Morgunblaðið - 13.11.1941, Side 3
Fimtudagur 13. uóv. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
Rannsókn Hafnarfjarðarmólsins
Vopnaburöur hermann-
anna eitt ákæruatriöiö
Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar samþykkir
víðtækar varúðar-
ráðstafanir
Rannsókn Haínarfjarðarmálsins er nú lokið í
Hafnaríirði, að því er fulltrúi bæjarfógeta,
Jóhann Gunnar Ólafsson, skýrði blaðinu frá
i gær.
Vitni, sem viðstödd voru viðureignina, báru kensl á
hermennina, er komu við sögu, og þektu <þá tvo, sem ákærð-
ir eru.
Þetta ceru tveir óbreyttir feermenn, Cox og Farmer að nafni.
Almenningur hefir undrast
það sjerstaklega, hvers vegna
hinír amerísku hermenn, er
voru þama í Hafnarfirði um-
rætt laugardagskvöld, hafi haft
skotvopn meðferðis, og spurt,
hvort eigi giltu sömu reglur
íyrir ameríska hermenn sem
breska, að þeir bæru ekki vopn
á skemtiferðnm að kvöldlagi.
Ameríska herstjórnín hefir
skýrt blaðinu frá, að það væri
amerískum hermönnum óleyfi-
legt, og væri vopnaburður
þeirra út af fyrir sig eitt ákæru-
atriðið.
Við rannsóknina hefSr ,ekk-
ert komið fram, er breytt hafi
neinu sem máli skiftir frá því
sem fram kom af skýrslunni frá
bæjarfógetaskrifstofunni er
birtist hjer í blaðinu á þríðju-
daginn.
SAMÞYKTIR BÆJAR-
STJÓRNAR.
1 fyrrakvöld, eftir að Þórður
he^itinn Sigurðsson andaðist,
hjelt bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar fund og gerði þar eftirfar-
andi samþyktir.
Bæjarstjórn skorar á lög-
reglustjóra að hlutast til um
eftirfarandi, ef verða mætti til
að koma í veg fyrir að svipað-
ir atburðir þeim, sem gerðist
hjer laugard. 8. þ. m. komi fyr-
ir aftur.
1. að gerð verði tilraun til að
fá hernaðaryfirvöld Bandaríkja
setuliðsins til þess að banna her-
mönnum þess að koma til Hafn-
arfjarðar að nauðsynjalausu,
enda hafi setuliðið lögreglu-
vörð hjer, til þess að sjá um að
slíku banni yrði framfylgt.
2. Að lögreglustjóri hlutist til
um, að veitingastaðir hjer í bæn
um verði ekki opnir lengur en
til kl. 8 síðdegis.
3. Að lögreglustjóri hlutist
til um það við íslensku ríkis-
stjórnina, að hún lýsi óánægju
tramh. á sjöundu síðu.
Blóðsöf nunin:
Betar má ef
dtiga skaí
Blóðsöfntnnnni miðar nokkuð
áfram.
Hefir nú gefið sig frám tæpur
14 hluti þess fólks, sem þörf er á
til þess að nóg blóð fáist.
Auk þeirra skóla, sem áður
hafa gefið sig fram, hafa nú
Vjelstjóraskóla pilfar látið taka
sjer blóð. Þá má einnig gera ráð
fyrir að elstu nemendur Verslun-
arskólans og Samvinnnskólans
muni bregðast lijer vel við, eftir
því sem blaðið frjetti hjá Bjarna
Jónssyni lækni í gærkveldi.
Er þess einnig að vænta, að
almenningur taki þessari málaleit-
an Bauða krossins vel og gefi sig
fram fljótlega.
Happdrætti um íbúð-
arhús tii ágóða fyrir
Hallgrimskirkju
FJÁRSÖFNUNIN til Hallgrímskirkju stendur
nú sem hæst. Síra J*akob Jónsson gaf blaðinn
ýmsar upplýsingar um söfnunina.
Sjerstaka athygli mun það vekja, að stofnað verði til happ-
drættis til ágóða fyrir söfnunina og happdrættið er fbúðarhús hjer
íhöfuðstaðnum!
Hver vill ekki eignast íbúðarhús á þessum tímum fyrir
iítinn pening.
Frá ríkis-
ráðsfundi
Aríkisráðsfundi ,sem hald-
inn var í skrifstofum rík-
isstjóra í Alþingishúsinu' þ. 7.
nóv. 1941, gjörðist m. a. þetta:
1. Bjarna Benediktssyni veitt
lausn frá embætti sem prófess-
or í lögum við Háskóla íslands.
2. Jóhann Salberg Guð-
mundsson skipaður sýslumaður
í Strandasýslu.
3. tJtgefin ný lög um Búnað-
arbanka íslands.
4. Kristján Arinbjarnar skip-
aður í hjeraðslæknisembættið í
Hafnarfirði.
5. Staðfestur ríkisstjóraúr-
pkurður frá 23. okt. x1941, um
tkipun Thor Thors til að vera
sendiherra íslands í Bandaríkj-
um Norður-Ameríku.
6. Staðfest lög um útgáfu
krónuseðla.
Hjer fer á eftir frásörn síra
Jakobs:
Fjársöfnun til Hailgríms
Mrkju í Reykjavík heldur
áfram jafnt og þjett. Gjafir
c-g áheit berast úr öllum áttum,
eínnig úr fjarlægum hjeruðum.
Bygging kirkjunnar getur ekki
skoðast sem sjermál Hallgríms-
safnaðar heldur landsmanna
alment.
Happdrætti verður sett á
stofn og dregið verður um íbúo-
arhús í Reykjavík. Verður það
beinlínis bvggt í beim tilgangi.
ÓIl öfl hjálpast að því að koma
málinu áleiðis. Búið er að
tryggja nægilegt efni, og
Reykjavíkurbær hefir gefið lóð
undir húsið inni á Sunnuhvols-
túni. Nutum við þar velvildar
og stuðnings borgarstjórans,
Bjarna Benediktssonar.
Af einstökum gjöfum mætti
nefna eign, sem er 25 þús. króna
virði, og er ætluð til orgelkaupa
á sínum tíma og 5 þús. króna
gjöf til skrúða kirkjunnar. Báð-
ar þessar gjafir voru aíhentar
biskupi og vilja gefendur ekki
láta sín geíið opinberlega.
Almenna fjársöfnunin er í
höndum sjerstakrar nefndar, og
hefir Hjörtur Hansson heild-
sali verið ráðinn framkvæmda-
stjóri. Hann hefir óskað eftir
aðstoð allmargra trúnaðar-
rnanna, þannig að hver maður
annist söfnun í nokkrum hús-,
um. Er þá hugmyndin að gefa
hverju mannsbarni kost á að
leggja sinn skerf. Einnig er
ftægt að gefa vissa upphæð á
viku eða mánuði, ef fóllti kem-
ur það vel. Stöku sinnum hefi
jeg orðið var við undrun yfir
því, að við skyldum senda söfn-
unarlista viðar en innan presta-
kallsips. En það verður ekki hjá
því komist, þar sem um er að
ræða minnismerki um Hallgrím
Pjetursson. Hann ætti að vera
mönnum alstaðar jafn-kær. Að
sjálfsögðu er það ekki okkar
hugmynd að reyna að setja
stein í götu þeirra sem hafa
svipaðar framkvæmdir með
Uöndum fyrri aðra söfnuði. —
Þar sem mikill meiri hluti trún-
aðarmanna á enn eftir að gera
grein fyrir árangri starfs síns,
er ekki hægt að gefa nákvæmar
upplýsingar um, hvað safnast
hefir. En óhætt mun að full-
yrða, að söfnunin gangi vel.
AlmælishátiQ
Stúdenlafjelags-
ins er annað
kvöld
Stúdentafjelag Reykjavíkur
heldur annað kvöld hátíð-
legt 70 ára afmæli sitt að Hótel
Borg.
Munu' eldri og yngri stúdentar
minnast þar þess fjelags síns, sem
hæst. hefir borið á liðnum árum.
A þessari afmælishátíð fjelags-
ins verður þess minnst með ræð-
um og ávörpnm. Þá syngur Arni
Jónsson frá Múla einsöng við að-
stoð Páls ísólfssonar.
Nokkru af ræðuhöldum hófsins
verður útvarpað. Að lokum verð-
Ttr dansað.
ASgöngumiðar verða seldir á a£
greiðslu Morgunblaðsins kl. 4—6
í dag.
HfaO Þ{ÓOver|-
ar seg|a
Þýska útvarþið skýrði frá
eftirfarandi í nótt:
,,Dansk-íslenski blaðamaður-
inn von Heuer hefir skýrt frá
þiví, að íslenska þjóðin sje í
klónum á þjófum og siðferðis-
glæpamönnum“.
----- + ----
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
leibritið „Á flótta“ í kvöld.
Hákon Shetelig.
Hvatningarorð tii
norskra mentamanna
Ummæli Hákonar
Shetelig prófessors
London 1 gær:
T 1 akon Shetelig prófessor í
Bergen, flutti ræðu þ. 7.
nóvember, á fundi stúdenta, þar
sem hann fagnaði nýjum stúd-
entum.
Fórust honum orð á þessa
leið:
,,Ykkur, ungu mentamönnum
ber skylda til að vernda hin ei-
iífu verðmæti mannsandans,.
gegn því dimma óveðri, sem nú
geisar
Sannleikur, rjettlæti og viska
eru mönnum jafn skært leiðar-
Ijós nú, sem á tímum hinna
fornu heimspekinga.
Látið eigi vonbrigði draga úr
starfsvilja ykkar. Haldið vak-
andi trú yðar á handleiðslu
drottins, Uns ljós hins nýja dags
mun renna upp“.
★
Hakon Shetelig er mörgum
Reykvikingum að góðu kunnur
frá því hann var hér í Reykja-
vík haustið 1937, og hélt fyrir-
lestra um fornfræði. Síðar rit-
aði hann merkilega grein um
menning íslendinga á söguöld
eftir rannsóknum þeim, er hann
gerði hjer á Þjóðminjasafninu.
Dráttarbraut
Vestmannaeyja
stór-endurbætt
Vestmánnaeyjum í gær.
apríl síðastliðnum keypti Ár-
sæll Sveinsson útgm. dráttar-
braut Magnúsar Magnússonar
skipasmiðs og hefir liann nu í
sumar látið vinna að stórfeldum
umhótum á brantinni svo að þeg-
ar hrautin verður fullger, verður
hægt að taka upp báta alt. að 150
smálesta að stærð.
Ilægt verður að hafa uppi í
einu um 25 háta. Sem dæmi um,
hve mikið mannvirki þetta er,
má nefna, að búið er að steypa
úr á annað þúsund tnnnum af
cementi.
Brautin verður 125 metra löng
með 12 hliðargörðum. Er mann-
virki þetta alt liið myndarleg-
-aRta og til mikilla hagsbóta fyrir
xitgerðina. Dráttarbrantin verður
tilbúin í næsta mánuði.
Bj. Guðm.