Morgunblaðið - 02.09.1943, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.09.1943, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 2. i sept. 1943 - FRANCO Framhald af bls. 7 því að þessi maður reki rýt- inginn í bak okkar? Eigum við að halda áfram að friða Franco með því að byrgja hann upp með mat- vælum og eldsneyti, án þess að hirða um það, hvað hann tekur til bragðs á örlaga- stundinni? Það eru nokkur atriði, sem mæla með því, því að meðal annars myndi uppreisn gegn Franco hafa það för með sjer að þýskur her rjeðist inn á Spán og við myndum þá missa Gibralt- ar. Eða ættum við að ráðast á Spán við fyrsta tækifæri til þesð að útrýma hættunni er steðjar að okkui: úr þeirri átt? Mörg rök mæla einnig á móti þessari lausn. í fyrsta, lagi myndu slíkar fram- kvæmdir krefjast mikils liðsafla, hergagna og skipa. Hitler getur gert innrás á Spán frá Frakklandi, en við þyrftum aftur á móti að sækja vfir sjóinn. í öðru lagi, ef Franco yrði steypt af stóli, myndi hann pólit- íski fjandskapur brjótast út með nýjum ofsa. Hverskon- ar stjórn myndum við veita spönsku þjóðinni, ef við næðum Spáni á okkar vald? Hverskonar stjórnarfyrir- komulagi myndi spanska þjóðin óska eftir? — Lausa- fregnir sem hafa síast gegn um ritskoðunina, virðast staðfesta ótta íhaldsmanna okkar um að hinum rót- tæku öflum hafi aukist mik ið fylgi undir harðstjórn fasistanna og að mikill meirihluti þjóðarinnar myndi ekki sætta sig við annað en fullkomna sósíal- istastjórn. Og þá er það þriðja mót- báran. Að því er snertir hin endanlegu úrslit Evrópu- styrjaldarinnar myndu bar dagar á Spáni aðeins vera útúrdúr, sem myndi dreifa styrkleika okkar. Spánn er vissulega ljeleg bækistöð til árásar á Ev- rópu. Tveir þröngir vegir, sem liggja meðfram hinum bröttu hlíðum austan og vestan Pyreneafjalla, tengja Spán við Frakkland. Hinar snæviþöktu auðnir Pyrenea fjailanna eru óvinnandi varnarveggur gegn meiri- háttar sókn frá Spáni. Járn- brautirnar á Spáni eru af breiðari gerðinni. Þegar við höfum komið á land nægi- legum her, til þess að gera árásina, gæti Hitler hafa látið sprengja upp og loka hlitunum við Trun og Port- Bon og haldið okkur þannig í skefjum með tiltölulega litlum liðsafla. Við skulum gera okkur glöggva grein fyrir því, hvernig málunum er hátt- að á Spáni. Franco er andstæðingur okkar. Hann lætur ekkert tækifæri ónotað til þess að sannfæra okkur um það. — Stjórn hans var fyrsta stjórnin í Evrópu, sem -af frjálsum vilja gekk í lið með möndulveldunum. — Franco mun þegar veita Hitler vopnaða aðstoð gegn okkur, þegar honum býður svo við að horfa. Á hinn bóginn myndi landsetning liðs okkar á spánska grund hafa í för með sjer hernaðarleg og stjórnmálaleg vandamál, er við erum ekki enn færir um að leysa. Eina skynsamlega leiðin væri því að bíða, þrátt fyrir hættu á skyndiárás. Dálítil festa í framkomu okkar við Franco myndi ekki spilla neinu. Bretarnir voru var- kárari í viðskiftum sínum við hann en við vorum. — Fyrir hverja ívilnun, sem þeir veittu spönsku fasist- unum, tóku þeir ríkulega borgun. Á hinn bóginn höf- um við ekki fengið neitt endurgjald fyrir marga skipsfarma af mat, olíu eða lán, sem við höfum veitt þeim. Að minsta kosti verðum við að vera reiðubúnir við því að reiða til höggs og hershöfðinginn ætlar að fylgja því vel eftir, þegar grípa til vopna. Udet flugkappi Sjálfsæfisaga. Hersteinn Pálsson þýddi. ísafold- arprentsmiðja h.f. gaf út. Það er viðurkent, að styrjaldir geti haft áhrif til góðs, að því leyti, sem þær þroska tæknina venjulega mikið, eins og raun varð á í heimsstyrjöldinni fyrri, og þegar er farið að sjást í þessari. Á þetta ekki síst við flugtæknina og er fylgst með þeim málum af miklum áhuga. Einn af þeim mönnum, sem mikið verk vann að fullkomnun flugtækni eft- ir heimsstyrjöldina og í byrjun þessa stríðs, er sá, sem þessar endurminning- ar ritar, sem nú koma út á íslensku, Ernest Udet, hinn mikli listflugmaður og or- ustuflugmaður Þjóðverja, sem altaf reyndi að koma fluginu á hærra og hærra stig, og ljet loks lífið við þær tilraunir, eftir að hafa slopp ið óskaddaður úr ótal loft- bardögum. Udet var næst sigursælasti flugkappi Þjóð verja í fyrri heimsstyrjöld, skaut niður 62 flugvjelar samtals, en Richthofen 80. Udet var alllengi í sveit Richthofens, og lýsir honum að nokkru. Einnig lenti Ud- et í bardögum við frægasta flugmann Frakka, Guyne- mer, og er sú lýsing gott dæmi riddaralegs hernaðar. Það er víst og satt, að flugmál, flugvjelar og alt sem að þeim lýtur, eiga sí- felt meiri vinsældum að fagna hjer á landi, einkum meðal æskulýðsins. Hann mun því vissulega grípa þessa bók tveim höndum, bók sem segir frá flugafrek- um í stríði og friði, lýsir lífi sem eytt var í þjónustu þess mikla framtíðarmáls. Hersteinn Pálsson hefir leyst þýðinguna mjog þokka lega af hendi, og útgáfan er snotur. B. Sjötug Guðlaug GUÐLAUG er fædd í Auðsholti í Biskupstung- um 2. september 1873. For- eldrar hennar voru Hró- bjartur Jónsson og kona hans Elín Jónsdóttir, sem lengst bjuggu í Austurkoti í Hraungerðishreppi og síð- ast í Oddgeirshólum í sömu sveit. Hófu þau búskapinn efnalaus og ómegðin hlóðst á þau ár frá ári og alls urðu börnin 13. Má því nærri geta, að oft hefir verið þröngt í búi hjá þeim, með sinn stóra barnahóp, á slík- um harðindaárum, er þá gengu yfir landið. En fyrir dugnað og hagsýni komst þó alt vel af og þau komu börn unum vel til manns. En er börnin fóru að stálpast og komast upp, batnaði hagur- inn óðum, svo að síðast komust þau úr kotinu á höf- uðbólið og ráku þar stórt bú, unz þau hættu búskap árið 1906. Guðlaug ólst upp hjá for- eldrum sínum og þar sem hún var elst systkinanna, má nærri geta, að snemma hefir hún farið að hjálpa til við heimilisstörfin. Og með því henni var gefið þrek og kjarkur foreldranna, varð þeim brátt mikill styrkur að henni, enda vann hún hjá þeim fram undir þrí- tugsaldur, en þá varð hún vinnukona á Kiðjabergi í Grímnesi og hefir nú verið þar í rúm 40 ár. Öll störf sín, frá því fyrsta, hefir hún stundað með framúrskarandi dugn- aði og alúð og trúmenskan og áhuginn hefði ekki getað verið meiri, þó hún hefði verið að vinna fyrir sjálfa sig. Hún var ung kölluð til starfs og hún lætur enn lítt á sjá og tekur altaf daginn snemma, hún kann ekki öðru, meðan heisa og fjör endist. Og þó að störfin hafi verið ærin heima fyrir, þá hefir hún þó með glöðu geði komið til hjálpar á margan bæinn, þegar veik indi eða aðrir erfiðleikar hafa drepið þar á dyr, og Hróbjartsdóttir mannfátt hefir verið heima j fvrir eins og nú er víðast í . sveitum landsins. Hún hef- I ir ekki talið þetta eftir sjer, þó aldurinn sje orðinn hár, hennar lífsspeki hefir ver- ið að lifa til að vinna og láta gott af sjer leiða. Þeir eru því áreiðanlega margir í dag, sem hugsa með hlýjum og þakklátum huga til afmælisbarnsins og óska því heilla og blessun- ar. Af þakklátum huga óska jeg þjer til hamingju og að æfikvöldið verði bjart og , fagurt. Nýtt met í 60 m. hlaupi Á Innanfjelagsmóti K.R. í fyrrakvöld setti Jóhann Bernhard nýtt met í 60 metra hlaupi. Rann hann skeiðið á 7,1 sek. og er það 0.1 sek. betra en met Olivers Steins frá því fyr í sumar. Úrslit hlaupsins urðu annars þessi: 60 metrar: 1. Jóh. Bernhard 7,1 sek. 2. Brynj. Ingólfss. 7,2 — 3. Þór Þormar . . 7,4 — 4. Hj. Kjartanss. 7,4 — í undanrásunum setti Bragi Friðriksson nýtt drengjamet — 7,4 sek. — Það gamla var 7,6 sek. sett af Gunnari Huseby 1941. yOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓ/ X - 9 )ooooooooooo<x>oooooooo<c>ooooo Eftir Robert Storm OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO / TAKE ME ro THE OSEESING-KOOM WHE/2E 7HE &OPV 'AS FOUND.I Alt er í uppnámi í leikhúsinu, þegar upp kemst um X-9: -*■ Augnablik! Segið stúlkunum að halda æí- mig sjá, hvar herbergið er. morðið. Leikkonurnar hrópa hver í kapp við aðra. ingunni áfram. Enginn má fara úr leikhúsinu. Látið Leikhússtjórinn: — Hver eruð þjer? Ó, já.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.