Morgunblaðið - 24.08.1943, Blaðsíða 4
'4
UNGLING ;
vantar til að bera ’
blaðið til kaupenda ]
við Karlagötu
Talið strax við al-,j
greiðsluna, sámi 16001
ijt
í B 8J Ð
2 herbergi og eldhús
óskast gegn 5000 kr.
fyrirframgreiðslu
Tilboð merkt „íbúð“
sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyr-
ir n. k. fimtudag
TILKYNNIIMG
frá ríkisstjórninni
Breska flotastjórnin hefir tilkynnt íslensku
ríkisstjórninni að nauðsynlegt sé að öll íslensk skip,
10 til 750 smál. að stærð, fái endurnýjuð eins fljótt
og hægt er eftir 1 september 1943, ferðaskírteini
þau, sem um ræðir í tilkynningu ríkisstjórnarinn-
ar dags. 7. mars 1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hjer segir:
I Reykjavík hjá breska aðalkonsúlnum, á Akur-
eyri hjá breska vice-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá
bresku flotastjórninni og í Vestmannaeyjum hjá
breska vicekonsúlnum.
Atvinnu og samgöngumálaráðuneytið,
21. ágúst 1943.
i
I
%
I
?
y,
i
FYRIR DÖMUR:
RYKFRAKKAR
fyrirliggjandi.
FYRIR HERRA:
Gúmmíkápur
Olíukápur (síðar og hálfsíðar)
Vinnuskyrtur
Manchettuskyrtur
Vinnuvettlingar, margar teg.
Vinnufatnaður allskonar.
SJÓKLÆÐI OG FA NAÐUR S.F.
Varðarhúsinu.
Sími 4513-
,*, *\ .♦» ,V„V„V,
V V V % %* TrVWW
MORGUNJBL.AÐIÐ
i r • • ) , ' )
Þriðjudagur 24. ágúst 1943
■ ! • l : : : l i ; i" I ! : : I
Björn Jónsson hreppstjór:
á Stóru-Seylu
Björn Lárus hjet hann
fullu nafni. Hann er borinn
til grafar í dag í Glaumbæ.
Þar á staðnum hóf hann
búnað vorið 1902, 23 ára
að aldri. Fluttist hann þang-
að frá æskuheimili sínu, Ög-
mundarstöðum í Víkur-
torfu, með sinni ungu brúði,
Steinvöru Vefreyju Sigur-
jónsdóttur, bónda í Glæsi-
bæ í Víkurtorfu, Bergvins-
sonar. Var hún þá um tví-
tugt. Björn gekk að eiga
hana 18. des. 1900. Varð
þeim þriggja barna auðið,
en aðeins eitt þeirra náði
fullorðinsaldri, Jón bóndi og
organisti að Hafsteinsstöð-
um. Misti hann móður sína
í æsku, en hún andaðist 5.
maí 1911, og varð hún þeim
feðgum mjög harmdauði,
svo og öllum, er til hennar
þektu, því að hún var glæsi-
leg og vel gefið valkvendi.
Björn og Steinvör flutt-
ust að Stóru-Seylu vorið
1907, og þar bjó hann síðan
samfleytt til æviloka. Gerð-
ist hann snemma athafna-
mikill þar, húsaði jörðina
og girti tún og bithaga.
Öðru sinni kvæntist Björn
29. maí 1915 Margrjeti
Björnóníu Björnsdóttur,
bónda á Syðra-Skörðugili,
Finnssonar, inni mestu at-
gervis- og ágætis konu. Lif-
ir hún mann sinn. Varð
þeim þriggja barna auðið,
og lifa öll, tvær dætur,
Steinvör Lovísa, gift og á
börn, og Ingibjörg Salóme,
ógift, og einn sonur, Hall-
dór, að námi í Mentaskólan
um á Akureyri. Eru öll börn
in nú heima hjá móður
sinni.
Björn var snemma stór-
huga og áhugasamur í
sveit sinni. Hlóðust á hann
mörg opinber störf. Hrepps
nefndarmaður var hann yf-
ir 30 ár í Seyluhreppi (til
dauðadags) og oddviti 1918
—’35. Lengi var hann for-
maður búnaðarfjelags
hreppsins, og Garðyrkjufje-
lagi Seyluhrepps veitti
hann forstöðu 8 ár. Safnað-
arfulltrúi var hann 12 ár
og form. sóknarnefndar um
20 ár. Fulltrúi var hann á
fundum Búnaðarsambands
Skagafjarðar frá stofnun
þess og trúnaðarmaður
Ræktunarsjóðs íslands var
hann í Seyluumboði 1933 og
síðan. Nokkrum sinnum átti
hann sæti í landamerkja-
dómum. Loks er þess að
geta, að hann var hrépp-
stjóri frá 1922 til æviloka.
Stórlyndur var Björn og
kappgjarn og lítt hneigður
til að láta hlut sinn. Gat
stundum verið óhlífinn, er
því var að skifta, en raun-
góður var hann, manna
gestrisnastur, glaður long-
um og reifur, greiðamaður
mikill. Lengstum bjó hann
stórbúi og kunni vel mikl-
um umsvifum. — Hann var
iðjumaður mikill.
Björn var fæddur í Ög-
mundarstöðum 4. apríldag
1879. Voru foreldrar hans
Jón Björnsson, bóndi þar,
og konu hans, Kristín Steins
dóttir, bónda í Stórugröf á
Langholti, Vigfússonar. Jón
var greindarmaður mikiil,
sem hann átti ætt til. Amma
hans var in ættfróða Ingi-
ríður, er Gísli Konráðsson
skrifaði eftir ættir Skaga-
manna. Jón var og minnug-
ur og fróður vel. Faðir hans
var Björn Halldórsson,
bóndi á Hvalnesi á Skaga,
en móðir Jóns var María,
systir Steins í Stórugröf, svo
að þau hjónin, Kristín og
Jón, voru systkinabörn. En
Steinn í Gröf var annálað-
ur búsýslumaður og þær
mörgu dætur hans inar
mestu búkonur. Hafði
Björn í Seylu erft fjör og
athafnaþrá Steins móður-
bróður síns, þó að ekki væri
hann jafn mikill fjárgæslu-
maður sem Steinn afi hans.
Björn var greindur maður
og lesinn í íslenskum fræð-
um og líktist um það föður
sínum.
Um sumarmálin síðustu
kendi Björn sál. mikillar
vanheilsu og tók ekki á heil-
um sjer eftir það. Snemma
í júlímánuði fór hann til
Reykjavíkur til að leita sjer
lækninga, en árangurslaust.
Nokkrum dögum eftir það,
að hann kom heim, leið
hann af þessum heimi. Það
var árla morguns 10. þ. m.
Banamein hans var hjarta-
slag.
Dugandi vaskleikamaður
er með Birni á Seylu til
moldar genginn.
Br. T.
— VERKLYÐLEIÐTOGI
Framh. af hls. 2.
eru fjárinn hafi það, ekki
siðaðir menn“.
Víðförll verklýðs-
leiðtog.i
FeÆafjelagi Konrads
Nordahl, • Mr. John Price,
starfar hjá bresku verklýðs
samtökunum. Hann dvaldi
á árunum 1929—1937 í
Svisslandi og í Belgíu á veg
um alþjóðaverklýðssamtak
annna. Hann fór til Austur-
ríkis þegar verkamanna-
óeirðirnar urðu þar í landi
1934 og ennfremur til Spán
ar meðan á borgarastyrjöld-
inni þar stóð til að kynna
sjer hvað hægt væri að gera
verkamönnum til hjálpar.
X
Landakotsskólinn
verður settur miðvikudaginn 1. september
kl- 10.
♦!“!“!♦ ♦!♦ ♦!♦ ♦!♦ ♦!♦ ♦!♦♦!♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦
♦:♦♦:♦♦:♦♦:♦•:♦♦:♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦%♦%♦%♦♦♦♦
j Innheimtumaðnr
% Duglegur innheimtumaður óskast um næstu
;j; mánaðamót. Uppl. í síma 3630.
oooooooooooooooooooooooooooooooo
Hús til sölu
‘ > I ; i . • ■ ■ _ ; .
Hefi verið beðinn að selja húseign á góð-
um stað í Hafnarfirði. Húsið er tvær hæð-
ir (5 herbergi og eldhús), með risi og
kjallara.
Allar frekari upplýsiifgar gefur
> hdm. JÓN SIGURÐSSON,
c-o hrm. Kristján Guðaugsson, Hafnarhús-
inu í Reykjavík. — Sími 3400.
oooooooooooooooooooooooooooooooo