Morgunblaðið - 03.01.1943, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.01.1943, Blaðsíða 3
Sunmtdagur 3. janúar 1943. MORGUNBLAÐIÐ 3 Blaðamenn á fundi ríkisstjórnarinnar Herferðin gegn Öýrtíðinni hafin Lækkað verð á eggjum, smjöri, kindakjöti, saitkjöti og koium Verðlagseftirlit á allar vörur RÍKISSTJÓRNIN kvaddi tíðindamenn blaða og útvarps á fund sinn í gær og voru ráðherrar þar allir viðstaddir. Forsætisráðherra, dr. Björn Þórðarson ávarpaði blaðamenn- ma. Hann gat þess, að ríkisstjórnin væri þannig sett, að hún nyti ekki stuðnings neins ákveðins blaðs, en hún vildi hafa sam- vinnu við öll blöð um þau mál, er varðaði almenning í landinu. Myndi því sá háttur verða upptekinn, að ráðherrar kveddu blaða- menn á sinn fund, er þeir teldu sig hafa einhvern boðskap þeim að flytja. Ætti ríkisstjórnin það svo undir drengskap blaðamann- anna, hvernig þeir hjeldu á málunum. Þegar forsætisráðherra hafði ávarpað blaðamennina, afhenti hann þeim fyrstu tilkynningu ríkisstj órnari nnar, svohljóð- andi: TilkjTining ríkisstjórnar- innar. Kíkisstjórnin hefir talið rjettmætt að almenningur ætti þess kost, að fylgjast með aðgerðum stjórnarinnar. Stefnuskrá hennar er þegar kunn af ræðu forsætisráðherra. er hann hjelt, þegar stjórnin tók við fyrir hálfum mánuði. Meginverkefni stjórnarinnar er að réyna að stöðva, verðbólguna og vinna síðan bug á dýrtíðinni, svo að at- vinnuvegir landsmanna komist á slík- an grundvöll, að hægt sje að framleiða vörur tij útflutnings fyrir það verð, sem er fastmælum bundið við erlend- ar þjóðir með samningum milli ríkja. Alþjóð er kunnugt, hversu vel og rösklega Alþingi brást við er það sam- þykkti lög á einum degi, er bönnuðu hækkun á vöruverði til febrúarloka. Með þessi lög að bakhjalli hófst rjkisstjórnin handa þegar í stað um rannsókna á því, hvort hægt væri að lækka dýrtíðina. I því skyni er áíormað að verðlags- eftirlitið verði látið taka til allra vára. Skýrslum ér safnað og verður safnað ' uni hvað eina í verslunum, veitingastöðum o. s. frv., en málið er svo víðtækt, að til þessa hefir ekki verið ' unnið úr nema litlu einu, og líður því nokkur tími uns fullur ár- angur kemur í ljós i breyttri vísitölu. Ætlunin er að setja alla vöru undir verðlagseftirlit, ýmist með hámarks- verði eða hámarksálagningu, hvort sem, um er að ræða vísitöluvörur eða ekki, því að fleira er vitanlega keypt en þær. Árangurinn í lækkunarátt, sem þeg- ar er kunnur, er þessi: Kgg hafa lækkað úr 25 kr. kg. í 16 kr, kg. Smjör hefir lækkað úr 21.50 kg. í 13 kr. kg. Kindakjöt (spúþukjöt) hefir lækkað úr 7.75 kg. í 6.50 kr. kg. Saltkjöt hefir lækkað úr 820 kr. tn. í 690 kr. tunnan. Kol h'afa lækkað úr 200 kr. tonnið í 184 kr. tonnið. Þá hefir verið ákveðið hámarks- álagning á tilbúnum fatnað, karla, kvenna, barna og unglinga, svo sem auglýst hefir verið, en til þessa hafa ákvæði um háinai'ksálagningu ekki verið í gildi um þessa vöru. Á næst- unni verða sett slík ákvæði um æ fleiri vörur og verður einkum hraðað aðgerðum varðandi þær vörur, er skipta miklu máli fyrir almenning. Þá er rjett að taka þetta fram um lækkun verðs á einstökupi tegundum: Kjötverðið er lækkað með framlagi úr ríkissjóði, er nemur kr. 1.00 pr kg. kindakjöts hverrar tegundar sem er. Auk þess hefir fjelag kjötverslana riðið á vaðið og gefið eftir hluta af söluþóknun sinni, og nemur lækkun I tekjum þeirra 25 aurum á hverju kg. súpukjöts og enn meiru á dýrara kjöti, t. d. hangikjöti. Smjör verður flutt inn frá Ameríku en ágóði af sÖlu þess verður varið til þess að verðbæta íslenska smjörið. Vinnst þá þetta, að meira smjör verður á boð- stólum og verðið lækkar, en innlendir framleiðendur tapa þó engn. Almenningur kann að óttast, að "eggin hverfi af markaðnum er verð- FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Tundurdufl landfast á Siglunesi Siglufirði, laugardag. undurdufl rak á land á Siglunesi í nótt. Er duflið nú að velkjast í fjölunni og get- ur valdið tjóni, ef það spryngur. Einnig getur duflið tekið út aft- ur og er þá hætta á, að það reki hingað inn og gæti þá gert mik- inn usla, því að hjer er foráttu- brim. Er fólk úti á Siglunesi og eins hjer kvíðafult yfir þessum ófögnuði. 89,9°|0 af út- svörum greidd 1942 Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefir fengið hjá Tómasi Jónssyni borgarrit- ara, var 89.9% af áætluðum út- svörum ársins, sem leið greidd fyrir áramót. Er þetta heldur minna, en árið 1941, því þá voru greidd 99% áætl unarupphæðar- innar. Árin þar á undan voru venju- lega ekki greidd nema" 70—80% af áætlunarupphæðum útsvara bæjarins fyrir áramót. I Nýársræða I rikisstjóra | | |—\ æða Sveins Björnssonar | | ríkisstjóra, sem hann | | flutti til þjóðarinnar í útvarp- | | ið á nýársdag er birt í heild 1 | á 4. síðu í blaðinu í dag. ,>iiiiiliiiiiliiiiiliiililllluillllimilllUHUiUHiniilliiiniiiiiiiiiiln Manns sakn- að í Keflavik Igær auglýsti lögregbustjórinn í Keflavík eftir manni, sem horfiö haföi 23. þ. m. og ekkert spurst til síðan. Lögreglustjórinn í Keflavík skýrði blaðinu svo frá í gær, að maður þessi hafi síðast sjeðst á Þorláksmessu milli kl. 11 og 12, en þá var hann um borð í bát við hafnargarðinn. Síðan hefir ekk- ert af honum frjettst. Þetta er ungur maður, Þórður Helgason að nafni, til beimilis á Brunnstíg 1 i Keflavík. Hann var ókvæntur, en bjó hjá foreldr- um sínum. Stórbruni í Hafnarfirði » gamlárskvöld kom upp eld- ur í húsinu nr. 19 við Strandgötu í Hafnarf. Slökkvi- liðsstjórinn í Hafnarfirði skýrði blaðinu svo frá í gær, að bruna- liðið hefði verið kvatt á vettvang um kl. 5,30. Þá þegar voru tvær efri hæðir hússins alelda og eld- urinn byrjaður að læsa sig í kjall- ara hússins. Brunaliðinu tókst að ráða nið- urlögum eldsins, en þá voru tvær efri hæðirnar brunnar að mestu. Engu var þar bjargað af inn- anstokksmunum og tjón því afar mikið. Um upptök eldsins verður ekki sagt neitt að svo stöddu. Hús þetta var járnklætt timb- urhús, tvílyft með kjallara. 1 kjallara húspins er verslun, en í tveim efri hæðunum bjuggu þrjár fjölskyldur. Eigandi hússins er Jón Einarsson. íslensha útvarplð í London Frá og með morgundeginum breytist bylgjulengd útvarps á íslensku frá London, og verður eftir það útvarpað á 31,88 metra öldulengd. Tímin verður óbreytt- ur. eða kl. 3,45. Lögreglan segir: „Rólegt gamlárskvold" Mannfjölda dreift 1 með vatnsslöngum [Ikveikjuæði unglinga í miðbænum ,.Þ AÐ vai1 rólegt gamlárskvöld að þessu sinni“, sagði Erlingur Pálsson yfirlögreglu- þjónn, er Morgunblaðið spurði hann um starf götulögreglunnar á gamlárskvöld. Lögreglan hafði samt nóg að starfa alt kvöldið, en slys urðu engín svo teljandi sjeu og drykkjuskapur var með minna móti. Það voru margir teknir úr umferð, en ekki fleiri en svo að rúm hefði verið fyrir fleiri ef þess hefði gerst þörf. Það var einkum tvent, sem olli vandræðum, ef svo mætti segja, sagði Erlingur. Annað var að fólk safnaðist saman í hóp og ljet ófriðlega og svo var það íkveikjuæði unglinga, sem farið er að tíðkast hjer í bænum upp á síðkastið og getur verið stórhættu- legt. Lögreglunni tókst þó að koma í veg fyrir að slyS þlytust af. þar sem kveikt var í. Von á nýjum fiski i bæinn T ítið hefir verið um nýjan Á-4 fisk í bænum undanfarið, en nú er von til að úr fari að ræt- ast, eftir því, sem Steingrímur Magnússon í Fiskhöllinni skýrði Morgunblaðinu frá í gær. Bátar í verstöðvunum hjer við Faxaflóa eru að búa sig undir vertíðina og eru þegar nokkrir bátár tilbúnir til að róa þegar gefur á sjó. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að fá fisk frá Sandgerði, Keflavík, Grindavík og víðar að suður með sjó, eins og venja er. Má búast við, að meira verði um nýja ýsu á fisk- markaðnum í bænum en verið hefir undanfarið. Akranes-bátar fóru á sjó 30. des. og öflugu sæmilega, en sama og ekkert. kemur hingað til bæj- arins af fiski frá Akranesi. B.v. Geir hefir verið á veiðum fyrir bæinn undanfarið ,en afli hefir- verið heldur tregur hjá honum undanfarið. 1 gær var ekki nema frosinn fiskur til í fiskbúðum hjer í bæn- um. Bílslys á nýársnótt Bifreiðarslys varð á horni Austurstrætis og Lækjar- götu klukkan um 12,30 á nýárs- nótt. Erlend bifreið ók á mann einn, sem slasaðist svo að flytja varð hann í sjúkrahús. Ekki er þó talið að maðurinn hafi slas- ast alvarlega. Maðurinn, sem fyrir bifreið- inni varð heitir Þorsteinn Eiríks- son og á heima á Hverfisgötu 90. Unglingar teknir úr umferð fyrir íkveikjur. Þetta íkveikjuæði á gamlárs- kvöld er falið í því, að unglingar um fermingu fara inn í port og húsasund og reyna að finna kassa. jólatrje eða annað, sem hægt er að safna saman og kveikja úr bál. Eitt slíkt. bál var kveikt á Kirkjutorgi, hjá dómkirkjunni og annað fyrir framan hár- greiðslustofuna Edina við Póst- hússtræti. Þá var kveikt í legubekk, setti stóð í undirgangi milli húsanna nr. 6 og 8 við Lækjargötu. Var legubekkurinn alelda er lögregl- an kom að, hefði þetta geta, orð- ið hættulegur leikur. Lögreglan náði í flesta bruna- vargana og var farið með þá á lögreglustöðina, þar sem þeir voru geymdir í sjerstöku herbergi framyfir miðnætti, en þá leyft að fara heim. Var þá af flestum svo dregið, að lítil hætta var á að þeir rjeðust í fleiri stórræði það kvöldið. „Er hann litli rninn hjer . .?“ Margir foreldrar komu á lög- reglustöðina til að spyrja um börn sín. Líkaði flestum vel ef þeir fundu afkvæmi sín þar, því þá var vitað að þau voru ekki á glapstigum. Ein móðir, sem kom á lög- reglustöðina spurði „hvort ,hann litli sinn væri hjer“ og varð dauf, er henni var sagt að svo væri ekki. Hann hefir nefnilega ekki komið heim síðan um hádegi í dag, sagði hún. Alls mun lögreglan hafa tekið um 20 unglinga úr umferð á gamlárskvöld. Þegar vatnsslöngurnar voru notaðr. Það er venja, að þegar lög- reglan skerst í leikinn þar sem eitthvað er um að vera á götun- um, að f jöldi manns safnast sam- an til að horfa á og oft eltir all- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.