Morgunblaðið - 14.08.1941, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
«
Fimtudagur 14. ágúst 1941..
Frásögn Hilmars Foss
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
arerindrekarm, Pjetur Benedikts-
son, að annast fyrirg'reiðslu ýmsra
mála fyrir þá.
Viðskiftamál.
Á þenna hátt hqfum við svo
unnið að , allskonar vöruútvegun,
leigu á skipum, sölu á afurðum o.
fl. o. fl. Við höfum unnið að kola-
kaupum, s<>lu á sfid og síldaraf-
nrðuin, gærum og görnum, útveg-
nri á járnvöru, en hún er orðin
erfið í Englandi. Bretar hafa fall
ist, á, að láta, okkur í tje ákveð-
inn skamt af- járnvöru, og hafa
sannast að segja á stundum
rerið tilleiðanlegir , til að auka
þenná skamt. En eins og gefur
að skilja eru vörutegundirnar æði
margar, sem við íslendingar, höf
om þurft að fá frá Englandi, og
erindisrekstur sendisveitarinnar
því orðið margskonar. þetta er
aðalstarfið.^ r ■ ý;. •, éf í , ;, ;
Erfjðleikar á, kolaútvegun hafa
fariV vax'andi, sem eðlilegt er, þar
e, 100 þns.' námúmenn, sem unnið
hafa að kolagrefti, eru komnir í
herþjónustu. Kr nú talað nm að
taka þurfi 50 þúsund manns ú?
hernuin, og hæta þeim við í nám-
urnar.
Kynningarstörf.
Önnur störf sendisveitarinnar
eru syo þáu,.að anuast ýmsa kynn-
ing þjóðarinnar og halda kunn-
leika víið uðrar sendisveitir. Aðal-
lega sendisyeitir, Norðurlandaþjóð-
aiina.
Við og við koma íslendingar til
Londorí, einkum sjómenn, sem
þnrfa leiðbeininga og aðstoðar
við. Fyrirspurnir koma líka ofí
frá blöðum og tímaritnm og ein-
s'tökum mönnum um ýmislegt er
varðar ísland. Verður að leggja
kapp á að svara því öllu sem ítar ■
legast og greiðlegast. En þetta
gejtur orðið talsvert tímafrekt.
í+— Hve langan vinnutíma hafið
þið haft í hinni fámennu sendi-
sveit ?
,'jj— Jeg held þáð sje ekki vert,
segi Hilmar Foss; að segja nokk-
uð um það ú prenfi. Einhverjum
kyjni að finnast það óviðfeldinn
samanburður á vinnutima ein
hversstaðar annarsstaðar.
Löftárásirnar.
-— Og hvernig hefir líðaii ykkar
verið, sem altaf hafið verið í Lond-
on raeðan ósköpin hafa dunið þar
yfir?
Það var erfitt fyrst í stað t
fyrrahaust, er loftárásir hjeldu á-
frain á hverri nóttu að heita mátti
í 10 vikur. Maður gat ekki sofið
fyrst í stað. En fljótt var það
augljóst, að ekki var um annað- að
gera, en láta þetta ekkert á sig
fá. Að sofa, hvað sem á bjátaði.
— Niðn í kjallara?
j— Nei, þar sem maður var van-
ur. Maður verður forlagatrúar í
loftárásum, finst að ef einhver
sprengjan sje ætluð manni, þá
komi hún á tilteknum degi, ann-
ars ekki. Sumt fólk sefur altaí
niðri í neðanjarðarhvelfingum
járnbrautanna. Því finst það eigi
að fara að öllu sem varlegast. En
flestir eru alveg hættir að hugsa
svo.
— Eru nokkrar grunsemdir um,
að fleira fólk farist í loftárásum,
en greint er frá í opinbenun
skýrslum?
— Nei, alls ekki. Það dettur
engum í hug. Sannleikurinn er
sagna bestur. Það vita Bretar og
fara eftir því.
— Iivað hafið þjer komist næst
því að Ienda í lífsháska?
— Jeg veit eiginlega ekki. Jeg
hefi aldrei verið í húsi, sem
sprengja hefir komið á. Mikið af
húsunum í því hverfi þar sejn
sendisveitarbústaðurinn er, eru 40
-ri50 ára, bygð úr múrsteini. Þau
gerfalla ef sprengja lendir á þeim.
En oft eru menn grafnir lifandi
út úr rústum slíkra húsa. Þau
skemmast líka oft iriikið af
sprengjubrotum og grjótflugi sem
þeytist út frá sprengjunum er þær
springa. En alt öðru máii er að
gegna með steinsteyptu húsip. Jeg
hefi aldrei sjeð að ’ sprengjubrot
hafi komist í gegnum steinsteypu-
vegg. Þau fará samt í gegnum
fiykkar útidýrahurðir.
i, Hverníg hafa Lundúnabúar
getað gert við allan þann aragrúa
af gluggum sem brotnað hafa í
loftárásunum ?
—■ Fyrst í stað fylgdu þeir
þeirri reglu, að gera við alt sem
fyrst og sem fullkomnast. Koma
öllu sem hægt var í samt lag. En
þeir hættu því er frá leið. Menu
setja krossvið fyrír gltiggana að
miklu leyti, og smárúður í þessa
bráðahirgðahlera, til þ'ess að fá
einhverja glætu. Eins er gert við
búðarglugga, hafðir smágluggar,
svo vegfarendur geti sjeð í gegn-
um þá hvaða varningur sje inni
fyrir.
Eldsvoðar off
eldsprengjur.
— Er ekki mest eyðileggingin af
eldsprengjunum ?
— Það get jeg ekki sagt. Ekki
nú orðið. Eldsvoðar voru mikið
meiri framan af. Nú kunna menn
mikið betur að verjást þeim.
Fyrst og fremst eru næturverðir,
sem sjá um nokkur hús hver. Hús-
in höfð opin, svó varðmenn geti
komist alstaðar inn til að slökkva,
o. s. frv.
Mjer skilst að einfaldasta að-
ferðin við að slökkva í eldsprengj-
um sje sú, að hafa alstaðar sand
poka við hendina, sem eru þetta
alin á lengd, tvö fet á breidd, pok
arnir vel hálffullir af sandi.
Þegar maður drepur í eld-
sprengju, þá er ekki annað en
taka slíkan poka, halda honum
fyrir andlitinu, svo ekki spýtist;
neitt óhræsi framan í mann úr
sprengjunni, leggja pokann ineð
varúð ofan á sprengjuna, þá
drepst í henni. Sandurinn útilok
ar nægilega að loft komist að eld-
fimum efnum hennar. Þessa aðferð
hefi jeg notað.
Loftbardagar.
— Þjer hafið væntanlega sjeð
loftbardaga einhverntíma, meðan
árásir voru gerðar í björtu?
— Já, eftir því sem hægt er.
En viðureignir flugvjelanna eiga
sjer stað svo hátt í lofti, að lítið
sem ekki sjest til þeirra með ber-
um augum, helst ekki nema reykj-
arstrókana sem leggja aftur af,
þeim og af skotunum. Það eru m.
a. loftbelgirnir1, með virum sínum '
er gera það að verkúm að árása-
flugvjelarnar verða að halda sig
svo hátt yfir borginni.
1 — Hve langt ná áhifin út frá
hverri sprengju -svona hjer um
bil ?
— Það er erfitt að gera grein
fyrir því í stuttu máli. Sprengj-
iUVnar éu misstórár og verkamr
iþýí misjafnar. og eíns fer þetta
ieftir því hvar þær koráa niður.
En fyrir kemur áð maðúr sjer
sþreiiéjugíg, sem ííær yfir þvera
götu t. d. Þá verða skemdir mikl-
af í nifestú ‘húsúúi, erida éru sum-
ar sprengjurnar afar stórar. Mað-
Ur sjer það á þeim sem sprungu
pkki. Jeg sá t. d, ejna, seip, notuð
yar fyrir fjársöfnunarílát. Það var
svonefnt löfttundurskeyti. Það
sprakk ekki. Var víst sandur í
jþví í staðinn fyrir sprengjuefni.
Slíkþ kemui' stundum, lyrit', (, ,,,
Sextngar:
Baldvin Ryel
kaupmaður
Baldvin R-yel, kaupmaður á'Ak-
ureyri, er sextugur í dag.
ílann er fæddur 14. ágúst 1881 í
Vordingborg á Sjálandi, ólst upp
í foreldrahúsum, en Jærði verslun-
arstörf og verslunarfræði þegat'
aldur leyfði. Til íslands kom hann
alkominn haustið 1909. Dvaldi
hann fvrst 2 mánuði í Reykjavík,
én fór síðan til Akuröýrar og tók
að sjer forstöðu verslunar Rich-
ards Bráun þar. Stjórnaði Ryel
þeirri' verslnn til 1919. En þá
stöfnaði hann sína eigin vei'slun,
sem hann hefir rekið síðan með
hagsýni og miklum dugnaði.
Árið 1912 kvæntist hann Gunn
hildi Christensen, kjördóttur Jo-
hanns Christensen kaupmanns a
Akuiteyri, og eiga þau 6 mann-
vænleg börn Er heimili þeirra
rómað fyrir fegurð og híbýlis
prýði, en myndarskap, gestrisni og
risnu þeirra; hjón er við brugðið.
Sem bráðókunniigum útlendingi
tókst Baldviti Ryel furðu fljótt
að setja sig inn í íslenskan hugs-
unarhátt og samrýmast þjóðar-
venjum, og er honum löngu orðið
hvortteggja jafn tamt og eðlilegt,
sem hreinn íslendingur væri enda
má fullyrða, að einlægari fslands-
vin er óvíða að finna.
1 tæp 32 ár hefir Baldvin Ryel
kaupmaður lifað og starfað hjer á
Akureyri og getið sjer þann
orðstí, að telja má hann með
helstu og bestu borgurum þessa
bæjar. 11. ágúst 1941.
Sig. E. Hlíðar.
Bardagarnir
í Ukrainu
FRAMH- AF ANNARI SÍÐU
sanni, að herstjórninni sje orðið
ljóst að einhver stórsignr verðí
að vinnast til þess að sætta
þýsku þjóðina við það æfintýra-
spil, sem Hitler hafi kastað
henni út í með þvj, að hefja
styrjöld við Rússland.
NÝ SPRENGJU-
FLUGVJELATEGUND
Samkvæmt upplýsingupi frá
Finnlandi hefir ný tegund
sprengjuflugvjela komið fram á
sjónar-sviðið hjá Rússum. Er það
hingað til óþekt gerð af steypi-
flugvjel.
Loftvarnir Moskvaborgar haí'a
verið enn frekar treystar og
munu nú vera traustari en loft-
yaíilir Ltmdúnaborgar.
i Herförin til RúsSlands verður
í tveim þáttum, símar frjettarit-
árí spánska blaðsins „Alcazar" í
Berlín. Ekki er auðvelt að full-
yrða nokkuð um hvenær seihni
þátturinn hefst. en að öllum lík-
indum verður það ekki fyr en að
vori, sem vjer sjáum Þjóðverja
ná því marki, sem þeir ætluðu
s.jer að ná í einum áfanga.
Þjóðverjum er talin trú um, að
þegar borgirnar Kiev og Odessa
hafa verið herteknar þá muni
Hitler stofna sjálfstætt ríki í
Ukrainu, segir í fregnum frá
Þýskalandi. Það nýja ríki telur
um 40 miljónir íhúa og munu fá
að njóta fullkomins sjálfstæðis.
Mun því verða boðið að gerast
aðili að sáttmála Öxulsríkjanna
og skifta jafnt á við þau ávinn-
ingnum af stríðinu gegn Rússum
eg þó sjerstaklega gegn Káka-
sus.
Þetta bragð Hitlers mun gert
í því augnamiði að friða her-
teknu löndin og sýna þeim fram
á, að best sje fyrir þau að taka
upp sem nánasta samvinnu vio
Þýskaland. En sá er ljóðurinn á
þessu áformi Hitlers, að hin nýja
kynslóð í Ukrainu hefir engan
áhuga á þessu.
Yngsti flotafor-
ingi heimsins
Yfirstjórn rússneska flotans er
eins og stjórn landhersins, i
höndum ungs manns. Kuznetsoff
aðmíráll, fyrrum flokksforingi
rússneska Kyrrahafsflotans, er að-
eins 38 ára gamall og líklega
yngsti flotaforingi heimsins.
Hann hefir eins og Timosheuko
marskálkur. látið sjer mistökin í
Finnlandi að kenningu verða: „Við
Iærðum mikið á mistökum okkar
í Finnlandi“, sagði hann, „og þau
verða ekki endurtekin. Við ráðum
nú yfir öllum siglingum um Eystra
salt“.
Hann leggur einnig eins og
Timoshenko, m.ikla áherslu á varn
arstöðu, og hann hefir hvað eft-
ir annáð bent á nauðsyn strangs
aga. Hann krefst þess, að flotinn
sje starfandi alt árið, hvernig
sem viðrar, vetur og sumar.
Avíla Camacho
FRAMH. AF FIMTU SfiðU.
flytja austramar fræðikenningar
inn í landið. Flestir þeirra, sem
kenna sig við kommúnisma, eru í
rauninni sammála «kkur og bylt-
ingarkenningu okkar“.
í annari viðræðu, sem fór frain
í viðurvist fimm ráðherranna, voru
orðaskiftin svo fjörlég, að maður
fánn ekki til þess hve salurinn í
stjórnarráðinu var kuldalegur. Jeg
sg hve ráðherrarnir voru hrein-
skilnir vjð foreta sinn og bar hið
frjálsmannlega fas og framkomu
þeirra saman Við skjálfandi beyg
ingarnar hjá starfsmönnum Musso-
linis, er þeir voru í iíávlst hans.
Einn af hinum atkvæðmeiri ráð-
herrum var að tala um í hve rík-
um mæli rjett væri að beita ein-
ræðimi, éf tii ófriðar kæmí. For-
setinn andmælti honum ákaft:
„Aginn er altaf nauðsynlegur,
en jeþ er á móti eihræði, jafnýéí'
i striði. Jég hefi betri tryggingú
fyyjr góðnm árangri með því að
hafa haldgóða samVinnu við sam-
verkamenn mína. — Méxicomenn
éru sjerhyggjumenn óg aðfinstu-
samir —- það er erfitt að stjórna
þeim. En þeir eru ríkir af göfugri
húgsún og tílfinninganæmir. Ef
þjer kynnist þeim vel þá er yður
óhætt að treysta á hollustú þeirra‘‘‘.
í annað skifti, þegar nazistaná
í Mexico bar á góma, sýndi for
setinn áfdráttarlaust hver hugu'*
hans var.------
★
—- Camacho hefir aldrei komið
Út fyyir landamærin, nema einu
sinni er hann fór til Los Angeles,
og hann talar ekkert mál nema
spönsku. En hann hefir mjög vel
mentaðan utanríkismálaráðherra,
sem er nákunnugur Evrópumálum,
eins og margir af samvérkamönn-
inn lians.
Þó að skoðanir Camaehos á.
þjóðfjelagsendurbótum og afstaða
hans til styrjaldarinnar sje lík og
Roosevelts, þá er skapferli þeirra
og geðsmunir mjög ólíkt — Róose-
velt er víðfeðmur og málskrafs-
mikill; Camacho talfár og ómann
blendinn. Roosevelt er altaf búinn
til að hlæja og hláturinn er speg-
ill bjartsýninnar, en alvörunni
ljéttir aldrei' af Camacho, þó að
mönnum fmnist hann ekki dfunga-
legur.
Báðir eru þeir í samræmi við
þá skoðun mína, að það sje pér+
sónuleiki einstaklingsins, sem eigí
mikinn þátt í því að skapa ver-
aldarsöguna. Þó að Camacho út-
skýrði það fyrir mjer, á marxist-
iskan hátt, að umhverfið værí
undirstaða þess hvernig sagan þró-
aðist, þá hætti hann við á eftir:
,,En jeg held að mikilmenm, eins
og þessi, sem þjer hafið skrifað
bækur um, breyti umhverfinu í"
samræmi við perónuleik sjálfra
sín“.
„Og hvað álítur þjóð yðar um
persónuleik nýja forsetans síns?“
Hann brosti og 'svaraði: „Yfir-
léitt' kunna Mexicanar vel við för
setana sína“.
„— það er að segja í fyrstunni“,
tók jeg fram í. „En samsinna þeir
skoðunum þeirra í sex ár?“
Þá hló hánn ofurlítið og sagði:
„Jæja, jeg skal reyná að halda
þeim við efnið út kjörtímabilið“.