Morgunblaðið - 02.09.1943, Side 1
SKÆRUR OG HANDTÖKUR
UM ALLA DANMÖRKU
:t
Nýr ítalskur
sendiherra
í Berlín
•
London í gær.
BADOGLIOSTJÓRNIN
hefir sent nýjan sendiherra
til Berlínar. Er það Alberto
Pariani hershöfðingi, sem
varð fyrir valinu. Hann var
áður yfirmaður herforingja
ráðsins ítalska. Sendiherra
Mussolinis í Berlín hjet
Dino Alfieri og var hátt-
settur fastistaleiðtogi.
Þykja þessi sendiherra-
skifti ekki benda til þess,
að Badogliostjórnin hugsi
sjer að semja sjerfrið í bráð
Nýr ítalskur sendiherra
hefir verið sendur til Ank-
ara í Tyrklandi til að taka
við embættinu. sem laust
varð er fyrrverandi sendi-
herra ítala þar tók við emb-
ætti utanríkismálaráðherra
x stjórn Badoglios.
Þjóðverjar hóta
Svíum
London í gærkveldi.
Þýska blaðið Berliner
Abendausgabe skrifar í dag
harðorða grein í garð Svía
og segir, að sá tími muni
koma, er þeir verði látnir
gjalda alvarlega fyrir fram-
komu sína í garð Þjóðverja.
Hermaður dæmd
ur fyrir árás á
íslenska konu
Frá utanríkisráðuneytinu
hefir blaðinu borist eftir-
farandi tilkynning:
ITinn 15. f. m. rjeðst amer-
ískur hermaður á íslenska
konu, sem á heima að Úlfarsá
í Mosfellssveit, er hún var á
leið heim til sín frá Lambhaga,
og misþyfmdi hann henni
nokkuð, áður en maður henn-
ar, er sá að henni var veitt
eftirför, kom henni til hjálp-
ar.
Síðar um kvöldið náðist her
maðurirm og var hann hinn
24. ágúst leiddur fyrir her-
rjett hjer og dæmdur. Dómur-
inn var á þá leið, að hermann-
inum var vikið úr hernum
með skömm og hánn dæmdur
til strangrar refsivistar í
fimm ár.
4 ára
stríð
Fjögur ár voru í gær lið-
in frá J)ví Þjóðverjar gerðu
innrásina í Pólland. en það
var upphaf núverandi heims
styr jaldar.
í tilefni. af þessu afmæli
sendu þeir George VI. Breta
konungur og Roosvelt for-
seti skeyti til forseta Pól-
lands.
Pius páfi.
Páfi hvet-
#
ur til friðar
PÍUS PÁFI XII. hjelt út-
varpsræðu í gær og beindi
orðum sínum til alls mann-
kynsins. Páfi hóf mál sitt
með því að minnast hins
„hræðilega dags er ófriður-
inn hófst fyrir rjettum
fjórum árum“ (innrás Þjóð-
verja í Pólland). Hann
minti á, að hann hefði þá
reynt að gera það sem í
hans valdi stóð til að halda
friði. Hann minti og á orðin
sem hann viðhafði þá:
„Ekkert, ekkert mun tap-
ast með því að friður verði
haldinn — en það getur ver
ið að alt tapist með styrj-
öld“.
Nú væri ekkert annað en
sorg í heiminum eftir fjög-
urra ára stríð og nú væri
svo komið, að það væri
meira vafamál en nokkru
sinni fyr, að það væri í þágu
þjóðanna, að þessu stríði
yrði haldið lengur áfram.
Páfi kvaðst vona, að þetta
yrði síðasta ár ófriðarins og
að næsta ár gæti byrjað sem
ár friðar. Að lokum hvatti
páfi allar þjóðir til að vinna
að því að koma á varanleg-
um friði.
NÝR YFIRMAÐUR
BRESKA ÚTYARPS-
INS.
NYR yfirmaður hefir verið
settur yfir breska útvarpið.
Ileitir hann Robert Foot.
35 þúsund Þjóðver jar
fjellu við Taganrog
London í gær. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
RÚSSAR segja, að 35,000 þýskir hermenn hafi fallið
við Taganrog og þar í grend. Segjast Rússar nú hafa lokið
við’að uppræta leifar þýska hersins, sem innikróaður var
á þessum slóðum.
Rúmlega 5000 þýskir fang
ar voru teknir og mikið her-
fang. Meðal hergagna, sem
Rússar eyðilögðu fyrir Þjóð-
verjum við Taganrog, voru
500 skriðdrekar og 500 fall-
byssur. Alls gereyddu Rúss
ar 4 þýskum herfylkjum og
voru það 17., 111. og 294. fót
gönguliðsherfylkin og 15.
fallhlífarhermannaherfylk-
ið.
Á Brianskvígstöðvunum
hefir Rússum orðið allvel
ágengt- ennþá og hafa þeir
náð mörgum bæjum og þorp
um á sitt vald.
Danski herinn leyst-
ur upp. 1000 liðsfor-
ingjar handteknir
London í gærkveldi. Einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá Reuter.
SKÆRUR, OG HANDTÖKUR eiga sjer enn stað um
alla Danmörku. Fjölda margir prestar hafa verið hand
teknir og ennfremur tveir prófessorar í gáxðfræði.
Danski herinn hefir verið leystur upp og um 1000
danskir liðsforingjar teknir höndum. Engin kennsla
fer fram í háskólunum í Kaupmannahöfn eða Aarhus.,
Allsherjarverkfall stendur enn yfir í mörgum dönskum
bæjum.
Miðhluti Kaupmanahafnar er enn lokað svæði. Fær
enginn borgari að fai'a um bannsvæðið.
Orustuskip
skjóta á megin-
land Ítalíu
BRESKU ORUSTUSKIP-
IN (og systurskipin) Nelson
og Rodney, sem eru 32,000
smálestir að stærð og hafa
margar þrefaldar 16 þuml-
unga fallbyssur, hófu skot-
hríð á meginland Ítalíu hjá
borginni Reggio við Mess-
inasund, í fyrradag.
Er þetta í fyrsta sinn, sem
bresk orustuskip skjóta á
meginland Ítalíu, en beiti-
skip Bi’eta hafa við og við
að undanförnu skotið á
strandvirki á ströndum
Italíu.
Með orustuskipunum var
beitiskipið Oran og 9 tund-
urspillar, en flugvjelar
Breta sveimuðu í lofti, skip-
unum til verndar. En flug-
vjelar ítala og Þjóðverja
ljetu ekki sjá sig. Tvær ó-
vinaflugvjelar sáust í
fjarska á meðan á skothríð-
inni stóð, en þær hypjuðu
sig brátt á brott.
Strandvirki ítala gátu
ekki haldið uppi neinni
vörn, sem nokkru næmi og
ítalski flotinn sást hvergi.
Orustuskipin skutu á
skotmörk sín úr 10 mílna
fjarlægð. Skotdrunurnar
heyrðust í 75 kílómetra
fjarlægð.
SlÐASTA FYRIR-
SKIPUN FLOTA-
FORINGJANS,
Það var Vedel flotaforingi,
sem gaf skipun um að sökkva
skyldi danska flotanum. Það
síðasta, sem heyrðist frá Víd-
el, var skipun til flotans:
„Siglið til Svíþjóðar eða
sökkvið skipunum“.
Er hann hafði gefið jiessa
fyrirskipun, voru þýskir her-
menn komnir til að handtáka
hann.
YFIRSTJÓRN ÖLL
HJÁ ÞYSKA HERS-
HÖFÐINGJANUM.
HINGAÐTIL hefir það ver-
ið óljóst, hvernig stjórn Dan-
merkur væri komið fyrir. En
samkv. skeyti til norska blaða
fxxlltrúans hjer í gær hefir yf-
irhershöfðingi Þjóðverja, von
Ilaneken, alla stjórn landsins
í sinni hendi. En skrifstofu-
stjórar ráðuneytanna annast
stjórnarstörf, undir stjórn
hans, hver í sinni deild.
Yfirhershöfðinginn hefir
hótað því, að hann tæki npp
þann hátt nazista, að hand-
taka gisla, ef óeirðum linti
ekki eða mótþróa. M. a. hefir
því verið hótað í Helsingja-
eyri. En þar hafa menn hald-
ið uppi allsherjarverkfalli.
Hinum nýju ráðstöfunum
og aðgerðum Þjóðverja hefir
almenningur svarað með því
að taka upp einkunnarorð
Norðmanna og segja: Þeir
kúga okkur aldrei!
SPRENGINGARNAR
HEYRÐUST TIL
DANMERKUR.
Sprengingarnar í Kaup-
mannahöfn s. 1. sunnudags-
nótt voru svo stórfeldar, að
Framhald á bls. 10.