Morgunblaðið - 19.09.1942, Síða 2
z
MOKGUiN BLAÐIÐ
Laugardagur 19. sept. 1942,
Lofthernaður:
Árás Breta
á Boídeaux
Breska flugmálaráðuneytið til
kynti í g-ær, að flugvjelar
strandvarnaliðsins hefðu gert
rnikla árás á Bordeaux í fyrrinótt
Ennfremur var tilkynt, að Bretar
væru nú farnir að senda Beau-
fighter orustuflug;vjelar til vernd
ar sprengjuflug’vjelum þeim, sem
árásir g-era á kafbáta í Biskaya-
flóa, og- hefðu þessai- vjelar skot-
ið hiður þrjár þýskar flugvjelar
í: fyrradag, en mist eina sjálfir.
: Þýskar flugvjelar gerðu loft-
árásir á nokkra staði í Austur-
Anglíu í fyrrinótt. Fjórar þeirra
■ýoru skötnai’ ,niður. Ennfremur
• I
gerðu Þjóðverjar árásir á ýmsa
staði á Bretlandseyjum í gærmorg
un snemma. Þá var ein flugvjel
skotin niður.
Þjóðverjar beita fallhlífa-
hersveitum í Stalingrad
Þýskt stór skotalíð J heííir
sprengjfim yfir borgína
Íslensk-amerísk
guðsþjónusta
í Washington
WASHINGTON, 18. sept —
Sira Oscar Blackleader prestur
í hinni lúthersku kirkju höfuð
borgarinnar, gaf í dag út yfir-
lýsingu, þar sem hann ljet í
Ijósi samúð sína með íslending
um vegna loftárásarinnar, sem
þýskar flugvjelar gerðu fyrir
nokkru.
Yfirlýsing sira Blackleader
kom eftir að Elbert D. Thomas
frá Utah, öldungadeildarþing-
maður, formaður fræðslu- og
verkamálanefndar öldunga-
deildarinnar, hafði látið í ljós,
harm sinn út af því, að börn
skyldu fyrst særast af völdum
þýskrar sprengjuárásar á ís-
lenska grund.
„Við í Washington og Amer-
íku erum innilega vinveittir ís-i
lensku þjóðinni“, sagði sira
Blackleader. „Okkur þykir
mjög leitt, að hinir fyrstu Is-
lendingar, sem særðust í þessu
stríði, fyrir utan sjómenn. voru
saklaus börn,
„Þar sem ísland er að mestu
lútherstrúar, hjeldum vjer sjer
staka guðþjónustu fyrir nokkr
um mánuðum í kirkjunni, þar|
sem jeg er prestur, í tilefni af
vínáttu beggja landanna. Thor,
Thors sendiherra íslands í
Bandaríkjunum talaði í kirkj-
unni. Jeg hefi þá ánægju að
þekkja Thor Thors og fjöl-
skylduna persónulega. Jeg hefi
verið í boði á heimili hans;
dóttir hans fermdist í okkar
kirkju og börn hans ganga í
kirkjuskólann hjer og fjöl-
skylda hans sækir kirkjuna.
Þar sem við vinnum sam-
eiginlega að frelsi mannkyns-
ins óska jeg þess að hin sanna
vinátta, sem við í Ameríku ber
um til ykkar á Islandi megi
sameina þjóðir vorar sterkum
vináttuböndum“.
Rússar hafa fengið
liðsauka frú Sfiheriu
I
Moskva í gærkveldi.
Harold King ritar um ástandið við Stalingrad.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá REUTER.
nnrásameiíir þýskar svii'ii til jarðar í i’all-
lilífuin úr þýskum lieriilulningaflugvjelum
í nthverfum Stalingrail. Þýskar lierfluin-
ingaflugvjelar koma sifelt með vjelhyssuskyItiir., en
eftir þjóðvegunum renna slórar leslir þysks stórskota-
liðs. og koma sjer fvrir til þess art skjóta á liorgina í
rökkri kvöldsins.
Og yfir hið hrúarlansa 'Volgufljót fmra Rússar nú
liðsauha frú herstöðvunum í austri.
Stalingrad býst til að selja líf sitt dýru verði. — I úthverf-
um borgarinnar halda bardagar áfram af hinni mestu grimd.
Rússar hafa hrundið endurteknum árásum Þjóðverja í norð-
vesturhluta borgarinnar, en þær voru gerðar bæði af skrið-
dreka- og fótgönguliði.
Barist er nú með byssusting
um á strætum og í húsum.
Þýskar skriðdrekaskyttur, sem
höfðu tekið sjer stöðu í einum
hluta borgarinnar, voru strá-
feldar af Rússum. Fallbyssur
Þjóðverja, bæði langdrægar og
þær sem styttra draga, spúa
nú eldi og eimyrju yfir varnar-
liðið.
Þessi ógurlega stórskotahríð
bætist við þunga árásanna sem
gerðar eru af skriðdrekaliði,
fótgönguliði og flugher, og
gerir ástandið alvarlegra með
hverri stundu sem líður.
Þrátt fyrir þær óhemju á-
rásir, sem gerðar eru á sam-
gönguleiðir borgarinnar af
Þjóðverjum, halda varnarliðs-
sveitir stöðugt áfram að kom-
ast þangað, en aðrar eru á leið
inni. Skyttuherfylki frá Síberíu
er á leiðinni. í þessu sambandi
má geta þess, að það voru
skotmannasveitir frá Síberíu,
sem hrundu áhlaupi von Bocks
við Borodino s.l. haust, þá er
Þjóðverjar voru að reyna að
komast til Moskva.
MODZOK-VÍG-
STÖÐVARNAR. '
Seinustu frjettir frá Mod-
zok, þar sem Rússar reyna að
hindra framsókn Þjóðverja til
Grozny-olíulindanna, eru þær,
að ástandið sje fremur
sæmilegt fyrir Rauða herinn.
Aðallega er það þó undir
rússnesku flugsveitunum þarna
komið, hvort hernum tekst að
halda vörninni til streytu, því
það er hann, sem á að herja
á samgönguleið Þjóðverja yfir
Terekfljótið, og koma þannig
í veg fyrir, að þeim berist liðs-
auki.
Japanar náfgast
Port Moresby
Enn eru stórfenglegir bardag-
ar háðir í frumskógum Nýju
Guineu, þar sem hersveitir Jap-
ana sækja fram til Port Mores-
by, sem er aðalstöð varnarlínunn
ar fyrir Norður-Ástralíu.
Sagt var, að orusturnar hafi
verið mjög harðar, og hefðu báð-
ir aðilar lagt áherslu á að reyna
að umkringja óvinasveitimar. —
Japanar eru nú sagðir komnir að
Yourubava, sem er um 32 mílur
frá Port Moresby. Miklir bardag
ar eru og háðir við Oven Stanley.
Flugvjelar Bandamanna hafa
gert endurteknar loftárásir á
Buna, og einnig á hersveitir Jap
ana í fjöllunum við Owen Stanley
Lotfárás var að auki gerð á stöðv
ar Japana á Buka eynni í Saló-
monseyjum.
Bretar sækja fram
á Madagaskar
Hafa tekíð borg á atistar-
ströndínní
Osío er eíns
ogþýskborg
Annet skorar á Frakka að berjast
Vichy í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá REUTER.
A V.VO'. landstjóri Viehystjórnarinnar á Mo-
dagashar, hefir staðfest. að hann muni gfir
gefa höfnðborgina, Antanarivo, og hnida
áfrum vörninni annarstaðar, svo fremi Rretar nái borg
inni á sitt vald.
II n n n tekur þart frani. art með því að gera þeiia.
undlrstryki ltann þart, að hann sje algerlega andvígnr
vopnahljesskllmálum þeim, sem Hrelar settu.
„Hersveitir vorar halda áfram
vöm sinni“ segir ennfremur í til-
ky.nningunni, „og munu þær verja
Í Madagaskar, þar til yfir lýkur*‘.
I „Jeg hefi“, segir landsstjórinn
ennfremur, „skipað öllum embætt
ismönnum að vera kyrrum í stöft
um sínum og kvika hvergi“.
NÝ LANDGANGA BRETA
Breskar hersveitir lentu á aust
urströnd Madagaskar í dag. Tóku
þar bæ án verulegrar mótspymu.
Urðu þar af leiðandi mjög litlar
skemdir í bænum, og er þar nú
allt komið í hið fyrra horf aft-
ur.
Bretar segja sóknina til höfuð
borgarinnar ganga að óskum. Á
einum stað var háð hörð viður-
eign við franskar hersveitir, og
veitti Bretum betur.
I flestum borgum, sem Bretar
hafa þegar náð, er nú alt komið
í sitt fyrra horf.
Ifregn til „Svenska Dagblad-
et“ ?r frá því skýrt, að Osló
líkist í dag meira þýskum setuliðs-
bæ, heldur en höfuðborg Noregs,
er áður var svo friðsamleg.
Á götunum í miðbænum er ann-
ar hver maður í þýskum einkenn- j
isbúningi. Alstaðar heyrist töluð.
þýska, og ef maðu’r sest við borð
á einhverju veitingahúsinu, þá er
þar þjettsetið af Þjóðverjum. Og |
þar sem Þjóðverjar koma, hverfa
allir Norðmenn á brott. Ef þýskn
hermennirnir finna, að þeir eru
ekki undir eftirliti, þá tala þeir
eins og þeim býr í brjósti, og eru
ekki faguryrtir í garð Hitlers. —
Einnig láta þeir óánægju sína í
Ijósi yfir veru sinni og störfum í
Noregi.
Annars bætir fregnin því við,
að varla sje hægt að kalla flesta
þeirra Þjóðverja, sem nú eru í
Noregi hermenn, því þeir eru
flestir rosknir menn, eða þá ungl-
ingar, frá 16 ára aldri.
Farfuglar fara í Jlalaból hjá Kald-
árseli kl. 8 í kviild. Upplýsingar í
síma 4009 kl. 12—2 í dag.
116 Frakkar feknir
af lfifl
WICHY í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá BEUTEB.
ST ULPNAGEL, yfirhers
höfðingi Þjóðverja í París
hefir tilkynt, að 116 kommún-
istar og hryðjuverkarmenn, j
hefðu verið teknir af lífi fyrir
að vera samsekir um árásir á1
þýskar hersveitir.
Árásin á Oiepps
Æskan er nýkomin út. Á for-
síðu er mynd af sveitadreng með
lamb. — Annað efni blaðsins eru sög-
ur og greinar við hæfi unglinga.
Ritið er prýtt myndum, bæði teikn
ingum og Ijósmvndum.
Yfirstjórn kanadiska liðsins,
sem árásina gerði á Dieppe
á dögunum, hefir gefið út yfirlits
skýrslu um strandhögg þetta.
Sagðist þeim svo frá, að mikið
hefði mátt læra af árás þessari.
sem þó hefði ekki gengið að ósk-
um að því leyti, að ekki hefði tek
ist að koma að óvinunum fullkom
lega óvörum. Þýskt olíuflutninga
skip varð nefnilega á vegi bresku
skipanna á leiðinni yfir Ermar-
sund, og bar strandvamarliðinu
n jósnir um ferð þeirra.
PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Willkie kominn
tll Rússlands
WENDELL WILLKIE, sjer-
stakur sendiboði Roose-
velts forseta, kom til Kubyshef i
gær frá Teheran. Eftir að dvelja
þar í nokkra daga, muji hann
fara til Moskva, til þess að ræða
við æðstu stjómarvöld Rússa, og
talar þar á meðal við Stalin.
Uppskeran í Bret-
lanöi eykst
l-j að hefir verið áætlað, að upp
* skeran í Bretlandi muni auk
ast um fimm af hundraði á þessu
hausti, og mun sú aukning spara
mikið skiprúm.
Bændur hafa tekið mjög mik-
ið land til nýræktar og gengið
fram í því starfi af mesta dugn-
aði.