Morgunblaðið - 24.05.1941, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. maí 1941.
vniuuHiuiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiinimmiiiiiiiiiiifiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitmuiiiuiiiiiuiu^
jStór íbúðóskast|
I Stór nýtísku íbúð óskast til leigu nú þegar. Há húsa- |
1 leiga boðin og mikil fyrirfra>ngreiðsla, ef óskað er. g
| Tilboð merkt „Stór íbúð“ sendist blaðinu í dag. |
H =
fliiiiiiuiiiiiiminiiiniiiiiiiiiiiiiuniiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiniiiiiiimiiiHiiiimiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiiiiiituuiiu
4-5 skrifstofuherbergi
óskast. Tilboð sendist Morgunblaðinu nú þegar.
merkt „708“.
Veitingastofa
Góð og fjölsótt veitingastofa í fullum rekstri með
ágætu „inventar“ bæði í eldhúsi og veitingastofum, er
til sölu nú þegar. Liggur við eina fjölförnustu götu
bæjarins og hefir góðan og mikinn hóp viðskifta-
manna. Tilboð sendist Morgunbl. fyrir 27. þ. mán.,
merkt: „Veitingar“.
Mæðradagurinn
Óskað er eftir ötulum og greinagóðum stálpuðum
börnum og unglingum til að selja merki dagsins. Komi á
þessa staði: Þingholtsstræti 18, Miðbæjarskólann (stofa 20)
og Austurbæjarskólann frá kl. 10 á morgun (sunnudag).
9 Mæðrastyrksnefnd.
RviHugler
Eigum óselda nokkra kassa af rúðugleri 24 ounzu.
EtítJerf Krisffánsion & Co. h.f.
SIGLINGAR.
Vjer höfum 3—4 skip stöðugt í förum milli vestur-
strandar Englands og íslands. Tilkynningar um vörur
sendist
Calliford & Clark Lid.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD,
eða
Geir H. Zoega.
Símar 1964 og 4017,
ER GEFUR FREKARI UPPLÝSINGAR.
Nokkrir bifreiðastiórar
geta fengið afvinnu
strax. A. v. á.
B. S. I.
Sfmar 1540, þrjár línnr.
Góðir bflar. Fffót afgreilkiL
Kristófer Björnsson, verkstjóri
K egar maðnr er til moldar bor-
ii|n frá liálfnuðu dagsverki
— að því er virðist — þá verð-
ur þjóðarsorg, hjeraðsharmur,
sveitar- eða bæjarsöknuður eða að-
eins ástvínaharmur, alt eftir því,
hversu kunnur hinn látni var eða
hvaða stöðu hann skipaði í þjóð-
fjelaginu og hvernig starfið var
af hendi leyst. — Minningin á og
mislangan aldur. Nöfn andlegra
stórmenna, þjóðhöfðingja, hjeraðs
og sveitarhöfðingja eru skráð
stóru letri í þjóðarsögumri, en
gleymast þó, er árin líða, nema
þau sem mest Ijóma.
Þjóðf jelaginu er ekki borgið
með því einu, að það eigi eitt eða
fleiri stórmenni, heldur og hinu,
að sem flestir þegnar þess sjeu
menn í sínu starfi, hvort sem það
er talið stórt eða lítið, sje það
þarft eða nauðsynlegt. — Hinn
trúi þegn stækkar nafn þjóðhöfð-
ingjans og á því hlutdeild í þeim
hróðri, sem sagan geymir, þó hans
lítt kunna nafn týnist fljótt. Slík-
ur þegn verðnr til moldar bor-
inn í dag.
Kristófer Björnsson var fædd-
ur 1.3. des. 1899 að Holti á Ás-
um í Húnavatnssýslu. Poreldrar
hans voru hin kunnu merltishjón
Björn Kristófersson og Sigríður
Bjarnadóttir, er síðar bjuggu
stórbúi að Hnausum í Húnavatns-
sýslu. — Björn Kristófersson var
tvígiftur. Með fyrri konu sinni,
Ingibjörgu Þorvarðardóttur, átti
hann 4 hörn, en 5 börn með þeirri
síðari. Þessi systkini Kristófers
eru öll á lífi og halda uppi sóma
sinnar ættar.
Tólf ára gamall misti Kristó-
fer föður sinn; naut hann þá á-
fram handleiðslu móður sinnar og
eldri systkina, þar til uppvexti
lauk.
Til Keykjavíkur fluttist Kristó-
fer árið 1925; gerðist liann þá
verkstjóri h.já mági sínum, Þórði
Olafssyni útgerðarmanni, og
gegndi því starfi þar til fyrir
rúmn ári síðan, að máttur hans
þraut svo, að hann mátti ekki
fötum fylgja. Lá hann fyrst hjer
í Reykjavík, en kans síðan að
leita sjer lækningar á Akureyri.
En skapadægrinu varð ekki frest
að, sigðin vitjaði hans á sjúkra-
húsi Akureyrar þ. 11. þ. m.
Kristófer giftist þ. 20. maí 1933
Guðnýju Jóhannesdóttur frá Þor-
grímsstöðum á Vatnsnesi; lifir
hún mann sinn ásamt 2 börnum
þeirra; Ásbirni 8 ára og Birnu
2ja ára.
Þegar í barnæsku kom í Ijós
hin sjerkennilega skapgerð, sem
mótaði líf og starf þessa mæta
manns. Kristófer var óvenju dul-
ur maður og fáskiftinn um alt
það, sem ekki kom honum sjálf-
um við eða starfi hans; hann var
svo lítill málskrafsmaður, að heita
mátti að hann mælti það eitt, er
nauðsyn bar til. — Ókunnugir
gátu freistast til að álíta hann
fremur óviðfeldinn, en kunnugir
hofðu aðra sögu að segja. Bak við
fáskiftið levndust þeir mannkost-
ir, er mest prýða. Hann var $vo
prúður og vandaður í allri um-
gengni, að á betra verður ekki
kosið, enda }>ótti hverjum manni
vænt um hann, sem honum kync-
ist. Þá var trúmenskunni í öllu
star-fi hans svo við brugðið, að
lengra þótti ekki komist og svo
var vinnukappið mikið, að hann
kunni sjálfum sjer ekki hóf, en
hverjum manni þótti gott að vinna
með honum. Til marks um kapp
hans og harðfylgi má geta þess,
að kami var búinn að vinna lang-
an tíma með sótthita, áður en
hann Ijet undan og lagðist bana-
leguna; duldi hann öllum mönn-
um vanlíðan sína, enda mun eng-
inn miunast ]>ess að hafa heyrt
hann nokkru sinni kvarta yfir
eigin liag.
Kristófer var einn hinn dulasti
maður, er jeg hefi þekt og svo
skapfastur, að honum varð ekki
þokað frá því, er hann áleit rjett
vera. — Hann var glögt dæmi
þess,' að varasamt getur verið að
dæma meim eftir augnabliks
kynningu eða fyrstu sýn.
Kristófer skilaði góðum vöxt-
nm af því pundi, sem Iionum var
trúað fyrir.
Blessuð s.je minn'ing hans.
Ásgeir L. Jónsson.
/
Minning Kristínar Guðmunds-
dóttur frá Útey
C* östudaginn 16. maí s.l. andað-
ist að heimili dóttur sinnar
hjer í bæ hin þekta merkiskona,
Kristín Guðmundsdóttir frá Útey
í Laugardal, 86 ára að aldrei (og
vel það). Hún var fædd að Nýja-
bæ á Seltjarnarnesi 12. júní árið
1854. Foreldrar hennar voru hin
kunnu hjón, Guðmundur Þorsteins
son og Margrjet Eyleifsdóttir, er
lengi bjuggu í Gesthúsum á Sel-
tjarnarnesi, og ólst Kristín upp
hjá þeim, en rúmlega tvítug flutt-
ist hún að Utey í Laugardal og
bjó þar með manni sínúm fyrir-
myndar búi hátt á 4. tug ára.
IIún giftist árið 1878 Eiríki Ey-
vindssyni Þórðarsonar, viðurkend-
um dugnaðarmanni. Móðir hans
var Ingibjörg Eiríksdóttir frá
EfstadaL
Kristjnu og Eiríki varð 7 barna
auðið, 3 dóu í æsku en 4 eru á
lífi öll mannvænleg og vinsæl:
Eyvindur bóndi í Útev; Þóra,
Gimli, Manitoba; Helga og Þórð-
ur búsett hjer í Reykjavík. Mann
sinn misti Kristín árið 1913, og
1914 fluttist hún að Holtsgötu 13
hjer í Reykjavík og var þar tií
dauðadags og naut fylstu umönn-
unar Helgu dóttur sinnar.
Jeg finn að mjer er ofvaxið að
geta sagt nokkuð um ævistarf svo
mikilhæfrar lconu til lífs og sálar
sem Kristín var; dugnaður henn-
ar var alþektur af þeim sem henm'
kyntust; bókhneigð var, hún einn-
ig, fróð með afbrigðum og hag-
orð vel, en það sem mest gildi
liefir í mínum augum er, að hún
var trúuð kona.
Þó hún sje til hvíldar borin,
munu áhrifin frá lífi hennar um
liðna ævi halda áfram að bera
ávöxt í hjörtum barna hennar og
annara vina.
Kristín var meðal 12 systkina
og eru 2 systur eun á lífi og era
þær búsettar á Ásvallagötu 14.
Þessum systrum sínum þráði hún
að flytja sína bestu þakkarkveðju
og á sama Iiátt öllú nánu skyld-
fólki, tengdafólki og vinum og
allra helst sínum ástkæru börnum
og sjer í lagi þeirri dóttur sem
hún dvaldi hjá og veitti henni
aðhlyniiingu með einstakri alíið á
ævinnar kvöldi. Jeg veit líka að
allir þessir umgetnu vinir minn-
ast í þakklátu hjarta hennar mikla
og góða ævistarfs.
Guð lilessi hennar minning.
Hún verðuv ':i'ðuð að Miðdal í
Laugardal við hlið manns síns og
harna.
Kveðja þig vinir, konan dáðaríka,
kærast. og heitast börnin, sem þiú
únnir.
Minnast að Drottinn móður gaf
þeim slíka,
myndin er skýr þó dagar sjeu
runnir.
Góð er sú von hjá Guði um eilífð
húa,
gott er og sælt á Jesú nafn að trúa.
E. B.
Til Báðacdals, Stór-
holts, Kinnarstaða
verða hílferðir alla þriðjudaga kl. 7 árd. Til haka fimtudaga. Far-
þegar vestaú Stórholts vinsamlega beðnir að panta far fyrir hádegi
á mánúdögúm. — Afgreiðsla á Bifreiðastöð íslands.
Guðbrandur Jörundsson.
i