Morgunblaðið - 15.07.1941, Side 7

Morgunblaðið - 15.07.1941, Side 7
Þriðjudagur 15. júlí 1941. MORGUNBLAÐÍÐ Noröurlandsmeistarar I handknattleik kvenna Handknattleiksmót kvenna fyrir Norðlendingafjórð- ung fór fram á Akureyri dag- ana 11., 12. og 13. júlí. Úrslit urðu þessi: I I. flokki sigraði Völsungur frá Húsavík. fjekk 4 stig. 1II. flokki sama fjelag, fjekk 3 stig. í III. flokki sigraði K. A., fjekk 2 stig. 1 IIII. flokki sama fjelag, fjekk 2 stig. Leikar fóru þannig í I. flokki, að Völsungur vann Þór (%lands meistarana) með 6 mörkum gegn 3, Þór vann K. A. með 2 mörkum gegn 1. Völsungar unnu því Norðlendingameistara titilinn 1941. í II flokki urðu úrslit þessi: Völsungar unnu Þór með 2 mörk um gegn 1, Völsungur og K.A. gerðu jafntefli, 2 mörk gegn 2, og Þór vann K. A.. Úrslit í III. flokki: K. A. vann Þór með 2 mörkum gegn 1. Úrslit í IV. flokki: K. A. vann Þór með 1 marki gegn 0. Dómarar voru Sigmundur Björnson, Jón Kristinsson, Her- mann Stefánsson og Friþjófur Pjetursson. Veðurblíða var dagana. er mótið fór fram. K. A. sá um mótið. Gleðskapur var fyrir þátt takendurna í Samkomuhúsi bæj arins á sunnudagskvötdið. — Verðlaun afhenti formaður K. A., Hermann Stefánsson Menta skólakennari.. Húsavíkurstúlk- urnar hjeldu heimleiðis á mánu dagsnótt, og höfðu svo sem áð- ur er sagt sigur í I. og II flokki. H. Vald. Sokkar Bómullarsokkar. ísgarnssokkar, Silkisokkar, Silkisokkar pure, Bondor, Kayser og Aristoc, o. fl. Dvngja Laugaveg 25. A U G A Ð hvflist taeC gleraugmn frá Raða Nygaardsvolds, forsætisráðherra Athugaserod frá charge d’affaires Svia . Herra ritstjóri! eg væri yður þakklátur, ef unt væri að gefa rúm eftir- farandi leiðrjettingu í heiðr- uðu blaði yðar á morgun: 1 Morgunblaðinu á sunnudag inn var birt ræða sú, er norski forsætisráðherrann hafði hald- ið fyrir íslensku blaðamennina, sem nú eru í Englandi. í ræðu þessari heldur forsæt- isráðherrann því fram, að ís- lenskir blaðamenn sjeu einu nor rænu blaðamennirnir, sem nú geti ritað frjálst, og ennfremur heldur hann því fram, að Is- land sje eina landið, sem ekki sje undirokað af erlendum ríkj um eða verði að Júta skipunum erlendis frá . Þar eð Nygaardsvold forsæt- isráðherra, er nú hefir dvalið lengi í London, hafi sýnilega gleymt því, að fyrir austan Nor eg er lítið land, sem enn er ekki undirokað, sem engu eríendu valdboði lýtur, og blöð þess rita frjálst, en að vísu ekki ábyrgð- arlaust, undir vernd hinna 130 ára gömlu sænsku laga um prent prelsi, vil jeg hjer með minna hann og lesendur Morgunblaðs ins á þesar staðreyndir. Virðingarfylst. Otto Johannsson. Chargé d’Affaires. Hressingarhæli drykkjumauna Arangurinn af fjársöfnun Stórstúku íslands til hress ingarhælis fyrir drykkjumenn hefir um land alt orðið sem hjer segir: Reykjavík samtals kr. 17.894,17 Aðrir kaupstaðir — 2.568,90 Kauptún og sveitir— 2.961,94 Heildarupphæð, sem safnast hefir í landinu: kr. 23.425,01. Hjer með vottast ölum gef- endum og starfsmönnum við söfnunina um land alt innileg- ust þakkir. Rvík, 10. júlí ’41. F.h. forstöðunefndarinnar: Fr. Ásmundsson Brekkan. U. M. F. Valur á Reyðarfirði hefir nýlega gengið í í. S. 1. Tala fjélagsmanna er 104, en formaður Sigfús Jóelsson. Eru nú sam- bándsfjelög í. S. I. 110. með yfir 15 þús. fjelagsmönnum, víðsvegar um landið. Ættu öll fjelög, sem íþróttir iðka, sjálfs sín vegna að vera í í. S. í. Dagbók Næturlæknir er í nótt Jóhannes Björnsson, Sólvallagötu 2. Sími 5989. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af síra Friðrik J. Rafnar vígslubiskupi Daisy Saga Jósefsson, Hótel Borg, og Lárus G. Lúðvígsson framkvæmda- stjóri. Hjónavígslan fór fram í Fríkirkjunni. Hjónaefni. Nýlega hafa opinber- að trúlofun sína ungfrú Berdís Ingimundardóttir frá Akranesi og Friðþjófur Helgason, starfsmaður hjá Reiðhjóláverkstæðinu Örninn, Reykjavík. Leiðrjetting. í frásögn hjer í blaðinu nýlega, þar sem sagt er frá doktorsvörn Óskars Þórðar- sonar læknir í Khöfn, var minst á Halldór Kristinsson lækni, en greinarhöfundur hefir misritað nafnið, því læknirinn sem átt er við er Halldór Kristjánsson Jóns- sonar dómsforseta. — Ennfremur fjell niður nafn dr. J. JónaSsens lándlæknis. sem einnig varði doktorsritgerð við Hafnarháskóla. Til Hallgrímskirkju 1 Reykjavík. Afhent af síra Bjarna Jónssyni 50 kr. frá Einari. Afhent af síra Sig- urbirni Einarssyni: Áheit frá R. S. 5 kr. Frá N. N. 5 kr. Frá II.+H. 2+5- kr. Tíund frá N. N. 10 kr. Kærar þakkir. Gísli Jónasson. Sjómaðurinn kom út í morgun. Er þetta júní—ágúst heftið. Efni þess er meðal annars: Forsíðu- mynd af leiðum þeim, sem Colum- bus fór í 1. og 3. ferð sinni til Ameríku og til samanburðar leið Leifs heppna og „Capitana“, hins nýja skijis Magnúsar Andrjesson- ar, sem var forystuskip .1 léið- angri, er Harward-háskóli efndi til 1939. Er og í blaðinu grei'u uin þennan leiðangur, með mörg- um myndum. Þá birtir blaðið sam- tal við Pál Ilalldórsson fjrrverandi skólástjóra um sjómantiáfræðina, anuað samtal með myndum um mestu standbjörgun við fsland og auk Jiess Jiessar greinar: Sönn saga um 8 ára hetju, Hrakningar á sjó fyrir 55 á.rum, Hræðilegar fimm mínútur, Um FLöskufjelagið heimskunna, Strokið af skipi vegna hjátrúar, Þegar Frakkarnir Actu og Alfonse fóru á sjó í Þorlákshöfn árið 1885, Innan borðs og utan og tvö kvæði. Er þetta hefti mjög mvndarlegt og læsilegt. Útvarpið í dag: 12.00—-13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Mimdegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Lög úr óper- 20.00 Frjettir ettum og tónfilmum. 20.30 Erindi: Barist um Libanon og Damaskus (Magnús Jónssoij prófessor). 21.00 HljÓmplötur: Fáust-symfóní- án eftir Liszt. Manntjónið f loftárás- unum á England ® f júní fórust í loftárásum í *■ Englandi 399 manns, en 461 særðust svo alvarlega að flytja varð þá á sjúkrahús. Af þeim, sem fórust voru 175 karlmenn, 160 kvenmenn og 64 börn, inn- an 16 ára. Fyrstu 6 mánuði ársins fórust í loftárásum á England 18320 menn. Síðari árshelming síðast liðins árs fórust 23,960 manns. Bre§ka herstjórnin á Islandi tilkynnir: að allar kröfur á herstjórnina, sem stofnaðar eru fyrir 1. júní 1941, verði að sendast: Heirings Office, Laugaveg l(j, Reykjavík, fvrir lok júlímánaðar 1941. THIELE _________________________7i Skuldabr j ef til sölu. 1. veðrjettar skuldabrjef, að upphæð kr. 30.000.00, trygt með veði í ágætri fasteign í Reykjavík til 20 ára, með jöfnum árlegum afborgunum, 6% ársvöxtum. Enn- fremur skuldabrjef, trygt með 2. veðrjettí, á sama hátt, kr. 15.000.00, til 15 ára, 6% ársvöxtum. Tilboð, merkt „Trúnaður“, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir kl. 12 á hádegi þ. 16. þ. m. Þýðingarlaust að senda önnur tilboð en sem eru yfú* 100%. Fullkomnum trúnaði heitið. ; Brjefaskriftir. Karl eða kona, vel fær í ensku og vjelritun, getur fengið atvinnu nú þegar. Tilboð, helst með mynd, merkt „15. júlí“, sendist Morgunblaðinu. Hraðrilara ♦ í ensku og íslensku vantar strax. — Tilboð, með mýnd, sendist Morgunblaðinu, merkt „Hraðritari“. Bifvirkjanemi getur fengið pláss nú þegar. A. v. á. Maðurum minu, GUÐMUNDLR JÓNSSON járnsmíðameistari. andaðist laugardaginn 12. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili mínu, Vesturgötu 52 C, kl. 1% e ú Sigurbjörg Stefánsdóttir. Unnusta min og móðir, GUÐRÍÐUR INGÍBJÖRG GUDMUNDSDÓTTIR, verður jarðsunginn miðvikudaginn 16. júlí frá Dómkirkjunni, og befst athöfnin að heimili hennar, Karlagötu 24, kl 1 e. faád Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Steinn Július Árnason og börn Maðurinn minn, KARL BJÖRNSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 16. jújí kl. 4 síðd. Jarðað verður í garala kirkjugarðinum. Halldóra Björnsson. Þökkum innilega sýnda aðstoð og samúð við andlát og jarðarför GUÐRÍÐAR MAGNÚSDÖTTUR. Setbergi við Stokkseyri Jakob Þórðarson ' Jóhann Jakobsson. Þökkum anðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR ÞORVARÐARDÖTTUR frá Ási í Grindavík Ólafur Guðjónsson. Þorvarður Ólafsson. Fanney Guðjónsdóttir. Björgúlfur Þorvarðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.