Morgunblaðið - 13.11.1941, Page 2

Morgunblaðið - 13.11.1941, Page 2
2 MORGUNBLAÐID Fimtudagur 13. nóv. 1941 Huntziger. Maðurinn, sem undir- ■skriíaði vopnahljes- sáttmálann ferst Vichy í gær. Hwntzigér, hershöfðingi, hermálaráðherra Frakka og maðurmn sem undirskrifaði vopnahljesskilmálana fyrir hönd Frakka í Compiegne skóg- unum í júní 1940, fórst í flug- slysi hjá Levignan 80 km. frá Mimes í Frakklandi í gær. AIl- ir sem með honum voru í flug-i vjelinni fórust eninig. Flugmaðurinn er talinn hafa vílst í mikilli þoku. Huntziger hafði verið á 15 bús. km. eftirlitsferð um her- stöðvar Frakka í Norður-Af- ríku og átti að gefa Petain skýrslu í Vichy í dag. Hann lagði af stað frá Algier í morgun. Um hádegið sást til flugvjélar hans, sem var stór fjögra hreyfla vjel, yfir Mið- jarðarhafi, en síðan spurðist ekkert til hennar þar til hún hrapaði hjá Levignan. Auk Huntzigers voru í flug- vjelinni átta menn, þ. á m. að- alaðstoðarmaður hans, Jean Lobusquerer, og de Royera höf- uðsmaður. Verkfallsaldan i Bandaríkjunum (Reuter). Stjórnir fimm „bræðralaga“ (verklýðsfjelaga) járnbraut arverkamanna í Bandaríkjunum hafa fyrirskipað 350 þús. meðlim- um sínum að hefja verkfall þ. 7. des., ef ekki verður gengið að kröfum þeirra um 30% launa- hækjkun (segir í Reqtersfregn frá Ohiqago). Samkvæint Reutersfregn frá Washington hefir Roosevelt enn ákveðið að taka persónulega' í taumana til að afstýra hinu hættu lega kolaverkfalli. Samkomulag hafði orðið tun að fela sáttanefnd ríkisins að miðla málum, og fjekk hún til þess hálfs mánaðar frest, en hefir ekki orðið ágengt. Sú hætta vofir yfir að 53 þús. verka- menn, í námum stálsmiðjanna vestra, geri verkfall. Roosevelt hefir nú boðað þrjá meðlimi verkalýðsfjelagsins „C. I. 0“ og þrjá stjórnarmeðlimi stál- fjelagsins á fund sinn í „Hvíta húsinu“ á föstudaginn. Finnar afhjúpa árásar- fyrirætlanir Rússa „Svar finsku stjörnarinnar tiefir finski þingið og finsku þjóöina að baki“ .. . % Cordell Hull segir að Finnar forðist „kjarna málsins“ Churchiil skýrir frá upplýsingum Rudoifs Hess Bjartar horfur í sfó- hernaðinum Finnar vísuðu á bug þeirri uppástungu Banda- ríkjanna að kalla her sinn heim, inn fyrir 1939 landamæri sín. í svari þeirra, sem aíhent var sendiherra Bandaríkjanna í Washington í fyrrakvöld, segir, að þeir geti ekki stöðvað stríðið við Rússa, fyr en þeir hafi bægt hættunni frá landamærum sínum, og landa- mæri þessi sjeu trygð. Ef þeir yrðu við uppástungu Bandaríkjanna, þá myndi öryggi þeirra verða stofnað í hættu. Segir í svarinu, að ef finski herinn fari burtu' úr þeim hjeruðum handan við (gömlu landamærin, sem hann hefir lagt undir sig, þá myndi landið liggja aftur opið fyrir árás. Stríð Finna er stríð upp á líf og dauða. Finnar munu stöðva stríðið þegar hættunni er bægt frá og öryggi skapað. En á hinn bóginn sje hugsanlegt, að þeir dragi ein- hvern hluta af herjum sínum heim áður en langt um líður, og setji bá aftur til borgaralegrar vinnu. Því er,afáráttarlaust neitað í svarinu, að Finnar bafi nokkur tilboð fengið um friðarsamninga, frá Rússum eða um milligöngu um friðarsamninga við Rússa. Það var upplýst í Helsingfors í gærkvöldi, að Wittrich, ut- anríkismálaráðherra Finna, hefði um leið og hann afhenti sendi- herra Bandaríkjanna svar stjórnarinnar fengið honum landa- brjef af landamærum Finnlands og Rússlands, sem leiðir ótvírætt í ljós árásafyrirætlanir Rússa á Finna. Iræðu, sem Mr. Churchill flutti við setningu breska þingsins í gær, lýsti hann yfir því, að hann myndi ekki að svo stöddu gefa yfirlit yfir alt stríðið. Hann sagði að Hitler hefði rofið margra mánaða þögn í byrjun október, og tilkynt, að hann væri um það bil að halda innreið sína í Moskva, en hann hefði betur haldið áfram að þegja. Churehill benti á þá hættu, sem af því stafaði, ef óvinunutu væru gefnar upplýsingar, og ef hann segði eitthvað um lijálp Breta lil Rússa, þá myndi hann með því gefa Þjóðverjum athyglisverðar upplýsingar. Landabrjef þetta leiðir í ljós, að Rússar höfðu frá því 1937 lagt ekki færri en 7 járnbraut- arlínur frá Murmansk-bi’autinni að landamærum Finnlands. Fvrir árið 1937 var engin slík hliðar-járnbrautarlína frá Mur mansk-brautinni. Ennfremur hefðu á árinu 1940—41 (eða eftir að finsk-rússneski friðar- samningurinn var gerður) verið lagðir margri nýir vegir að landamærum Finnlands, eink- um að Norðuú-Finnlandi. Á sama tíma höfðu verið lagðir ekki færri en 90 flugvell- ir nálægt finsku landamærun- um, flestir á Kola-skaga við Norður-Finnland. ÁLIT ÞINGS OG ÞJÓÐAR. Finsk blöð lýstu í gær yfir einróma stuðningi við svari finsku stjórnarinnar. Segja blöðin, að svarið túlki ein- róma álit finska þingsins og finsku þjóðarinnar. „Allur heimurinn veit“, segir finska blaðið „Suomen Sozialdemokraati“ „að Finnar heyja eingöngu varnarstríð. „Hufvudstadsbladet" segir, að stefna stjórnarinnar sje sú stefna, sem finska þjóðin hefir tekið. En blaðið segir, að engin ástæða sje til þess fyrir Bauda- FRAMH. Á BJÖTTD 8ÍÐD Tyrkneskir ráð- Irerrar biðjast lausnar Hermálaráðherra og samgöngu málaráðherra Tyrkja háð- ust lausnar í gær. Nýir ráðherrar hafa verið skipaðir í þeirra stað. Lausnarbeiðnin 'er talin eiga rót sína að rekja til þess er tyrknesku skipi var sökt í Miðjárðarhafi fýrir nokkrum vikum. Ráðherrarnir hafa lýst því yfir, að lausnarheiðni þeirra muni greiða fyrir rannsókn þess máls. Háttsettir liðsforingjar og opin- berir embættismenn eru riðnir við málið. Fyr í gær hafði borist fregn um að Refik Saydam, forsætisráðherra hefði fengið hvíld frá störfum í mánaðartíma, vegna slæmrar heilsu. RÓMABORG í gær —: Því var lýst yfir hjer í dag að breska fregnin um að kafbátar liefðu sökt 6 ítölskum kaup- skipum og laskað 4 skip, væri algerlega tilhæfulaus. Ef hann gæfi yfirlit um stríðið í! Rússlandij og' lýsti horfunum þar björtum, þá myndi hann verða sakaður um sjálfsánægju, en gæfi hann dapurlega mynd áf á- standinu þar, þá myndi hann verða sakaður um áð vera örvæntingar- fUilur. Eftir að hafa gefið þessi dæmi um hætturnar, sem því fylgdi að vera of opinskár, kvaðst hann mundn gera eina undantekningu, um sjóhernaðinn. SKIPAT J ÓNIÐ Ilann skýrði frá því, að á fjór- ,um mánuðum, til loka október, hefð.i. verið sökt fyrir Bretura og bandamönnum 750 þús. smálesta skipastól, og svaraði það til 180 'þús. smálesta á mánuði. En á fjór- um mánuðum, til loka júní, hefði verið sökt 2 miljón smál. skipastól eða y2 miljón smálest mánaðar- lega. • > En þetta gæfi ekki fullkomna mvnd af því hve horfurnar hefðn batnað, því að þegar tillit væri tekið til hertelíinni skipa, nýsmíð- aðra og aðkeyptra skipa, þá væri slripatjónið aðeins fimti hiutinn af tjóninu undangenginiiá 4 inánnði. Astándið hefði batnað til þessara inuna. þrátt fyrir að fleiri kaf- bátar og fleiri langferðaflugvjelar befðu verið á ferðinni en áður. Það er nú trygt, sagði Churehill, að við getum lialdið við aðflutn- ingum okkar þar til 1942, þegar skipin, sem smíðuð eru skv. am- ei’ísku skipasmíðaáætluninni verða tekin í iiotkun. Og ef hernaðurinn gegn kafbátum og flugvjelum held ur áfram að ganga jafn vel og nú, þá munu frelsisríkin árið 1943 (sagði Cburehill) geta náð til mark aðá handan við höfin, sem þau geta á engan hátt náð til nú. Samtímis hjeldi skipatjón óvin- anna áfram að vaxa. Á fjórum mánuðum, til loka október, nam smálestatala ítalskra og þýskra skipa, sem annaðhvort hafa sokkið eða verið löskuð, næstum miljón smálestiim.. Síðasti skipaflotinn, sem sökt var í Miðjarðarhafi, hafi verið mjög dýrmætur, og það væri sannarlega ástæða tii að fagna yfir eyðilegging hans. Vegna þessa mikla tjóns, sagði Chiirchill, en. bætti við, að hann vildi ekki spá neinu, þá kvað hann góðar vonir itm að hreystiyrði Þjóðverja og FRAMH. Á 8JÖTTD 8ÍÐD Blllllllllllllillllllllllllllimiilllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllll 1 Tvisvar yfir | 1 Atlantshaf I | álS'/Alst.! | utmummummnu iiiiimtiiiinmiimi ngur amerískur ferju- flugmaður (þ. e. flug- maður, sem flýgur amerískum hernaðarflugvjelum yfir At- lantshaf til Englands) hefir sett, að- því er talið er, heimsmet með því að fljúga tvisvar yfir Atlantshaf á 19*4 klst. Hann flaug af stað frá bresk- um flugvelli fyrir dögun, eftir aS hafa borðaS þar morgun- verð, borðaði árdegisverð í Ny- fundnalandi, og fór þegar að því búnu um borð í aðra flug- vjel. Hann hafði vindinn á eft- ir sjer yfir hafið til Bretlands og lenti í Blackoit og borðaði kvöldverð í sama flugskýlinu, sem hann hafði lagt af stað frá um morguninn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.