Morgunblaðið - 12.08.1943, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.08.1943, Blaðsíða 12
12 Fimmtudag'ur 12. ágúst 1943. Myndin er tekin úr fljúgandi virki, meðan slíkar flugvjelar eru að gera loft- árás á kafbátastöðina í L Orient í Frakklandi. Sprengjur sjást springa á hafnarmannvirkjum. Háspennutaug bilar í hitaveituskurði Óhagræði og slysahætta lýr tennisvöllur T. B. R. tekinn í notkun Morgunblaðið hefir átt tal við formann Tennis- og badmintonfjelags Reykja- víkur, Jón Jóhannesson, og spurt hann um hinn nýja tennisvöil fjelagsins, sem að undanförnu hefir verið unn ið að að fullgera. Sagðist Jóni svo frá, að völlurinn væri nú fullgerður og hefði verið tekinn í notkun. Sagði Jón völlinn revnast mjög vel, væri hann mjúk- ur undir fæti og auk þess þeim kosti búinn, að vatn sest ekki á hann. Völlurinn er gerður úr blöndu af rauðamöl, mold og deiglu- mó, og er þessu blandað eft- ir sjerstökum hlutföllum. Sagði formaður T. B. R., að Benedikt Jakobsson íþrótta fulltrúi bæjarins hefði ver- ið með í ráðum um gerð vallarins og aðstoðað við það með ráðum og dáð. Völlur þessi er hinn fyrsti af slíkri gerð, sem tek inn er í notkun hjer á landi, en erlendis er mikið leikið á völlum af svipaðri gerð. Var það eigi lítið afrek af jafn fámennu fjelagi og T. B. R., að koma upp jafn- myndarlegum velli, en hann mun hafa kostað um 11,000 krónur. Formaður fjelags- ins skýrði svo frá, að bær- inn hefði sýnt fjelaginu þá rausn, að veita því 4000 kr. styrk til vallargerðarinnar, og kann fjelagið bæjarstjórn bestu þakkir fyrir. Vellir slíkir, sem þessi, eru venjulega merktir með þar til gerðum listum, en þareð fjelaginu hefir enn ekki auðnast að fá þá, verð- ur völlurinn krítaður til bráðabirgða. Vegna þess, hve áliðið er sumars, er völlurinn er til- búinn, hefir stjórn T. B. R. ákveðið; að fjelagsmenn hafi ókeypis aðgang að hon um það sem eftir er sum- arsins. T. B. R. kaus nefnd til þess að annast byggingu vallarins, og áttu sæti í henni þessir m enn: For- maður nefndarinnar var Gísli Sigurbjörnsson, en auk hans voru í nefndinni þeir Friðrik Sigurbjörns- son, varaform. T. B. R., og Jón Jóhannesson formaður fjelagsins. Full ástæða er til þess, að óska fjelaginu til ham- ingju með hinn ágæta völl sem áreiðanlega verður lyftistöng undir frekari þró un tennisíþróttarinnar hjer í bænum. J. Bn. Hæsti vinningur happdrætt isins kom á hálfmiða, sem' seldir voru í umboði Versl. Þorvaldar Bjarnasonar, Ilafn atfirði. Um klukkan eitt miðdegis í gær varð rafmagnslaust í Mið- bænum og í fleiri hverfum. Stafaði það af því, að taka þurfti rafmagnsstrauminn af í nokkrum spennistöðvum meðan verið var að lagfæra háspennu- taug, sem bilað hafði í Hafn- arstræti. Um kl. 4 e. h. fjekst rafmagn í flest þau hverfi, er rafmagns- laus urðu. Kl. 10V2 í gær fengu starfs- menn á skrifstofu Rafveitunnar vitneskju um að háspennutaug- in hefði bilað. En vegna þess hve bagalegt það er fyrir fjölda bæjarbúa að missa rafmagnið um hádegið, var viðgerð frest- að fram til kl. 1. Bilunin mun hafa viljað þannig til, að maður sem var að vinnu í hitaveituskurði, hefir höggvið með skóflu eða haka í jarðstrenginn, svo einangrun hans skemdist. Getur slíkt orð- ið hættulegt verkamönnum, enda er brýnt fyrir þeim að gæta varúðar. Þegar einangrun háspennutauga rofnar, getur hlotist stórslys af, ef rafmagn t. d. fer í jarðveginn, en menn, sem þar eru, vita ekki hvernig komið er. Blaðið frjetti í gær á skot- spón, að háspennutaugin hafi bilað á þriðjudag, en starlsmenn Rafveitunnar ekki hirt um að lagfæra þetta fyr en í gær. Er Jakob Guðjohnsen, raf- magnsverkfræðingur, var að því spurður, sagði hann sem var, að strax hefði verið brugðið við á skrifstofu Rafveitunnar, er frjettist um bilunina. Svo þessi saga væri á misskilningi bygð. En síðar frjetti hann, og ljet blaðið vita, að verkstjóri sá, er hefir umsjón með vinnunni í Hafnarstræti, hafi sagt að hann hafi á þriðjudag tilkynt lögregl- unni um skemdina á háspennu- tauginni. En er lögreglan var spurð hvers vegna hún hefði ekki látið boðin ganga til Raf- veitunnar, þá kannaðist enginn við, að neitt hefði um þetta heyrst á þriðjudag þar. Þannig virðist mál þetta vera vaxið. Að skemdin hafi orðið á þriðjudag, háspennutaugin leg- ið „opin“ fram á miðvikudag og þá komu hvað eftir annað raf- magnsblossar út úr strengnum, þar sem einangrunin var biluð. Jakob Guðjohnsen sagði blað- inu, að Rafveitan hefði sjer- stakan eftirlitsmann til þess að gæta þess að raflagnir yrðu ekki fyrir skemdum, og til þess að brýna það fyrir verkamönnum Hitaveitunnar að fara varlega þar sem raflagnir liggja um skurðina. Síðan farið var að grafa í göturnar í ár, hafa ekki komið fyrir skemdir á háspennukerf- inu, fyrri en í þetta sinn. En í fyrra skifti sem unnið var í götunum, truflaðist háspennu- kerfið 11 sinnum. Stalin fær heimsóknir London í gærkveldi. Stalin tók í dag á móti breska sendiherranum í Moskva, Clark Kerr og ræddust þeir við um hríð. Nokkru síðar um daginn átti Stalin tal við sendiherra Bandaríkjanna, Standley flota- foringja, og ræddust þeir einnig við drjúga stund. — Reuter. Rjörn L Jónsson hreppstjóri á Stóru-Seilu dáinn Þ. 10. ágúst andaðist að heim- ili sínu, Stóru-Seilu í Skaga- firði, Björn L. Jónsson hrepp- stjóri. Banamein hans var krabba- mein. Hann var um langt skeið meðal fremstu bænda í Skaga- firði. Verður æfiatriða hans nánar getið síðar. Fimtarþrautin Úrslit urðu þessi: Langstökk: 1. Oddur Helgason .... 6.11 m. 2. Jón Hjartar ....... 5.96 — 3. Sig. Norðdahl ..... 5.88 — 4. Einar Guðjohnsen .. 5.24 — Spjótkast: 1. Jón Hjartar ....... 52.32 m. 2. Sig. Norðdahl ..... 43.33 — 3. Einar Guðjohnsen .. 39.68 — 4. Oddur Helgason .. 37.75 — 200 m. hlaup: 1. Jón Hjartar .......26,0 sek. 2. Sig. Norðdahl...... 26,3 — 3. Oddur Helgason . . 26,4 — 4. Einar Guðjohnsen .. 27,0 — Kringlukast: 1. Sig. Norðdahl...... 31.78 m. 2. Einar Guðjohnsen .. 29.74 — 3. Jón Hjartar ....... 25.94 — 4. Oddur Helgason .. 24.30 — 1500 m. hlaup: 1. Jón Hjartar .... 4:57,8 min. 2. Einar Guðjohnsen 4:58,8 — 3. Sig. Norðdahl .. 5:26,2 — Besta einstaklingsafrekið var spjótkast Jóns — 52.32 m., er gaf 631 stig. í fyrra var meist- ari Anton Björnsson (KR) með 2466 stig, en metið á Sig. Finns- son (KR), 2834 stig. Meistaramótið K. R. meistari í 4x100 m. boðhlaupi4 en Ármann 4x400 m. Meistaramótið hjelt áfram í gærkvöldi og var þá kept í báðum boðhlaupunum. — Úrslit urðu þessi 4x100 m boðhlaup: Meistari: A-sveit K. R. 47,4 sek. 2. A-sveit Ármanns 47,9 sek. 3. A-sveit í. R. 48,5 sek. 4. B-sveit K. R. 48,8 sek. F. H. sveitin varð fyrir þeiri einstöku óheppni, að 1. maður þeirra „glevmdi að taka með sjer keflið“ og hætti á miðri leið. K. R. náði góðu forskoti á fyrsta sprettinum og hjelt því nokkurn veginn, þar til við síðustu skiftingu, að Sig urður og Brynjólfur rákust hvor á annan svo hastar- lega, að báðir hlutu af nokkur meiðsli, þó ekki al- varleg. Tafði það eitthvað, svo munurinn í markinu var ekki nema 4—5 metrar. Meistarar eru þessir (í sömu röð og þeir hlupu): Jóhann Bernhard, Hjálmar Kjart- ansson, Sig. Finnsson og Brynj. Ingólfsson. 4x400 m boðhlaup: Meistari: Ármann 3:44,0 mín. 2. KR 3:46,6 mín. 3. ÍR 3:48,6 mín. Þetta var mjög spenn- andi hlaup á köflum. Ár- mann vann mjög mikið inn á fyrsta sprettinum. Á þeim næsta hjelst bilið að mestu leyti, en á þriðja sprettinum vann KR dálítið inn. Þann sprett hljóp Brynj. fyrir K R, þrátt fyrir meiðslin. Þá fjekk Sigurgeir kefl- ið, svo langt á undan Jó- hanni og Finnbirni (ÍR.) að úrslitin voru fyrirsjáan- leg. Jóhann fór mjög geyst af stað og hafði næstum unnið upp forskotið, þegar hlaupið var hálfnað, en eft- ir það fór að draga af hon- um og Sigurgeir vann örugg lega. Finnbjörn, sem hafði dregist dálítið afturúr, vang. mikið á þá báða í endanum Meistarar Ármanns voru þessir: Árni Kjartansson, Baldur Möller, Hörður Hafliðason og Sigurgeir Ársælsson. Tími ÍR. í þessu boðhlaupi er nýtt drengjamet. Meistaramótinu lýkur 24. og 25. ágúst með keppni í 10 km. hlaupi og tugþraut. Washington í gærkv. BANDARÍKJAMENN sækja fram á Nýju-Georg- íu, og hörfa Japanar til meginstöðva sinna við fjörð einn norðan til á eynni. —• Eru Bandaríkjamenn nú um 5 km. frá þessum síðustu varnarstöðvum Japana á eynni. < —Reuter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.