Morgunblaðið - 02.09.1943, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 2. sept. 1943
Fimm mínútna
krossgáía
Lárjett: 1 handtekur — 6 í-
þróttaráð — 8 haf (þf) — 10
íverUhús (þf) — 11 ónot — 12
tveir eins — 13 leikfjelag — 14
hreyfing — 16 bjartar.
Lóðrjett: 2 keyri — 3 fuglar
— 4 ending — 5 stafurinn — 7
búnar góðum hæfileikum — 9
hlass — 10 mismunur — 14 eign-
ast — 15 guð.
I.O.G.T.
ST. FRÓN NR. 227.
Fundur í kvöid kl. 8 l/>-
Kosning ertbættismanna
og víg.-.la. — Ferðasögur
og fle ra.
Tilkynning
HJÁLPRÆÐISHERINN
Samkoma í kvöld kl. 8V£.
Allir velkomnir.
FILADELFÍA
Samkoma í kvöld kl. 81/2-
Ingebregtsen og. fl. tala.
Vinna
SIÐPROÐ stúlka
óskast í vist frá 15. sept.
eða 1. okt. Uppl. Óðinsgötu
10 niðri.
HREINGERNINGAR
Byrjaður aftur. Símj 5395,
Jónatan. —
Kaup-Sala
TVEIR DJÚPIR STÓLAR
sem nýir, til sölu. Uppl.
4—6 í dag Hringbraut 30.
T.JÖLD
SIJLUR
Verbúð 2.
Símí 5840.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. —
Sótt heim. Staðgreiðsla. —
Sími 5691. Fornverslunin
Grettisgötu 45.
♦I**!**************!**!**!**!***4^**********^********!*****!*****!**!
Tapað
PENINGAVESKI
hefir tapast, með ökuskír-
teini, vegabrjefi o. fl. Vin-
samlegast skilist á Aðal-
stöðina gegn fundarlaun-
um.
k~:~:~:~:~:~:~:~:~:~:~:~:~:~x~:~:~:~:~:~;~>
Húsnæði
Stúlka óskar eftir
HERBERGI NÚ ÞEGAR
eða 1. okt. Upplýsingar í
síma 5413 eftir kl. 8 í
kvöld.
245. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 7.45.
Síðdegisflæði kl. 20.03.
Næturlæknir í læknavarð-
stofunn.. Sími 5030.
I. O. O. F. 5=125928% =
Sextugur er í dag Kristján
Magnússon skipstjóri, Braga-
götu 22.
Bjami Gestsson bókbindari,
Laugaveg 48 verður fertugur
í dag.
Hjónaband. I dag verða gef
in saman í hjónaband ungfrú
Aðalbjörg Ingólfsdóttir, Sel-
vogsgötu 6, Ilafnarfirði og
Ragnar Björnsson frá Vopna-
firði. Heimili þeirra verður
Selvogsgata 6, Hafnarfirði.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Sólborg Guðmundsdóttir, Sel-
vogsgötu 24, Hafnarfirði og
Óskar Ilafnfjörð Auðunsson,
Austurg. 7, Ilafnarfirði.
Hjónaefni. S.l. laugardag
opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Uelga Jónsdóttir frá Akra
nesi og Jón Þórarinsson,
Hverfisgötu 98A Reykjavík.
Ólafur Sigurðsson fram-
færslufulltrúi hefir sagt lau.su
starfi sínu, og hefir fram-
færslunefnd samþykt að veita
honum lausn frá 1. þ. m. Sveini
II. Jónssyni hefir fyrst um
sinn verið íalið að gegna
starfi Ólafs.
3. flokks mótið heldur á-
fram í kvöld kl. 6.45, og keppa
þá Víkingur og KII, en kl.
7.45 keppa KR og Valur.
Kvenfjelagið Hringurinn
heldur kvöldskemtun í Gamla
Bíó annað kvöld, og hefst hún
kl. 23.30. Guðmundur Jónsson
syngur með undirleik Einars
Markússonar, sjónhverfinga-
inaður sýnir listir sínar og
Einar Markússon leikur ein-
leik á píanó. Allir listamenn-
irnir gefa vinnu sína, og ágóð-
inn rennur til væntanlegs
barnaspítala í Reykjavík. —
Vafalaust verður skemtunin
f.jölsótt.
Náttúrufræðifjelagið ráð-
gerir fræðsluferð að Úlfljóts-
vatni í Grafningi ó laugardag-
inn kemur. Lagt, verður af
stað kl. 3 e. h. og komið aftur
á sunnudagskvöld. Þátttak-
endur eiga að hafa með sjer
svefnpoka og nesti.
Gjafir til heilsuhælissjóðs
Náttúrulækningafjelags Is-
lands: Guðný II. Guðbjörns-
dóttir 50 kr. Guðrún Jónsdótt-
ir 25 kr. Halldóra Sigurjónsd.
10 kr. Frú M. B. 10 kr. Frú
Elísabet Göhlsdorf 50 kr.
Indriði Waage 50 kr. Berg-
þóra Magmisdóttir 100 kr.
Auður Jónasdóttir 50 kr. Ed-
mund Eiríksen 100 kr. Ó-
nefndur 25 kr. Sigurl. M. Jón-
asdóttir Íj0 kr. Sigríður Ein-
arsdóttir 10 kr. Erla Einars-
dóttir 5 kr. Birna Elíasdóttir
5 kr. Guðbjörg Eiríksdóttir
10 kr. Ófeigur Guðmundsson
10 kr. Gottfred Ilaraldsen 10
kr. Þóra Kr. Jónsdóttir 5 kr.
Agnes Davíðsson 10 kr. Sig-
rún Gísladóttir 5 kr. Kærar
þakkir f. h. N. L. F .í. Matt-
hildur Björnsdóttir. Athugið,
að gjöfum og áheitum er veitt
móttaka á eftirfarandi stöð-
um : Versl. Matthildar Björns-
dóttur, Laugav. 34, Versl.
,,Goðafoss“, Laugav. 5, Versl.
,,Selfoss“, Vesturg. 42.
ÚTVARPIÐ í DAG:
19.25 Þingfrjettir.
19.40 Lesin dagskrá næstu
viku.
20.20 Útvarpshl.jómsVeitin
(Þórarinn Guðmundss. st.jórn
ar) : a) Cirkus-prinsessan eft
ir Kalman. b) Czardas eftir
Grossmann.
20.50 Minnisverð tíðincli (Jón
Magnússon fil. kand.).
21.10 1 Iljómplötur: Tónverk
eftir Sibelius.
21.30 „Landið okkar“. Spurn-
ingar og svör.
r
Amerískur Islands
vinur ferst í
flugslysi
SÁ UM NÁMSTYRKI
ÍSLENDINGA VIÐ
AMERÍSKA HÁSKÓLA
MEÐ innilegri hlut-
tekningu tilkynnir yfir-
miaður Upplýsingadeildar
Bandaríkjanna á íslandi
andlát Roberts H. Rand.
Það var Mr. Rand, sem á
samt Thor Thors, sendi-
herra íslands, og Dr. Paul
Douglass, forseta Háskóla
Bandaríkjanna í Washing-
ton, D.C., sá um náms
styrki þá, sem 9 íslenskir
námsmenn njóta nú við há-
skóla í Bandaríkjunum.
Mr. Rand ljest, er flug-
vjel hrapaði hjá Allahabad
í Indlandi síðastliðinn
laugardag. ( Undanfárna
mánuði hafði hann verið
yfirmaður Upplýsingaskrif
stofu Bandaríkjanna í Cal-
cutta.
Mr. Rand átti marga
kunningja meðal íslend-
inga bæði í New York og
Washington, vegna starfs
síns í þágu vináttutengsla
milli Bandaríkjanna og ís-
lands.
Hann var meðal efnileg-
ustu yngri blaðmanna
Bandaríkjanna Hann læt-
ur eftir sig foreldra á lífi.
Námsstyrkjunum, sem
Mr. Rand sá um, var ný-
lega úthlutað af Mennta-
málaráði íslands. Þeir
styrkja 19 íslenska náms-
menn til framhaldsnáms
við: Háskóla Bandaríkj-
anna, Suður-Californiu-
skólann í Los Angels, Cal..,
Boston-háskólann í Massa-
chusetts, Brown-háskólann
í Providence, Rhode Is-
land, Southern-Methodist-
háskólann í Dallas, Texas,
Northwestern háskólann í
Evanston, Illinois, og Wis-
consin háskólann, Madison,
Wisconsin.
AUGLÝSING ER
GULLS ÍGILDI
SIF ÞÓRZ DANSAR
Á AKUREYRI.
Frá frjettaritara
vorum á Akureyri
Ungfrú Sif Þórz, sem nú
er stödd á Akureyri, hafði
þar listdanssýningu í gær-
kvöldi í samkomuhúsi bæj-
arins.
Áhorfendur, sem voru
svo margir að húsið var
troðfullt, hyltu listakonuna
mjög fyrir ágæta skemt-
un. og bárust henni blóm
upp á danssviðið.
Frú Þyri Eydal var við
hljóðfærið, en Jón Norð-
fjörð kynnti dansana.
DÖNUM
SÝND SAMÚÐ
FJELAGIÐ ,,Dannebrog“
samþykkti á fundi sínum 1.
þ. m. eftirfarandi ályktun:
„Fjelagið lýsir fylstu sam
úð sinni með Hans Hátign
konunginum og með „Frjáls
um Dönum“ í Washington
og London.“
Kennslp í barnaskólum
bæjarins fyrir börn á aldr-
num 7—-10 ára hefst 10.
sept.. en fyrir hin börnin
1. október. Skólarnir munu
allir vera fullskipaðir og
meira en það.
— Danmörk
Framh. af 1. síðu.
drunurnar heyrðust yfir
Eyrarsund til Svíþjóðar.
Flugvjelamergðin var jafn
mikil yfir Höfn þá nótt. eins
og innrásarmorguninn 9.
apríl 1940. í Svendborg, þar
sem fjellu eða særðust sam
tals 450 Danir, tóku óbreytt
ir borgar þátt í bardagan-
um með hermönnunum, og
börðust af sama ákafa og
hermenn væru. Heyrst heir
að við hermannaskálann í
Jægersborg hafi 3 stórar og
11 minni þýskar brynvarð-
ar bifreiðir verið eyðilagðar
í bardaganum, er þar var
háður.
FLÓTTINN TIL
SVÍÞJÓÐAR.
Enn eru flóttaskip að koma.
frá Danmörku til Svíþjóðar.
Til Ilöganás kom 300 tonna
skip með 50 hermenn og 7 ó-
breytta horgara. Til Málmeyj-
ar komst tundurspillir gegn-
um þýskt tundurduflasvæði.
Mörg dönsk skip, sem voru
í förum milli Þýskalands og
Danmerkur, fengu tilkynn-
ingu um það í tíma að sigla til
Svíþjóðar.
BEST AÐ AUGLÝSA I
MORGUNBLAÐINU
* Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að
dóttir okkar,
ÓLÖF SIGRÍÐUR,
andaðist 1. þessa mánaðar.
Ingibjörg Sigurðardóttir og
Kristófer Kristófersson.
Konan mín og móðir okkar',
ESTIVA BJÖRNSDÓTTIR,
andaðist að heimili okkar ÞingeyrJ 31. ágúst.
Guðmundur J. Sigurðsson og börn.
Maðurinn minn,
JÓN JÓNSSON,
bóndi að Vestra-íragerði á Stokkseyri andaðist
að heimili sínu 1. þ. m.
Guðný Benediktsdóttir.
Jarðarför ömmu minnar,
GUÐNÝAR H. BRIEM,
fer fram frá dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn
2. september kl. 1,30.
Björn Haraldsson.
Innilegar þakkir vottum við öllum þeim, er
sýndu samúð og hluttekningu við andlát og jarð-
arför móður okkar. tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR,
sjerstaklega fyrverandi samsveitungum hennar,
Ölfusingum.
Aðstandendur.
Innilegt þakklæti til ættingja, vina og allra
fjær og nær fyrir auðsýnda samúð og vinsemd
við hið sviplega fráfall og jarðarför mannsins
míns og föður,
ÞÓRARINS BERNÓTUSSONAR.
Fyrir mína hönd, dóttur og annara vandamanna,
Rósa Árnadóttir'.
Kirkjuveg 39, Vestmanaeyjum.