPI OG SEL
allskonar .
Verðbrfef og j
fasfeignir.
Símar 4400 og 3442.
Garðar Þorsteinsson.
Bollapðrákr.1.10
iVatnsKlös á kr. 0.55
Bollastell 6 m. á — 25.00
Tekatlar á — 2.90
Matardiskar dj. og
gr. á — 1.50
Desertdiskar á — 1.00
Vaskaföt á — 2.35
Náttpottar á •— 3.15
Hræriföt á — 3.00
Uppþvottabalar á — 6.25
Handsápa á — 0.50
K. Einarsson k Björnsson
Bankastræti li.
| Corn Flnkcs
| , AII Bran
Cocomalt
i W1 ^ i
Í Laugavefi- 1. Fjölnisveg 3
Þý§ka herstjórnar*
fil kynningin
Skip skotin I kaf við
Færeyjar, Orkneyjar
og Shetlandseyjar
Þýska herstjórnin tilkynnir:
K ýskur kafbátsstjóri hefir sent
*■ skýrslu, um að hann hafi
sökt 27.500 smálestum af kaup-
skipastól óvinanna. Meðal skip-
anna, sem sökt var, voru þrjú olíu-
flutningaskip.
Þýski flugherinn hjelt einnig
áfram með góðum árangri árás-
nm á hresk skip í Norðursjónum,
í Atlantshafi og í Miðjarðarhafi.
Yið Orkneyjar og Færeyjar var
tveim litlum kaupskipum, samtals
2500 smálestir, sökt af þýskum
könnunarflugvjelum. Ráðist var á
6 þús. smálesta vopnað kaupfar úr
lítilli hæð á svæðinu við Shetlands-
eyjar.
í Miðjarðarhafi, í suður frá
Krít rjeðust þýskar flugvjelar á
tvö bresk kaupskip, sem hvort
var um 6 þús. smálestir. Annáð
þeirra var olíhflutningaskip, og
síðast þegar sást til þess, var það
að sökkva. Hitt kaupskipið lá
hreyfingarlaust, mjög alvarlega
laskað.
I gær gerðu þýskar steypiflug-
vjelasveitir tvær árangursríkar á-
rásir á höfnina í Valetta. Fimm
stór bafskip voru hæfð með
sprengjum af þungri og þyngstu
gerð. Ljett beitiskip var hæft með
þremur sprengjum. Hafnarmann-
virki voru eyðilögð, og einnig olíu-
birgðastöð. ítalskar orustuflugvjel-
ar, sem voru í fylgd með þýsku
steypiflugvjelunum, er rjeðust á
Valetta, ásamt þýskum orustuflug-
vjelum, skutu niður í loftbardög
um fjórar breskar flugvjelar af
Hurrieane-gerðinni.
Þýskar könnunarflugvjelar í
Norður-Afríku rjeðust á herstöðv-
ar Breta með sprengjum, vjelbyssu
skothríð og fallbyssuskothríð.
Kveikt var í olíuvögnum við járn-
brautarstöð eina. Eldarnir, sem
komu upp í árás þessari, sáust
úr flugvjelunum, er þær voru á
heimleið, úr meir en^tOO. km. fjar-
lægð.
Þýskar og ítalskar vjelahersveit
ir fóru sameiginlegar könnunar-
ferðir í austurhluta Sirte eyði-
merkurinnar (Tripoli).
í Búlgaríu heldur för þýska
hersins áfram samkvæmt áætlun.
prjár breskar flugvjelar komu
í ljós yfir ströndum Hollands seint
í gærkvöldi. Skutu þýskar orustu-
flugvjelar niður tvær þeirra, af
Bristol-Blehheim-gerðinni, í loft-
bardaga.
Breskar fhfgvjelar flugu yfir
Norður-Þýskaland í gærkvöldi og
rjeðust á höfuðborg Þýskalands.
Tundursprengjum og eldsprengj-
um var slept úr mikilli hæð á ýms
íbúðarliverfi í Berlín. Eldar komu
upp á mörgum stöðum í þakher-
bergjum, en ekkert hernaðarlegt
tjón hlaust. Nokkrir óbreyttir
borgarar fórust eðá særðust.
Flugvjelatjón Breta í gær nam
þrem' flugvjelum, til viðbótar við
orustuflugvjelarnar fjórar, sem
skotnar vöru niður yfir Miðjarðar
bafi. Þjóðv. mistn 6 flugvjelar.
Júgóslafía
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
í því augnamiði, að reyna að vekja
ókyrð.
En fregnir frá New York í gær-
kvöldi liermdu,,að öll orlöf í júgó-
slafneska hernum hafi verið af-
numin frá miðnætti í nótt. Einnig
er öll lögreglan í Belgrad sögð
höfð viðbúin allan sólarhringinn.
Það hefir verið talið, að herfor-
ingjar í júgóslafneska hernum
væru andvígir öllum samning-
um við Þjóðverja. En með tilliti
til þess, að hermálaráðherrann í
stjórn Cvetkovic, sem sjálfur er
hershöfðingi, hefir stutt ákvarðan-
ir stjórnarinnar, er búist við því,
að þær hafi verið gerðar með sam-
þykki júgóslafneska herforingja-
ráðsins.
Dagbók
eooaootooooo oooooooooooo
□ Edda 59413257 = 7.
I. O. O. F. Rb.st. 1 Bþ. 903258i/2
Næturlæknir er í nótt María
Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17.
Sími 4384.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Næturakstur: Bæjarbílstöðin. —
Sími 1395.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína, ungfrú íva
Bjarnadóttir og Halldór Björnsson
bílstjóri.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur lieldur fund annað kvöld.
Prófessor Guðbrandur Jónssojn
flytur erindi, er hann nefnir
„Tómatsósuglasið“.
Blað Sjálfstæðisverkamanna.
Lýðfrelsið, blað Sjálfstæðisverka-
manna, 3. tolubl. er komið út.
Helstu greinar þess eru þessar:
Breyting á kjördæmaskipunihni ér
aðkallandi nauðsyn, Alþýðusam-
bandið 25 ára, Hlutdeild í ágóða,
Stefna fólksins, Frjettaágrip o. fl.
Er blaðið bið læsilegasta.
Sænski sendikennarinn fil. mag.
Anna Osterman flytur fyrirlest-
ur í fyrstu kenslustofu háskólans
annað kvöld kl. 8.15. Efni: íslensk
endurnýjunaráhrif í sænsku menn-
ingarlifi á 19. öld. (Upplestur).
Fimleikasýningar heldur Glímu-
fjelagið Ármann í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar í kvöld kl.
8.30. Sýna þar úrvalsflokkar karla
og kvenna. Fyrst sýna 20 karlar
úr I. fl. alhliða þjálfunar og lið’k-
unaræfingar. Þá sýnir kvenflokk-
ur staðæfingar og jafnvægi á
hárri slá og loks sýnir úrvalsflokk
ur karla staðæfingar, dínustökk
og fimleika við áhöld.
Skíðaferðir. Skíðafjelogin efndu
til skíðaferða nm helgina, en þátt-
taka var frekár lítil. Langt er að
sækja í snjó, en á háfjöllum var
ágætt færi.
f frásögn um skíðamót á Akur-
evri hjer í blaðinu nýlega, var
sagt frá því, að svigbrautin hafi
verið 40 metrar, én átti vitanlega
að vera 400 m.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
20.30 Erindi: Sjávarhiti og dýralíf
í Norðurhöfum II. (Árni Frið-
riksson).
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó í a-moíl, op. 50, eftir Tsjai-
kovsky.
21.40 HljómplöturCapricéio Ital-
ien, op. 45, eftir Tsjaikovsky.
„Pantomime“-leikritið
M J ALLII VIT
verður leikið í Þormóðsstaðaleikhúsi fyrir almenn-
ing n.k. fimtudagskvöld 27. þ. m. kl. 8.
Aðalhlutverk: Sigrún Magnúsdóttir. Önnur hlutverk:
Breskir setuliðsmenn.
Aðgöngumiðar á kr. 2.00 og 4.00 eru seldir í Bóka-
verslun Snæbjarnar Jónssonar, Bókaverslun Isafold-
arprentsmiðju og Bókaverslun Sigf. Eymundssonar.
Næsta og síðasta sýning fyrir almenning þriðjudag-
inn 1. apríl.
Kveðjti- og mínníngarathÖfn
vegna skipshafnarinnar af vjelbátnum Hirti Pjeturs-
syni fer fram í dómkirkjunni í dag, þriðjud. 25. þ. m.
kl. 1 e. h. Athöfninni verður útvarpað.
Lík Unnars Hávarðssonar verður flutt til Eski-
fjarðar með Esju.
Óskar Jónsson.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að unnusta
mín og sonardóttir okkar
VILBORG E. GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Ólafsvík andaðist langardaginn 22. mars.
Karl Björnsson.
Ragnheiður Eyjólfsdóttir. Ásbjörn Eggertsson.
Jarðarför hjartkærs eiginmanns míns og föður okkar
JÓNS LEVl GUÐMUNDSSONAR
gullsmiðs
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginii 26. mars og hefst
með húskveðju að heimili hans, Hallveigarstíg 6, kl. 1.30 s.d.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Lára Magnúsdóttir og börn hins látna.
Jarðarför fósturmóður minnar
RAGNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram frá Hraungerði miðvikudaginn 26. þ. m. Hefst með
bæn á heimili hennar, Nönnugötu 7, kl. 10 f. hád.
Sigríður Tómadóttir.
Jarðarför móðursystur minnar
INGIBJARGAR HELGADÓTTUR
frá Árbæ fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 26. þ. mán.
kl. 4 e. hád.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda
Helgi Jónasson.
Hjartans bestu þakkir til allra, sem auðsýndu okkur sam-
úð, vinarhug og hjálp á einn eða annan hátt við andlát og
jarðarför mannsins míns
sjera PJETURS HELGA HJÁLMARSSONAR
frá Grenjaðarstað.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna
Elísabet Jónsdóttir.
A;- i i-r.Vl
Hjarlanle((ar þakkir fyrir samúð i
sem okkur var sýnd rið hið svip-
lega fráfall mannsins míns og föð-
ur okkar
ÓLAFS ÓLAFSSONAR
fiskilóss, sem fórsl með B.v. GuII-
fossi.
Margrjet Guðmundsdóttir og börn.